Dagur - 17.10.1940, Blaðsíða 3
42. '•tbl.
D A © U R
179
K.E.A. reisir þrjú hrað-
frystihús
Stórfelld hagsbót fyrir útvegsmenn og verkafólk.
Samtal við Jakob Frimannsson framkvœmdastjóra.
frumhlaup.
í enska blaðinu »Spectator« birtist
þann 20. sept. s.l. grein eftir Snæbjörn
Jónsson, bóksala í Reykjavík. Því miður
er hún of löng til að birtast hér í heild,
en þess væri full þörf, þótt það muni
ekki hafa verið ætlun höfundar, að hún
kæmi fyrir augu Islendinga. Útvarpið
ætti að láta flytja hana þýdda til eyrna
landsmanna, svo að þjóðin þurfi ekki
lengur að fara í grafgötur um innræti og
þjóðhollustu þessa bóksala og gæti
launað honum sem vert væri. Útvarpið
gerir þetta vafalaust ekki frekar en
margt annað æskilegt, og eina blaðið,
sem eg hef orðið var við að minntist á
grein þessa, er »Morgunblaðið«, en þar
er tekið linleskjulega á málinu og talað
i þeim tón, sem Snæbjörn Jónsson á
ekki skilið.
I grein Snæbjarnar segir meðal ann-
ars:
».... Það er líklega rétt, að íslenzka
þjóðin hefir ekki ennþá myndað sér
ákveðnar óskir um framtíð landsins.
Þeir, sem hallast á sveif draumóra og
skortir raunsæi, kunna ennþá að hugsn
um það sem lýðveldi, án nokkurs stjórn-
málalegs sambands við erlent ríki og
verndað af hinni eilífu ró yfirlýsts hlut-
leysis. Það er samt nokkurn veginn ör-
ugt að segja, að ef tilraun yrði gerð í
þessa átt, inyndu inenn, af praktískum
ástæðum verða að hverfa frá henni.
Þeir, sem gæddir eru meiri raunsæi
óska þess, 'að fsland yrði fullvalda meðr
limur brezka samveldisins«.
Fyrr f greininni er talað um ástandið
hér á landi fyrir hernámið og komizt að
þeirri niðurstöðu, að það hafi verið
hörmulegt, en svo hafi landið verið her-
numið og allt breytzt til batnaðar. Þar
segir meðal annars:
».... Um stundarsakir, að minnsta
kosti, hefir hernámið orsakað geysilega
fjárhagslega velgengni í landinu. Þetta
er óvéfengjanleg staðreynd, sem blasir
við sjónum hvers heilvita manns. Þetta
eru einu áhrifin, sem hernámið hefir
haft á landið frara að þessu«.
Höfundur ræðir síðan »vernd« þá,
sem ísland þurfi á að halda í framtíð-
inni. Telur hann »verndina« brýna nauð-
syn fyrir okkur og segir í því sambandi
meðal annars:
».... hernám Breta á íslandi hefir
gert mönnum ljóst hver yrði bezti vörð-
ur frelsis fslands og öryggis landsins«.
Höfundur vitnar í greinar Héðins
Valdimarssonar, í Jónas Jónsson og
»Eimreiðina« máli sínu til stuðnings.
Um greinar Héðins, um upptöku íslands
í brezka heimsveldið, segir Snæbjörn:
».... Það er eftirtektarvert, að ekki
ein einasta tilraun hefir verið gerð til
þess að hrekja röksemdir herra Valdi-
marssonar og er því niðurstaðan óhjá-
kvæmilega sú — að blöðin og stjórn-
málamennirnir hafi álitið þær óhrekj-
andi«.
Skal hér staðar numið við að taka orð-
rétt upp úr grein þessari, enda ættu
þessi dæmi að nægja til þess að öllum
rnegi vera Ijóst, hvers háttar þessi
skrif eru.
Það er ósatt að ekki hafi verið mót-
mælt greinum Héðins Valdimarssonar.
Þær voru tættar sundur, mjög óvægi-
lega, í »Tímanum« og áttu formælendur
fá. Og hvaða nauðsyn bar til þess að
skrifa grein sem þessa i víðlesið enskt
blað og gefa það ótvírætt í skyn að ís-
lendingar æski þess að vera teknir inn
í brezka heimsveldið, þegar vitað er að
mikill meiri hluti þjóðarinnar er því mót-
fallinn, en vill að við verðum framvegis
sjálfstætt og »verndar«laust ríki! Held-
ur Snæbjörn að það yrði mjög þungur
róður fyrir okkur að komast inn i
brezka heimsveldið, ef við æsktum þess
eindregið, og þess vegna sé vissara að
fara að »agitera« í Englendingum? Hvers
vegna birtir hann ekki grein sína i ís-
lenzku blaði og reynir að sannfæra þá
mörgu, sem eru á öðru máli. Þar er
hinn rétti vettvangur slíkra rökræðna og
bollalegginga, en ekki í enskum blöðum,
því að hér á ákvörðunin að takast, en
ekki í Englandi. Þá fyrst getunr við
tekið að ræða þessi mál við Breta, þeg-
ar vitað er að meiri hluti íslenzku þjóð-
arinnar er því meðmæltur, en sá, sem
hleypur með »privat«skoðun sína í ensk
blöð á þessum hættu tímum fyrir sjálf-
stæði landsins og talar eins og sá er
valdið hefir, minnir óneitanlega talsvert
á föðurlandsvininn Vidkum Quisling.
Þessi grein Snæbjarnar er frumhlaup,
svo að ekki sé notað sterkara orð, og á
hann skilið fyrir hana bæði skömm og
óþökk. Hann getur veikt mjög aðstöðu
íslenzkra stjórnarvalda í öllum samn-
ingagerðum, er hann lýsir því fyrir
Bretum með fögrum orðum, hve mikið
góðverk þeir hafi gert á okkur með her-
náminu. Það væri æskilegt, að einhver
íslenzkra stjórnmálamanna ritaði svar-
grein í þetta sama enska blað, og gerði
Bretum greiu fyrir því, að þótt við sé-
um þeim vinveittir, þurfi það alls ekki
að hafa í för með sér, að við æskjum
upptöku í enska ríkið, og þótt við við-
urkennum, að þeiin farizt vel við okkur,
þá sé langt frá því, að við teljum, að
þeir séu að vinna á okkur miskunnar-
verk með því að hernema landið.
í vor og sumar hafa tekið til
starfa tvö ný hraðfrystihús hér
við Eyjafjörð, annað í Hrísey en
hitt á Dalvík. Þriðja hraðfrysti-
húsið er nú í smíðum, og er það í
Ólafsfirði. Kaupfélag Eyfirðinga
hefir látið reisa öll húsin og starf-
rækir þau. Fjórða hraðfrystihús
félagsins er hér ó Oddeyrartanga.
Blaðið leitaði frétta af þessum
merkilegu framkvæmdum hjá
framkvæmdastjóra félagsins, Jak-
ob Frímannssyni, í gær.
„Það, sem réði því, að kaup-
félagið réðist í þessar fram-
kvæmdir“, sagði Jakob, „var hin
aðkallandi þörf útvegsmanna á
félagssvæðinu, að eiga aðgang að
hraðfrystihúsi með afla báta
sinna, þar sem markaður fyrir
hraðfrystan fisk er nú góður og
líklegur til frambúðar, og svo
nauðsyn þess að auka atvinnu-
skilyrðin í sjóþorpunum. Úr hvor-
tveggja var hægt að bæta með því
að koma þessum húsum upp.
Á Dalvík var kjötfrystihúsið,
sem fyrir var þar, stækkað og
endurbætt, og komið fyrir þar
hraðfrystitækjum og vinnuplássi.
Sömuleiðis voru geymslur mjög
auknar. Húsið vinnur nú með
sömu kælivélum og áður, en nú i
haust verður bætt við einni stórri
kælivél. Afköst þessa húss munu
verða 5—8 tonn af fiskiflökum á
sólarhring. Það hefir nú starfað
síðan um mitt sumar, nema þann
tíma sem slátrun stóð yfir, og
vinna þar 20 karlar og konur,
þegar fryst er.
Hríseyjarhúsið hefur starfað
síðan snemma í vor, er það var
fullgert. Þar var geymsluhús, sem
félagið átti, endurbyggt og sett í
það ammoníak frystivél. Þetta hús
getur nú fryst 5—8 tonn af fisk-
flökum á sólarhring og hafa um
25 manns atvinnu við þetta, þá
daga sem fryst er.
í Ólafsfirði er nú verið að reisa
hraðfrystihús á vegum kaupfé-
lagsins. Er gert ráð fyrir að það
muni geta tekið til starfa um nýár
og afköst þess verði svipuð og
hinna, eða 5—8 tonn á sólarhring,
og mun það veita um 25 manns at-
vinnu, þá daga, sem fryst er“.
„Það er um öll þessi hús að
segja“, sagði Jakob ennfremur,
„að þau eru byggð fyrir framtíð-
ina ekki síður en hina aðkallandi
þörf nú, því gert er ráð fyrir að
þau verði stækkuð strax og þörf
krefur og er allt fyrirkomulag í
samræmi við það“.
Hvaða fyrirkomulag er á fisk-
kaupum húsanna?
„Fiskurinn hefir verið keyptur
föstu verði, sem Fiskimálanefnd
ákveður. En útgerðarmönnum
stendur til boða hvenær sem er
að leggja fisk sinn inn, og fá
verð við reikningslok. Þetta er
það skipulag, sem bændur búa við
t. d. um kjötsölu, og tryggir þeim
Jakob Frímannsson,
greitt áætlunarverð, en fullnaðar-
raunverulegt sannvirði vörunnar.
Fram að þessu hafa útvegsmenn
ekki notfært sér þetta, en taka
það vonandi til athugunar“.
Hvernig hefir þessum fram-
kvæmdum verið tekið af félags-
mönnum á þessum stöðum?“
„Þeim hefir verið mjög vel
fagnað, þori ég að fullyrða, enda
var það eindregin ósk félags-
manna að stjórn K. E. A. hæfist
handa. Húsin hafa þegar veitt
verulega atvinnu, sérstaklega í
Hrísey, þar sem unnið hefir verið
í allt sumar, og það hefir komið
mörgum vel“.
Telur þú þá, að hraðfrystihús
þessi séu veruleg hagsbót fyrir út-
vegsmenn hér við fjörðinn?
„Já, ég tel hiklaust að svo sé.
Saltfiskmarkaðurinn er óviss, en
markaðurin fyrir þessa vöru er
góður. Fiskimenn fá andvirði
fiskjarins í sínar hendur strax.
Auk þess stuðla öll hraðfrystihús,
auk ísfisk-útflutningsins, að því
að rýmka saltfiskmarkaðinn, sem
verið hefir mjög takmarkaður
undanfarið, og ættu því að létta
undir með þeim sem verða að
saltverka mest af sínum afla“,
Fjórða hraðfrystihúsið, sem er á
Oddeyrartanga, hefur kaupfélagið
starfrækt allmörg undanfarin ár
og veitt þar móttöku fiski, bæði
frá smábátum og stærri skipum.
En sökum fjarlægðar hafa fiski-
menn utarlega við fjörðinn ekki
getað notað sér það að verulegu
leyti, og fiskur, sem á það hús
hefir komið, verið mestmegnis frá
fiskimönnum héðan úr bænum og
nágrenni hans.
Með þessum framkvæmdum hef-
ir stjórn Kaupfélags Eyfirðinga
enn á ný sýnt að félagið er vel á
verði um hagsmunamál almenn-
ings í þessu héraði, og skjótt til
framkvæmda þegar á ríður.
A.
I '
Öllum þeim, sem auðsýnt hafa oss samúð og hlut-
tekningu við andlát og jarðarför
Sigurbfargar DavíðidóHur
VíOlgerðl
vottum vér hérmeð innilegustu þakkir.
Aðstandendur.
Innilegustu þakkir til allra þeirra sem auðsýndu okkur
hluttekningu við fráfall
Jóns Þórðarsonar,
frá Þóroddsstöðum í ölafsfirði.
Sérstaklega þökkum við sveitungunum fyrir virðulega
útför og margvíslega vinsemd.
Aðstandendurnir.
Hjartans þakkir til allra, sem með nærveru sinni
heiðruðu jarðarlör móður minnar,
Hólmfriðar Jónsdóttur, Melgerði.
F. h. aðstandenda
Ólafur Jóhannesson.