Dagur - 19.05.1942, Qupperneq 4
4
Þriðjudaginn 19. maí 1942
DAGUR
ÚR BÆ OG BYGGÐ
Da£ur kemur næst út á laugardag.
Auglýsingar þurfa aS vera komnar til
afgreiðslunnar eða í prentsmiðjuna í
síðasta lagi fyrir hádegi á föstudag.
Þýzk sprengjuflugvél sást yfir
Austfjörðum á uppstigningardags-
morgun og var hrakin á brott með
skothríð úr loftvarnabyssum, segir í
tilkynningu frá amerísku herstjórn-
inni.
Fjársöfnunin til styrktar Norð-
mönnum (sjá ávarpið í blaðinu í dag)
hófst á þjóðhátíðardag norsku þjóð-
arinnar, sunnud. 17. maí. Hér í bæn-
um voru seld merki á götunum og
dagsins minnzt með fjölmennri kvöld-
samkomu í Samkomuhúsinu. Karla-
kórinn „Geysir“ söng norsk og íslenzk
lög, Helgi Valtýsson flutti snjalla
ræðu og mælti á norsku, þá voru les-
in upp kvæði eftir norska skáldið
Nordal Grieg. . Norðmenn þökkuðu.
Norræna félagið og Rauði Krossinn
stóðu að samkomunni.
St. Brynja heldur fund í Skjaldborg
annað kvöld. Inntaka nýliða. Skýrsl-
ur og innsetning embættismanna.
Kosning fulltrúa á Stórstúkuþing. A-
ríðandi að allir embættismennirnir
mæti. Félagar, fjölmennið á þennan
síðasta fund vorsins.
Frá verstöðvunum. Afli hefir verið
sæmilegur s.l. viku á báta, sem sækja
sjó frá eyfirzku verstöðvunum. All-
mörg erlend smáskip taka nú fisk til
útflutnings hér við fjörðinn. K. E. A.
annaðist um útvegun þessara skipa.
Garðrækt. Menn eru nú almennt
famir að undirbúa garða sína til sán-
ingar. Skrúðgarðar bæjarbúa eru og
óðum að komast í sumarbúning.
Garðarollurnar eru komnar á stjá
og farnar að vinna hervirki í görðun-
um. Blaðið beinir hér með-þeirri fyr-
irspurn til lögreglunnar, hverjir séu
rétthærri í þessu bæjarfélagi, borgar-
arnir, sem reyna að prýða garða sína
með blómrækt ,eða sauðfjáreigend-
umir, sem brjóta lögreglusamþykkt
bæjarins daglega, með því að sleppa
sauðfé lausu í bænum.
Sprengjur enn. Fyrir nokkrum dög-
um síðan féll eldsprengja úr flugvél
á hlaðið á Ærlækjarseli í Norður-
Þingeyjarsýslu. Sviðnaði allstórt
svæði umhverfis sprengjuna, en tjón
varð ekki á húsum né mönnum.
Brunarústirnar. Ennþá bólar ekkert
á því, að hreinsa eigi burt hinar ömur-
legu brunarústir úr miðbænum. Al-
menningur undrast þetta seinlæti. Er
tilætlunin að „prýða“ bæinn með
þessum ófögnuði í sumar? Vilja ekki
yfirvöld bæjarins taka þetta mál til
athugunar áður en þau festa upp hina
árlegu auglýsingu um utanhússþrifn-
að fyrir hvítasunnuna?
Sendiherraskipti. Lincoln McVeagh,
sendiherra Bandaríkjanna á Islandi,
hefir verið skipaður sendiherra í Suð-
ur-Afríku. Ekki er vitað um hver verð-
ur eftirmaður hans hér.
Nýr skrúðgarður. Skógræktarfélag-
ið hefir hafizt handa til þess að vinna
að stofnun skrúðgarðs í brekkunni
neðan Eyrarlandsvegar. Ahugamenn
girtu brekkuna fyrir nokkrum árum
síðan og gróðursettu þar trjáplöntur.
Er ætlunin að þarna geti orðið fagur
garður. Jón Rögnvaldsson frá Fifil-
gerði hefir gert teikningu af tilhögun
garðsins.
Blaðið leyfir sér að vekja athygli
á auglýsingu Fiskideildar Akureyrar
um stofnun slysavarnasveitar karl-
manna. Væri líklegt, að sem flestir
ungir og hraustir karlmenn sæktu
stofníundinn í Verzlunarmannahúsinu
annað kvöld, kl. 8,30.
Gluggatjaldaefni
tekin upp í dag.
Hannyrðaverzlun
Ragnheiðar O. Björnsson.
Halldór
Kristinn
Haraldsson
FRÁ YTRA-GARÐSHORNI.
Hann var fæddur á Þorleifsstöðum
í Svarfaðardal 23. febr. árið 1920.
Foreldrar hans eru þau Haraldur
Stefánsson, fyrrum skipstjóri og nú
bóndi í Ytra-Garðshorni, og kona
hans, Anna Jóhannesdóttir. Barn að
aldri fluttist Kristinn sál. ásamt for-
eldrum sínum að Ytra-Garðshorni og
ólzt upp þar með þeim alla stund
síðan.
Um tvítugs aldur gekk Kristinn í
Bændadeild Hólaskóla og útskrifað-
ist þaðan með loflegum vitnisburði.
Að því námi loknu hvarf hann aftur
heim til foreldra sinna, en litlu síðar
réðist hann að Sámsstöðum í Fljóts-
hlíð sem algengur verkamaður og
dvaldi þar rúmlega eins árs tíma. För
sína að ' Sámsstöðum mun Kristinn
hafa gert meðfram til þess að kynn-
ast kornyrkju og öðrum nýjum jarð-
yrkjuaðferðum, og kom hann þaðan
heim aftur á síðastliðnu vori. Dvaldi
hann nú enn hjá foreldrum sínum og
hafði á hendi formennsku í ung-
mennafélaginu „Þorsteinn Svörfuð-
ur“. Kristinn sál. varð bráðkvaddur
þann 18. marz síðastliðinn og hafði
ekki áður, svo vitað sé, kennt sér
nokkurra meina. Hann varð aðeins
rúmlega 22 ára gamall.
Svo sem sjá má hér að framan
varð lífsdagurinn stuttur og starfs-
tíminn skammvinnur.
„Skjótt hefir sól brugðið sumri".
Þannig eru upphafsorðin í snilld-
aróði Jónasar Hallgrímssonar, þá er
hann kveður eftir Bjarna amtmann
vin sinn. Einhvern veginn ósjálfrátt
duttu mér þessi orð Jónasar í hug, þá
er eg frétti andlátsfregn Kristins
Haraldssonar, því þó að hver maður
geti ef til vill búizt við dauða sínum
og annarra svo að segja á hverju
augnabliki æfinnar, þá fer svo oft, að
dauðinn verður ekki aufúsugestur, og
sízt þá er ungir menn og mannvænir
eru burt kvaddir.
Kristinn sál. var búinn flestum
þeim eðliskostum og manndyggðum,
er ávallt hafa verið taldir nauðsyn-
legir til uppbyggingar og viðhalds
hverju þjóðfélagi.
Hann var myndarmaður að vallar-
sýn, óáleitinn og prúður, stilltur og
skapfastur, með góða greind og
drjúgur í skiptum, tillögugóður og
gat við hvern mann geði blandað og
fékk því hvers manns lof, er honum
hafði að nokkru kynnst. Mátti og af
ýmsu sjá, að hann kynni með fé að
fara, sjálfum sér og öðrum til hag-
sældar.
Það hefir lengi verið sagt, að ung-
ir menn og efnilegir væru dýrmæt-
asta eign þjóðar hverrar. I höndum
hinna yngri manna liggur framtíðin.
Það verður því ætíð tilfinnanlegt
tjón hjá svo fámennri þjóð, sem við
íslendingar erum, að missa frá störf-
um hvern efnismikinn og góðan
dreng. Barátta mannlxfsins er marg-
vísleg og oft ærið erfið, og við missi
hvers góðs einstaklings þynnist fylk-
ingin. Vonirnar daprast, og þá fer oft
svo, að starfsorka þeirra, sem eftir
lifa, dofnar eða jafnvel þverr með
öllu. Þetta er eðli okkar mannanna
og néttúrufar og ekki auðvelt að ráða
bót á því.
Við fráfall ástvinar eða góðs
manns verður sjaldan gengið fram
hjá ítökum og ríki tilfinninganna.
Söknuður og harmur fer svo að segja
hamförum um Iendur mannssálarinn-
ar, svo að oft verður lítið viðnám
veitt. Og í slíkum kringujnstæðum
verðum við þess eigi sízt vör, hve ei-
lífðarvonin og guðstraustið er ónógt
hjá oss mönnunum.
Aukin menntun og margra alda
gamall boðskapur kirkjunnar megn-
ar stundum ekki hót að veita ofur-
harmi viðnám. Sú hefir raunin á
orðið.
En — „Getan býr í grennd við
nauðsyn", sagði einn af spekingum
fornaldarinnar. Og það er víst, að þó
að óföllin séu stór og höggin þung,
sem falla á hjartastað okkar veik-
burða manna, þá leynist með flestum
einhver dulinn máttur, sem ver al-
gjörðu falli eða uppgjöf, þá er í nauð-
ir rekur. Á þessu sviði gengur mönn-
um misvel að bjargast eftir eðlisfari
og aðstöðu. En flest sár læknar tím-
inn að lokum. Og er það ekki guðs-
hjálp?
Við unnendur Kristinns sál. vonum
hiklaust að treganum létti og að síðar
meir sjáum við og finnum réttmæti
þeirrar ráðstöfunar, að hann hvarf
oss á brott svo að segja á morgni
sinna manndómsára.
Kristinn Haraldsson! Eg vil þakka
þér fyrir viðkynninguna. Þú beinlínis
með drengskap þínum og skilningi
hlúðir að hag mínum og gerðir þitt
til þess að létta mér þungbæra erfið-
leika. Þú sýndir mér bróðurhug, þeg-
ar mér lá á fulltingi þínu. Og þó þú
sért nú horfinn út fyrir skynvídd
minnar jarðnesku tilveru, þá vil eg
samt varpa til þín þakklæti mínu, og
það þakklæti mitt skal fylgja þér,
ungi dulúðgi sveinn, hvar sem þér
verður til starfs skipað af dulmætti
lífsins, alheims og alda.
Runólfur í Dal.
Mikið úrval af
allskonar
Vefnað*
arvöru
komið og vænt-
anlegt á næst-
unni.
& Co.
Tilkynning.
Allir aðgerðarmunir ósk-
ast sóttir fyrir næstu
mánaðamót. — Annars
seldir fyrir viðgerðar-
kostnaði.
Guðjón Bernharðsson
gullsmiður.
Þá,
sem vantar K V A R S, til
að húða með hús sín, ættu
að tala við mig strax.
TRYGGVI JÓNATANSSON
byggingameistari.
Fataefnin
komin.
& Co.
MATJURTAFRÆ
flestar tegundir
fyrirliggjandi.
Stjörnu Apótek
K. E. A.
nýlendu- og hreinlætisvörur frá útibúum vor-
um í
. STRANDGÖTU 25,
HAFNARSTRÆTI 20 og
BREKKUGÖTU 47.
Viðskiptavinir vorir eru þó beðnir að síma aðal-
pantanir sínar, eins og að undanförnu, til Ný-
lenduvörudeildarinnar.
KAUPFÉLAG EYFIRÐINGA
^HKHKHKHKHKHKHKHKHKHKHKHKBKHKHKHKHKHKHKHKBKHKHKBKHKH*
Fyrir forgöngu
Fiskideildar Akureypar
verður fundur haldinn í Verzlunarmannahúsinu
miðvikudagskvöldið 20. þ. m., kl. 8,30 e. h. til að
stofna slysavarnasveit karlmanna á Akureyri. —
Þess er vænzt, að allir þeir, sem áhuga hafa fyrir
þessu málefni mæti á fundinum. -
N e f n d i n.
Hjá mér gerið
þér beztu
kaupin,
Alls konar matvörur og
nýlenduvörur á boð-
stólum:
Hveiti og ger
Kartöflumjöl
Hafragrjón
Hrísgrjón
Hrísmjöl
Kókosmjöl
Sagógrjón
Molasykur
Strásykur
Kaffi
Export
Harðfiskur
Smjörlíki
Smjör
Egg
5% afsláttur gegn stað-
greiðslu.
Hringið í síma 475,
þá kemur það.
Verzlun JónsEgils
Strandgötu 23
ATVINNA
Nautgriparæktarfélag Akureyrar
óskar eftir tilboðum í að halda 2 kyn-
bótanaut félagsins frá því síðar í sum-
ar og framvegis eftir samkomulagi. Er
þetta góð atvinna fyrir þá, sem hafa
ástæður til. — Allar upplýsingar gef-
ur formaður félagsins, Jón Kristjáns-
son ökumaður, svo og meðstjórnend-
ur hans, Gestur Jóhannesson og
Sveinn Bjarnason.
Sendisvein
vantar nú þegar.
VERZLUN EYJAFJÖRÐUR.
Kaupi hæsta verði
KIÐLINGASKINN,
GEITASKINN og
LAMBSKINN.
J. S. KVARAN.
Kaupum hæsta verði
gegn vöruúttekt:
Ull,
Kálfskinn,
Lambskinn,
Vettlinga,
Sokka,
Leista,
Tuskur o. fl.
Vöruhús Akureyrar
SKJALA OG BRÉFAÞÝÐ-
INGAR, ensk-íslenzkar — ís-
lenzk-enskar.
BRAGI EIRÍKSSON,
Brekkugötu 7. . Sími 479.
Aöalfundu]*
FLUGFÉLAGS ÍSLANDS, h.k,
verður háldinn að Odd-
fellow-húsinu, Reykja-
vík, miðvikudaginn 27.
maí kl. 4 e. h.
Dagskrá samkvæmt < i
félagslögum.
STJÓRNIN.