Dagur


Dagur - 14.11.1940, Qupperneq 3

Dagur - 14.11.1940, Qupperneq 3
47. tbl. Ð A G U R 201 Dög u n. Eftir því, sem þessi styrjöld stendur lengur, sannfærast menn betur um það, að þótt lýðræðisþjóðirnar sigri, verður stórfelld breyting að gerast á lifnaðar- liáttum þjóðanna, ef friðurinn á að varð- veitast Iengur en 20 ár. Með hverri vik- unni verða fleiri menn af öllum frjálsum þjóðum, sannfærðir um það, að þjóöfélagsbúskapur, sem rekinn er með gróðavonina eina fyrir augum, með »frjálsri samkeppni« einstaklinga og fé- laga, um gróðann, hlýtur að enda ineð styrjöld. Þeir tímar, þegar einstaklingum og einkafyrirtækjum leyfðist að nota sér þörf almennings, til þess að raka saman fé, nota sér ósamlyndið í mannheimi, til þess að auðga fámennan hóp, eru liðnir, þegar lýðræðisþjóðirnar hafa brotið á bak aftur hina villidýfslegu tilraun til þess að hefta frjálsan heim í fjötra þúsund ára gamallar þrælkunar. Langvarandi friður, verður aldrei ríkj- andi, meðan hver einstaklingur streitist við að skara eld að sinni köku, án tillits til náunga síns, eða hver þjóð að auka veg sinn og vald á kostnað landamæra og lifnaðarhátta þeirrar næstu. Um nær 100 ára skeið hafa samvinnu- menn bent á allar hinar hörmulegu af- leiðingar þess þjóðskipulags, sem dýrk- ar óháð framtak einstaklingsins til þess að auðga sig, á kostnað nágrannans. Um 100 ára skeið hefir samvinnustefnan ver- ið að vaxa og þroskast i því nær öllum þjóðlöndum jarðarinnar. Án tillits til stjórnmálaskoðana, trúarbragða og efna- legrar velmegunar hafa menn bundizt samtökum um það, að gera lífsbarátt- una léttari, leitast við að gefa hverjum einstaklingi tækifæri til þess að uppskera eins og hann sáir, án úlfúðar, haturs og togstreitu, sem einkennt hefir allan feril hinnar óháðu einstaklings samkeppni. Einmitt innan samvinnuhreyfingarinn- ar er hið æðsta lýðræði ríkjandi. Þar er það maðurinn sjálfur, hver einstaklingur, sem leggur fram sinn skerf, til stjórnar þeirra málefna, sem varða heimili hans og þjóðfélag. Úlfúð, togstreita, illindi og styrjaldir verða ekki útilokaðar fyrri en hinni sjálfselsku einstaklingshyggju er þokað burt, og samvinna einstaklinga og þjóða, til aukinnar velferðar allra, verður ráð- andi. Þessvegna er það, að samvinnustefnan á sér glæsilega framtíð fyrir höndum. Þeir menn, sem nú standa í fylkingar- brjóstum Iýðræðisins, og þjóðirnar, sem að baki þeim standa, gera sér það ljóst, að það nægir ekki nú að undirbúa 20 ára frið, heldur frið um alla framtíð. Og til þess er ekki nema ein leið: Lýðfrjáls samvinna allra einstaklinga stétta og þjóða. O. Htii nýja Akur- eyrarkirkja, veglega sta hú$ þjóðkirkjunnar, verður vígð snnnn* daginn 17. nóvcniber. Frá samvinnufélögunum: „Luma“ glóðlampar fást nú hjá K. E. A. Lumaverksmiðjurnar, eign samvinnumanna, í stöðugri baráttu við glóðlampa-hringana. Sænskur iðnaSur. Glóðlampar eru ein þeirra vöru- tegunda, sem hafa verið fram- leiddir af „hringum“, sem ná yfir lönd öll svo að segja. í Svíþjóð voru t. d. tvö fyrirtæki, fyrir nokkrum árum síðan, sem fram- leiddu glóðlampa, sem taldir voru „sænsk framleiðsla“, en þessi fyrirtæki voru eign hringanna, og það verð, sem neytendum var gert að greiða, var ákveðið af höf- uðstöðvum hringanna, og almenn- ingur í löndunum hafði ekkert þar um að segja. Sænska sam- vinnusambandið lét gera áætlun um kostnaðinn við að framleiða lampa, og komst að þeirri niður- stöðu, að vel mætti selja þá fyrir 85 aura stykkið, þá, í stað, kr. 1.35, sem var hið ríkjandi verðlag í Svíþjóð. K. F., sænska samvinnu- sambandið, réðist skömmu síðar í að byggja glóðalampaverksmiðj- una Luma. Meðan á byggingunni stóð lækkuðu hringarnir sitt verð niður í 1.10, og þegar Luma-lamp- inn kom á markaðinn fyrir 85 aura neyddust þeir til þess að dansa með. Talið er að Lumaverk- smiðjurnar hafi sparað sænskum neytend- um 12 milj. króna útgjöld frá því árið 1928, er hún tók til starfa, fram til árs- ins 1936, er vér höfum síðustu tölur um þetta. Sameiginlegt fyrirtæki brezkra og sænskra samvinnumanna. Skozka samvinnusambandið hóf samn- ingaumleitanir við sænska sambandið um sameiginlega Lumaverksmiðju í Skotlandi, fyrir nokkrum árum síðan. Fóru þær umleitanir svo, að ákveðið var að reisa verksmiðju í Glasgow og var því verki lokið í ófriðarbyrjun í fyrra Verksmiðja þessi hefir því starfað í eitt ár, og hefir í alla staði reynzt prýðilega, að því er segir í tímariti enska sam vinnusambandsins. Hinn nýi, skozki »Luma« lampi, er þegar orðinn út- breiddur á Bretlandseyjum, og nú er þessi nýjasta framleiðsla samvinnumanna koniin liingað til lands. Með þessari baráttu við glóðlampa auðhringana, hafa samvinnumenn ekki aðeins sparað brezkum og sænskum neytendum stórfé, heldur og neytendum margra annara landa, með því að þvinga hringana til að lækka verðið á heims- markaðinum. Co. Samtal við séra Friðrik J. Rafnar, vígslubiskup. Lindarpenni (conklin) með stöku loki tap aðist á götum bæjarins. — Skilist gegn fundarlaunum til ritstjóra þessa blaðs. Pakka samúð og hluttekningu við fráfall og jarðarför sonar míns. Björn Guömundsson. Sunnudaginn 17. þ. m., sem er 26. sunnudagur eftir Trinitatis, klukkan 1 e. h., verður Akureyrar- kirkja vígð af biskupi landsins, herra Sigurgeir Sigurðssyni; lík- lega verður kirkjumálaráðherra viðstaddur vígsluna. „Dagur“ leitaði staðfestingar á þessari frétt hjá séra Friðrik J, Rafnar, vígslubiskupi, og kvað hann þetta rétt vera. Séra Friðrik lét blaðinu góðfúslega í té nokkrar aðrar upplýsingar um kirkjumálið. „Akureyrarkirkja er hin gamla Hrafnagilskirkja, sem er léns- kirkja, en leyfi til flutnings hing- að til Akureyrar var gefið með konungsbréfi árið 1851 og úrskurð- ur um flutninginn 20. júní 1880. Akureyri var því annexía frá Hrafnagili þangað til 1880, er hún var gerð að sérstöku prestakalli og var séra Guðmundur Helgason fyrsti þjónandi prestur hér. Séra GuðmUndur hafði brauðabýtti við Þórhall Bjarnarson, síðar biskup, sem þjónaði hér í nokkra mánuði, eða þangað til séra Matthías Joch- umsson tók við 1886. Séra Matt- hías þjónaði til ársins 1900, en þá tók við séra Geir Sæmundsson, til ársins 1927“. Hvenær hófst undirbúningur hinnar nýju kirkju? „Gamla kirkjan var reist 1860, og er því orðin 80 ára gömul, og fyrir löngu orðin of lítil fyrir söfnuðinn. Kirkjubyggingamálið er búið að vera'^á döfinni síðan 1923, en þá var gerð safnaðarsam- þykkt um kirkjubyggingarsjóð, og eftir því sem ég bezt veit, var hann stofnaður þá, með 100 króna gjöf frá Davíð Sigurðssyni. Á síð- ari árum komst svo allmikil'. skriður á málið, með aðstoð ýmsra góðra safnaðarmanna og sérstak- lega kvenna, Má þar fyrst ti nefna Kvenfélag Akureyrarkirkju sem vann af hinum mesta dugn- aði að fjársöfnun fyrir kirkjuna og hefir styrkt málið á margvís- legan hátt. Kirkjan var afhent söfnuðinum árið 1938, en þá var fjársöfnunin komin vel á veg, og undirbúning ur verksins þegar hafinn. Alls munu þegar hafa safnazt í kirkju byggingarsjóð, gjafir og samskot, um kr. 40.000“. Hvenær var byggingin hafin? „Fyrsta rekan var tekin Grunngröfturinn var gerður í á- kvæðisvinnu og unnu skólapiltar, undir stjórn Stefáns Reykjalín, að dví, Tilboð þeirra var lang lægst, en þeir unnu kappsamlega og vel, og munu hafa verið ánægðir með sinn hlut, ekki síður en sóknar- nefndin með sinn Undirstöður og kjallara upp að neðsta gólfi reisti Guðmundur Ól- fsson, byggingameistari, og í fyrravor tóku þeir byggingameist- ararnir Þorsteinn Þorsteinsson frá Lóni, Ásgeir Austfjörð og Bjarni Rósantsson við smíðinni, í ákvæð- isvinnu, og eru um það bil að ljúka við hana nú. Uppdrætti og yfirumsjón smíð- innar hafði á hendi prófessor dr. Guðjón Samúelsson, húsameistari ríkisins, Indriði Helgason, rafvirkjameist- ari sá um raflagnir en Raftækja- verksmiðja Hafnarfjarðar um hit- unartæki. Málningu annaðist Osvald Knud- sen, málarameistari, bekki smíðaði Kristján Aðalsteinsson húsgagna- smíðameistari, en brjóstpanel, alt- ari og umbúnað í kór Ólafur Ágústsson húsgagnasmíðameistari. Loks gerði Ásmundur Sveinsson, myndhöggvari, lágmyndir á söng- loftsgafl. Hin nýja kirkja er stærsta og veglegasta hús þjóðkirkjunnar ís- lenzku; rúmast a. m. k. 600 manns í sæti. Allur frágangur er hinn vandaðasti, og er kirkjan öll söfn- uðinum til hins mesta sóma. ur grunninum 3. september 1938 Frá og með 15. þ. m. eru saumalaun sfofunnar, eins og hér segir: Alfatnaður karla með till. kr. 85.00 Frakki karla með tilleggi — 85.00 Jakki, sérstakur, með till. — 50.00 Buxur, sérstakar, með till. — 19.00 Vesti, sérstakt, með till. — 16.00 Kvenkápur og dragtir án till. — 32.00 Saiimastflfa GEFJDNAR. Húsi K. E. A. III. hæð.

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.