Dagur - 20.03.1940, Blaðsíða 2
48
D A G U R
12. tbl
Alþingi þwrSí-
ar ú( árásina á
bændastéttina.
Ffárveiling anefnd
hefic breytt ffádagafrv.
fjármálacáðheiranB til
samræmis við núgild-
undí fjárlög og hœkkað
framlög til landbún*
aðarins.
Fjárveitinganefnd hefir fyrir
nokkrum dögum skilað tillögum
sínum og áliti um fjárlagafrum-
varpið fyrir 1941. Hefir nefndin
haft óvenjulega hraðar hendur og
lokið starfi sínu á hálfum mánuði.
Sigla nú fjárlögin hraðbyri gegn-
um þingið.
í áliti sínu kemst fjárveitinga-
nefndin að þeirri niðurstöðu, að
réttast sé að „fjárlagafrumvarpið
verði, hvað snerti hinar tölulegu
niðurstöður, afgreitt í svipuðu
formi og fjárlög þau, sem nú
gilda.“ En eins og kunnugt er, vék
fjármálaráðherra allmjög frá þeim
í frumvarpi sínu. Störf nefndar-
innar voru því aðallega í því fólg-
in að breyta frv. fjármálaráðherra
til samræmis við núgildandi fjár-
lög.
Aftur á móti leggur nefndin til,
að ríkisstjórninni verði heimilað,
sökum óvissunnar um tekjuöflun-
armöguleika ríkissjóðs á næsta
fjárhagsári, „að lækka útgjöld rík-
issjóðs, sem ekki eru bundin í
öðrum lögum en fjárlögum, eftir
jöfnum hlutföllum um allt að
35%, ef hún telur sýnilegt, að á-
hrif styrjaldarinnar verði þess
valdandi, að tekjur ríkissjóðs
lækki verulega“. í frv. fjármála-
ráðherra og núgildandi fjárlögum
hefir stjórnin heimild til að lækka
þessi útgjöld um 20%.
Af breytingatillögum nefndar-
innar leiðir, að bæði tekju- og út-
gjaldabálkurinn hækka að veru-
legum mun frá því, sem áætlað
var í frv. fjármálaráðherra.
Hækkunartillögurnar við gjalda-
bálkinn eru í aðalatriðum á þessa
leið:
Þús. kr.
Samgöngumál 260
Kirkju- og kennslumál 51
Verklegar framkvæmdir 666
Eignabreytingar 30
Aðrar hækkanir 9
Hækkunin til samgöngumála
liggur aðallega í því, að framlag
til flestra nýrra akvega er aukið
og bætt við nokkrum nýjum veg-
um.
Hækkun til kirkju- og kennslu-
mála er m. a. fólgin í nýju fram-
lagi til stofnkostnaðar héraðs-
skóla.
Hækkanir til verklegra fram-
kvæmda eru aðallega fólgnar í
því, að framlög til landbúnaðarlns
eru færð til samræmis við það,
sem áætlað er í núgildandi fjár-
lögum, en eins og kunnugt er,
lækkaði fjármálaráðherra sum
þeirra stórlega. Þó gerir nefndin
ráð fyrir, að framlagið vegna jarð-
ræktarlaganna verði áætlað
nokkru lægra en í fjárlögum
þessa árs, en 150 þús. kr. hærra
en í frv. fjármálaráðherra. Fram-
lög til endurbyggingasjóðs, ný-
býlasjóðs og byggingar- og land-
námssjóðs áætlar nefndin hin
sömu og í núgildandi fjárlögum.
Kostnaðinn við fjárpestina áætlar
hún 655 þús. kr., eða 150 þús. kr.
hærri en gert var ráð fyrir í frv.
fjármálaráðherra. Framlög til
frystihúsa, sem fjármálaráðherra
felldi niður, áætlar hún 30 þús. kr.
í stað 36 þús. kr. í núgildandi fjár-
lögum. Framlag til fyrirhleðslu
vatnsfalla í Rangárvallasýslu, sem
fjármálaráðherra felldi niður, á-
ætlar nefndin 52.500 kr. eða hið
sama og í núgildandi fjárlögum.
Stærsta sparnaðartillaga nefnd-
arinnar er að áætla dýrtíðarupp-
bót til embættismanna 350 þús. kr.
í stað 500 þús. kr. í frv. fjármála-
ráðherra.
Allir nefndarmenn skrifuðu
undir álitið fyrirvaralaust.
Nokkur orö um kálmaðkion.
Skaðadýr það, sem í daglegu
tali nefnist kálmaðkur, hefir gert
vart við sig á allmörgum stöðum
í Eyjafirði og valdið talsvert
miklu tjóni í görðum, og hefir
mönnum reynzt erfitt að verjast
áhlaupum hans.
Eg átti um þetta tal við nokkra
bændur þar, og hafa þeir beðið
mig að gefa ráð, sem að gagni
gæti komið í viðskiptunum við
óvætt þenna. Eg vil því biðja
Dag fyrir örfáar línur, þar sem
eg leitast við að gefa upplýsingar
þessu varðandi.
Til þess að geta stemmt stigu
fyrir maðkinum verður maður að
þekkja lifnaðarhætti hans ofur-
lítið.
Kálmaðkurinn er lirfa flugu
þeirrar, er kálfluga nefnist. Verpir
hún eggjum sínum á plöntur inn-
an krossblómaættarinnar, svo sem
kál, gulrófur og næpur. Fluga
þessi er fremur lítil, jarðargrá að
lit og verpir eggjum sínum í rót-
arháls plantnanna rétt undir yfir-
borði moldarinnar. Úr eggjunum
kemur svo hinn fyrrnefndi maðk-
ur, sem síðan grefur sig inn í rót-
ina og getur þannig valdið mjög
miklu tjóni.
Kálflugan verpir eggjum sínum
í maí og fram í júní, og sjáist hún
á sveimi um þetta leyti, verður
þegar að hefjast handa.
Af meðölum þeim, sem hafa
drepandi áhrif á maSkinn, má
Sá sem borðar
mjólk og
er þolnastur og
stekkur lengst.
nefna t. d. karbólsýru og lýsól. Þá
hefir einnig súblímat upplausn, 10
gr. í 10 1. vatns, verið notað með
allgóðum árangri. Á seinni árum
hafa menn utanlands byrjað að
nota naftalíne, annað hvort sem
duft, hverju þá er stráð yfir garð-
inn, eða hálfhring-myndaðar
plötur, sem þá tvær og tvær eru
lagðar utan með plöntunni ofan-
jarðar. Sóda eða salt, sem stráð
er á milli plantnanna, hefir reynzt
góð bót í mörgum tilfellum. Þá er
efni þessi verða fyrir áhrifum
vatns, leysast þau upp og drepa
maðkinn.
Nýr húsdýraáburður í stórum
stíl í kál- og rófugarða hefir
reynzt óheppilegur, að því leyti,
að hin sterka lykt hans hænir
fluguna að.
Mörgum hefir reynzt vel, þar
sem rófum eða káli er sáð, að strá
kalksaltpétri yfir rennuna, áður
en plönturnar koma upp. Þá ber
mönnum að varast að rækta kál
eða rófur í fleiri ár í þeirri jörð,
þar sem kálmaðksins hefir orðið
vart. Koma sáðskipti því hér eins
og annarsstaðar að góðum notum.
Það athugist, að kálgarðurinn
verður undir þeim kringumstæð-
um að flytjast góðan spöl frá
þeim stað, er hann var áður, af því
að öðrum kosti fylgir flugan eftir.
Kálmaðkurinn, þetta afkvæmi
kálflugunnar, lifir yfir veturinn í
rótum eða blöðum hinna sýktu
plantna. Hafa menn orðið að
ganga svo langt að brenna upp
allar plöntur í görðum sínum og
á annan hátt drepa maðkinn, sem
orðinn var óviðráðanlegur.
Þetta, sem eg hefi sagt, bið eg
menn að athuga, og vona eg, að
eitthvað af því geti orðið til
hjálpar við að ráða niðurlögum
kálmaðksins.
Bjarni Fanndal Finnbogason.
Zíon: Á skírdag og föstudaginn
langa kl. 8.30 e. h. almennar sam-
komur. Á páskadag kl. 10.30 f. h.
barnasamkoma. Kl. 8.30 e. h. al-
menn samkoma. Gunnar Sigur-
jónsson cand. theol. talar. Allir
velkomnir.
I* með húsgögnum, og
helst fæði á sama stað,
óskast um mánaðartíma (maf-mánuð)
fyrir tvo skólapilta. — Uppl. gefur.
SigurfSur O. Bjðrnsson
Símar 4 5 og 3 7 0.
Dálitið af
ióðorsíld
til sölu hjá
Guðbjarti bdlasmið.
Afvinna:
Afgreiðslumann vantar á
Nýju Bílastöðina frá 1. maí
n. k. Umsóknarfrestur til
1. apríl.— Allar nánar upp-
lýsingar gefur undirritaður.
Sími 218. F. h. N. B. S.
Akureyri 19. matz 1940.
Jón Pétursson.
Á Landsmóti skíðamanna 1940,
sem hefst hér á Akureyri á Skír-
dag, mun Kvenfélagið Framtíðin
hafa veitingar í tjaldi, heita
mjólk, brauð o. s. frv., skammt frá
keppnissvæðinu, ennfremur ann-
ast félagið veitingar á kaffi o. fl.
á búgarði Jakobs Karlssonar,
Lundi. Mun þetta eflaust koma
sér vel fyrir alla þá, sem sækja
hinar fjölbreyttu keppnir lands-
mótsins, og á kvenfélagið Fram-
tíðin þakkir skilið fyrir að hafa
tekið að sér forgöngu um lausn
þessa máls. Þá ætti það einnig enn
frekar að vera bæjarbúum hvöt að
nota sér þægindi þessi, þar eð all-
ur ágóði greiðasölunnar rennur til
sjúkrahússbyggingarinnar hér.
Trúlofiin sína hafa opinberað
Steingrímur Níelsson, Æsustöðum
og ungfrú Sigríður Pálmadóttir,
Gnúpafelli.
■flflfflfffffffffffffffg
"* Skíði,
E
2
Skíðastafir, «S
Skíðaáburður m
Kaupfélag Eyfirðinga.
Járn- og glervörudeild.