Dagur - 20.06.1940, Blaðsíða 1

Dagur - 20.06.1940, Blaðsíða 1
DAGUR kemur 'U á hverjum fimmtudegi Kostar kr. 6.00 áig. Gjatdk. Arni Jóhannsson ! Kaupfél. Eyfirðinga. Gjaldd. fyrir 1. júlí. AFGREIÐSLAN er hjá Jóni Þ. Þór, Norðurgötu 3. Tal- sími 112. Uppsögn, bundin við áramót, sé komin til afgreiðslu- manns fyrir 1. des. XXIII . árg.j ♦ * m Akureyri 20. júní 1940 Hafið gát á eggjum kálflugunnar! Kálmaðkurinn olli nokkru tjóni á Akureyri og í Eyjafirði í fyrra- sumar. Eyðilagði kál og nagaði rófur allvíða. Hefir hann eflaust borizt til Akureyrar fyrir allmörg- um árum, þar eð hann er svo út- breiddur orðinn nú. — í júní—júlí verpir kálflugan litlum, hvítum. aflöngum eggjum við rótarhálsinn á káli, rófum og öðrum krossblóm- um, rétt neðan við yfirborð mold- arinnar. Eru eggin vel sýnileg með berum augum og líkjast ví- um í fiski. Úr eggjunum koma síð- an kálmaðkarnir eftir nokkra daga ef veður er hlýtt, annars eru þeir lengur á leiðinni. Kálið visn- ar og veltur um koll, einkum blómkál, því að maðkarnir naga sig inn í ræturnar. Rófur og hreðkur verða maðksmognar. Kál- maðkarnir eru fótalausir, 5—8 mm. langir, gulhvítir með tveim- ur örlitlum munnkrókum í fram- endanum. Flugan er öskugrá, lítil og líkist allmjög venjulegri húsa- flugu í útliti. Að vetrinum lifir púpan í kálleifum eða í mold. V A R N I R: Gætið oft að eggjunum við kál- stönglana, rétt undir yfirborði moldarinnar. Sjást þau oftast greinilega, ef ögn er rótað í mold- inni kringum rótarhálsinn. Þegar eggin sjást þarf að vökva vand- lega kringum jurtirnar með súb- límatvatni eða Carbolkrimpblöndu. Moldin á að blotna alveg inn að stöngli og rótum, en vökvinn má ekki koma á blöðin. 1 gr. súblí- mats leyst upp í 1 1. vatns nægir handa 10—12 jurtum. Bezt er að leysa það upp í heitu vatni, hræra vel í og láta síðan kólna. Súblímat er mjög eitrað. Það má ekki vera í málmíláti. Aldrei má vökva svo seint með því að nokkur hætta sé á að það lendi innan í kálhöfðum. Það skyldi heldur ekki notað eftir að rófur fara að myndast, því að það getur þá lent utan á berki rófanna. En í gætinna manna höndum er þetta öruggasta varn- arlyfið. Fæst í lyfjabúðum. Gœti einn eða fáir öruggir menn farið um og vökvað. Vökvun með CARBÓKRIMPI 2,5—3 g. í 1 1. vatns gerir einnig mikið gagn. kyfið er ódýrara og ekki nœrri eins eitrað og súblimat og þess vegna hentugra til almennrar notk- unar. Lyfin drepa eggin en tæp- lega maðkana sjálfa. Þess vegna þarf að vera á verði og vökva þegar eggin sjást. Venjulega þarf að vökva aftur eftir viku eða síð- ar ef eggin sjást í annað sinn. Munið að láta kaupfélag ykkar eða kaupmenn útvega varnarlyfið Hið íslenzka prentarafélag ætlar að halda upp á 500 ára afmæli Gutenbergs næstk. mánudag að Hólum í Hjaltadal, þar sem fyrsta íslenzka prentsmiðjan var reist fyrir rúmum fjórum öldum. Eins og kunnugt er, er Guten- berg talinn höfundur prentlistar- innar. Það hefir verið siður prent- ara um heim allan að halda fyrr- greindan dag hátíðlegan til minn- ingar um hann. Við þetta tækifæri ætla prent- ararnir að gefa Hólakirkju gott eintak af Guðbrandsbiblíu í for- láta skáp eða púlti. Búizt er við mjög mikilli þátt- töku prentara í hátíðahöldunum á Hólum. Ætla sunnan- og norðan- prentarar að mætast á Vatns- skarði á sunnudaginn og halda þaðan heim að Hólum. Dánardægur. María Flóventsdóttir í Barði hér í bæ andaðist 13. þ. m. að heimili sínu, tæplega 92 ára að aldri. Al- kunn sómakona. Síðastl. fimmtudag andaðist í Reykjavík frú Ingibjörg Dahl- mann, kona Jóns J. Dahlmanns ljósmyndara, myndar- og dugnað- arkona og kvenskörungur. Hún var komin á sjötugsaldur. Þau hjón voru eitt sinn búsett hér á Akureyri og mörgum að góðu kunn. Carbókrimpi í tíma. Nokkurt gagn er að því að dreifa sóti eða nafta- lmdufti umhverfis jurtirnar þegar gróðursett er og endurtaka dreif - inguna 1 sinni til tvisvar síðar. Káiið má vel verja með lyfjunum, en við stóra rófugarða borga þess- ar varnir sig alls ekki. Þar er helzt reynandi að skifta um, rækta rófurnar ekki ár eftir ár á sama blettinum heldur hafa sáðskipti. Ætti helzt að flytja kál- og rófna- reiti árlega, þar sem því verður við komið og hreinsa jurtaleifarn- ar burtu úr görðunum á haustin. Munið að líta eftir eggjunum! Ingólfur Davíðsson. Hátíðahöldin á mánudaginn hefjast með guðsþjónustu í Hóla- kirkju, og messar vígslubiskup, síra Friðrik Rafnar. Gullbrúðkaup áttu 14. þ. m. Guðfinna Sigurðardóttir og Stefán Jónsson á öndólfsstöðum í Reykjadal. Hjónaband: Ungfrú Sigríður öi- afsdóttir (Magnússonar sundkenn- ara) og Hrólfur Sturlaugsson rafvirki. Tveir brezkir hermenn biðu bana af völdum bílslyss í nánd við Rvík sl. fimmtudag. Vígsla hinnar nýju og veglegu háskólabyggingar í Reykjavík fór fram 17. þ. m. að viðstöddum full- trúum ýmsra erlendra ríkja og margra fleiri. Við þetta tækifæri var Guðjón Samúelsson húsa- meistari ríkisins gerður að heið- ursdoktor háskólans fyrir störf hans í þágu byggingarinnar. Háskólabyggingin er talin kosta 1 milj. og 600 þús. kr. Aðalfundur Eimskipafélags ís- lands var haldinn laugard. 8. þ. m. Heildarhagnaður félagsins sl. ár varð kr. 1.129.495.01. Er það um helmingi betri útkoma en árið áð- ur. Hreinn ágóði af rekstri félags- ins síðasta ár varð rúmlega 676 þús. kr. — Á fundinum var ákveð- ið að greiða hluthöfum 4% í arð. Marifló iónsson frá Uppsölum. (Lag: Kallið er komið). Klukkurnar kalla. Komnir eru englar hingað að hugga ’hinn hrellda mann, — leiða og vernda ljúfmennið góða í birtu þá, er bjó sér hann. Tregi’ er á hvörmum, táraperlur glitra barnanna’ er sýndi hann blíðuvott; — greiddi þeim götu, gaf af sínu bezta, þar allt var heiðríkt hreint og gott. Frændur og systkin, fósturbörn og vinir sakna úr sambúð hins sannreynda manns. Allt er frá Drottni. — Dómur sá var réttur. Svo fagnið lausn og frelsun hans. Því skal nú fórnað þakklætinu bezta, — tryggð þeirri og ást,. er í tárum skín. Minningu varma vinir geyma’ í hjörtum og orðstír þann, er ekki dvín. Löng var hans þjáning. Lokið er því stríði. Heilbrigði fengin og hugljúft starf. Gleðst hann hjá Guði genginn inn í fögnuð við trúrra þjóna unninn arf. K. V. MnlðslÉfluin á Akureyri var sjitið 17. júní. Að þessu sinni útskrifuðust 38 stúdentar frá skól- anum, 22 úr máladeild og 16 úr stærðfræðideild. Hæstu einkunn í máladeild hlaut Haraldur Kröyer, 7.33 stig, og í stærðfræðideild Ragnar Thorar- ensen, 7.15 stig. í vor voru 77 gagnfræðingar út- skrifaðir úr skólanum, þar af 11 utan skóla. Hæstu einkunn hafði Úlfur Ragnarsson, 7.13 stig. Hjónaband: Ungfrú Jónína Eg- ilsdóttir og Gústaf Jónsson, Bjarnastöðum í Bárðardal. Prenllisiiii 500 ára. Vegleg hátíðahöld að Hólum.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.