Dagur - 22.08.1940, Blaðsíða 1
DAGUR
kemur it á hverjuni
íimmtudegi Kostar
Ur. 6.00 áig. Gjaldk.
Árni Jóhannsson <
Kaupfél. Eyfirðinga.
Gjaldd. fyrir 1. júli.
AFGREIÐSLAN
er hjá Jóni Þ. Þór,
Norðurgötu 3. Tal-
sími 112. Uppsögn,
bundin við áramót, sé
komin til afgreiðslu-
manns fyrir 1. des.
XXIII
• *rg.j ^
Hh ■ 4*-m-
*--<»—• «*• - -»-
Akureyrí 22. ágúst 1940
T
34. tbl.
Leon Trotsky myrtur
Leon Trotsky andaðist af sárum
sínum s. 1. nótt í Mexikoborg, en
í gærdag var gerð morðtilraun á
honum á heimili hans þar. —
Vegagerðinni um Hafrárdal —
Vatnahjallaveginum — miðar vel
áfram. Frá því seint í júnímánuði
s.l., hefir félagið safnað sjálfboða-
liði um aðra hvora helgi, til að
vinna við veginn, og oftast hafa
nokkrir úr fram-Saurbæjarhreppi
komið til vinnunnar á sama tíma.
Sunnudaginn 11. þ.m. söfnuðu þeir
Eggert Stetánsson
söng í Bíó s. 1. fimmtudag með
undirleik Robert Abrahams.
Söngvarinn var ágætlega fyrir-
kallaður og greip áheyrendur þeg-
ar með fyrsta lagi — „Áfram“ (Á.
Thorsteinsson) — og fögnuðurinn
fór sívaxandi, enda söng hann
glæsilega t. d. „Hirðinginn“ (Karl
Runólfsson), „Bikarinn“ (Markús
Kristjánsson, „Heiðin há“ (Sigv.
Kaldalóns), „Sverrir konungur“
(Sveinbjörnsson); já, svo glæsi-
lega og innilega, að ég hefi enga
heyrt gera það betur. Það fara
ekki allir í fötin hans Eggerts;
hitt er annað mál, að honum eru
mislagðar hendur, og ýmislegt er
það í söng hans, sem betur mætti
fara, en kostirnir eru yfirgnæf-
andi og hann hrífur með innileik
sínum: hann lifir í því sem hann
syngur, og röddin er ágæt. Eggert
er nú að komast af léttasta skeiði
og mætti því ætla, að honum
reyndist erfitt að syngja mezzo-
voce og piano, en furðu fallega
söng hann „Mamma ætlar að
sofna“ (Sigv. Kaldalóns) og
„Draumalandið“ (Sigfús Einars-
son). Annað var síður sungið.
Eggert er há-dramatískur tenor-
barryton og einn okkar albezti,
þegar honum tekst upp, en list
skal dæma eftir því sem bezt er
gert, hinu ekki.
Undirleikur R. Abraham var
með ágætum.
Hljómleikar þessir voru sönn
andleg hressing og eftirminnilegir.
Þökk fyrir kvöldið.
Sendimenn Stalins hafa gert
margar misheppnaðar tilraunir til
þess að ráða hann af dögum á
undanförnum árum.
Garðar Sigurgeirsson Staðarhóli
og Árni Jóhannesson Þverá í
Öngulsstaðahreppi 33 mönnum úr
hreppnum til vinnu við Vatna-
hjallaveginn. Bílstjórarnir Valdi-
mar Sigurgeirsson og Eiríkur
Skaftason keyrðu hópinn. Fyrir
hönd F. F. A. fóru þeir Þorst. Þor-
steinsson og Þormóður Sveinsson
og einnig Jón Siggeirsson Hólum,
sem jafnan er verkstjóri við vega-
gerðina.
Síðastliðinn sunnudag komu 12
menn úr Hólasókn í Saurbæjar-
hreppi og 11 frá Akureyri.
Er nú búið að ryðja veg upp
aðalbrekkuna upp á Hælinn, og
er miklu hallaminna og léttara að
ryðja þar eftir.
Næsta vinnuferð félagsins er
áætluð 31. þ. m. og svo 14.—15.
sept. Ef góð þátttaka verður í
þessum ferðum, er ekki ólíklegt að
takast muni að aka upp allan
Hafrárdal, allt á fjallsbrún, á
þessu sumri.
Þeir, sem vilja veita þessu vega-
gerðarmáli lið, eru vinsamlega
beðnir að gefa sig fram við Þor-
stein Þorsteinsson Brekkugötu 43
á Akureyri.
KIRKJAN: Messað í Akureyrar-
kirkju n. k. sunnudag kl. 2 e. h.
Templarar! Unnið verður í
Skjaldborgarbrekkunni annað
kvöld (föstudagskvöld). Enn vant-
ar menn. Enn eiga margir eftir að
koma. Mætið sem flestir, eldri og
yngri;
Eldur varð laus í Miðbæjar-
skólanum í Reykjavík á mánu-
daginn, og munaði minnstu að
skólinn brynni, en slökkviliðinu
tókst að ráða við eldinn. Nokkrar
skemmdir urðu.
SÖKUM SÝNINGAR ÍSLANDS-
MYNDARIRNNAR Á AKUREYRI
í DAG, FRESTAR EGGERT STE-
FÁNSSON HLJÓMLEIKUM SÍN-
UM, og verða þeir auglýstir nán-
ar síðar,
Halldór Þorgrímsson
'yrrum bóndi á Hafrálœk og
Hraunkoti í Aðaldal,
f. 3. apríl 1861. — D. 5. júní 1940.
Helfregn nýja heyrði austan.
Hugur syrgir látinn vin,
gamlan, reyndan, trúan, traustan,
tápi gæddan skógar-hlyn,
— aldinn hlyn úr ættar-viði,
alinn þar við skin og hregg,
sem á heima-héraðs sviði
hóf frá rótum grein og legg.
Frændur syrgja dáða-drenginn
dalsins rótum sprottinn af,
mann, sem nú til moldar genginn,
minning bjarta að arfleifð gaf.
Hversdagslega hýr og glaður,
hlýr í orði og svörum beinn,
sorgum vígður sæmdarmaður
sínar raunir geymdi einn.
Vits er þörf úr vöndu að ráða,
verði leiðin grýtt og ströng.
Stilltur neytti hann dugs og dáða,
dimmdi að og brysti föng.
Gekk því út úr eldraun hverri
orðsæll drengur jafnt sem fyr.
Aldrei maður varð af verri
vopnaburði í lífsins styr.
Mat hann þjóðar gögn og gæði,
gamla sögn og nýja smíð;
lagði rækt við forna fræði,
felldi hug að eldri tíð.
Festi af tryggð í trúu minni
tímans leiftur, stunda flug.
Gengnar myndir, gömul kynni
geymdi og tjáði fúsum hug.
Gott var hjá hans arineldi
æsku þeirri, er hlýða kann,
starfs við lok á kyrru kveldi
koma í bjartan sögu-rann.
Muna börnin fegins-fundi.
Fyllir hugann minning þess,
sögu-þyrstur er eg undi
að hans knjám við lágan sess.
Kvaddur sértu af á og engi,
æskudal og vinasveit.
Minning um þig ljúft og lengi
lifa mun í hjartans reit.
Hljóðar þakkir, heitar bænir
hlúa að þinni blíðu sál.
Vonaskógar gróður-grænir
glitra þar við efsta mál.
Vorið dalinn döggvum græðir,
dreyfir geislum kæra jörð,
grænu skrúði grundir klæðir,
gæðir lífi allan svörð.
Gott er heim í ljós úr ljósi
lúnum dreng að stíga spor.
Gróa þar að al-lífs ósi
eilíf blóm og stöðugt vor.
llin nýja WHH
Iilands-
kvikmynd
M. ísl. saiioRufél.
verður sýnd í
Samkomuhúsi
bæfarins
í kvöld
fimtudag 22. ágúst
kl. 9 stundvislega
Aðgöngumiðar eru seldir f dag í
brauðbiiðum Kea og við
innganginn; kosta 1 kr. f.
fullorðna og 50 aura f.
börn.
Notið þetta einstaka tækifcri
tii þess að sjá þessa ágætu
kvikmynd af fslenzkum at-
vinnuháttum og landslagi.
»♦♦♦♦♦♦♦♦♦«»♦♦♦
Leyniútvarpsstöð fannst í
Reykjavík í síðustu viku. Eigandi
hennar er Sigurður Finnbogason
rafvirkjanemi, og haiði stöð hans
haft samband við Þýzkaland. Var
hann'tekinn af brezka setuliðinu.
Síðar í vikunni var annar maður
handtekinn hér á Akureyri, Þór-
hallur Pálsson útvarpsvirki, og
var hann fluttur suður. Hefir mál
þeirra beggja verið í rannsókn.
Hörmulegt slys varð í Reykja-
vík 14. þ. m. Sex ára gamall
drengur féll niður um lyftuop og
dó samstundis.
Togarinn Helgafell kom á
mánudagsnóttina til Reykjavíkur
með 8 skipbrotsmenn, 7 Svía og 1
Pólverja, sem togarinn bjargaði af
fleka norður af írlandi. Hafði
Þýzkur kafbátur skotið skip þeirra
í kaf, og mennirnir verið á flek-
anum í 2 sólarhringa, er þeir fund-
ust.
Brœðslusíldaraflinn er nú orðinn
yfir miljón hl. meiri en á sama
tíma í fyrra.
Síra Jakob Jónsson er alkominn
heim frá Kanada eftir 6 ára dvöl
þar.
Frá Ferðafélagi Ákureyrar.
Auditpr.
K. V.