Dagur - 07.05.1942, Blaðsíða 4
4
DAGUR
Fimmtudaginn 7. maí 1942
ÚR BÆ OG BYGGÐ
I. 0. O. F.= 124589 =
KIRKJAN: Messað verður í Akur-
eyrarkirkju kl. 2 e. h. n. k. sunnudag.
GuBsþjónustur í Gnmdarþinéa-
prestakalli: Sunnud. 10. maí, Kaup-
angi kl. 2 e. h.; hvítasunnudag 24.
maí, Grund kl. 1 e .h. (ferming);
annan í hvítasunnu Munkaþvera kl.
1 e. h. (ferming);; sunnud. 31. mai
Hólum kl. 1 e. h.
Messur í Möðrxrvallakl.prestakalli:
í Glæsibæ sd. 10. maí; á Bakka á
uppstigningardag 14. mai og sd. 31.
maí (ferming og altarisganga); á
Möðruvöllum hvítasunnudag 24. maí
(ferming og altarisganga) og á Bæg-
isá annan í hvítasunnu (ferming og
altarisganga). Allar guðsþjónustumar
hefjast kl. 1 e. h.
Útíör Axels heitins Kristjánssonar
kaupmanns fór fram s. 1. laugardag.
Líkfylgdin mun ein sú fjölmennasta,
er sézt hefir hér í bænum. íþrótta-
menn fylgdu undir fána sínum frá
heimili til kirkju, en Oddfellowar
stóðu heiðursvörð í kirkju. Þá stóðu
og liðsmenn úr norska sjó- og land-
hemum hér heiðursvörð við kirkju-
dyr, en Axel heitinn var, svo sem
kunnugt er, norskur konsúll. Séra
Friðrik Rafnar vigslubiskup flutti
húskveðju á heimili hins látna og
líkræðu í kirkju. Öll athöfnin var hin
virðulegasta.
Dánardœéur. Nýlátinn er Helgi
Jónsson, bóndi að Grænavatni í
Mývatnssveit, háaldraður maður,
bróðir Sigurðar sál. ráðherra í Yzta-
felli og sr. Áma sál. á Skútustöðum.
Helgi var einn af merkari bændum í
Þingeyjarsýslu, víðkunnur og vel
metinn þar um sveitir.
Nýlátinn er hér í bænum Sigfús
E. Axfjörð, fyrrum bóndi á Krónu-
stöðum í Saurbæjarhreppi, maður
nokkuð 6 áttræðisaldri. Var hann
víða kunnur sem fjör- og gleðimaður
á yngri ámm. Hann var kvongaður
Kristínu Jakobsdóttur, fyirum prests
í Saurbæ, og lifir hún mann sinn.
Barnaskólanum verður slitið laug-
ardaginn 9. maí n. k. kl. 2 e. h.
Stjórn RauBa-Kross-deildar Akur-
eyrar biður olaðið að skila því til
deildarmanna, að aðalfundur deild-
arinnar verði haldinn í kirkjukapell-
unni 12. maí n. k. kl. 8V2 síðdegis, og
að áríðandi sé að sem allra flestir
mæti.
Almæli. Sjötíu ára er t dag Guð-
rún Kristjánsdóttir, fynrum blaða-
kona, Oddeyrargötu 34, hér í bænum.
Hún er fædd 7. maí 1872, ættuð úr
Svarfaðardal. Guðrún sigldi ung til
Noregs og ferðaðist víða um lönd
þaðan. Kann hún frá mörgu skemmti-
legu að segja úr þeim ferðum sínum.
Gamla konan er vel ern, frá á fæti
og glaðvær; ber hún aldurinn með
hinni mestu prýði. Munu margir Ak-
ureyringar óska henni allra heilla og
langra lífdaga á þessum sjötugasta
afmælisdegi hennar.
Sjötu£safmæli átti Halldór Stef-
ánsson, vatnsafhendingarmaður, 2.
þ. m. Halldór ber aldurinn vel.
Námskeið fyrir bifreiðastjóra
(undirbúningur undir „meira“ próf)
hefir staðið yfir hér í bænum að und-
anfömu, og mun því lokið um þessar
mundir. Aðalkennari og stjómandi
námskeiðs þessa er Jón Ólafsson bif-
reiðaeftirlitsmaður frá Reykjavík, en
auk hans kenna á námskeiðinu: Jó-
hann Þorkelsson, héraðslæknir, Snæ-
bjöm Þorleifsson bifreiðaeftirlits-
maður og Nikulás Steingrímsson, bif-
vélavirki. Milli 50—60 bifreiðastjór-
ar héðan úr bænum og annars staðar
af Norðurlandi taka þátt í námskeiði
þessu.
Fræðslumálastjórnin hefir nýlega
skipað Guðmund Guðlauésson for-
6tjóra formann skólanefndar Gagn-
fræðaskóla Akureyrar.
Slys á Dalvík. Á laugardaginn var
vildi það slys til á vélbáti frá Dalvík,
að Tómas Jónsson lenti í vél skips-
ins með aðra höndina og meiddist
svo, að taka varð hana af, þegar í
tand ketn,
Nýársnóttin verður leikin í síðasta
ainn n. k. laugardags- og sunnudagv
kveld.
Fastar bílferðir eru nú hafnar milli
Akureyrar og Húsavíkur. Verður far-
in ein ferð daglega frá Bifreiðastöð
Akureyrar.
„Vorið“. Nýtt hefti þessa vinsæla
bama- og unglingarits er nýkomið.
Flytur það að vanda fjölbreytt og
skemmtilegt lestrarefni, t. d. stuttan
sjónleik í 2 þáttum fyrir böm, ,Á
krossgötum“ eftir Björgvin Guð-
mundsson. Efnið er úr þjóðsögum og
sérlega vel á því haldið.
Hjúskapur: Nýlega gengu í hjóna-
band í Rvík Dómhildur Skúladóttir
skósmiðs Einarssonar hér í bæ og
Sigvaldi skipstjóri Þorsteinsson frá
Upsum.
Kantötukór Akureyrar heldur aðal-
fund í Skjaldborg þriðjud. 19. þ. m.
kl. 8.30 e. h. Auk venjulegra fundar-
starfa, svo sem stjómarkosningar og
embættismannaskýrslna, liggja mjög
mikilsvarðandi mál fyrir fundinum
og er þess fastlega vænzt, að allir
meðlimir mæti.
með gúmmíbotnum, all-
ar stærðir. — Inni>
skór, með og án hæla,
margar fallegar teg
fást í
vandaðar, á kn 84,25,
Kaupfél. Verkamanna
Vefnaðarvörudeild.
2 stúlkur
óskast á gott heimili f Reykjavík
frá 14. maí næstk. Frí ferð suður
og gott kaup. Allar upplýsingar
eru gefnar persónulega (ekki í síma)
hjá undirritaðri.
Alma Thorarensen,
Aðalstræti 6, Akureyri.
Notið Perlu-þvoitaduft
Smásöluverð
á neftóbaki frá neftóbaksgerð vorri má ekki vera
hærra en hér segir:
Annars staðar
á landinu
kr.
í Reykjavík og
Hafnarfirði
Skorið neftóbak 40 gramma blikkdósin kr. 1.94
— — 60 — — — 2.91
— — 100 — glerkrukkan — 5.00
— — 200 — — — 9.40
— — 1000 — blikkdósin — 43.20
Óskorið — 500 — — — 20.70
Tóbakseinkasala rikisins.
2.00
3.00
5.15
9.70
44.50
21.35
laKKar,
karlm.,kvenna,urgl.
og barna, gott
úrval í
Bíðuns-lferzli
Páll Sígurgeirsson.
Ffórmark
Rorsteins Ágústssppar, Gröf, Grýtu-
bakkahreppi er:
Biti aftan gat hægra,
Sýlt vinstra,
Brennimark; t5. Ág. G.
Mark þetta er samþykkt af Marka-
dómi og innfært í bækur Markadóms
Pingeyjar- og Eyjafjarðarsýslna.
Garði, 25. marz 1942,
Páll G. Jónsson.
Hrossamark
undirritaðs er: Sýll hægra.
Hvassafelli, 26. apríl 1942.
Benedikt /úh'usson.
Gorma*
klemmur
komnar aftur.
VfifZl. Jóns Egils
Dagheimtli
fyrir böm, á aldrinum 3—6 ára, höldum við í Barnaskólanum á
Akureyri júlí og ágúst í sumar. — Nánari upplýsingar í skoðun-
arstofu Barnaskólans kl. 10—11 f. h. alla virka daga og í síma
426. — Umsóknir séu komnar fyrir 1. júní n. k.
ÍSAFOLD TEITSDÓTTIR, SVAFA STEFÁNSDÓTTIR,
hjúkmnarkona. kennari.
Fermingargjafir
fáið þér beztar og ódýrastar í
I
Verzlun JónsEgils
Nýkomið:
Karlmannafafacfni
Karlmannaföt
Kykfrakkar
Sfakkar
Klúfur
o. m. fleira.
KAUPFÉLAG EYFIRÐINGA
Vefnaðarvömdeild.
HKHKHKBKHKHIÍHISHIOSBKHKHISHSSHIÍHSSHIÍHKHÍSHKKKHKHKKHKKHKHIÍHÍ
Fer miugarg jaf ir
fyrir telpur og drengi er bezt að
kaupa hjá oss.
KAUPFELAG EYFIRÐINGA
Vefnaðarvömdeild.
5oíHKHlíHKHKHKHWHKHKHKHKHKHKHKHKHKHKHKHWHKH>iKHWH«HKHH»'
Tilkyimiiig
Verðfilkynning.
Frá og með 7. þ. m. em saumalaun stofunnar, eins og hér segir:
Alfatnaður karla, með tilleggi ................ kr. 130.00
Frakki karla, með tilleggi..................... — 130.00
Jakki, sérstakur, með tilleggi . . ................ — 76.75
Buxur, sérstakar, með tilleggi .................... — 29.25
Vesti, sérstakt, með tilleggi ................. — 24.00
Kvenkápur og dragtir, án tilleggs ................. — 55.00
Alfatnaður karla, úr útlendu efni ................. — 145.00
Frakki karla, úr útlendu efni ................. — 145.00
Saumalaun á kvenkápum eru miðuð við saum á venjulegum
kvenfrakka, allur saumur þar umfram verður reiknaður auka-
lega í tímavinnu.
SAUMASTOFA GEFJUNAR.
um innkaup á járni og stáli.
Þar sem auknir örðugleikar eru nú á að fá jám og
stál afgreitt frá Bandaríkjunum, og telja má víst að af-
greiðsla þessara vara út á forgangsleyfi verði annað-
hvort engin, eða svo sein, að algerlega verði óviðunandi,
er hér með, að gefnu tilefni, öllum þeim, sem eiga óaf-
greiddar pantanir á þessum vörum, bent á að snúa sér
nú þegar til Viðskiptanefndarinnar, ef þeir vilja fela
henni að annast kaup á þeim, þar sem heppnazt hefir
að fá útflutnings- og framleiðsluleyfi og fyrirheit um
fljóta afgreiðslu á þessum vörum, ef þær em keyptar
fyrir milligöngu nefndarinnar.
Sömuleiðis eru þeir, sem innflutningsleyfi hafa feng-
ið en ekki hafa enn gert pantanir, aðvaraðir um að
senda þær án tafar til Viðskiptanefndarinnar.
Viðskiptamálaráðuneytið, 27. apríl 1942-