Dagur - 18.04.1940, Side 1

Dagur - 18.04.1940, Side 1
DAGUR kemur ít á hverjum fimmtudsgi Kostar kr. 6.00 áig. Gjaldk. Arni Jóhannsson ' Kaupfél. Eyfirðinga. Gjaldd. fyrir 1. júlí. AFGREIÐSLAN er hjá Jóni Þ. Þór, Norðurgötu 3. Tal- sími 112. Uppsögn, bundin við áramót, sé koinin til afgreiðslu- manns fyrir 1. des. XXIII ■ árg.j Akureyri 18. apríl 1940 P 16. tbl. Noregur er nú orðinn einn vett- vangur ófriðarins. Þýzki herinn sækir fram í Suður-Noregi og hefir Oslo og fleiri á staði á valdi sínu, en Norðmenn verjast fram- rás Þjóðverja af fyllstu getu og hafa stöðvað hana á sumum stöð- um. Bretar unnu stórsigur á þýzka hernum í Narvík og sökktu öllum tundurskipum Þjóðverja þar. Auk þess hafa Bretar sett lið á land á nokkrum stöðum í Noregi og hefir það sameinazt norska hernum. Eru víða hörð átök þar í landi. Leppstjórnin í Oslo er farin frá völdum. Sjóorustur miklar hafa geisað á Norðursjó, Skagerak og Kattegat, og segjast Bretar hafa sökkt og eyðilagt verulegan hluta af þýzka flotanum, bæði herskipum og flutningaskipum. Þá segjast Bret- ar hafa lagt tundurdufl fyrir ströndum Þýzkalands á svæðinu frá landhelgi Hollands til Lithau- en og á þann hátt girt fyrir sigl- ingar milli Þýzkalands og Skandi- Frá karla- kórnum „Geysi“. Síðasta gleðikvöld kórsins verð- ur í Samkomuhúsinu miðvikudag- inn fyrir sumar (24. apríl). Til skemmtunar verður sjónleikur eftir Loft Guðmundsson, sem kunnur er orðinn af útvarpsleik- ritum, Davíð skáld Stefánsson frá Fagraskógi flytur ræðu, „Geysis“- „revía“ nýsamin, og síðast en ekki sízt, eldfjörugur dans. Eins og sjá má, verður þetta ein- sfakt tækifæri til þess að létta sér upp og verða þeir, sem vilja vera með, að vitja aðgöngumiða í bóka- verzlun Þorsteins Thorlacius á miðvikudag. Skemmtimin hefst kl. 10 e. h., og eru menn beðnir að athuga að mæta stundvíslega, þar sem hús- inu verður lokað strax og fyrsta skemmtiatriði byrjar. navíu. Enn hafa Bretar tekið Fær- eyjar og sett þar upp flotastöðvar og flughafnir. Segjast þeir skila eyjunum aftur í hendur Dana, þegar þeir verði lausir undan yf- irráðum Þjóðverja. Nokkur óánægja hefir brotizt út meðal dönsku þjóðarinnar út af yfirráðum Þjóðverja þar í landi og vegna aðgerðaleysis danska hersins. Mun sú óánægja hafa magnazt vegna vitneskjunnar um hina eindregnu mótspyrnu Norð- manna. Danska stjórnin leitast við að kæfa þessa andúð gegn Þjóð- verjum niður. Getgátur eru um að Þjóðverjar 'muni ráðast inn í Svíþjóð. Svíar eru við öllu búnir og hervæðast af kappi. Hafa þeir tilkynnt, að þeir haldi fast við hlutleysi sitt og séu viðbúnir að verja það af ýtrustu kröftum. Takmark samvinnunnar. Takmark samvinnunnar er að fá unnin þau gagnlegu störf, sem milliliðirnir inna af hendi ábyrgð- arlaust, sjálfum sér til gengis, fá þau unnin fyrir sanngjarnt kaup, á ábyrgð og undir eftirliti framleið- endanna sjálfra. Samvinnan er þannig uppreisn framleiðenda gegn milliliðum, fá- tæklinga gegn auðmönnum, steðj- ans á móti hamrinum. En hún er ekki villt upphlaup hamslausra manna. Hún er þvert á móti heimsvíðtæk barátta, háð með stillingu, festu og gætni, háð til að bjarga ávöxtum vinnunnar, svo að þeir megi koma þeim að notum, sem til hafa unnið. Hún er til þess stofnuð, að í fyrsta sinn á ævi mannkynsins megi þeir, sem skapa daglega brauðið, neyta þess, að þeir, sem klæðin gera, megi hafa klæði, að þeir, sem fæða þá, sem skapa listir og vís- indi, megi bera skyn á og njóta þessara gæða menningarinnar. Samvinnan er dýrðleg hugsjón, ein hin göfugasta sem íslendingur getur unnið fyrir, því að þar er- um við að bjarga þjóðinni og eft- irkomendum okkar. Við ættum að skilja aðstöðuna. Nógu lengi höf- um við fundið þung og ómannleg högg milliliðanna, dönsku einok- unar- og selstöðukaupmannanna og eftirmanna þeirra sumra, út- lendra og innlendra, sem haldið hafa okkur í fátækt, kunnáttu- leysi og almennri niðurlæging. En eitt má ekki gleymast. Sam- vinnan getur ekki orðið happa- sæl, nema hún sé milli þroskaðra, vel uppaldra manna. Þess vegna verður hver sú þjóð, sem sér vill bjarga með samvinnu, að gera uppeldið að aðalvopni sínu, Án þess er samvinnan andvana fædd, líkari til að verða til ills en góðs. (Vordagar, eftir J. J. bls. 63— 64). Bækur. Jónas Jónsson. VORDAGAR III. bindi. Útg. Samband ungra Framsóknarmanna. í þessu bindi af ritgerðasafni Jónasar Jónssonar birtast helztu greinarnar, er hann reit í blað ungmennafélaganna, Skinfaxa, á árunum 1911—1916, en á því tímabili var J. J. ritstjóri þess blaðs. Auk greinanna í Skinfaxa birt- ast þrjár ritgerðir J. J. frá eldri tímum. Hina fyrstu þeirra reit J. J. 19 ára gamall, og er það burt- fararprófsritgerð frá gagnfræða- skólanum á Akureyri, og hlaut hún mikið lof kennaranna. Önn- ur þessara ritgerða er um lýðhá- skólann í Askov, þar sem J. J. hafði stundað nám, og birtist hún í Eimreiðinni 1909. Þriðja ritgerð- in er inngangur að alllöngum greinarflokki, er J. J. reit um út- gáfu á erlendum glæpamannasög- um. Birtist greinaflokkur sá í Ing- ólfi haustið 1909. Skinfaxagreinarnar fjalla um margvísleg efni, og er þeim raðað niður í flokka eftir efninu. Fyrst er greinaflokkur um ungmenna- félagsmál, þá ritdómar; síðan kemur greinaflokkur, er nefnist Dagarnir líða, næst gi’einar um fagra náttúru og listir, þá grein- arnar um filistea, en svo nefnir höf. þá menn, sem leika þá list að hafa fé af öðrum á löglegan en siðíerðislega rangan hátt. Þá eru ritgerðir um uppeldi og skólamál, er ná yfir rúmar 50 bls., og loks greinar um félagsmál og stjórn- mál, er taka nálega jafnmikið rúm. Alls er bókin 248 bls. að stærð, í sama broti og Merkir samtíðar- menn eftir sama höfund. Formála að bókinni hefir skrif- að Þórarinn Þórarinsson ritstjóri. Mynd af J. J. fylgir, eins og hann leit út, þegar hann var á þrítugs- aldrinum. Áður en J. J. gekk í þjónustu ungmennafélaganna og gerðist rit- stjóri Skinfaxa, hafði hann dvalið svo árum skipti í Danmörku, Bretlandi og Frakklandi sér til náms og menningar, þó félítill væri, og drukkið í sig mál og bók- menntir þeirra þjóða, er þessi lönd byggja, einkum Breta. Hann var því búinn að afla sér víð- tækrar þekkingar, þegar hann kom fram á ritvöllinn, enda bera Vordagar þess vott, að þar er eng- inn meðalmaður, sem heldur á pennanum. í svo að segja hverri setningu lýstur upp gneistaflugi hugsjónamannsins og brautryðj- andans, sem með eldlegu fjöri, viljaþreki og leiftrandi gáfum vill umbæta og umskapa íslenzku þjóðina. Öllum hlaut að vera sýnilegt, að þarna var foringja- efni á ferðinni. Svo líða tímar, J. J. gengur inn í stjórnmálalífið, skapar Framsóknarflokkinn og hefir nú um langt skeið verið áhrifamesti stjórnmálamaður þjóðarinnar. Það er vel til fundið að nefna þetta bindi af ritgerðasafni J. J. Vordaga. Þegar Skinfaxagreinarn- ar voru ritaðar, var að vaxa upp vorgróður í þjóðlífinu með byrj- unarstarfi Jónasar Jónssonar. Síð- an hefir sá vorgróður tekið eðli- legum, jöfnum þroska og er nú orðinn að þeim kjarngróðri, sem þolir kuldahretin. Vordagar eru undanfari sum- arsins. Kantötukór Akureyrar og' karla- kórinn „Geysir“ efna til hljóm- leika í Nýja Bíó í kvöld kl. 9, til ágóða fyrir sjúkrahúsið nýja. Er hér um svo mikilsvert málefni að ræða, að ástæðulaust ætti að vera að hvetja bæjafbúa til að skipá hvert einasta sæti í húsinu. Gjafir til nýja sjúkrahússins: Frá Kvenfélaginu „Hjálp“ í Saur- bæjarhreppi kr. 200.00 og frá Fé- lagi verzlunar- og skrifstofufólks, Akureyri, kr. 150.00. — Þakkir'. Kvenfélagið Framtíðin. Til bátverja á Kristjáni: K. D. 10 kr., N. N, 1 kr.

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.