Dagur - 06.06.1940, Blaðsíða 4
Aðalfundur
Rækfunacfélags Norðurlands
verður haldinn í Oróðrarstöðinni á Ak-
ureyri laugardaginn 22. júní n. k. hefst
kl. 10 f. h.
Stfóroin.
Aðalfundur
Sambands norðlenzkra kvenna
hefst á Akureyri 28. þessa mánaðar.
Stfórnin.
♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦<
Garðyrkjusyning.
Hér með viljum við vekja at-
hygli þeirra, er framleiða garðá-
vexti, á því, að ákveðið er að
halda garðyrkjusýningu á Akur-
eyri að öllu forfallalausu um mán-
aðamótin ágúst og september n. k.
Garðyrkjumenn og aðrir, er
senda vilja garðyrkjuframleiðslu
á sýninguna, tilkynni þátttöku
fyrir 1. ágúst til Hauks Snorrason-
ar í Kaupfélagi Eyfirðinga. Gefur
hann upplýsingar sýningunni við-
komandi.
Sýningarnefndin.
♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦<
S ( r í ð i ð.
(Framhald af 1. síðu).
Frá því hefir áður verið skýrt,
að Bandamenn tóku Narvík í
Noregi úr höndum Þjóðverja. Síð-
an hefir verið barizt um járn-
brautina frá Narvík til sænsku
landamæranna og fer tvennum
sögum um þá viðureign.
Fregnir hafa borizt um, að
Þjóðverjar hafa eyðilagt mikil
verðmæti í Narvík, áður en þeir
urðu að yfirgefa hana. Síðan hafa
þeir og gert loftárás á bæinn, sem
olli miklu tjóni.
Kröfur ítölsku blaðanna á hend-
ur Frökkum og Bretum verða æ
háværari og víðtækari. Þykir nú
margt benda til þess að sú stund
nálgist, að ítalir fari að taka þátt
í hernaðaraðgerðum með Þjóð-
verjum.
B æ k u r.
(Framhald af 1. síðu).
mér varð það á, að minnast orða
Einars Benediktssonar:
Maður og hestur þeir eru eitt
fyrir utan hinn skammsýna
markaða baug. —
Um stælingu eða eftirhermu er
ekki að ræða, en þó fannst mér á
stöku stað gæta áhrifa frá Jónasi
Hallgrímssyni, eins og t. d. í þessu
litla erindi:
Hæst uppi á Arnarfellsaurum
eyrarrós faðmar grjót.
Hvönn milli breiðanna kinkar
kollinum sólunni mót.
Það er sannarlega freistandi,
að taka upp ýmislegt af því, sem
bókin hefir að bjóða, en rúmsins
vegna verður það takmarkað. Þó
get eg ekki stillt mig um að til-
færa hér nokkur erindi, sem mér
finnst einkennandi fyrir bókina
og höfundinn, eins og t. d. þetta
úr kvæðinu: Á vorin.
Hvert sumar seni fæðist um sand eg bið
sólsteiktan, skafinn í öldur. og hlið
og þegjandi öræfa þungbúinn frið
og þrautreynda félaga mína.
Þótt hafi þeir sumir hóf um fót,
en hinir orð undir tungurót,
eg þrái þá stund er við mælum oss mót,
er melar og sandar hlýna.
Og síðar úr sama kvæði:
Er melarnir hlýna og breyta um blæ
og blánar í lambagrastodda,
eg get ekki unað í byggð eða bæ
og bið ekki svefns á kodda.
Og þetta er úr kvæðinu um
Snældu, reiðhross höfundarins:
Er hýrleit þú breiðir út hrossbrosin þín,
þá hýrnar og greiðist hún ygglibrún min.
Þetta erindi úr kvæðinu: Við
Veiðivötn, lýsir ekki neinum við-
vaningshætti í ljóðagerð:
Svolítið golubarn við kinnar hvíslar,
kvakar í hinzta sinn og staðar nemur.
Qrænhöfðótt önd í víðirunni ríslar.
Rétt þar sem lindin býður mjúkar varir,
barnungur fífill rýfur reifaspjarir,
rauðgullinn, nakinn fyrir augu kemur.
Og Himbriminn, hinn fagri og
tígulegi fugl, fær fallegt kvæði:
Sem barn er hann glaður og góður,
sem glókollur lítill hjá móður,
því hlæjandi, heitur og rjóður
svo hefir hann söng um morgna
og það fyrr en daggir þorna.
Það er hans kveðja til dags.
Og söngurinn hans er hlátur
svo hjartanlegur og kátur.
Sem engiil við guðsríkis grátur
hann gætir síns fagnaðarlags.
En rétt fyrir rigningarnætur
þá rek eg mig á að hann grætur,
svo þunglyndi þyngir mér fætur
og það upp við Tungnaá.
Að síðustu get eg ekki stillt
mig um að taka hér upp síðasta
kvæði bókarinnar, sem heitir:
Kvæðin mín. Lýsir það bókinni
og höfundinum betur en eg fæ
gert:
Eins og fugl sá er lygnir og svífur
í blásanda blævi,
eins og bárur með hrimhvítum föxum
á vindroknum sævi,
fer minningin þjótandi Iangt yfir
umliðna æfi.
Eins og fugl sá, er hvílist á eyju
í eyðimörk sjóa,
eins og unglamb sem hverfur til móður
og svölun fær nóga,
eg dreymi mig þangað, sem umliðnu
atvikin glóa.
Það er staður og hvíld eftir annsama
ónæðisdaga,
það er yndi af skepnum og gróðri
í bylgjandi haga,
sem verður mér efni í kvæði, minn
söngur, mín saga.
Þessar tilvitnanir verða að
nægja. Eg óska að bókin verði
keypt og lesin með athygli af öll-
um þeim, sem unna íslenzkri nátt-
úrufegurð og hestum.
Nokkrum af kvæðunum fylgja
pennateikningar eftir Finn Jóns-
son listmálara og prýða þær bók-
ina mikið.
Mér finnst nafnið: Sandfok,
ekki gefa rétta hugmynd um inni-
hald bókarinnar. Sandfok minnir
á auðn og uppblástur, en eftir
lestur hennar vil ég líkja henni
við litauðugan gróðurblett.
Sigurður Róbertsson.
Hjúskapur. Laugardaginn 25.
maí sl. voru gefin saman í hjóna-
band að Bægisá, ungfrú Unnur
Friðbjarnardóttir frá Staðartungu
og Kristján Einarsson frá Djúpa-
læk á Langanesi.
I. O. G. T. „Brynja“ heldur fund
í „Skjaldborg“ næstk. miðvikudag
á venjulegum tíma. Frétth'. Kvæði
dagsins. Ákvarðanir um sumar-
starfið. Gönguför.
Bazar heldur kvenfél. Framtíðin
föstud. 7. þ. m. kl. 4 e. h. í Zíon,
til ágóða fyrir nýja sjúkrahúsið.
Sjómannadagurinn var hátíðleg-
ur haldinn víða um land síðastl.
sunnudag. Hér á Akureyri fóru
hátíðahöldin fram eins og áætlað
hafði verið og skýrt var frá í síð-
asta blaði.
K AUPI
notuð isl. frimerki hæsta verði.
Quðm. Guðlaugsson, Kea
Á Ijósmyndastofunni í
GRÁNUFÉLAGSGÖTU 21
getið þér fengið nýmóðins
Kombinationsmyndir
og margar fleiri gerðir, sem hvergi
fást annars staðar
Guðr. Funch-Rasmussen.
DANSLEIK
halda Væringjar að Þverá
sunnud. 9. þ. m. ki. 9.30 e. b.
Björgvin spilar-
T i 1 § ö 1 u
Gott reiðhjól (karlm.) með
bögglabera, standara, lás og
o. fl., og dynamo ef vill. —
Upplýsingar gefur
AÐALSTEINN BJARNASON,
Oddeyrargötu 12.
Ungur maður
óskar eflir iitlu
herbergi í miðbæn
um, með bósgögn-
um.
Upplýsingar i sima 4 5.
til sölu. Upplýsingar í Kea.
Jarpur hestur
9 vetra gamall tapaðist úr hög-
um í vor. Mark: Sýit, gagnbitað
h., lögg fr. vinstra. — Sá, er
kynni að verða var við hest
þennan, er beðinn að tilkynna
það undirrituðum.
Möfíruvöllum í Eyjafirði, 3, júní 1940.
Jóhann Valdcmarsson.
(Landsimastöð).
kmuikí ung kýr
óskast til kaups nú þegar.
Sfef&n fi Árgerði, GlerírpOipÍ-
Ritstjóri: Ingimar Eydal.
Prentverk Odds Bjömssonar,