Dagur - 24.04.1940, Blaðsíða 1

Dagur - 24.04.1940, Blaðsíða 1
DAGUR kemur lit á hverjum fímmtudegi Kostar kr. 6.00 áig. Gjaldk. Árni Jóhannsson ■ Kaupfél. Eyfirðinga. Gjaldd. fyrir 1. júlí. AFGREIÐSLAN er hjá Jóni Þ. Þór, Norðurgötu 3. Tal- sími 112. Uppsögn, bundin við áramót, sé komin til afgreiðslu- manns fyrir 1. des. XXIII • árg.| Akureyri 24. apríl 1940 Hirðisbréf biskups Biskupinn yfir íslandi, herra Sigurgeir Sigurðsson, hefir ný- lega sent hirðisbréf til presta og prófasta. Hirðisbréf þetta er 40 prentaðar síður í nokkuð stóru broti. í bréfinu segir m. a.: „Eg hefi, sem kunnugt er, gegnt prestsþjónustu í þjóðkirkju lands- ins í síðastliðin 20 ár, eða rúmlega það, og prédikað fagnaðarerindið samkvæmt því, sem mér fannst sannast og réttast, eins og eg skildi boðskap Jesú Krists í Nýja Testamentinu. Eg minnist þess ekki, að þar kæmi nokkru sinni til ágreinings um trúarskoðanir, þannig að deilur kæmu upp um trúfræðileg atriði. Eg skal játa það, að trúfræðin hefir ekki verið mér aðalatriði. Eg get þess vegna endurtekið þau orð, sem eg talaði í vígsluprédikun minni, að það er ekki meiri trúarfræði, sem okkur vantar, heldur meiri trú. Vér ís- lendingar höfum, sem betur fer, að mestu leyti komizt hjá trúar- bragðadeilum. Mér skilst, að þær hafi ekki komið miklu góðu til vegar með þjóðunum. Eg hygg, að flestir, sem um trúmál hugsa, viðvurkenni, að þær hafi oftsinnis orðið kristninni og kirkjunni til mikils tjóns. 1 þeim deilum gerð- ust oft mestu sorgaratburðir í kristninni. Það er mælt, sem rétt er, að íslenzka þjóðkirkjan sé rúmgóð og frjálslynd kirkja. — Eg tel það gæfu hinni íslenzku þjóð, hve blessunarlega hún hefir verið laus við ofstækisfulla sér- trúarflokka. Vegna hinnar frjáls- lyndu kirkju hefir frjáls hugsun í trúarefnum þróazt í þessu landi. íslenzk hugsun þolir ekki fjötur, sem betur fer“. Á öðrum stað segir biskup: — „Já, stundum fór svo, að menn sáu ekki Krist fyrir kenn- ingum sínum um hann, sáu ekki dýrð hans og fegurð og heilagleik, en sökktu sér niður í heilabrot um trúfræðina, sem þeir sjálfir höfðu búið til um hann. Þetta er því ömurlegra um að hugsa, þeg- ar það er haft í huga, að Drottinn Jesús Kristur, hinn mikli meist- ari, virðist hafa verið gjörsamlega óháður trúarsetningunum og frjáls.... Kristur sagði: „Trú þín hefir læknað þig“, eða „frelsað þig“, án þess að hafa nokkuð gert til þess að grafast eftir trúfræði- skoðunum einstaklingsins. Án efa þefir ekkert veriS honum fjær, þegar hann stóð gagnvart ein- hverjum hugsjúkum og breyskum vesaling en að spyrja hann um af- stöðu hans til trúfræðilegra at- riða eða rökræða slíkt við hann. Hann horfði inn í augu hans, skyggndist inn í sál hans, spurðl »Á Landnámu sést, að sveitin var ekki kennd við kuldann, heldur kaldann, hina sterku dægurvinda, hafgoluna og dalakaldann, sem þar skiptast um yfirráð«. Málsgrein þessa má lesa í 20. blaði „Tímans“ þ. á. í III kafla greinarinnar „Félagsþróun í 50 ár“ eftir Jón Sigurðsson í Yztafelli. Allur þorri íslenzkra staðarheita hefir verið svo haglega myndaður og varðveitzt svo vel í málinu, að enginn vafi þykir á leika, enn í dag, um merkingu þeirra og með- ferð rétta. Stafar þetta mest af því, hve lengi tungan hefir hald- izt lítt breytt í ræðu og riti. Um sveitarheiti það, er hér um ræðir, mun algengust sú ætlun manna, að uppruni þess sé aug- ljós og það kennist við lýsingar- orðið kaldur, veikrar beygingar, sem vandi er til. — Hefi eg lengst ævi minnar verið nágranni Kinn- ar í næstu sveit og aldrei heyrt efa nokkurn um nýgreinda merk- ingu nafnsins. Það mun og ýmsum hafa á óvart komið, er vitnað er til Landnámu um svo viðsjála kenn- ingu, sem tjáð er og birt í Tíma- grein þessari. Enda mun það og mála sannast, að Landnáma láti þetta heiti óskýrt á allan hátt sem önnur fleiri, þau er auðskildust eru. Væri heitið kennt við „hafgol- una og dalakaldann“, sem ekki verður séð, að einkenni Kinn, nema eins og aðrar norðlenzkar dalasveitir, myndi Landnáma ein- mitt, að líkindum, hafa látið þess getið. Heitið Kaldakinn kemur fyrir á þremur stöðum í Landnápu (bls. 160—162, útg. Sig. Kr.) þannig: „Þórir nam Kaldakinn“ „hann (þ. e. Kampa-Grímur) nam Kaldakinn í annat sinn“. Og enn í vísunni: „Hér liggr, kjóla keyrir, Kaldakinn of aldi’11. um hjartalagið — hjartaafstöðu hans til guðs og lífsins — um hugarfarið. Ef hann fann þrá í brjósti hins vesæla eða vansæla manns eftir guði og löngun tii þess að snúa baki við hinu illa og ljóta, löngun til þess að verða að nýjum og betri manni, þá fann Kristur, að sá maður var ekki fjarri guðsríkinu“. Nafnið er þar í nefnifalli, en i þolfalli á fyrri stöðunum tveim- ur. — Gæti það hafa villt greinar- höfund, að þolfallsmynd nafnsins í nútíðarmáli er oftast Köldukinn. En í ritaldarmáli var ritað Kalda- kinn, bæði í þolfalli og þágufalli. Að fornu réði sá siður um sam- sett nöfn, er höfðu lýsingarorð að hinum fyrra hluta, að lýsingar- orðshlutinn var látinn standa óbreyttur í öllum föllum. Því er eðlilegt með öllu, að Landnáma breyti ei myndinni Kaldakinn, þótt bregði til þolfalls. Þannig er og ritað í þeirri bók á bls. 164: „Þórðr Konálsson var faðir Sokka á Breiðamýri“. Það er þágufall þeirrar tíðar, þó að flestir segi nú Breiðumýri í sama falli. Ýmsir halda enn í dag svofelld- um beygingarhætti samsettra nafna. Þannig les þulur Útvarps- ins: Breiða- en ekki Breiðifjörður, sem vakið hefir umtal og valdið fyrirspurnum, en er fyllilega rétt að fornu máli. „Þórir (snepill) nam Kaldakinn --------hann nam þar eigi yndi ok fór á braut; þá kvað hann þetta: Hér liggr, kjóla keyrir, Kaldakinn of aldr, en vér höldum heilir, Hjálmun-Gautr, á braut“. Þórir mun vera höfundur þessa kalda nafns og festir það með vel gerðri vísu. Hefir honum þótt hlýrra í hnjóskdælska lundinum, er hann byggði síðan og blótaði. Hann var afi Guðríðar, er átti Þorgeir Ljósvetningagoða. — En þó að „Kinnin“ sé enn köld og veðrasöm, þá hefir hún reynzt betur en Þórir hugði, þeim er kynnzt hafa kostum hennar og fest á henni ást sína og trúnað. — Það sýnir þessi grein frænda míns í Felli, er víðast er skemmtileg og skilmerkileg. lionrið Vilhjilmsson, Gleðilegt sumar. Pökk fyrir veturinn. Loltur Mimm bóndi að Böggvisstöðum í Svarf- aðardal andaðist á sjúkrahúsi Ak- ureyrar 20. apríl, tæplega sextug- . ur að aldri. Loftur var sonur Baldvins Þorvaldssonar og Þóru Sigurðardóttur, er um langt skeið bjuggu á Böggvisstöðum stórbúi við mikla rausn. Þá er þau hættu, tók Loftur við búi og hefir búið þar um meir en fjórðung aldar og haldið vel í horfi, enda var hann önnum kafinn alla tíð og unni sér sjaldan hvíldar. Loftur var fáskiptinn og dagfars- góður dugnaðarmaður, hægur og stilltur og ekki hávaðasamur, en fastur fyrir og æðrulaus og ekki gjarn á að láta hlut sinn fyrir öðr- um þegar því var að skipta, þótt hann fjasaði ekki um slíkt. Hann var vinsæll og vinfastur og dreng- ur hinn bezti. Loftur var kvæntur Guðrúnu Friðfinnsdóttur, ágætri konu og mikilli húsmóður og lifir hún mann sinn. Varð þeim 14 barna auðið og lifa 12 þeirra, flest upp- komin, hið yngsta 12 ára. Er nú mikill harmur kveðinn að hinni stóru fjölskyldu á Böggvis- stöðum við fráfall húsbóndans. Og mörgum sveitungum hans mun nú þykja þar skarð fyrir skildi sem hann stóð, öruggur og fastur fyrir til sóknar og varnar, þótt hægt færi. En það er huggun harmi gegn, að hinn mannvænlegi ætt- leggur mun sjá um, að merkið standi þótt maður falli. S. Daníel floósíínsisson, erindreki Framsóknarflokksins, er hér á ferð um þessar mundir og heimsækir félög Framsóknar- manna í bænum og nágrenninu. Hér mætti hann á fundi, er Félag Framsóknarmanna á Akureyrl hélt í „Skjaldborg“ á mánudags- kvöldið og flutti þar stjórnmála- erindi, er mikill rómur var að gerður. Úthlutun skömmtunarseðla fer fram 27., 29, og 30. þ. m, Sveitarheitið Kaldakinn.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.