Dagur - 20.02.1941, Side 2

Dagur - 20.02.1941, Side 2
90 3> A O U R 7. tbi. Kapphlaupið UBii vernd þjóðernis* Iskvaldri og sjálfshóli. „Hinn fórn- M MPM. MMM« | an(ji nráttur er hljóður“, segir skáldið spaklega. Ritstjóri íslendings reynir með lævísi að læða þeirri hugsun inn meðal lesenda sinna, að Dagur sitji á svikráðum við sjálfstæði íslenzku þjóðarinnar, Öðruvísi verða orð hans ekki skilin, þar sem hann segir, að skrif Dags séu til þess fallin að afla kenningum Snæbjarnar Jónssonar fylgis og spyr síðan hvort Dagur berjist fyrir því. Þetta • leyfir ísl. sér, þó honum hljóti að vera það fullkunnugt, að strax og vitað var um grein Sn. J, í enska blaðinu Spectator, erút kom í september s.l., mótmælti Dagur efni hennar og anda harð- lega og einarðlega. Aftur má benda ísl. á annað fyrirbrigði, sem honum liggur nær að hugsa um. Þremur mánuðum áður en grein Snæbjarnar birtist í Spectator, skrifaði Héðinn Valdi- marsson um það í blað sitt, Nýtt land, að bezt færi á að íslendingar steyptu sér kollhnís inn í brezka heimsveldið, því þar væru þeir bezt komnir. Þenna mann með þessum hugsunarhætti hafa flokksmenn íslendings tekið í bandalag við sig og ætla að hjálpa honum til að eiga framvegis setu á Alþingi. Var þetta gert til þess að „halda heilbrigðum þjóðarmetnaði vorum vakandi?" Hvað segir íslendingur um það? Kommúnistar hafa gemsað um það nýlega, að þeir væru eini flokkurinn, sem í alvöru berðist fyrir verndun þjóðlegra verðmæta og sjálfstæði íslenzku þjóðarinnar. Það dettur nú engum í hug að leggja nokkurn trúnað á svona heimskulegt sjálfshól kommún- ista. Mönnum er í of fersku minni afstaða þeirra til árása Rússa á sjálfstæði smáþjóða til þess að geta treyst þeim hér heima fyrir. Nú hefir annar aðili hafið kapp- hlaup við kömmúnista um þetta mál. Það er blaðið íslendingur, málgagn Sjálfstæðisflokksins hér á Akureyri. Það er á íslendingi að heyra, að hann sé eini aðilinn af blöðum bæjarins, er sé á verði gagnvart glötun þjóðernisins og þjóðlegra verðmæta. Jafnframt hreytir hann að Degi, fyrir að hafa gengið slælega fram í því að vara við þeirri hættu,. er okkur standi af veru brezka setuliðsins hér. Þess er ekki að dyljast, að Dag- ur lítur svo á, að þessi hætta sé miklu minni en ísl. vill vera láta í kapphlaupi sínu við kommún- ista. Sá, sem ekki hefir meiri trú á styrkleik íslenzks þjóðernis en það, að hann hyggur það fari for- görðum, ef brezkt setulið hefir hér dvöl um stundarsakir, er sannarlega trúardaufur á mátt þess. Hitt er rétt, að alltaf eru fyrir hendi einstaklingar, sem eru svo lítilsigldir, að þeir liggja flat- ir fyrir útlendum áhrifum; er þar nærtækasta dæmið auðmýkt og undirlægjuháttur kommúnista gagnvart öllu því, sem rússneskt er, svo og dýrkun nazista á þýzkri yfirdrottnunarstefnu. En þetta snertir aðeins einstaklinga, að vísu alltof marga, en ekki heild- ina. íslendingi líkar það illa, er Dagur benti á, að eðlilegt væri að afstaða íslendinga til brezka setu- liðsins væri önnur en Dana og Norðmanna til þýzka hersins í löndum þeirra. í Danmörku og Noregi „nægir andúð fólksins gegn innrásarhernum til að varð- veita þjóðernið og tunguna“, seg- ir blaðið. Hér sé hættan meiri, af því að Bretar séu mildari í okkar garð en Þjöðverjar eru fyrnefnd- um löndum. Það er á ritstjóra ísl. að heyra, að honum þyki það miður, að Bretar hafi ekki leikið okkur hart, því þá myhdi þjóð- ernistilfinning okkar hafa magn- azt. En er sú þjóðernistilfinning sérlega eftirsóknarverð, sem sprottin er af kúgun útlends valds og nærð af hatri til annara? Sú sanna ættjarðarást og þjóðernis- tilfinning á rætur í sjálfri sér en ekki í utanað-komandi áhrifum. Það er mjög haepið, að hún sé rL-rkusí þnr sem hún kemur fram í sífcldum prédikunum, orða- Eyíirðingafélag — Eyfirqingasaga. (Framh. af 1. síðu). héraöslýsingu, þar sem lýst er landslagi og gróðri svo og merk- isstöðum, atvinnuháttum og and- legu lífi“. Með þessari grein laganna er stefna félagsins og starfssvið svo skýrt markað, að ekki er þörf frekari athugasemda. Síðan hefir stjórnin nokkuð rætt um, hversu framkvæmdum skuli hagað og hafið undirbúning í því efni í samráði við stjórn Reykjavíkur- félagsins, en formaður þess er Ingólfur Davíðsson magister. Á- kveðið er að láta rita fullkomna héraðssögu, og heflr Barði Guð- mundsson þjóðskjalavörður tekið að sér að semja fyrsta bindi henn- ar, um sögu þjóðveldistímans. Ætla má að sagan verði alls 4—5 bindi, þar af sennilega eitt bindi Akureyrarsaga. í sambandi við söguna verður gefin út héraðslýs- ing, er undirrituðum hefir verið falið að annast. Þá hafa og verið teknir til athugunar möguleikar á því, að gefa út árlegt ritgerðasafn í líkingu við útgáfu félagsins Ing- ólfur í Reykjavík. Þar verða gefin út óprentuð heimildarrit um hér- aðið á liðnum öldum ásamt rit- gerðum um einstakar fannsóknir á sögulegum atriðum eða öðru, er héraðið snertir, ennfremur sagna- þættir o. fl. Helzt er ráðgert að fyrsta hefti ritsafns þessa komi út á þessu ári, þar sem útgáfa aðal- ritsins hlýtur að dragast nokkru lengur, sakir þess undirbúnings, er það krefst. Nokkuð hefir og stjórnin rætt um söfnun örnefna, þjóðhátta, atburðasagna o. fl. án þess nokkur starfsáætlun hafi ver- ið gerð þar um. Það er auðsætt af þessu, að fé- lagsins bíða mikil verkefni, og allt líf þess og framkvæmdir er undir því komið, að það njóti styrks og velvildar héraðsb.úa. Leitað verður fjárstyrks til sýslu- sjóðs, bæjarsjóða Akureyrar og Siglufjarðar og Menningarsjóðs Kaupfélags Eyfirðinga; er þess að vænta, að þeir aðilar bregðist hér vel við. Annars hlýtur megin- styrkur félagsins að verða í því fólginn, að sem flestir gerist með- limir þess og um leið áskrifendur og kaupendur rita þeirra, er það gefur út. Enn hefir lítið verið eftir því leitað, að safna mönnum í félagið. En nú bráðlega mun verða hafist handa í því efni og áskriftarlistar sendir meðal manna. Væntir stjórn félagsins þess, að héraðsbúar allir, í bæjum og sveitum, bregðist vel við, því að ekki er það héraðinu vansa- laust, ef félagið fær ekki komið verkefnum sínum í framkvæmd vegna ónógrar þátttöku í einu af fjölmennustu og þéttbýlustu hér- uðum landsins. Þá væntir stjórn- in einnig samvinnu við alla þá menn, sem einhverjum fróðleik hafa að miðla um efni þau, er greinir í stefnuskrá félagsins. Mælist hún til þess, að þeir gefi sig fram við einhvern af meðlim- um stjórnarinnar, ef þeir vilja taka að sér störf í sambandi við efnissöfnun eða skrásetningu ey- firzkra fræða. Trúum við ekki öðru, en Eyfirðingar reynist hér trúir byggðarlagi sínu og bregðist drengilega við málaleitan þessari. Akureyri 9. febr. 1941. Steindór Steindórsson frá Hlöðum. KAUPI notud ísi. frímerki hæsta verði Ouðm. Oliðiaugsson, Kea ■■■■ *mm» !! $! Bollu- dagino jj borða allir fiskbollurÍ fel i I !. Ul jffijyiidðU!! Cel\VU!UIi jj --IMIWMÍ ■■ i™» — ■■ WIHIH>'!■■■ ■»«> frá S. I. F. i ■ ■■■4 ■PBB1 20. febrúar er að líða. Hafið þér at- hugað það, að þessi dag- ur getur valdið yður missi hárrar peningaupphæðar, ef þér hafið gleymt að end- urnýja happdrættismiða yð- ar frá í fyrra, því að þeg- ar 21. febrúar getur hann verið seldur öðrum. Og fyrir yður, sem bíðið þess að núm- er losni, geturrunn- ið upp nýtt happa- tímabil 21. febrúar. Notið P E R L U-þvottaduft. Á Ijósmyndastofunni í GRÁNUFÉLAGSGÖTU 21 getið þér fengið nýmóðins Kombinationsmyndir og margar fleiri gerðir, sem hvergi fást annars staðar Guðr. Funch-Rasmussen. wmmHKifffnHtfiB Gúmmí§(ígvél og gúmmíbú§$ur nýkomið. Kaupfélag Eyfirðinga. J| Skódeild f iiliiilll i liillillliM

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.