Dagur - 19.12.1940, Blaðsíða 1

Dagur - 19.12.1940, Blaðsíða 1
DAGUR kemur út á hverjum fimmtudegi. Árgang- urinn kostar kr. 6.00. Ritstjóri: ingimar Eydal. Prentverk Odds Björnsonar. XXIII » # # #.#. # # #■ # # —# #■#»#■#-#-#-#-#-#-#-#--•#• #-♦ • • • » • ♦ ♦ . árg.i Akureyri 19. desember > # #-#■#■#■■#-#-# • # # # ■# #-#-#■•-■• # # #"■#■■#■ # # #■■# # # # # # #-# # # # #»-#-• -•■ 1940 AFGREIÐSLAN og innheimtan í skrif- stofu blaðsins við Kaupvangstorg. Sími 96. Afgreiðslumaður og gjaldkeri: Jóhann 0. Haraldsson 52. tbl. í síðasta „íslendingi“ gefur bæj- arfógetinn á Akureyri það fyrir- heit, að svara fyrirspurnum um lögreglumál. Eg vil því nota tæki- færið og biðja bæjarfógetann að svara eftirfarandi atriðum: Er það rétt, að bæjarfógetanum hafi verið afhentar kærur og rannsóknir út af ölbruggi sam- hljóða eftirfarandi skýrslu: 1. öl, framleitt af Axel Schiöth, Akureyri, í desember 1936 og hafi innihaldið 3,55% vínanda að rúm- máli. 2. Öl, framleitt af Eggert Ein- arssyni, Akureyri, 1. desember 1936, hafi innhaldið 5,2079% vín- anda að rúmmáli. 3. Öl, framleitt af Helga Schiöth, Akureyri, 1937, hafði vínandainni- hald 5.20—5,90 og 6,40% að rúm- máli. 4. Öl, bruggað af Eggert Einars- syni, Akureyri, 1937, innihélt 4,00% og 4,20% vínanda að rúm- máli. 5. Öl, frá Helga Schiöth, Akur- eyri, framleitt 1939, reyndist vín- andainnihald þess 6.09% og 6,10% að rúmmáli. 6. Öl, frá Axel Schiöth, rann- sakað 17. ágúst 1939 og reyndist vínandi þess 6,1% að rúmmáli. 7. Öl, frá Eggert Einarssyni, rannsakað 17. ágúst 1939, reyndist vínandainnihald þess 5 og 5,1% að rúmmáli. Hér er um stórfellt, ólöglegt áfengisbrugg að ræða, og það marg endurtekið brot á áfengis- löggjöfinni, ‘ samanb. 1., 6. og 8. grein nefndra laga. í fyrstu gr. áfengislaganna stendur: „En áfengur drykkur eft- ir lögum þessum telzt vera sá vökvi, sem meira er en 2Y4% af vínanda að rúmmáli“. Þá mælir 6. gr. svo fyrir: „Bannað er að brugga á íslandi eða búa til áfenga drykki eða áfengisvökva og að gera drykk- hæft það áfengi, sem er eða gert hefir verið óhæft til drykkjar“. Þá hljóðar 8. gr. áfengislaganna þannig: „Upptæk skal gera og ónýta öll áhöld, sem nota á eða hafa verið notuð við bruggun eða tilbúning áfengra drykkja, eða til þess að gera drykkhæft það áfengi, sem ódrykkhæft var. Aíengi það, sem búið hefir verið til, eða_ aftur gert drykkhæft, skal og upptækt ásamt ílátum. Andvirðið rennur í ríkissjóð“. Þá má minna á kafla úr 12. gr. sömu laga. Þar stendur: „Láti nokkur viðgangast ólög- legan tilbúning áfengis, ólöglega sölu, eða geymslu þess í húsum sínum, eða á landi sínu, skal hann sekur samkv. 33. gr“, en hún ákveður 100—2000 kr. sekt fyrir 1. brot en kr. 200—4000 sekt ef brotið er ítrekað. Nú er talið að mál þessi hafi ekki verið tekin fyrir á venjuleg- an hátt. Lögreglustjórinn hér á Akureyri hafi eigi látið dóma ganga i þeim, heldur jafnvel látið þynna út ölið hjá Eggert Einars- syni og leyft að selja það. Eru það tilmæli mín, að bæjar- fógetinn greini frá, eftir hvaða lögum það hefir verið gert. Borgari. Úr Setberosainál. 1372. Kom mikið fjúk á jóla- d.aginn; tók upp ei fyrri en fimmta dag jóla. (Óskiljanlegt, að þetta skyldi þykja frásagnarvert, nema tíðar- far hafi þá verið miklum mun öðruvísi en nú er það). 1530. Átti einn förupiltur vest- ur í' Breiðafirði barn 12 vetra gamall við fimmtugri konu, er með honum fór að biðja sér ölm- usu. Ólst það barn upp og varð hreppstjóri. 1532. Rak eitt ógnarlegt sjó- skrímsl austur í Landeyjum, því nær í hestslíki. Austur í Meðallandi bakskelldi maður konu sína með pál í fjár- húsi sínu, og var hún illa verkuð af honum. Átti ein kýr kálf í folaldsmynd austur í Hreppum. Deildu tvær förukerlingar í Pat- reksfirði, og duttu báðar dauðar niður. Drukknaði eða forgekk hollenzkt skip í Eyjafirði. Bækur. EIMREIÐIN, 4. hefti 1940. Efni: Málvernd og menning, eft- ir Svein Sigurðsson. Edda Finn- lands (með 5 myndum), eftir Bjarna M. Gíslason. Fimm á .báti. Sögusamkeppni Eimreiðarinnar 1940. — Úrslit. Kvöld eitt í sept- ember (verðlaunasaga m. mynd), eftir Stefán Jónsson. Kýmni. Brynjólfur Jóhannesson leikari (með 6 myndum), eftir Lárus Sig- urbjörnsson. Á mölinni (brot úr ferðasögu með mynd), eftir Helga Valtýsson, Um Nýfundnaland og skuldabaslið þar (með mynd), eftir Steingrím Matthíasson. Hinn óþekkti landnámsmaður (kvæði), eftir Kolbrún. Dagbók frá styrj- öldinni 1939—1940 (nokkrir við- burðir fyrstu átta mánuðina). Við rokkinn (kvæði), eftir Hjört frá Rauðamýri. Saklausa barn (jóla- saga), eftir Martin Andersen Nexö (Óskar Hólm íslenzkaði). Bílaframleiðsla heimsins. Ósýnileg áhrifaöfl, eftir Alexander Cann- on (framh.), Fólksfjölgun ‘og barnsfæðingar. Raddir: Ný þýð- ing á „Norðurljós“. — Um vetrar- kvíða (í. P.). Ritsjá, eftir Stefán Einarsson, Ólaf prófessor Lárus- son, Halldór Jónasson ^og Svein Sigurðsson. Morgunn, júlí—des. 1940. — Ritstjóri Jón Auðuns. Af greinum þeim, er birtast í þessu hefti Morguns, má gera ráð fvrir að flestum. leiki mest hugur á að lesa ritgerðina: „Einar H. Kvaran eftir andlátið“, sem er eftir ritstjórann, sr. Jón Auðuns. Er þar skýrt frá tilraunum þeim, er Einar hefir gert eftir dauða sinn til þess að gefa til kynna og sanna, að hann sé snarlifandi og starfandi í öðrum heimi. Um það efni segir svo m. a.: „Hann var ekki fyrir löngu farinn af jörð- unni, þegar honum tókst að eiga sæmilega auðveld samtöl við oss, þótt stutt væru. Málhreimurinn var hans, orðatiltækin voru hans og lifandi var enn gamli áhuginn hans fyrir málefninu, sem hann unni mest. Hann hefir talað bæði um látna vini sína og jarðneska og líðan sína eftir umskiptin“. Auk þessa eru í heftinu margar greinar, þýddar og frumsamdar, um sálræn efni og merkileg fyrir- brigði, og sálmur þýddur úr ensku af J^kob Jóh. Smára. Quðbrandur Jónsson: Að ut- an og sunnan. Greinar um sundurleit efni.. í.&afj. — Prentstofan Rún — 1940. Aðaluppistaðan í greinum þess- um er gömul útvarpserindi, er höf. hefir flutt, en hann er af mörgum talinn einn skemmtileg- asti flytjandi orðsins á þeim vett- vangi. Greinarnar í bók þessari, sem er um 200 bls. að stærð, eru 9 að tölu og fjalla um eftirgreind efni: Struensee. — Vínarborg. — Sagnfræði. — Ferð um Neckar og Rín. — Mannanöfn. — Krossfei’ð- irnar. — Guðmundur biskup góði. — Átthagabandið í Danmörku og afnám þess. — Dithmar Bleike. Margt er vel sagt í bók þessari og í henni er talsverður fróðleik- ur. Höf. er orðfær í bezta lagi. Guðsþjónustur í Grundarþinga- ■prestakalli: Hólum, jóladag, kl. 12 stundvíslega. — Saurbæ, sama dag, kl. 2 e. h. — Grund, annan í jólum, kl. 12. — Kaupangi, gamla- ársdag, kl. 2 e. h. — Munkaþverá, nýjársdag, kl. 12. Hjánaband. Fimmtudaginn 12. des. s.l. voru gefin saman í hjóna- band af prestinum í Grundarþing- um: Ungfrú Ingibjörg Sæmunds- dóttir úr Ólafsfirði og Jón Ás- kelsson, sjómaður, Hrísey. Heim- ili þeirra verður í Hrísey. Hlutaveltu og dans heldur U. M. F. „Ársól“ að Munkaþverá annan í jólum. Hefst kl. 9 e. h. Barnastúkan „Sakleysið“ heídur fund næstk. sunnudag á venjuleg- um stað og tíma. — Jólafundur. — A-flokkur fræðir og skemmtir. Dagur kemur næst út á Þor- láksmessudag (23. þ. m.). Auglýs- ingar í það blað mega ekki koma síðar en um hádegi næstkomandi laugardag. Verður þetta síðasta blaðið, er út kemur á þessu ári. Fyrsta blað næsta árgangs kem- ur út fimmtudaginn 9. jan. 1941. Kirkjukonsert Kantötukórs Ak- ureyrar, sem áformað var að halda síðastliðinn sunnudag, fórst fyrir vegna veikinda söngstjórans, Björgvins Guðmundssonar. Voru þetta mikil vonbrigði fyrir bæjar- búa. Rauðir hundar ganga nú hér í bænum. Veikin mun vera væg og legst einkum á börn og unglinga. „Allir eitt“. Síðasta dansskemmt- un 1940, laugardaginn 28. des., kl. 10 e. h. Nýlátinn er Jón Ingjaldsson á Laxamýri í Þingeyjarsýslu.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.