Dagur - 23.12.1940, Page 1
DAGUR
kemur út á hverjum
fimmtudegi. Árgang-
urinn kostar kr. 6.00.
Ritstjóri:
Ingimar Eydal.
Prentverk
Odds Björnsonar.
AFGREIÐ SLAN
og innheimtan í skrif-
stofu blaðsins við
Kaupvangstorg.
Sími 96.
Afgreiðslumaður og
gjaldkeri:
Jóhann ó. Haraldsson
Akureyri 23. desember 1940
• -• « * • * * o • #-• «•««»»« « « v •
\ 53. tbl.
• • • •
>cxz>o<
Liós yfir dauðadjúpið svarta!
Jólahugleiðing.
,flann bjó með oss, fullur
náðar og sannleika, og
vér sáum dýrð hans, dýrð,
sem eingetins sonar frá
föður“. (Jóh. 1. 14.).
Skáldið Matthías Jochumsson
kemst þannig að orði í kvæði sínu
um hafísinn:
j-Hundrað þúsund kumbla kirkjugarður,
kuldalegt er voðaríki þitt,
hræðilegi heljararðurl
hrolli slær um brjóstið mitt«.
En ekki þarf hafið og ísinn til
að fylla oss hrolli. Sjálf jörðin,
sem vér göngum á, er líka „hundr-
að þúsund kumbla kirkjugarður“.
Svo þétt eru grafirnar orpnar, að
naumast verður stigið niður milli
þeirra. Duftið undir fótum vorum
er ekkert annað, en þögular minj-
ar um lifanda líf, sem eitt sinn
var lifað á jörðu.
Ekki hundrað þúsundir, heldur
óteljandi milljónir manna hafa
komið og horfið á brott héðan
innan stundar. Þeir hafa eins og
vér horft sínum undrandi barns-
augum upp í himininn, móti sól-
arljómanum, sem kemur að ofan.
Þeir hafa glaðst hér eða grátið
um nokkur ár, barizt og vonað,
elskað og strítt, dáið og gleymzt.
Og eins og þeir munum vér einn-
ig hverfa til duftsins undir fætur
komandi kynslóða.
Með ægilegu. og óstöðvandi ör-
yggi fer hinn hræðilegi heljararð-
ur dauðans um alla jörð, dreginn
af stríðefldum fákum tímans, og
jafnar yfir allt. Jafnvel pýramíd-
arnir á eyðimörkum Egyptalands
munu hjaðna og slitna af vindum
og veðri, áður en liðið er augna-
blik af eilífðinni. Þannig þurrkar
hönd eyðingarinnar svipinn af
ásýnd allra hluta, svo að framtíðin
megi eftir vild rita nýja stafi í
sandinn,
Sjaldan eða aldrei hefir þó
plógur dauðans verið jafn stór-
virkur á akri jarðlífsins eins og
hann er nú, þegar mennirnir sjálf-
ir draga tauma hans. „Öllum hafís
verri er hjartans ís“. Helkuldi íss
og snæs er mildur og blíður, hjá
þeim kulda mannvonzkunnar, sem
kemur í ljós í drápsvélum þeim,
sem nú erja löndin og hirða blóm-
ann af æskumönnum þjóðanna.
Þá syrtir fyrst verulega af nóttu,
þegar sjálft mannvitið, þessi yfir-
jarðneski þáttur veru vorrar, legg-
ur sitt pund á vogai'skálina með
dauðanum, í stað þess að berjast
gegn honum. Þá vei'ður harð-
neskjan djöfulleg og eyðilegging-
ingin að viðurstyggð.
Svo dapurleg er 'hún sú veröld,
sem vér lifum í, svo koldimm
heljarslóð glötunai'aflanna!
* * *
Ljúft mætti oss því verða, að
hvarfla augum vorum til hæða, og
leita þar enn eftir bláma og sól-
skini bernskunnar, ef það skyldi
ekki vei'a byrgt af eiturþoku eða
púðurreyk þeirra, sem hörmunga-
eldana kynda á jörðu.
Margur mundi nú vilja hugsa
eins og sálmaskáldið foi'na:
„Eg hef augu mín til fjallanna.
Hvaðan kemur mér hjálp? Hjálp
mín kemur frá guði, skapara him-
ins og jarðar“.
Víst gæti þessi jörð orðið dá-
samlegur bústaður lifandi manna,
ef vér vissum hvað til vors friðar
heyrði. En hefir hún nokkru
sinni komið þessi hjálp frá guði,
sem trúmennirnir hafa hrópað á?
Kristindómurinn þekkir frásög-
una um það, hvernig hún kom í
heiminn, en mennirnir tóku ekki
við henni, af því að verk þeirra
voru vond.
Hjálpin frá guði — orð hans,
eins og Jóhannesarguðspjall seg-
ir, varð hold á jörð og bjó með
oss. Hann bjó með oss fullur náð-
ar og sannleika og vér sáum dýrð
hans, dýrð sem eingetins sonar
frá föður. í persónu Krists birtist
oss allt, sem mönnunum sæmir að
stefna að og leitast við að verða.
Þess vegna var hann ljósið, sem
kom í heiminn, réttborinn meist-
ari og drottinn lifandi manna.
Hann var eingetinn, því að eng-
inn hefir verið eins og hann, full-
ur náðar og sannleika, ástúðar og
mildi. Hann fæddist sem himna-
barn í lágu hreysi, gekk um sem
útlendingur á jörðinni. Og eins og
jólasagan segir frá því, hvernig
hann kom frá himni, þannig
skýrir sagan um uppstigninguna
»Almáttka fegurð, .hrein og há,
ég Imeigi þér, ann þér með brennandi
þrá.
Stjörnudjásnið mitt dýrðar bjarta,
demant á guðdómsins tignarbrá!
Ljós yfir dauðadjúpið svarta!«
Þannig orti Einar Benediktsson,
einn hinn spakvitrasti og háfleyg-
Eftir séra Benjamín Kristjánsson.
oss frá því, hvernig hann hvarf
til himins aftur, og ský huldi
hann fyrir sjónum þeirra.
* * *
Þetta er sagan, sem alltaf er
að gerast. Vér höfum misst sjón-
ar af Kristi, ský hefir numið hann
brott frá augum vorum.
Hann, sem á að vera fyrirmynd-
in, orð guðs til vor mannanna,
vér látum hann verða burt num-
inn í skýi fyrir augum vorum, vér
fleygjum honum burt úr hugsun-
arlífinu. Fyrir trumbuslætti og
lúðraþyt hernaðarins, fyrir
stolti og drambi hai’ðstjói'narand-
ans, fyrir heift og ágirnd og öll-
um þeim hei'skörum dauðlegra
ástríðna, sem fara stormi um
hugann og eldi um löndin, þokar
hann um set og hverfur á ný upp
í himin sinn, sá drottinn, sem
oss var sendur til leiðsagnar á
jöi'ðu.
Því áð ekki ryðst hann neins-
staðar til sætis með ofsa eða yfii'-
gangi, og ekki kúgar hann neinn
til fylgdar við sig. Andinn guð-
dómlegi kernur aðeins, þegar vér
þráum hann og biðjum um hann
af alhug sálarinnar. Ekkei’t, sem
er gott eða fagurt keiTiur nokkru
sinni til vor öðru vísi. Það eitt,
sém er af hinu illa, leggur hald á
oss og vill knýja oss til síns vilja.
En lögmál kæi’leikans er hið full-
komna lögmál frelsisins.
Það er þess vegna, sem vér
öðlumst ekkert af hinu góða og
fagra, fyrr en vér viljum það
sjálf, fyi’i' en sál vor snýr augliti
sínu í hæðirnar.
asti skáldandi, sem vér höfum átt,
um þá himnesku fegurð, sem
heillaði ávalt sál hans og snart
hana „sem geisli af kæi’leik frá
guðdómsins hjarta“.
Slíkt ljós yfir dauðadjúpið
svarta er Kristur, sá sem kom, og
mun ennþá koma í dýrð sinni með
hersveitum engla, ef vér hefjum
augu vor til fjallanna, lyftum
þeim upp í hæðirnar til hans.
Emxþá ljómar stjai’na hans á
himninum, mild og skær, hátt yfir
dauðlegri baráttu mannanna. Ög
blikandi fegurð hennar þarf ekki
að fölskvast fyi’ir oss, og ekkert
ský þai'f að nema ljós hennar burt
frá augum vorum, nema vér sjálf
látum soi'garmóðu vantrúarinnar
og ísingu haturs og heljarafla
myrkva sál vora þangað til hún
er ekki lengur nógu skyggn, til
þess, að verða snortin af hinu
himneska ljósi og endurspegla
það.
„Þessi Jesús, sem varð upp
numinn frá yður til himins, mun
lcoma á sama hátt og þér sáuð,
hann fara til himins“. Undir eins
og vér strjúkum óhreinindin af
skuggsjá hugans og látum hina
brennandi þrá eftir náð og sann-
leika, bræða þann hjartans ís,
sem nú veldur mestu bölvi og
myrkvar alla vora vegi, þá birtir
aftur af degi, þá stígur drottinn
út úr skýinu á ný.
Manninum einum er það gefið
að geta lyft augum sínum til him-
ins og hann einn getur skoðað
ljóma himinhvelfingarinnar. Hví
skyldi hann þá ekki notfæra sér
þessi forréttindi sín, hví skyldi
(Framh. á 2. síðu).