Dagur - 31.10.1940, Blaðsíða 1

Dagur - 31.10.1940, Blaðsíða 1
DAGUR kemur ít á hverjum fimmtudegi Kostar kr. 6.00 áig. Gjaidk. Árni Jóhannsson 1 Kaupfél. Eyfirðinga. Gjaldd. fyrir 1. júlí. AFGREIÐSLAN er hjá Jóni Þ. Þór, Norðurgötu 3. Tal- sími 112. Uppsögn, bundin við áramót, sé komin til afgreiðslu- manns fyrir 1. de’s. XXIII . árg.J • #"• Akureyri 31. október 1940 ; 45. tbl. Fundarályktanir. Islenxkur svika I I fðill Aðalf.undur stjórnar Sambands ungra Framsóknarmanna var haldinn í Reykjavík 19.—22. þ. m. Á fundinum voru rædd ýms mikilvæg landsmál og félagsmál. Meðal ályktana fundarins voru þær, er hér fara á eftir: RÁÐSTÖFUN STRÍÐSGRÓÐANS. „Vegna núverandi ástands í fjármálum íslendinga, þegar þjóð- inni safnast erlendur gjaldeyrir og atvinnutekjur ýmsra eru óvenju- lega miklar, og með skírskotun til fjármálareynslu þjóðarinnar frá síðustu heimsstyrjöld, á- lyktar fundurinn, að ríkisvaldið verði að sjá svo um, að þessar tekjur hverfi ekki í súginn vegna gálítillar eyðslu líðandi stundar, heldur notist til að mæta þeim erfiðleikum, sem koma munu að styrjöldinni lokinni, og til marg- háttaðra endurbóta, sem fresta verður nú vegna styrjaldarinnar, svo sem ræktunar í sveitum og byggingu og endurnýjunar veiði- flotans. Til þess að ná þessum ára^ign telur fundurinn að þurfi: 1. Að hafa glöggt eftirlit með gjaldeyrisverzluninni, og þótt á- standið leyfi nú nokkra tilslökun á innflutningshöftum, þurfi að herða á þeim aftur, ef horfur versna í gjaldeyrismálum, enda þurfi stöðugt að fyrirbyggja sem mest óþarfan innflutning. 2. Að nota tækifæri yfirstand- andi tíma til að lækka erlendai skuldir þjóðarinnar og mynda inn- stæður til að mæta erfiðleikum og aukinni gjaldeyrisþörf síðar. 3. Að skattalöggjöfinni verði þannig beitt, að ríkissjóður geti veitt rífleg framlög til uppbygg- ingar atvinnulífi landsmanna á næstu missirum og að stríðinu loknu. 4. Að skattfrelsi útgerðarinnar verði afnumið og haft verði strangt eftirlit með því, að þeim varasjóðum, sem útgerðarfélögin kunna að safna, verði varið á til- ætlaðan hátt. 5. Að útlánastarfsemi bankanna verði í samræmi við framan- greinda stefnu og þess gætt, að þeir láni ekki til einstaklinga eða fyrirtækja án viðunandi trygg- ingar. Jafnframt þessu bendir fundur- inn á, að vinna þurfi meira en gert hefir verið að því undanfarið, að heimilafjölgun verði þar, sem atvinnuskilyrði eru fyrir hendi. Fundurinn leggur því áherzlu á pað, að framlög verði stórum aukin til undirbúnings nýbýla og samvinnubyggða í sveitum og til ræktunar og annara umbóta við sjávarþorp, þar sem lífsskilyrði eru góð til lands og sjávar. Telur úndurinn sjálfsagt, að sé fé veitt til atvinnubóta, verði því sem mest má verða varið til þessara undirbúningsstarfa“. Á þenna hátt markar Fram- sóknaræskan stefnu sína. Hún vill að ríkisvaldið geri ráðstafanir til að tryggja það, að stríðsgróð- inn fari ekki út í veður og vind, en verði varið til eflingar atvinnu • vegunum og verklegum fram- kvæmdum í landinu. (Framh. á 2. síðu). Formaður Í.RJ. hefir beðið blaðið að birta eftir- farandi útdrátt úr gjörðabók ráðs- ins frá 10. febrúar síðastliðinn. „Hermann Stefánsson, formað- ur ráðsins, hóf máls á því, að hann hefði orðið var misskilnings hjá utannefndarmönnum um að í- þróttahúsið fyrirhugaða ætti að- eins að vera fyrir íþróttafélögin en ekki skóla bæjarins. Bar hann upp svohljóðahdi til- lögu til yfirlýsingar og birtingar: „Að gefnu tilefni lýsir íþrótta- hússnefnd í. R. A. því yfir, að til- ætlun hennar með stofnun’ í- þróttahússjóðs Akureyrar er sú, að byggt verði fullkomið íþrótta- hús í Akureyrarkaupstað fyrir skólana, íþróttafélögin og aðra bæjarbúa, í trausti væntanlegs til- styrks almennings og opinberra stjórnarvalda, bæjar og ríkis“. Tillagan samþykkt með öllum atkvæðum. Axel Kristjánsson. Björn Halldórs- son. Hermann Stefánsson. Jón Benediktsson. Karl Benediktsson. Jósef Sigurðsson. Friðþjófur Pét,- ursson. Hans Jörgenson. Halldór Halldórsson. Snorri Sigfússon. Happdrœtti íþróttahússins. Út- sölumenn, sem eg næ ekki til ? dag, gjöri svo .vel að. hitta mig í kvöld á Hótel Akureyri, herbergi nr, 12, — Hermann Stefánsson, Margir kannast við frú Láru Á- gústsdóttur í Reykjavík vegria miðilsstarfs hennar, sem hún hefir stundað um mörg ár. Hefir hún haldið tilraunafundi, ekki aðeins í Reykjavík, heldur einnig annar- staðar á landi hér, þar á meðal á Akureyri. Eitt sinn fór hún ti) London til rannsóknar, og mun eitthvað grunsamlegt hafa komið þar í ljós í sambandi við miðils- starf hennar. Á fundum Láru hafa ýms fyrir- brigði gerzt, svo sem líkamningar, útfrymisfyrirbrigði, afholdgunar- fýrirbrigði, skyggnilýsingar og miðilstal. Aðgangur að líkamningafundum hefir verið 3 krónur á mann, en 2 kr. að skyggnilýsingafundum. Fyrir milligöngu Sigurðar Magnússonar löggæzlumanns í Reykjavík hafa komizt upp stór- felld svik í sambandi við miðils- starf Láru. Skeði það í sambandi við pakka, er hann fann undir skáp í fundarherberginu, og 1 var gardínutau og gasslæður; kom í ljós við athugun að fundi loknum að hreyft hafði verið við innihaldi pakkans. Neitaði Lára, að hún vissi um pakkann og kvaðst ekki eiga hann. Fannst fyrrnefndum Sigurði þetta allt svo grunsamlegt, að hann kærði Láru. Hófust nú yfirheyrslur í málinu með þeim árangri, að Lára hefir játað að hafa haft svik í frammi við sýni- legu fyrirbrigðin, svo sem líkamn- inga og útfrymi. Hefir játning hennar hlotið enn fyllri staðfest- ingu við vitnaleiðslur og játningu meðsekra manna, er hafa verið í vitorði með henni og hjálpað henni við svikin. Menn þeir, er þessa aðstoð hafa veitt, eru Þorbergur Gunnarsson, er var eiginmaður Láru, Oskar Þórir Guðmundsson, sem hefir búið með henni og er aðeins tví- Ódýr fiskur. Hraðfrystihús K. E. A. á Odd- eyrartanga starfar nú með fullum krafti. Að jafnaði gengur úr eitt- hvað af fiski, sem síðan er á boð- stólum fyrir neytendur í bænum og nágrenninu. Þessi fiskur er seldur mun lægra verði, en fiskur sem seldur er á götum bæjarins. Ættu bændur, sem kaupa fisk til heimflutnings, að athuga þetta. tugur að aldri, og Kristján Kuúst- jánsson húsgagnabólstrari. Var fólk þetta tekið í gæzluvarðhald, nema Óskar. Svik Láru eru fólgin í því að hafa notað slæður og grímur. Ennfremur hefir hún játað að hafa notað barnunga dóttur sína til aðstoðar við svikin. Rannsókn í þessu svikamáli mun enn ekki lokið að fullu. íramsoknailélas Akureyrar hélt fund í Samkomuhúsi bæjar- ins síðastl. mánudagskvöld. Þar flutti Bernharð Stefánsson alþm. ýtarlegt og glöggt erindi um verzl- unarmálin, og auk þess var rætt um vetrarstarfið. Fyrirspurnir. Vill „Dagur“ gera svo vel að koma eftirfarandi fyrirspurnum á :;ramfæri? 1. Af hvaða ástæðum er lögreglu- þjónn, sem á að gegna útistörf- um að deginum til, tekinn úv umferð og settur inn við að selja áfengisbækur? 2. Á bæjarfógeti eða bæjarsjóðu: að kosta afhendingu á þessum bókum? X. KIRKJAN. Messað á Akureyri næstk. sunnudag kl. 2 e. h. (Allra- heilagramessa). Námsflokkastarfið hér í bænum hefst um aðra helgi. Enn eru pláss fyrir nokkra, og ættu þeir, sem þau vilja nota, að gefa sig fram hið allra fyrsta við forstöðumanr. námsflokkanna, Steindór Stein- dórsson menntaskólakennara. Leikfélag Akureyrar sýnir Tengdapabba næstkomandi laug- ardag og sunnudag með lœkkuðu verði. Verður það næstsíðasta sýning félagsins á þessum vinsæla gam- anleik. * Dánardœgur. Þann 26. þ. m. and- aðist að heimili sínu hér í bæ Guðjón Helgason fiskimatsmaður. Bar dauða hans brátt að. Hann var hálfáttræður að aldri.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.