Dagur - 20.02.1941, Qupperneq 1
DAGUR
kemur út á hverjum
fimmtudegi. Árgang-
urinn kostar kr. fi.OO.
Ritstjóri:
Ingim'ar Eydal.
Prentverk
Odds Björnsonar.
AFGREIÐSLAN
og innheimtan í skrif-
stofu blaðsins við
Kaupvangstorg.
Slmi 96.
Afgreiðslurnaður og
gjaldkeri:
Jóhann Ó. Haraidsson
XXIV. ÁRG.'
Akureyri, 20. febrúar 1941.
7. tbl.
O Om * » » ^ «
Eyfirðingafélag -
Eyfirðingasaga.
Fyrir nokkrum árum hófst
hreyfing hér á landi í þá átt að
láta skrá og gefa út sögur ein-
stakra héraða og bæja. Hafa ís-
lendingar löngum verið söguelsk-
ir, og marga fýst að vita deili á
sögu byggðarlags síns eða bæjar,
því að í þeim sögum er ætíð
margt að finna, sem aldrei verður
skráð í heildarsögu þjóðarinnar,
þótt hún verði samin. Fyrst reið
Reykjavík á vaðið í þessu efni, og
reit Klemenz Jónsson sögu henn-
ar, sem prentuð var 1929. Nokkru
síðar kom út saga Hafnarfjarðar,
er Sigurður Skúlason samdi.
Munu bæirnir sjálfir hafa kostað
útgáfur þessar að mestu leyti. Um
þær mundir samdi Klemens Jóns-
son sögu Akureyrar og keypti
bæjarstjórn handritið, en ekki
hefir það verið gefið út enn, enda
varla fullbúið af hendi höfundar,
Síðan þetta gerðist hafa ýms
önnur héruð bætst í hópinn. Hafa
þar verið stofnuð félög til að
hrinda málum þessum fram, en
flest eða öll þeirra hafa notið ríf-
legra styrkja úr sýslu- og bæjar-
sjóðum. Útgáfustarfsemi ýmissa
þessara félaga er þegar hafin.
Þannig hefir félagið Ingólfur í
Reykjavík gefið út um nokkur ár
ritsafn, er flytur heimildir að sögu
landnáms Ingólfs, ásamt ritgerð-
um um það efni. Félag Borgfirð-
inga hefir gefið út tvö bindi af
sagnaþáttum úr héraðinu, og
Sögufélag Skagfirðinga hefir gef-
ið út tvö bindi Skagfirzkra fræða,
og hefir miklar ráðagerðir um út-
gáfu á prjónum. Loks hefir Árnes-
ingafélag sent út boðsbréf að
miklu riti um sögu og lýsingu Ár-
nessýslu. í mörgum öðrum héruð-
um eru félög stofnuð í sama til-
gangi, og ráðagerðir uppi um
framkvæmdir.
Ekki verður því með rökum
neitað, að félög þessi vinni ekki
nytsamt starf með því að bjarga
frá glötun ýmsum fróðleik og
menningarminjum, sem eru að
líða undir lok á þeim miklu breyt-
ingatímum, sem nú standa yfir.
Þá er og ekki ósennilegt að held-
ur kunni það að auka á heilbrigð-
an héraðsmetnað og treysta bönd
manna við hérað sitt, ef menn
geta kynnzt sögu þess frá rótum.
Við, Eyfirðingar, höfum verið
ýmusm landsbúum tómlátari um
jþetta efni. Veit ég eigi, hvort þar
muni um valda, að sumir telja
okkur ábui'ðarminni og hlédræg-
ari öðrum landsbúum, eða um
aðrar oi-sakir sé að ræða. En hitt
er þó' víst, að hér, í landnámi
Helga magra, hefir gerzt meiri
saga en í mörgum öðrum héruð-
um landsins. Enda varð héraðið
snemma fjölbyggt, og lega þess í
miðju Norðurlandi og ágætar
hafnir við fjörðinn skópu hér
snemma einskonar miðstöð fjórð-
ungsins. Síðar í’isu hér upp vei'zl-
unarstaðir, og um langan aldur
hefir Akureyri verið höfuðstaður
Norðurlands. Þarf því eigi að ótt-
ast að hér skorti söguefnið, ef til
er tekið.
Fyrir rúmu ári síðan hófust Ey-
firðingar loks handa um stofnun
félags, til þess að vinna að útgáfu
Eyfirðingasögu. Forgöngumenn
þess voru þingmennirnir Bei’n-
harð Stefánsson, Einar Ái'nason,
Erlendur Þorsteixisson og Stefán
Stefánsson. Efndu þeir til fundar
meðal Eyfirðinga í Reykjavík 12.
des. 1939, og var þá stofnað þar
Eyfirðingafélag. Gekk þegar
margt manna í félagið. Hefir og
öðrum slíkum félögum verið hinn
mesti styrkur að þeim héraðsbú-
um, er í Reykjavík eru búsettir.
Eru Eyfirðingar í Reykjavík hinir
áhugasömustu um stöi-f félagsins,
og þar eru einnig margir fræði-
menn, sem félaginu er hinn mesti
styrkur að.
Eftir heimkomu þingmannanna
boðuðu þeir til stofnfundar, er
haldinn var 9. maí s. 1., um leið og
aðalfundur Kaupfélags Eyfirð-
inga. Var þá sérstaklega gott
tækifæri að ná til manna víðsveg-
ar úr héraðinu. í félagið gengu
um 70 manns á stofnfundi, voru
þá samþykkt lög félagsins og kos-
in stjórn þess. í henni eru Bern-
harð Stefánsson, Einar Árnason,
Snorri Sigfússon, Steindór Stein-
dórsson og Þorsteinn M. Jónsson.
Furðuhljótt var um félagsstofnun
þessa. Blöðin gátu hennar að vísu,
en ekkert hefir verið síðan gert,
til þess að kynna héraðsbúum
stefnu þess og fyrirætlanii'. Er því
grein þessi rituð eftir samþykki
stjórnarfundar, til þess að minna
menn á tilveru félagsins, og jafn-
framt að eyða misskilningi nokkr-
um, sem vart hefir orðið um eðli
þess og uppruna,
Samkvæmt lögum þeim, er
stofnfundur samþykkti, heitir fé-
lagið Eyfirðingafélag og er félag
Eyfirðinga, Akureyringa og Sigl-
firðinga. Félagssvæðið nær með
öðrum orðum yfir hið forna lög-
sagnarumdæmi Eyjafjarðai’sýslu.
„Tilgangur þess er að vinna að
samningu og útgáfu sögu Eyja-
fjarðarhéraðs frá upphafi land-
náms til síðustu ára. Jafnframt að
safna fróðleik um merka og sér-
kennilega menn,- sem lifað liafa í
héraðinu, og um einstaka merkis-
atburði. Ennfremur að láta semja
(Framh. á. 2. síðu.)
Vasakver
með almanaki
fyrir árið 1941 hefir Samb. ísl.
samvinnufélaga gefið út, og er
þetta 3. árgangur kversins, sem er
allmikið breytt og stækkað fi'á
því, sem áður hefir verið. Ritstjóri
er Árni G. Eylands, framkvæmda-
stjóri. Bók þessi, sem er um 140
bls. í litlu broti, hefir geisimikinn
fróðleik að geyma. Allir íslenzkir
bændur þurfa fyrst og fi’emst að
eignast þessa bók, því að þar geta
þeir fundið margvísleg svör við
ýmsum vandamálum þeirra.
I. 0. O. F. = 1222219 =
□ Rún 59412267 — Frl.
Dánardœgur. Þann 3. þ. m. and-
aðist að heimili sínu hér í bæ Jcm
Markússon frá Samtúni, gamall
maður,
Þann 6. þ. m. andaðist að heim-
ili sínu, Sörlatungu í Hörgárdal,
Eiður Jónsson, ókvæntur maður
um fertugt. Bar dauða hans skjótt
að höndum.
Þann 15. þ. m. andaðist ekkjan
Anna Halldórsdóttir til heimilis á
Eyrai'landsveg 4- hér í bæ. Hún
var ekkja eftir Jóhannes Guð-
mundsson bónda að Miðhúsum í
Grundarsókn. Hún var á níræðis-
aldi'i.
Tundurdufl sprakk í fjörunni
fi’am undan bænum Harðbak á
Meli'akkasléttu að kvöldi 9. þ. m.
Var sprengingin svo kraftmikil,
að bæjarhúsin á Harðbak léku á
í-eiðiskjálfi og margar rúður
brotnuðu í þeim og fleiri smá-
skemmdir ui’ðu. Sprengingin
heyrðist til Raufarhafnar, um 12
km. vegarlengd,
Alþingi var sett 15. þ. m. að af-
lokinni guðsþjónustu f dómkirkj-
unní eins og venjulega.
Frá
búnaðar-
þinginii.
Búnaðarþing stendur nú yfir í
Reykjavík. Það kom saman 30.
janúar. Mættir voi’u 23 fulltrúar,
en 2 vantaði af Austurlandi og
mun svo enn vera. Fundir hafa
fram undir þetta verið stopulir
vegna veikinda og íxefndastarfa,
en mun nú vei'a farið að lagast.
Fyrir nokkru var búið að leggja
um 40 mál fyrir þingið og af-
greiða þau til nefnda. Meðal
þeirra mála, er fram hafa verið
iögð, eru tillögur frá milliþinga-
nefnd þeirri, er síðasta búnaðar-
þing kaus til að gera athugun á
og tillögur um nokkur mál, er þá
iágu fyrir búnaðarþinginu. Leggur
milliþinganefndin til:
a) að styrkur á opna skurði
hækki nokkuð.
b) að styrkur á votheyshlöður
hækki einnig. Ennfremur að
heildarstyrkur til votheyshlaðna
verði ákveðinn kr. 200.00 á hvert
býli.
c) Þá leggur nefndin til að
gi'eidd sé verðlagsuppbót á jarð-
ræktarstyrki, eins og hún er
ákveðin á hvei'jum tíma.
Þá leggur milliþinganefndin til,
að 17. gr. jarðræktarlaganna falli
niður. Hins vegar hefir hún sam-
ið frumvarp til laga um sölugjald
af jörðum og ætlast til, að þau
lög komi í stað ákvæða 17. gr.
Ákveðst sölugjald 15%—35% af
upphæð þeirri, er jörð er seld
hærra verði en gildandi fasteigna-
mat hennar. Seljandi greiðir
gjald þetta. Þrjá fimmtu hluta
gjaldsins skal leggja í sjóð, sem
er eign hinnar seldu jarðar, en
% hlutar renna til búnaðarfélags
hlutaðeigandi sveitar,
Þá liggja' og fyrir búnaðarþing-
inu breytingartillögur við lög um
Byggingai’- og landnámssjóð, er
fara í þá átt að hækka lán til end-
urbygginga í kr. 8000.00 og styrk
í kr. 500.00—3000.00.
Nánari fi'ásögn af búnaðarþing-
inu birtist væntanlega bráðlega í
blaðinu.
Bifreiðarslys varð í nánd við
Reykjavík 9. þ. m. Átján ára pilt-
ur, Guðmundur Eiríksson að
nafni, beið bana og nokkrir aðrir
meiddust,