Dagur - 19.02.1942, Page 1

Dagur - 19.02.1942, Page 1
Vikublaðið DAGUR Ritstjórar: INGIMAR EYDAL, JÓHANN FRÍMANN. Afgreiðsla, auglýsingar, innheimta: Jóhann Ó. Haraldsson. Skrifstofa við Kaupvangstorg. Sími 96. Árgangurinn kostar kr. 8,00. Prentverk Odda Björnsaonar. XXV. árg. Akureyri, fimmtudaginn 19. febrúar 1942 8. tbl. Símon á Sllluillli. Gömul saga um meinlætamarm. T7INHVER frægasti meinlætamaður "*"* fomkristninnar var Símon á súl- unni (Simon Stylites). Hann dvaldi að sögn full 30 ár að staðaldri uppi á grannri og hárri súlu, batt reipi um mitti sér svo fast, að hold hans rotn- aði fyrst og maðkaði síðan, en ó- dauninn lagði af honum langar leiðir. Trúarbragðasagan geymir ýmsar aðr- ar merkilegar og sannar frásagnir um ofsatrúarmenn fyrri tíma, er lögðu á hold sitt ýmis konar pyndingar guði til dýrðar. Voru slíkir menn nefndir meinlætamenn, og þekkist það orð ekki í nokkurri annarri merkingu í íslenzku máli. Ný saga um meinlætamann. ■piTARI „Alþýðumannsins“ hér býr **' yfir allmikilli orðgnótt, sem lætur misjafnlega í eyrum siðaðra manna, er hann hyggst vanda andstæðingum sínum kveðjumar. Þó hrekkur sú orð- snilld ekki alltaf til, þegar honum þykir mest við þurfa að svala skaps- munum sínum, og grípur hann þá stundum til óvenjulegs orðsköpunar- hæfileika, sem honum einum er gef- inn. Virðist t d. auðþekkt á tungu- takinu,að þessi rithöfundur hafi orðað ályktun þá, er birtist í Alþm. 10. þ. m. og látið stjórn Verklýðsfélags Akur- eyrar skrifa undir. Þar kallar hann Steingr. Aðalsteinsson „meinlæta- mann í verklýðsmálum“, en af sam- henginu virðist mega ráða, að átt sé við það, að Stgr. A. sé meinfanéamað- ur, þ. e. óhappamaður, en ekki sjálf- kvalari. Ritstj. nær sér þó enn betur niður á öðrum stað í sömu grein, en þar er aumingja Steingrímur nefndur „verklýðsmálamisbrestamaður", og fer það nýyrði einkar vel í munni, sökum mýktar þess og sveigjanleika, en auk þess mun það réttnefni og sannleikanum samkvæmt.Er því hvíld nokkur fyrir augað að slikum blóma máls og menningar í dálkum Alþm. Halldór stariar aö stórþvotti. TjÁ birtast og í nefndu tbl. Alþm. * alllangar og harla fróðlegar hug- leiðingar undir fyrirsögninni: Er hirm nýi ritstjóri Dags íasisti? Er þar veitzt allharkalega að Jóhanni Frímann fyr- ir fasista-upplag hans, og þykir rit- stjóranum jafnvel tilhlýða að viðhafa allberorðar hótanir um atvinnusvipt- ingu í þessu tilefni. Stendur þar m. a.: „Þessi maður (þ. e. J. Fr.) er upp- fræðari ungs fólks hér í bænum, og það er alls ekki ósk aðstandenda þess að haia fasista að leiðtoga þess."*j (sic). Nú vill svo illa til fyrir Alþm., að ritstjóri blaðsins, H. F., ber bróð- urpartinn af ábyrgðinni á uppeldis- starfi þessa hættulega fasista, þar sem H. F. hefir nú um alllangt skeið verið formaður í skólanefnd Gagnfræða- skóla Akureyrar og ráðið „sem slíkur“ J. Fr. sem fastan kennara við skól- ann. En þó er sú bót í ináli, að ritstj. á enn sæti í nefndinni, og hefir því ennþá nokkur tök á að ráða bót á þessu glapræði sínu og hreinsa kenn- aralið skólans af þessum hættulega einræðissinna! Mun ofangreind at- hugasemd blaðsins vafalaust eiga að skiljast svo, að skólanefndarmaðurinn hugsi til nauðsynlegra hreingerninga á sínum eigin höndum í þessu efni. *) Leturbreyting hér. Frwnbald A 3. «W«I' Er lii ngilegi ttg Ríkið þarf að eiga kornmyllu. Uggvænlega þykir mörgum nú horfa um hag vorn, íslend- inga. Með vorinu hefjast átök stór- veldanna í Evrópu á ný, tryllt- ari en nokkru sinni fyrr. Þótt vér vonum, að fá að sitja hér áfram óáreittir að kalla, þá væri óskynsamlegt að loka augunum fyrir þeim möguleika, að leikur- inn kunni að berast hingað inn fyrir landssteinana. Við það fá- um vér ekki ráðið. Hitt er oss skylt, að vera eins vel viðbúnir og frekast er unnt; vér þurfum að geta mætt hverj- um vanda fullvissir um, að vér höfum gert allt, sem í voru valdi stendur, til þess að þjóðin megi komast klaklaust út úr erfið- leikunum. LOFTVARNIR. Nauðsynlegt er, að loftvörn- unum í stærstu bæjum landsins sé komið í það horf, að enginn þurfi að finna til þess að slælega hafi verið unnið þar, ef til al- vörunnar kemur. MATVÆLABIRGÐIR. Annað mál, og stærra, er á- standið í birgðamálum landsins. Siglingar geta stöðvazt um lengri eða skemmri tíma. Ef svo færi, þurfa miklar birgðir korn- matar að vera til í landinu. A það þarf að leggja höfuðáherzlu á næstu mánuðum. Önnur stefna í innflutningsmálunum væri óskynsamleg, eins og nú horfir í styrjöldinni. SEKKJAVARA. Vitað er, að allar komvöru- birgðir landsins, hversu miklar sem þær annars kunna að vera, eru í sekkjum. Sú staðreynd gefur til kynna, að þær séu ekki nægilega miklar til þess að tryggja öryggi þjóðarinnar um langa framtíð, ef í harðbakk- ann slær; því sekkjavara geym- ist ekki lengi, svo að vel sé. Kaupfélög, kaupmenn og heild- salar hafa áreiðanlega ekki miklar birgðir af þessum vörum, af þeim ástæðum m. a. Heimilin eiga litlar, sem engar birgðir, vegna skömmtunarinnar. Það virðist því ekki ofmælt að segja, að kornvörubirgðir landsins séu glannalega litlar á þessum tím- um óvissu og óvæntra atburða. ÓMALAÐ KORN. Eina lausn þessa máls nú, og í framtíðinni, er að taka upp (Framh. á 3. síðu). Bændur f engu 46 aura meðalverð fyrir xnjólkina. Frá ársfuudi Mióikursamlagsins. Ársfundur Mjólkursamlags K.E.A. var haldinn hér í bænum 12. þ. m. Fundinn sátu, auk stjómar og framkvæmdastjóra K.E.A. og samlagsstjórans, 57 fulltrúar mjólkurframleiðenda; ennfremur margir bændur víðs- vegar úr héraðinu og nokkrir aðrir gestir. Mjólkursamlagið tók á móti rösklega 3 millj. lítrum mjólkur til vinnslu á árinu 1941 og er það 126 þúsund lítrum meira en árið 1940. Af þessu mjólkurmagni seld- ust 1.356.201 ltr. til neyzlu, en 1.688.782 ltr. fóru til smjör-, skyr- og ostagerðar. Samanlagður reksturskostn- aður Samlagsins , ásamt sölu- og dreifingarkostnaði fram- leiddra vara, venjulegra af- skrifta af húsum og vélum, reyndist vera 9,9 aurar á lítra. Bændum hafði verið greiddar fyrir mjólkina kr. 940.376,00, eða em næst 31 eyrir á lítra. Eftirstöðvar á rekstursreikn- ingi Samlagsins voru kr. 470.- 481,00 og samþykkti fundurinn að verja þessu fé til verðupp- bótar á innlagða mjólk fram- leiðenda. Samkvæmt þessu verður meðalverð útborgað til bænda fyrir mjólk innlagða s.l. ár, 46 aurar á ltr. Meðalútsöluverð neyzlu- mjólkur hefir verið 51,3 aurar sama ár. (Framh. á 4, síðu). Er rorsókniit mM hefjast? Átökin í Libyu. Margt bendir til þess, að hin mjög umtalaða „vorsókn“ öxul- ríkjanna sé um það bil að hefj- ast. Eftir að Japanar hafa náð Gerðardómurinn heiir staðfest mjólkurverðið hér. Kaupfélagi Eyfirðinga hefir bor- izt svohljóðandi símskeyti frá verðlagsnefnd, dags. 10 þ. m. „Gerðardómur í kaupgjalds- og verðlagsmálum hefir samþykkt að heimila eftirfarandi útsöluverð á mjólkurvörum á Akureyri: Mjólk í lausu máli 70 aura lítrinn, mjólk í heilflöskum 75 aurar, rjómi 520 aurar, skyr 136 aurar kg. Ennfrem- ur á Siglufirði mjólk í lausu máli 82 aurar lítrinn, rjómi 560 aurar skyr 154 aurar kg, Verðlagsnefnd." Hver græðir ? „Verkamaðurinn" segir s. 1. laugardag, að gerðardómslögin orsaki 10—12 miljóna kr. fjár- hagslegt tap á þessu ári. Að þessari reikningslegu niður- stöðu kemst blaðið með því að gera ráð fyrirt að kaup hefði hækkað við vinnu hjá setulið- inu, ef gerðardómslögin hefðu ekki verið sett, og að verð á vör- um, sem setuliðið kaupir að landsmönnum, hefði og hækkað að sama skapi. Á þenna hátt skapar „Verkamaðurinn“ í huga sér 10—12 millj. gróða, en því miður yrði hann hvergi til, nema í heilabúum ritara „Verka mannsins". Eða hjá hverjum ætti þessi mikli gróði að safnast fyrir? Ekki hjá verkamönnum, því að verðhækkun á vörum æti upp kauphækkunina. Ekki hjá framleiðendum, því að meðal þeirra æti kauphækk- un upp hækkað verð á fram- leiðslu þeirra. Þar sem nú að hvorki vinnu- seljendur eða vinnukaupendur geta grætt á aukinni verðbólgu og hækkandi kaupgjaldi, þá hlýtur einhver þriðji aðili að sitja uppi með allan miljóna- gróðann, ef kenning Vm. væri rétt. En sá þriðji aðili er bara ekki til. Þessi gróðahugmynd komm- únista er því helber vitleysa, Singapore á vald sitt og þannig opnað sér leið inn á Indlands- haf og Persneska flóann, jafn- framt því sem mótspyma Þjóð- verja í Rússlandi fer harðnandi, þykir sýnt að Rommel, þýzki hershöfðinginn í Libyu sé að hefja sókn, sem beint mun vera gegn Egyptalandi og Suez. Sókn hans beinist nú fyrst að Tobruk, vígi Breta, er stóðst margra mánaða umsátur á s.l. ári, og varnaði Þjóðverjum för- ina inn í Egyptaland. Antonescu, sá sem stendur fyrir „end- urvakningu rúmensku þjóðarirmar á þjóðlegum og kristilegum £rundvelli“. Óeirðir hata nú brotizt út í Rúmeníu, segja amerískir fréttaritarar í Ankara. Ekki þykir ólíklegt að Jap- anar hugsi sér að létta Rommel sóknina, með því að ráðast á lönd Breta við Persneska fló- ann, jafnframt því, sem Þjóð- verjar byrja sókn í Suður-Rúss- landi. Líklegt er, að mikilla við- burða sé von á næstunni. Orrusta brezks flug- og sjó- liðs við þýzka flotadeild á Erm- arsundi bendir einnig til þess, að vorsókn sé í vændum í norð- urvegum. AÐRAR FREGNIR. Japanar hafa byrjað stórsókn á hollenzku eyjuna Sumatra Bandaríkjamenn verjast enn vasklega á Batanskaga á Fil- ippseyjum. Óeirðir hafa brotizt út i Rú- meníu, vegna stöðugra liðsflutn- inga til austurvígstöðvanna og mikils mannfalls í her Rúmena þar. Alþingi var sett s.l. mánudag. Kvenfélaé Akureyrarkirkju heldur aðalfund sunnud. 22. febr. kl. 4 e. h. í kirkjukapellunni. Dagskrá eftir fé- lagslögmp.

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.