Dagur - 22.04.1942, Blaðsíða 1
Vikublaðlð DAGUR
nitstjórmr: INQIMAR EYDAL,
JÓHANN FRÍMANN.
AfgreiOsla, auglýsingar, innheimta:
Jóbaan Ó. Haraldaaoo.
Skrifttoía viö Kaupvangstorg.
8ími 96.
Argangurinn koatar kr. 8,00.
Prentwrk Odda Björmaotimi.
XXV. árg. Akureyri, miðvikudaginn 22. apríl 1942. 18. tbl.
Leikfélag
Akureyr-
ar 25 ára
Háiíðarsýning í tilefni
afmælisins
CÍÐASTL. sunnudagskvöld hélt L.A.
sérstaka hétíðársýningu ó „Ný-
ársnóttinni“ í tilefni 25 ára afmælis
félagsins fyrir fullu húsi áhorfenda.
Leiksalurinn var laglega skreyttur og
mætti þorri manna samkvæmis-
klæddur. — Á undan sýningunni söng
karlakórinn „Geysif“ nokkur lög, en
Jóharm Frímarm rithöfundur flutti
stutt erindi um íslenzka leiklist og
listmenningu. Hófst þá leiksýningin
og fór hún fram með svipuðum hætti
og frumsýning L. A. ó „Nýársnótt-
inni“ nú ó dögunum, en hennar var
nánar getið í síðasta tbl. „Dags“.
Verður því ekki fjölyrt hér um þessa
sýningu, en þess aðeins getið, að
meðferð leiksins var öllu léttari en
áður, og misfellur á kórsöng að
tjaldabaki lagaðar. — Þórir Guð-
jónsson fór að þessu sinni með hlut-
verk Gvendar snemmbæra í stað
Jóns Norðfjörð. Hefir Þórir góða
„mímik“, gerfi hans var vel heppnað
og leikur hans allskoplegur á köflum,
svo sem vera ber í þessu hlutverki.
__í áður nefndum leikdómi hér í
blaðinu hafði lóðst að geta tveggja
leikara, er fara með allstór hlutverk í
„Nýársnóttinni": Anna Tryé&va leik-
ur Ljósbjörtu álfamær létt og frjáls-
lega, en Guðmundur Gurmarsson fer
með hlutverk Reiðars sendimanns.
Er leikur hans öruggur og skörulegur,
og persónan fer vel á sviðinu. Nýtur
hin ógæta bassarödd Guðmundar sín
vel, er hann syngur fyrir í kór álf-
anna. — Leikendum var vel fagnað
að leikslokum af áhorfendum. Þá var
og leikstjórinn, Jón Norðfjörð, kall-
aður fram að lokum og hylltur. Flutti
hann að endingu stutta ræðu af leik-
sviðinu og þakkaði mönnum góðar
undirtektir undir leiksýningar á „Ný-
ársnóttinni" og vinsemd og stuðning
í garð L. A. — Félaginu barst margt
heillaskeyta frá leiklistarvinum víðs-
vegar á landinu í tilefni aldarfjórð-
ungsafmælisins, og las formaður leik-
félagsins, Gurmar Ma£nússon, þau
upp, óður en sýningin hófst. — Fór
leiksýning þessi hið bezta fram, var
hin hátíðlegasta og félaginu til sóma.
X EIKFÉLAG Akureyrar mun um
eitt skeið hafa verið einna at-
hafnasamast og þekktast af öllum
leikfélögum landsins, og enn er það í
röð allra fremstu leikfélaga á landi
hér. Er L. A. réttur arftaki „Gleði-
teikjafélaésins", er hér starfaði um
skeið nokkru fyrir síðustu aldamót,
og mun vera hið elzta leikfélag á Ak-
ureyri, og Leikfélaés Akureyrar hins
eldra, er starfaði hér á árunum 1907
__1912. En vorið 1917, á sumardag-
inn fyrsta, er svo félag það, er nú
starfar undir þessu nafni, stofnað, og
hefir það óvallt síðan unnið að leik-
listaraiólum í bænum, oft með miklu
fjöri og áhuga. Of langt mál væri að
rekja hér sögu félagsins nánar, eða
nefna einstaka leikara eða áhuga-
menn í Ieiklist, en félagið hefir lengst
af átt á að skipa mörgum furðanlega
hæfum leikkröftum og stundum
ágætum af óhugamönnum að vera.
Þess skal þó sérstaklega getið, að
tveir landskunnir leikarar og leik-
stjórar, þeir Haraldur Björnsson og
Frarob. é 3. úðu.
Ráðherrar Framsóknarflokksins
segja af sér, ef Sjálfstæðis- og Al-
þýðuflokkurinn knýja fram sljórn-
arskrárbreylingu á þessu ári
Þingmenn þeir, sem ákváðu kosningafrestunina í
fyrra, ráðgera nú stjórnarskrárbreytingu, tvennar
kosningar og stjórnarskipti í okkar tvíhernumda
landi, á þessu ári. Þessar tiltektir meirihluta þings-
ins munu lítt til þess fallnar að auka virðingu al-
mennings í landinu fyrir Alþingi og störfum þess,
þar sem með þessum ráðagerðum er stofnað til
hatramra deilna um innanlandsmálefni. Þá mun
almenningur vilja fá skýringar á því, hvernig þing-
menn geta réttlætt tvennar kosningar í ár, fyrst
kosningum var frestað í fyrra, vegna ófriðarhættu
og annarra óviðráðanlegra orsaka. Sjálfstæðis- og
Alþýðuflokkurinn standa nú í samningum um
samþykki stjórnarskrárbreytingarinnar gegn ein-
beittri mótstöðu Framsóknarflokksins.
Sumner Welles, aðstoðarutanríkisráð-
herra í Washinéton, hefir tilkynnt, að
Leahy flotaforinéi, sendiherra U.S.A.
í Vichy, hafi verið kallaður heim,
veéna ástands þess, er skapazt hefir
við valdatöku Lavals í Frakklandi.
Er jafnvel búizt við að Bandaríkin
slíti nú stjórnmálasambandi við Vi-
chy-stjórnina.
Allmiklar pólitískar viðsjár
eru nú í höfuðstaðnum. Undan-
farið hafa höfuðstaðarblöðin og
forráðamenn stjómmálaflokk-
anna talað margt fagurt um
samheldni í innanlandsmálefn-
um, en nú virðist sem forráða-
menn Alþýðu- og Sjálfstæðis-
flokksins hafi gleymt þessu öllu
saman, því nú mun standa til að
þessir flokkar komi sér saman
um samþykkt á framvarpi Alþ.-
flokksins um breytingar á kjör-
dæmaskipun landsins, gegn ein-
beittri mótstöðu Framsóknar-
manna. Tíminn, sem valinn hef-
ir verið til þess að vekja upp
þetta viðkvæma og erfiða
deilumál, er eins illa valinn og
hugsast getur. Landið er á valdi
Aðalfundur K.E.A. hófst hér
í bænum s.l. mánudag, og lauk
í gærdag. Fundinn sóttu fulltrú-
ar úr öllum deildum félagsins.
Framkvæmdastjóri félagsins,
Jakob Frímannsson, flutti ýtar-
lega skýrslu um starf og hag fé-
lagsins og varaformaður stjóm-
arinnar, Ingimar Eydal, flutti
greinargerð um helztu fram-
kvæmdir á s. 1. ári.
Þetta gerðist helzt á fundin-
um:
Tillaga stjómannnar um 10
prc. arðsúthlutun til félags-
manna af égóðaskyldum vör-
tveggja erlendra stórvelda, um-
hverfis landsteinana geysar
styrjöld voveifleg, og tilkynn-
ingar ríkisstjórnarinnar til al-
mennings að undanförnu virð-
ast bera þess ljósan vott, að hún
álíti hættu á, að leikurinn
kunni að berast hingað inn fyr-
ir landsteinana, þegar minnst
vonum varir. Á þessum örlaga-
ríku tímum á svo að vekja upp
hatramar deilur um stjómar-
skrárbreytingu, skipta um
landsstjórn og efna til tvennra
kosninga á sama árinu; sömu
mönnum þótti ófært að hafa
einar kosningar í fyrra.
Framsóknarmenn munu beita
sér gegn þessu ábyrgðarlausa
Framh. á 3. síðu.
um, brauðum og lyfjabúðarvör-
um, var samþykkt samhljóða.
Fundurinn samþykkti einum
rómi, að félagið legði fram 30
þús. kr. sem gjöf til sjúkrahúss-
ins.
Miklar umræður urðu um
fræðslustarfsemi félagsins. Kom
í ljós mikill áhugi félagsmanna
fyrir aukningu þessa starfs. Var
kosin nefnd til þess að gera til-
lögur um framtíðarskipulag
þess og undirbúa fyrir næsta
aðalfund.
Þá voru kosnir 9 fulltrúar á
(FnuÐhali é 3. síSu.)
Helztu
frétttr.
BANDARÍKJAMENN hafa
gert fyrstu loftárásina á Japan.
Sl. laugardag var sprengjum
varpað á Tokyo, Kobe og Yoko-
hama og fleiri stærstu borgir
landsins og er viðurkennt í jap-
önskum fregnum, að nokkurt
tjón hafi orðið af árásunum.
Engar tilkynningar um loftárás-
irnar hafa ennþá verið birtar í
Washington og eru allar fregn-
ir um þær frá Japönum sjálfum.
Þó er nú talið víst, að flugvél-
arnar hafi haft bækistöð á flug-
vélamóðurskipum, en hafi ekki
horfið til skipanna aftur að á-
rásinni lokinni, heldur haldið
til Kína, og munu eiga að berj-
ast þar með Kínverjum.
Amerísk blöð telja árásina
upphaf að meiri tíðindum og
munu Japanir fá fleiri slíkar
heimsóknir á næstunni.
MIKLAR'LEYSINGAR eru
nú á austurvígstöðvunum. —
Kvarta Þjóðverjar mjög um
erfiðleika hers síns vegna illrar
færðar og bleytu, en Rússar til-
kynna áframhaldandi sókn
Rauða hersins. Er sagt, að rúss-
neskt stórskotalið haldi uppi
skothríð á útvirki Smolensk.
Harðir bardagar era nú háðir á
Kirjálaeiði, en þar eru Finnar
mestmegnis fyrir til varnar.
KENNARASTÉTTIN norska
hefir nú risið upp gegn Quisling
(Fjrawh. á 3. liðu).
Aðalfundur K. E. A.
i 10% arður. — 30 þús. króna gjöf til sjúkrahússins.
Axel
Kristjánsson
Kaupmaður og
norskur konsúll.
Hann iézt á sjúkrahúsi 1
Reykjavík sl. fimmtudag af
völdum flugslyssins, er varð í
nánd við Reykjavík á þriðju-
daginn var.
Axel Kristjánsson var fædd-
ur á Sauðárkróki 17. ág. 1892,
og var sonur Kristjáns Gísla-
sonar kaupmanns og konu hans,
Bjargar Eiríksdóttur frá Reykj-
um í Tungusveit. Hann ólst upp
hjá foreldrum sínum á Sauðár-
króki til ársins 1907, en þá hóf
hann nám í Gagnfræðaskólan-
um hér. Veturinn 1909 varð
hann að hætta námi, vegna
veikinda, og hvarf þá heim. En
árið eftir innritaðist hann í
Verzlunarskóla íslands og lauk
þar námi.
Hann kvæntist árið 1917
hinni ágætustu konu, Hólmfríði
Jónsdóttur, Féturssonar bónda
í Valadal, en móðir hennar var
Sólveig Eggertsdóttir Jónssonar
prests að Mælifelli.
Axel fluttist til Akureyrar
árið 1920 og starfaði hér fyrst
sem verzlunarstjóri hjá Brauns
verzlun og síðar sem verzlunar-
stjóri hjá Ásgeiri Péturssyni út-
gerðarmanni. En árið 1926 hóf
hann eiginn atvinnurekstur og
var alla tíð síðan einn af at-
hafnamestu kaupsýslumönnum
bæjarins.
Eins og vænta mátti um jafn
glæsilegan mann, lét hann mik-
ið til sín taka í félags- og stjóm-
málalífi bæjarins. Hann var
einn af forvígismönnum Sjálf-
stæðisflokksins hér x bænum og
sat í bæjarstjórn sem fulltrúi
hans árin 1938—1942. —
íþróttamál bæjarins lét hann
sig alltaf miklu skipta. Hann
fékk snemma mikinn áhuga fyr-
ir íþróttum, var ágætur glímu-
maður á yngri áram, og sinnti
íþróttamálum bæjarfélagsins
með áhuga alla tíð. Hann átti
sæti i íþróttaráði Akureyrar
frá stofnun þess til dauðadags.
Auk þessa gegndi Axel ýms-
um öðrum trúnaðarstörfum.
Hann var norskur konsúll hér í
bænum frá 1937, fram-
kvæmdastjóri Vélbátatrygging-
ar Eyjafjarðar frá 1938 og for-
maður Verzlunarmannafélags
Akureyrar var hann um nokk-
urra ára bil.
Axel Kristjánsson var prúð-
menni og glæsimenni hið
mesta. Með honum er horfinn
frá starfi einn af mætustu borg-
urum bæjarins og helztu áhrifa-
mönnum um langt skeið.
k