Dagur - 05.06.1941, Blaðsíða 1

Dagur - 05.06.1941, Blaðsíða 1
DAGUR kemur út á hverjum fimmtudegi. Árgang- urinn kostar kr. 6.00. Ritstjóri: Ingimar Eydal. Prentverk Odds Björnsonar. • • -• * • XXIV. ARG ‘I Akureyri, 5. júní 1941. AFGREIÐSLAN og innheimtan í skrif- stofu blaðsins við Kaupvangstorg Sími 96. Áfgreiðslumaður og gjaldkeri: Jóhann 0. Haraldsson • • •■• « » 0*4 «► <* O- « O 22. tbl. Frá starfi Skögræktar* félags Eyfirðinga. Qirding á Kóngsstaðahálsi i Svarfaðardai Samtal við Árna Jóhannsson, formann félagsins. Viöliui’Air siðustu daga: Qsipr Breta á Krít. Ummæli Roosevelts um eyjarnar í Atlantshafi. Brezkt verkamaunaflokkiirinn og styrfðldln. Skógræktarfélag Eyfirðinga hef- ir í vor allmiklar tramkvæmdir á prjónunum til þess að vernda skógarleifar 1 héraðinu og gróður- setja nýgræðing. Tíðindamaður blaðsins leitaði frétta af starfi fé~ lagsins hjá Árna Jóhannssyni. „Helztu framkvæmdir á þessu vori verða þær“, sagði Árni, „að við höfum ákveðið að koma upp girðingu á svonefndum Kóngs- staðahálsi í Svarfaðardal til verndunar skógarleifum sem þar eru. Er þama lágvaxið kjarr á all- stóru svæði, sem talið er að myndi geta orðið fallegur skógur ef það fengi að vaxa í næði. Girð- ing þessi mun verða um 2% km. á lengd. Með þesum ráðstöfunum yrði aðalskógarleifunum í dalnum bjargað, en skógur er nú orðið ekki annarstaðar, nema í nágrenni Karlsár, en þar er of bratt til þess að hægt sé að girða. Svarfdæling- ar munu vinna með félaginu. I dalnum er félag starfandi, sem hefir sama markmið og Skógrækt- arfélagið og mun það vinna að þessu með okkur, auk þess sem ýms önnur félög og einstaklingar þar leggja fram vinnu og e. t. v. eitthvað fé“. Hvernig gengur með gróður- setninguna í Vaðlaheiði? „Vel, held eg mér sé óhætt að fullyrða, Við höfum sett þar nið- ur 8—12000 plöntur á ári hverju og vona eg að þetta ár verði engin undantekning frá því, nema ef meira væri að gert. Við höfum þegar sett þar niður 2000 birki- plöntur og um 150 barrplöntur. En aðalerfiðleikar okkar við skógræktina þar, eru vandræðin með plöntuútvegun. Uppeldis- stöðvarnar eru svo smávaxnar, að þær koma að engu liði við skóg- rækt sem þessa og plöntuskort- urinn er það mál, sem þarfnast lausnar hið fyrsta“. Er félagið kannske að hugsa um að koma á fót uppeldisstöð? „Víst væri það æskilegt, ef hægt væri, og við höfum það mál til at- hugunar, en of snemmt er að segja nokkuð um það frekar“. Hvernig þroskast skógurinn i Vaðlaheiðinni? „Hann þroskast vel. Elztu plönt- urnar eru nú 4 ára og eru orðnar 75 cm. háar. Auk þess hefir kom- ið í ljós, að viltar plöntur uxu strax upp og girðingin var komin og landið varð ekki fyrir ágangi búfjár“. Er Skógræktarfélagið fjöl- mennt? „Nei, því miður er það alltof fá- mennt. Til þess að verulegur skriður komizt á starf félagsins þyrftu félagsmenn að vera marg- fallt fleiri. Er það undarlegt sinnuleysi, að menn skuli ekki vilja styrkja þetta menningarmál af meira kappi. Allur vandinn er sá, að ganga í félagið, og greiða 5 krónu árgjald. Ef þátttakan yrði almenn mundi félaginu vaxa fisk- ur um hrygg og geta lagt í stærri framkvæmdir, en verkefnin blasa allstaðar við. Almenn þátttaka og aukin fram- lög frá því opinbera er það, sem (Framh. á. 2. síðu.) Á síðastliðnum vetri brotnaði frystihúsbryggja Kaupfélags Ey- firðinga, á Oddeyrartanga, af völdum ísreks; féll hluti bryggj- unnar og eyðilagðist varningur sem á henni var geymdur. K. E. A. er nú að láta endurreisa bryggjuna á þann hátt, og garður er steyptur og hlaðinn eins djúpt og hægt er um fjöru og gerð upp- fylling fyrir ofan. Verður því traust uppfylling framan við frystihúsið, þar sem áður .var timburpallur, alllangt fram, en traust timburbryggja verður reist þar framan við til þess að stærri skip geti lagst að. Þetta e fyrsta bryggjuuppfyll- ing á Oddeyrartanga og er að því mikil bót, því bryggjur þar hafa oft orðið fyrir skemmdum af völd- um íss pg sjpgangs. Herför Þjóðverja til Krítareyjar er lokið. Bretar hafa flutt það af her sínum, sem þeir komust með Karlakórinn Vísir af Siglufirði söng hér í Nýja-Bíó s.l. miðvikudag, 28. þ .m., við hús- fyllir og hinar ágætustu viðtökur áheyrenda, Kórinn er nú betri og fullkomn- ari að söngkröftum og æfingu en hann hefir nokkru sinni verið. Var frammistaða hans öll með ágætum og framkoma öll hin prýðilegasta. Þeir Daníel Þórhallsson, Halldór Kristinsson, Sigurjón Sæmunds- son og Þorsteinn Hannesson fóru með einsöngva, og gerðu það yf- irleitt vel og smekklega, og varð að endurtaka öll einsöngslögin. Á söngskránni var nýtt lag eft- ir Sigurð Birkis söngkennara, sem vakti óskiptan fögnuð áheyrenda. Söng Halldór Kristinsson einsöng í því lagi, og kunnu menn vel hans kyrlátu og hreimgóðu bassa- rödd, enda þó hann væri ekki sem bezt fyrirkallaður. Frú Else Blöndal aðstoðaði kór- inn við flygel. Söngstjóri er enn, sem áður, Þormóður Eyjólfsson konsúll, Að söngskrá tæmdri var kórinn ávarpaður nokkrum þakkarorðum, og tóku áheyrendur undir þau með almennum húrrahrópum. Halldór Kristinsson svaraði, og söng kórinn enn eitt lag. Að samsöngnum lpknum buðu karlakórarnir á Akureyri Vísir til borðhalds á Hótel Gullfoss. Daginn eftir fór kórinn með bif- reiðum vestur um Skagafjörð, Húnavatnssýslur, Borgarfjörð, og allt til Akraness, en þaðan til baka aftur, og um Sauðárkrók heimleiðis, og lét allvíða til sína heyra. á brott, en margt manna hefir verið tekið' höndum, mest Ný-Sjá- lendingar, svo og mestur hluti þess hers, sem Grikkir höfðu á eynni. Bretar viðurkenna að það sé mikið áfall fyrir þá að hafa tapað Krít og að þýzki herinn hafi unnið mikið afrek og sýnt frá- bæra skipulagningu, m, a. með því að flytja 30000 manna lið loft- leiðis til eyjarinnar, Þjóðverjar hafa með töku Krítar fengið bækistöð til árása á Súeskurð og lönd Breta við botn Miðjarðar- hafsins. Er búist við miklum átök- um þar eystra á næstunni. UMMÆLI ROOSEVELTS um eyjarnar í Atlantshafi vekja að vonum mikla athygli hér á landi. Þykir rétt að birta þau orðrétt. „Ef nazistum tækist að hernema eða ná fótfestu á nokkurri eyju í Atlantshafi, þá væri þar með ör- yggi stórra svæða af Norður- og Suður-Ameríku, eyja, sem til- heyra Bandaríkjunum, og þar með sjálfu meginlandi Bandaríkj- anna, stofnað í yfirvofandi bættu. Það hefir verið sökt skipum á milli Grænlands og íslands. Það er staðreynd, að fjölda mörgum skipum hefir þegar verið sökkt á svæði, sem er á vesturhelmingi jarðar. Menn vita, að langmest af þeim hergögnum, sem Bandaríkin senda til Englands, fer hina norð- lægu skipaleið, örstutt frá Græn- landi og nálægt íslandi. Alvarleg- ustun árásir Þýzkalands á skipa- lestir eiga sér stað á þessari sigl- ingaleið. Ef nazistum tækist að hernema ísland, eða bækistöðvar á Grænlandi, þá væri stríðið þar með komið í næsta nágrenni við strendur hins ameríska megin- lands, því að þessi tvö lönd eru eins og stiklui’ á leiðinni til Labrador, Nýfundnalands, Nýja- Skotlands og nyrztu ríkjanna á austurströnd Bandaríkjanna. Það er sama, hvaða bækistöð það væri, sem nazistar næðu á sitt vald á öryggissvæði Bandaríkj- (Framh. á 2. sfðu).

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.