Dagur - 20.11.1941, Blaðsíða 3
46. li»i.
d a a tr r
191
> * ♦ 4 -♦■♦ •♦-
♦- ♦-♦-♦•■♦-♦• ♦ ■♦ ♦ ♦ ♦■♦ ♦
Innilegt þakklœti til allra íyrir veitta samúð og hluttekningu
við fráfail og jarðarför konunnar rninnar, Þóru. Hjaitalin.
Bjarni Hjaltalín.
.Doktorarnir'
sem rita „Verkamanninn“ eru
auðsýnilega pikkandi viðkvæmir
fyrir uppreistum. Þetta er ógnar-
lega skiljanlegt. í paradís komm-
únista, Rússlandi, hafa uppreistir
verið tíðar í þeirri merkingu, er
„doktorarnir“ leggja í það orð.
Stalin hefir löngum staðið í því
að bæla þessar uppreistir niður í
ríki sínu. Aðferðin hefir verið sú
að senda uppreistarseggina eða
þá, sem eitthvað villtust út af
hinni „réttu línu“, inn í eilífðina,
og er nú búið að slátra flestöllum
eldri leiðtogum bolshevikka. Hvíla
þeir nú í gröfum sínum fyrir náð
„félaga“ Stalins.
Það hefir meira að segja komið
til „uppreistar“ í liði „doktor-
anna“ hér á íslandi. T. d. fékk
kommúnisti einn á Siglufirði
sannfæringarkast hér um árið og
hefði sjálfsagt verið drepinn, ef
hann hefði verið í Rússlandi. Hér
var hann látinn sleppa með að
biðja sárt og aumingjalega um
fyrirgefningu á þeirri hræðilegu
synd, er hann hefði drýgt gegn
Stalin!
Svona gengur það til í nánd við
„doktor“ Steingrím og „doktor“
Jakob.
Vibori 09 vélakjöt.
„Doktorar“ Verkam. skilja það
ekki, að Rússar hafi náð Viborg
frá Finnum snemma árs 1940, en
Finnar hafi náð borginni aftur frá
Rússum í haust.
Hitt skilja „doktorarnir“ vel, að
Rússar séu farnir að framleiða
kjöt með vélaafli, eins og þeir
gátu um í blaði sínu fyrir nokkru.
Þeir ættu að segja meira frá
vélakjöti þessu.
Ársafmœli vígslu Akureyrar-
kirkju fór fram á mánudagskvöld-
ið eins og til var stofnað og getið
var í síðasta blaði. Um 400 manns
sóttu kirkjusamkomuna og um
900 kr. upphæð safnaðist í að-
gangseyri, er kirkjan fær að
njóta.
Guðsþjónustur í Grundarþinga-
prestakalli: Saurbæ, sunnudaginn
30. nóv., kl. 1 e. h. — Grund,
sunnudaginn 7, des., kl. 1 e. h.
í. O. G. T. St. Brynja heldur
fund í Skjaldborg næstk. mið-
vikud. kl. 8.30. — Inntaka. —
Mikilsverðar tilkynningar. Áríð-
andi að hver einasti félagi mæti.
Að afloknum stuttum fundi verð-
ur samsæti, og ef til vill dansað.
Fyrirlesturinn: „Hallgrímur
Pétursson og kenningar hans“,
sem Arthur Gook flutti fyrir
stuttu á Sjónarhæð, verður endur-
tekinn, eftir sjerstakri áskorun, í
Zíon, sunnudaginn 23. þ. m., kl.
8.30 e. h. Allir velkomnir! Enn-
fremur sunnudagaskóli kl. 11 f. h.
á sama stað. Öll börn velkomin.
Sherlock Holmes verður leikinn
næstk. laugardags- og sunnudags-
Hvöld.
FrijSfo á Syðri-Bakka
Dáinn 5. október 1941.
Er þín var þögnuð tunga,
mér þótti Bakki minni.
Þú fræddir aldna og unga
svo oft á lífstíð þinni.
Þú sand af sögnum kunnir,
er sykraði beizka daga,
og ættfræði þú unnir,
og íþrótt gamla Braga.
Og verkadrjúgur varstu
Þótt værir að kröftum þrotinn.
Og byrði lífs þíns barstu
svo beinn, en aldrei lotinn.
Þú varst hin vaska hetja
og vökumaður harði.
Þig tjáði lítt að letja
þótt lúann bæri að garði.
í lífsins stranga stríði
þú stóðst án þess að kvarta,
en smáðir lata lýði
og linku af öllu hjarta.
Þú beinn og reifur barðist
í byljum sárra nauða.
Og elli vel þú varðist.
Ei varstu smár í dauða.
Þú vannst ei stóran vinning
í veraldar happadrætti.
Þó lifa mun þín minning,
en mest af einum þætti.
Nú heim þú hefur gengið
frá hrjúfu, köldu landi.
Þú hefur frelsi fengið;
úr fjötrum laus þinn andi.
Sveitungi.
Hlutaveltu hefir kvenfélagið
Hjálpin 1. des. næstk. í samkomu-
húsinu í Saurbæ. Dans á eftir. —
Veitingar fást á staðnum. Húsið
opnað kl. 9.30. Aðgangur kostar
kr. 1.50. Skemmtunin aðeins fyrir
íslendinga.
Gjafir í Vinnuhœlissjóð S. í.. B.
S. 9 menn í vinnufloklti Davíðs
Áskelssonar kr. 100.00. Kvenfélag-
ið Hlíf, Ak., kr. 200.00. Þröstur og
Þyri Laxdal kr. 50.00. N. N. kr.
50.00. K. kr. 50.00. Kolbeinn Árna-
son kr. 10.00. 14 menn í vinnu-
flokki Gunnars Bogasonar kr.
92.00. Þakkir. H. P.
Nýja Bíó sýnir í kvöld kl. 6:
Ellie May og kl. 9: Heppnir vin-
ir. Á föstudaginn kl. 6 og 9: Bak
við tjöldin. Á laugardaginn kl. 6
og 9: Heppnir vinir. Á sunnudag-
inn kl. 3: Óður hjartans (barna-
sýning), kl. 5: Ósýnilegi maðurinn
kemur aftur (bönnuð börnum inn-
an 16 ára) og kl. 9: Bak við tjöld-
in. —
Bamastúkan ,,Samúð“ heldur
fund næstk. sunnudag kl. 10.30 i
Skjaldborg. C-flokkur skemmtir.
Fjölmennið! Munið ársfjórðungs-
gjöldin!
Pétur Magnússon hrm. hefir
verið kjörinn bankastjóri Lands-
bankans.
Nýlátiwn er á Landsspítalanum
Páll Halldórsson erindreki eftir
þunga legu. Hann var hátt á sjö-
tugsaldri, vel gefinn og vinsæll
maður.
Sjötugsafmœli átti 5. þ. m. Jón-
as Á. Jónasson trésmíðameistari
ihér í bae.
Bækur.
Oscar Clausen: Prestasögurll.
Porsteinn M. Jónsson gaf út.
Bók þessi er rúmar 100 bls. að stærð
Segir hún fyrst frá Grímseyjarprestum,
og nær sú frásögn yfir nær he'ming
bókarinnar. Segir þar frá öl'utn prest-
um í eyjunni frá því um 1700 og allt
til vorra daga. Endar frásögnin á sr.
Pétri Guðmundssyni og sr. Matíh'asi
Eggertssyni, hinum síðasta Grímseyjar-
presti. Nú er prestlaust í Grímsey, en
presturinn í Ólafsfi.ði er látinn sjá um
ajónustu þar.
Næst segir frá tveimur prestum í
Reykjadal í Hrunamannahreppi, þeim
sr. Þórði Jónssyni, sem var prestur í
Reykjadal 1728—1759, og sr. Jóni
Guðmundssyni, er þar var prestur 17ó7
— 1 770, og voru þeir báðir harla ein
kennilegir menn.
Síðast eru frásagnir um sr. Hjálmar
á Hallormsstað og sr. Guðmund föður
hans, er varð þjóðkunnur fyrir kvenna-
mál sín. Sr. Hjálmar fékk Hallorms-
stað 1832 og var þar prestur til æfi-
loka, en hann dó 1861, kominn yfir
áttrætt,
Bókin er skemmtileg og í henni tals-
verður sögulegur fróðleikur.
Grima. Tímarit fyrir íslenzk
þjóðleg fræði. 16. hefti. Rit-
stjórar: Jónas Rafnar og Þor-
steinn M. Jónsso.n Útg. Þor-
steinn M. Jónsson.
Eins og jafnan áður flytur þessi síð-
asti árgángur Grímu, setn er sá 16. í
röðinni, þjóðlegan og skemmtilegan
fróðleik, og er hún altaf kærkominn
gestur á fjölda heimila.
Lengsta greinin í þessu hefti Grímu
er um Sandholtsfeðga, efiir Oscar C'au-
sen. Voru þeir kunnir verzlunarmenn
á sínum tíma og eiga margaafkomend-
ur. Önnur lengsta greinin er um Kristján
fótalausa érkennilegan ólánsmann, sem
uppi var á fyrri hluta 19. aldar. Greinina
tiefir Konráð Vilhjálmsson skrásett. Þá
eru einnig nokkrarstyttri frásagnir nm
drauga, huldufólk, drauma, ,hafmenn
o. fl.
Eimreiðin. 3. h. 1941. Rit-
stjóri: Sveinn Sigurðsson.
í þessu hefti kennir margra grasa.
— Ritstjórinn skrifar venjulega grein
»Við þjóðveginn* og ræðir þar um
•tervernd Bandatíkjanna, komu Churc-
Itill til Reykjavíkur, styrjöldina milh
Rússa og Þjóðverja o fl. Árni Pálsson
skrifar um Snorra Sturluson og íslend-
ingasögu og Vilhjálmur Stefánsson um
hefðbundnar villukenningar. Þá flytur
ritið þýdda grein, er nefnist Frum
byggjar Ástraliu og grein, eftir Helga
Valtýsson, er hann nefnir: Þegar ég sat
um Henry Ford. Enn er þar framhald
af greinum eftir A. Cannon undir fyrir-
sögninni: Ósýnilegáhrifaöfl, saga eftir
Kristmann Guðmundsson, kvæði eftir
Guðmund E. Geirdal, Þóri Bergsson
og Friðgeir H. Berg og margt 'leira.
Heilbrigt llf. Tímarit Rauða
Kross íslands. 1. árg., 3.-4.
hefti 1941.
Tímarit þetta fjallar um heilsuvernd
og líknarstarfsemi og er eina tímaritið
hérálandi, se n helgar þessum málum
ifni sitt. Ymsir ritfærustn læknar birta
þar greinar. Rifstjótinn er dr. med.
Ounnlaugur Claessen.
I þessuni heftum eru greinar sem
hér segir: Er ástæða til að bæta brauð-
in, eftir N. Dungal. Ritstjóraspjall.
Berklasmitun, eftir Sigurð Sigi rðsson.
herklayfirlækni. Svefn og hvíld, eftir
Jóhann Sæmundsson. Kláði, eftir Hann-
es Guðmundsson. Lffskjör og heilsufar,
eftir Sigurjón Jónsson fyrv.héraðslækni.
Æiintýri B - vitamína, eftir Gunnlaug
Claessen. Skottulækningar nútímans,
eftir Karl Kroner dr med. Ennfremur
eru þár bókadómar og fleira smávegis.
Þetta er hið læsilegasta rit og mjög
fróðlegl.
Sokkar
Treflar
Lúffur
Hannyrðaverzl.
Raojnh. O. Björnsson.
Kirkjuritið
ættu allir að kaupa. Nýir áskrif-
endur fá eldri árganga fyrir hálf-
virði hjá
KR. S. SIGURÐSSYNI,
Brekkugötu 5 B.
POLYFOTO
Flestar myndir fyrir
fæsta peninga.
Jón & Vigfús.