Dagur - 23.04.1941, Blaðsíða 1
DAGUR
kemur út á hverjum
fimmtudegi. Argang-
urinn kostar kr. 6.00.
Ritstjóri:
Ingimar Eydal.
Prentverk
Odds Bjömsonar.
AFGREIÐSLAN
og innheimtan I skrif-
stofu blaðsins við
Kaupvangstorg.
Sími 96.
Afgreiðslumaður og
gjaldkeri:
Jóhann Ó. Háraldsson
Akureyri, 23. apríl 1941.
Aoalfundur K. E. A. 1941.
Fimmtudaginn þ. 17. þ. m. hófst
aðalfundur Kaupfélags Eyfirðinga
í Nýja-Bíó á Akureyri.
Mættir voru á fundinum 158
fulltrúar úr 21 félagsdeildum,
stjórn félagsins, framkvæmda-
stjóri, endurskoðendur og ýmsir
aðrir félagsmenn.
Eftir að rannsókn kjörbréfa var
lokið var Hólmgeir Þorsteinsson
kjörinn fundarstjóri, en hann
kvaddi sér til aðstoðar sem vara-
fundarstjóra Stefán Ingjaldsson.
Skrifarar fundarins voru Skafti
Guðmundsson og Garðar Hall-
dórsson, en Sveinn Bjarman var
ráðinn þeim til aðstoðar við bók-
unina,
SÝRSLA STJÓRNARINNAR.
Varaformaður félagsins, Ingi-
mar Eydal, flutti fyrir hönd fé-
lagsstjórnarinnar skýrslu um
helztu framkvæmdi'r félagsins á
árinu 1940. Voru þær sem hér
segír:
Sölubúð félagsins í Ólafsfirði
endurbætt.
Keyptur meiri hluti af hluta-
fjáreign bifreiðaverkstæðisins H/f
Hamarinn Mjölnir á Akureyri.
Bygging frystihúsa í Hrísey og
í Ólafsfirði og endurbætur á
frystihúsinu á Dalvík.
Gefín út ýtarleg skýrsla yfir
starfsemi félagsins á árinu 1939 er
send var hverjum félagsmanni að
loknum aðalfundi 1940.
Hafngerð Dalvíkur veitt 10 þús.
kr, fjárframlag samkv. málaleitun
frá hreppsnefnd Svarfaðardals-
hrepps.
Veittar ki'. 150.00 til varnargirð-
ingar vegna fjárpestar í Hóla- og
Viðvíkurhreppum í Skagafirði.
Stjórnin fól Árna Björnssyni
kennara að safna vanhaldaskýrsl-
um í héraðinu til undirbúnings
stofnunar búfjártryggihgarsjóðs.
Ábúanda jarðanna Flögu og Ein-
hamars í Hörgárdal seldar þær
fyrir kr. 8000.00.
Selt til niðurrifs svokallað
Njarðarhús á Svalbarðseyri, er
var að hálfu leyti eign K. E. A.
Stofnsett lítil skipasmíðastöð á
Oddeyrartanga. Eru þar nú í
smíðum nokkrir mótor- og trillu-
bátar og hafinn undirbúningur að
smíði á 150 smálesta mótorskipi
fyrir félagið.
Varaformaður lauk máli sípu
K.E
með hvatningarorðum til félags-
manna um að standa einhuga
saman um málefni samvinnustefn-
unnar, er hann taldi hið öruggasta
vígi á þessum alvarlegu tímum.
Tóku fundarmenn undir það með
almennu lófataki.
SKÝRSLA FRAMKVÆMDA-
STJÓRA.
Framkvæmdastjóri félagsins,
Jakob Frímannsson, flutti grein-
argerð og nákvæma skýrslu um
reksturstarfsemi félagsins og fyr-
irtækja þess á liðnu ári. Gerði
hann glögga grein fyrir sölustarf-
semi, iðnrekstri, útgerðarstarfsemi
og afurðasölu félagsins og birti út-
komu og árangur hverrar starfs-
greinar fyrir sig.
Verzlunarrekstri félagsins hefir
verið hagað í öllum aðalatriðum á
sama hátt og undanfarin ár. Hefir
verið reynt eftir megni að hafa á
boðstólum sem fjölbreyttastan
varning og gæta þess, að birgðir
af öllum brýnustu nauðsynjavör-
um væri ávallt meiri en venja
hefir verið, vegna yfirvofandi sigl-
ingateppu af völdum ófriðarins.
IJefir þetta haft talsvert aukinn
kostnað í för með sér, sérstaklega
vaxtatap og húsaleigukostnað.
Jafnframt hefir verið leitazt við
að hækka ekki álagningu en frek-
ar draga úr henni á þeim vörum,
sem fyrir mestri verðhækkun
hafa orðið. Vörusalan hefir að
peningaverðmæti numið alls um
4Y2 miljón ki'ónum í búðum fé-
lagsins á Akureyri og útibúum
þess við Eyjafjörð og í Grímsey.
Er þetta talsvert minni aukning
en gera hefði' mátt ráð fyrir, ef
salan hefði aukizt í hlutfalli við
verðhækkunina. Framan af árinu
1940 var verzlunin mjög dauf og
leit á tímabili út fyrir, að vörusal-
an mundi mihnka stórlega frá því
sem hún var 1939. Úr þessu fætt-
ist þó vonum framar seinni hluta
ársins sökum aukinnar atvinnu og
hækkandi verðs á framleiðsluvör-
unum.
Samt sem áður hefir vörusalan
ekki aukizt nema um ca. 15%, sem
er talsvert minna en sem svarar
verðhækkuninni.. eða hækkun á
kostnaði við verzlunarreksturinn.
Sala kjötbúðarinnar var sú
langmesta, sem nokkurntíma hefir
orðið, eða tæpar 590 þús. kr.
Miðstöðva- og hreinlætistæki
voru seld fyrir um 180 þus. kr.
Hefir salan á þessum vörum eins
og öllum öðrum byggingavörum
minnkað að miklum mun.
Kola- og saltsala var að pen-
ingagildi talsvert meiri en árið áð-
ur, ‘ þótt vörumagnið minnkaði
verulega. Kolaverð fór heldur
lækkandi eftir því sem leið á ár-
ið; verðjöfnun var framkvæmd og
verðinu haldið niðri eins og mögu-
legt var, enda var enginn ágóði af
kolaverzlun félagsins að þessu
sinni.
Félagið keypti rúmlega 1000
tonn af salti síðastl. vor, sem kost-
aði kr. 165.00 tonnið. Með hjálp
eldri birgða var þó hægt að selja
það salt fyrir kr. 145.00 tonnið, og
hélzt það verð allt árið.
Hraðfrystihús félagsins á Odd-
eyri var endurbætt hvað vélakost
og frystitæki snertir.
Beinamjölsverksmiðjan á Dalvík
var flutt til Akureyrar og endur-
byggð þar.
Lifrarbræðslu rak félagið eins
og að undanförnu á Dalvík, Hrís-
ey, Grenivík og Grímsey, og var
framleiðslan sú mesta, sem nokkru
sinni hefir verið,
Verksmiðjur félagsins, brauð-
gerð og pylsugerð, störfuðu allt
árið. Var eftirspurn eftir öllum
framleiðsluvörum meiri en dæmi
eru til, en örðugleikar um útveg-
un hrávara talsvert tilfinnanlegir.
Sala sjávarafurða má heita að
hafi gengið gr&iðlega og eru flest-
ar framleiðsluvörur útgerðarinnar
nú seldar. Fiskurinn var að mestu
fluttur út ísvarinn eða hraðfryst-
ur. Verðið var mjög hátt, sérstak-
lega seinni hluta ársins, og hefir
árið 1940 verið það mesta veltiár
fyrir sjávarútveginn, sem dæmi
eru til.
Af saltfiski hafði félagið um
6000 skp. til sölumeðferðar og er
það 4000 skp. minna en árið áður.
Verðmæti þessara 6000 skþ. varð
þó fullt eins mikið og 10000 skp.
árið 1939.
Hraðfrystihúsin framleiddu alls
um 447 þús. kg. af fiskiflökum
(aðallega þorskur, ýsa og koli)
fyrir að verðmæti um 800 þús, kr.
Sala landbúnaðarafurða hefir
gengið mjög treglega. Má þó heita
að nú séu flestar afurðir ársins
seldar. Ull og gærur liggja þó enn
í landinu, en frá sölu mun hafa
verið gengið fyrir skemmstu. End-
anlegir sölureikningar hafa enn
ekki borizt yfir neinar af aðal-
landbúnaðarafurðunum, sem út
(Frsmh, át 2. síðu.)
Allir samlaka.
Sumardagurinn fyrsti er á morg-
un. Sumardvalarnefnd barna hef-
ir ákveðið að gera hann að fjár-
söfnunardegi hér á Akureyri í
þeim tilgangi að safna saman svo
miklu fé, sem unnt er, til þess að
kosta Akureyrarbörn á sveita-
heimilum í sumar,
Fjársöfnunin fer fram á þann
hátt, að merki verða seld á götun-
um og í húsum, Kvenfélagið Hlíf
hefir bazar í bæjarstjórnarsalnum
og kaffisölu í Skjaldborg og renn-
ur allt, sem inn kemur í sumar-
dvalasjóðinn, Þá hefir Nýja Bíó
kvikmyndasýningu til ágóða fyrir
sjóðinn og karlakórinn Geysir
mun halda útisamsöng.
Merkjasölunni verður hagað
þannig: öll merkin verða aí sömu
gerð, en hver kaupandi látinn
sjálfráður, hve mikið hann greið-
ir. Þó er ætlazt til þess, að lág-
marksgreiðsla fullorðinna sé ein
króna. Hver merkjasali fær inn-
siglaðan kassa, sem peningarni'r
verða- látnir í, og á þann veg
tryggt, að peningarnir komast til
skila í réttar hendur,
Laugalandsskólinn er fenginn
sem dvalarheimili fyrir Akureyr-
arbörn í sumar.
Alltaf er þörf fyrir kaupstaða-
börn að komast á góð heimili í
sveit á sumrin, en nú er þó nauð-
synin brýnni en nokkru sinni' áð-
ur af ástæðum, sem öllum eru
ljósar og ekki þarf að rekja. Fjöldi
bæjarbúa hefir rýmri hendur
fjárhagslega en venjulega. Látum
það sjást við fjársöfnun til hjálpar
börnunum á morgun.
Öll framlög í þá átt eru lögð í
sjóð framtíðarinnar. Verum sam-
taka.
Kvikmyndasýningar í Nýja Bíó
næstu daga.
Á sumardaginn fyrsta kl. 5 og
kl. 9 og á laugardagskv. kl. 9 verð-
ur sýnd myndin Eiginkona að
nafninu til, með Carole Lombard
og Cary Grant í aðalhlutverkun-
um. Allt, sem inn kemur á þessum
sýningum, gengur til styrktar
börnum til sumardvalar í sveit.
Á föstudag og sunnudag verður
sýnd myndin óveðursnóttin, með
Irene Dunn og Charles Boyer í að-
alhlutverkununu