Dagur - 12.02.1942, Page 2
3
Fimmtudagur 12. febrúar 1942
DAGUR
svala svipaðri þörf, sem stýfluð
elfur svalar, þegar úr henni er
gripin stýfla. Hún flæðir þá og
fossar.,,. Þórarinn á Halldórs-
stöðum, jafnoki Bjöms að gáf-
um og mælsku, og honum hart
nær jafnaldra, flutti eitt sinn
klukkustundar ræðu um kápu-
mynd Réttartímaritslns. Sú
mynd var af hálfgildings Leppa-
lúða, sem hélt á metaskálum.
Réttur var fósturson sósíalism-
ans þingeyska, sem Pétur Gauti
og Benedikt á Auðnum fluttu
inn. En Þórarinn var hersir að
innræti, eða lendur maður
(aristokrat) og skildi til fulls, að
kommúnismi og sósíalismi voru
féndur óðalsréttar, eða a. m. k.
andstæðingar hans. Þórarinn
hafði tvo eða þrjá áheyrendur,
þegar hann flutti þessa ræðu, og
þótti þeim mikill skaði að ræðan
féll niður, óskráð, og lenti í
glötunarkistu.
Þegar Björn hafði létt á sér,
bauð hann mér í bæinn og skorti
þar hvorki góðgerðir matar, né
viðræður um bækur, drauma og
svo daginn og veginn. Þá var
eigi minnst á gestnauð, né ókosti
jarðarinnar. Kvenþjóðin var
málreif, engu síður en karl-
mennirnir.
Bjöm heimsótti mig eitt sinn
og þótti mér þá all-illt að eiga
ekki í staupinu. Þó þurfti eigi
að toga tungu úr höfði Bimi. Þá
barst talið að orðaskiptum Jóns
Ólafssonar og Benedikts Grön-
dal út af Vesturheimsferðum og
veitti ^þá Björn Dettifossi
mælsku sinnar yfir Jón Ólafs-
son, en hampaði Gröndal í ljós-
brimi yfir þeim fossi. Gröndal
mun hafa verið kennari Björns
vetrar hluta á Möðruvöllum, og
mim Bjöm hafa farið þá einu
för að heiman til- menivta.
Matthías kom að Víkingavatni
eitt sinn, — þegar hann heim-
sótti Dettifoss, og fylgdi Björn
honum úr garði. Matthías kallar
Bjöm „vaskan mann“, en lætur
þar við sitja — ef eg man rétt.
Matthíasi virðist hafa sézt yfir
gáfumanninn. Ef til vill hefir
Bjöm verið „á höfðinu" í hey-
skap, eða hann hefir dregið sig í
hlé gagnvart „þjóðskáldinu“.
Björn var þá brjóst og skjöldur
fyrir búi föður síns. Hann gekk
jafnan berserksgang að heyskap
og var þá varla einhamur.
Björn fór eigi á fjörurnar við
prentsvertuna svo að teljandi
sé. Huld — minnir mig — birti
eftir hann tvær eða þrjár þjóð-
sögur, vel ritaðar, það er allt og
sumt. En hann var gæddur úr-
vals kostum til ritstarfa, ef hann
hefði sótt í þann bratta. Tveir
læknar létu svo um mælt í mín
eyru, að svo vel semdi Björn
sjúkdómslýsingar, að þeir þyrftu
eigi að sjá þann sjúkling, sem
Björn lýsti með pennanum. Eg
sá og las eina sjúkdómslýsingu
Björns. Þá var hann að lýsa
konu, sem segja má að héngi á
bláþræði milli himins og jarðar
— bláþræði hugaróra, og var þar
að auk eitthvað sjúk, óánægð í
hjónabandi. Eg undraðist þá
greinagerð, hve frábær hún var
að orðfimi og ítarleik. Þar vant-
ar ekkert, sagði læknirinn. Þessi
lýsing var lauk-rétt að máli og
ireinamerkjaskipun. — Bréf
BÓKAFREGNIR
Qrétar Fells: Söngur lífs-
ins. Frjáls ljóð. — Guð-
spekifélag Islands, Reykja-
vík 1941.
Bókin flytur, auk formálsorða,
22 kafla um ýmisleg efni og
nefnir höf. þá einu nafni Frjáls
Ijóö. Honum farast þannig orð i
formálanum: — „íslendingar
kunna illa að meta þess konar
skáldskap. Að minnsta kosti
finnst þeim sumum að orðið ljóð
eigi ekki sem bezt við í þessu
sambandi og mun það fyrst og
fremst valda að þeir hafa frá
barnæsku vanizt hinu sérkenni-
lega, íslenzka ljóðaformi, „rím-
inu“. Ekki mun hér verða borið
á móti þessu, og vill sá er þetta
ritar ekki afneita ríminu og
mundi ganga illa að sætta sig við
þá skoðun, að venjulegt óbund-
ið mál sé talið til ljóða, enda
mun frá öndverðu hafa ríkt
sú skoðun hjá fjölda þjóða, að
það væri sitt hvað, bundið og
óbundið mál, en að vísu virðist
á seinni tímum sem ljóðeyru
þjóðarinnar séu ekki ýkja næm,
og mætti þá svo fara, að hin
órímaða háttleysa verði eftir-
látin ljóð hennar, en um það
skal engu spáð. En um erindi
þau sem umrædd bók flytur
munu flestir góðir menn, sem
lesa vilja þær bækur, sem ekki
eru ritaðar alveg hugsunarlaust,
ljúka upp einum munni um, að
þau séu fyrir flestra hluta sakir
prýðilega hugsuð og rituð og
eigi því brýnt erindi til þeirra,
sem geta veitt þeim viðtöku.
Eitt þessara frjálsu ljóða nefnist
Leikurinn, eru þar settar fram
leikreglur lífsins, og eru þær
þrjár. 1. Vertu viljasterkur og
láttu ekki neitt fyrir utan þig
vilja fyrir þig. — Vertu góður
eða kærleiksríkur. — 3. Vertu
sannur eða vitur. Þessar reglur
fyrir leik lífsins eru þess verðar
að eftir þeim sé tekið. Mundu
ekki þessar reglur gefast vel ef
menn vildu tileinka sér þær? Á
hverju myndi þjóðunum nú
vera meiri þörf en viljasterkra,
kærleiksríkra og viturra
manna? Ef til vill fá þeir ekki
hljóð meðan þjóðirnar vegast á
í blindni og hatri, en lifi þær af
þá vargöld, sem nú geysar, verð-
ur þa'ð hinn sterki vilji vits og
mannúðar, sem byggir upp það,
sem þá verður í rústum. — Út-
sölu á bókinni hefir Sigurgeir
Jónsson, söngkennari, Akureyri.
F. H. Berg.
Karlöflu-
kjallarinn
verður til vors opinn til
afgreiðslu á miðviku-
dögum og laugardög-
um, milli 5 og 7 síð-
degis.
BÆ JARST J ÓRINN.
H. f. Eimskipafélag tslands
Aðalf undur
Aðalfundur Hlutafélagsins Eimskipafélag íslands,
verður haldinn í kaupþingssalnum í húsi félags-
ins í Reykjavík, laugardaginn 6. júní 1942 og
hefst kl. 1 e. h.
Dagskrá:
I. Stjórn félagsins s'cýrir frá hag þess og framkvæmd-
um á liðnu starfsári, og frá starfstilhöguninni á yfir-
standandi ári, og ástæðum fyrir henni, og leggur
fram til úrskurðar endurskoðaða rekstursreikninga til
31. desember 1941 og efnahagsreikning með athuga-
semdum endurskoðenda, svörum stjórnarínnar og til-
lögum til úrskurðar frá endurskoðendum.
2. Tek:n ákvörðun um tillögur stjórnarinnar um skiptingu
ársarðsins.
3. Kosning fjögra manna í stjórn félagsins, í stað þeirra
sem úr ganga samkvæmt félagslögunum.
4. Kosning eins endurskoðanda í stað þess er frá fer,
og eins varaendurskoðanda.
5. Umræður og atkvæðagreiðsla um önnur mál, sem upp
kunna að veiða borin.
Peir einir geta sótt fundinn, sem hafa aðgöngumiða. —
Björns til kunningja voru löng
og munu vera merkileg.
Þessi „vaski maður“ féll fyrir
ofurborð um sextugt. Hann
sætti þeim harða kosti örlaga-
nornanna, sem forna skáldið
segir að sé versta hlutskipti —
„sér engu að una“. Svo fer
stundum stór-gáfumönnum, aö
þeir verða sæluvana, lenda á
öndverðum meið við glaðværð-
ina.
Eg set hér að lyktum sýnis-
horn þeirrar mælsku, sem Björn
hafði til brunns að bera, rúm-
fastur, gripið af vörum hans:
„Mér lá allt í augum uppi með-
an eg hélt mér heilum, kunni
Passíusálmana og sálmabókina
svo að segja spjaldanna milli,
lærða hverja sögu, sem eg las
tvisvar, gat komið fyrir mig orði
og unnið á við aðra. Nú er eg
eins og skip, sem er hlaðið gulli
og gimsteinum, en rekur á reið-
anum fyrir straumi og stormi út
í hafsauga, þangað sem hvergi
sér hauður né himin....“.
Björn var vel á sig^kominn í
yfirbragði og karlmannlegur á
velli — „mikill að vallarsýn".
Þórarinn faðir Björns var
hneigður til sagnfræði, mælskur
maður, þegar svo bar við, að
viðburði bar á góma. Björn
mundi hafa sómt sér við Sögu
kné, ágætléga, ef lent hefði á
þeirri hillu, skáldmæltur mátu-
lega til að spá í eyður, hæfilega
skyggn til að lesa niður í kjöl,
orðfimur og málsnjall. En sumt
gott dylst í námum, af því að at-
vikin grafa ekki til þess — segir
St. G. St.
Meðal barna Björns og Guð-
rúnar ekkju hans er Þórarinn
menntaskólakennari á Akureyri.
Gvðmundur Friðjónsson,
Aðgöngumiðar að fundinum verða afhentir hluthöfum og
umboðsmönnum hluthafa á skrifstofu félagsins í Reykja-
vík, dagana 3. og 4. júní næstkomandi. Menn geta feng-
ið eyðublöð fyrir umboð til þess að sækja fundinn á
aðalskrifstofu félagsins í Reykjavík.
Reykjavík, 26. janúar 1942,
All Bran,
stjó;rnin.
Corn Flakes,
Sago í pökkum,
Maccaronur,
Spaghetti.
Piltur eða stúlka
getur komist að sem lærlingur í garð-
yrkju við gróðurhús okkar að Brúna-
laug, frá 1. apríl n.k.
Semjið við Erling Davíðsson.
Kaupíél. Eyíirðinga
Nýlenduvörudeild.
KAUPFÉLAG EYFIRÐINGA
Sjörk á Múmi
Hálf jðrðin Björk í öngulsstaða-
hreppi er tit kaups og ábúðar í
vor. Jörðin er fiamtíðar bú.örð.
Rektunarskilyrði góð. Torfrista
(reiðingur) ágæt. Volg laug f land
larðarinnar, enda á jarðhitabelti því
er liggur þvert yfir fjörðinn. Um-
sækiendur snúi sér til Kr. H. Benja-
mínssonar, hreppstjóra á Ytri-Tjörn-
um, fyrir 15. marz n.k., sem ann
ast sölu jarðarinnar fyrir mína hönd.
Garðshorni, Glaesib.hr. l.febr. 1Q42
Pórður Danielsson„
HERBERGI til leigu.
Afgreiðslan vísar á.
Enn sá niUKiur á kaff-
inu siðan eg fór
að nota Freyju-kafm,æíi