Dagur - 13.06.1942, Page 1
Vikublaðið DAGUR
Ritstjórar: INGIMAR EYDAL,
JÓHANN FRÍMANN.
Afgreiðsla, auglýsingar, innheimta:
Jóhann Ó. Haraldsson.
Skrífstofa við Kaupvangstorg.
Sími 96.
Árgangurinn kostar kr. 8,00.
Prentverk Odds Bjömssonar.
XXV. árg.
AKUREYRIFYRST!
Sterk og örugg forysta á Alþingi er lífsnauðsyn
fyrir bæjarfélagið, til þess að tryggja hagsmuni Ak-
ureyrar í þeirri miklu sókn í atvinnumálum, sem
verður að hefjast strax og ófriðnum lýkur og undir-
búa þarf án tafar. Það verður þá ómetanlegt happ
fyrir bæjarfélagið, að hafa sem þingmann sinn einn
af reyndustu og mikilhæfustu athafnamönnum
landsins. — Á þetta líta allir hugsandi menn, er
þeir ákveða hverjum frambjóðandanum þeir fylgja
í kosningunum.
Nú þegar bíða mörg stórmál bæjarins úrlausnar. Raíveitu-
málið er ennþá ekki komið í höín. Ábyrgðarheimild ríkisins dag-
aði uppi á síðasta þingi! Húsmæðraskólinn og Gagnfræðaskólinn
þuria að komast upp á næstunni. íþróttahúsið þari aukirtn stuðn-
ing ríkisins. — Stuðningurirm við þessi stórmál má ekki daga
uppi á næstu þingum.
Það er því mikilsverðara fyrir framtíð bæjarfé-
lagsins en nokkru sinni fyrr, hvernig tekst til með
þingmannsvalið í sumar.
Setjum AKUREYRI ofar flokkum og
klíkuml
Kjósum VILHIÁLM ÞÓR á þingl
Tyftunai*'-
meistapinn
rökvísi
FÁSKRÚÐUGT ORÐASAFN.
TSLENDINGUR" virðist telja það
mikinn feng og hvalreka á fjörur
sínar, að „Dagur“ talaði á dögunum
um „drengskaparlausan róg“, sem
íhaldsblöðin, og þó einkum „Vísir“,
hefir hafið gegn fráfarandi ráðherr-
um. Hefir ritstj. ísl. tönnlast mikið á
þessu síðan í hverju blaðinu á fætur
öðru, og stendur bersýnilega í þeirri
meiningu, að slíkt orðatiltæki sé
endileysa hin mesta og hortittur í
málinu, þar sem aldrei geti verið
um „drengskaparróg" að ræða, eins
og blaðið orðar það. — Auðvitað er
„Isl.“ ekki illt of gott að auglýsa sem
rækiiegast sína eigin fákunnáttu um
merkingar algengra orða og almenna
íslenzka málvenju. Þó skal blaðinu
bent á tvö einföld þekkingaratriði í
þessu sambandi: Fyrst það, að orðið
rógur getur þýtt fleira en illmælgi á
ísl. tungu. Orðið er t. d. allalgengt í
merkingunni ófriður, styrjöld eða bar-
dagi. Ef ritstj. „Isl.“ kannast ekki við
þessar merkingar, getur hann t. d.
reynt að slá upp í orðabók Sigfúsar
Blöndal og kynna sér, hvað þar stend-
ur um þetta orð. Nafn umræddrar
greinar í „Degi“ getur því þýtt: dreng-
skaparlaus árós, styrjöld eða bardagi.
— En ef til vill skiija íhaldsritstjór-
arnir heldur ekki slikan samsetmng,
sökum þess að andstæðurnar: drengi-
legur bardagi, heiðarlegur ófriður o. s.
frv. séu ekki til í orðabók þeirra. Gæti
þá sú staöreynd skýrt ýmislegt merki-
legt í fari þessara málgagna frá upp-
haíi, sem áður hefir veriö lítt skiljan-
legt siðuðum mönnum, svo sem geð-
veikisaðdróttun Helga á Kleppi,
Kollumálið, falsbréfaundrin við sxð-
ustu Alþingiskosningar og nú síðast
þjófnaðaraðdróttim „Vísis“ á hendur
fráfarandi ráðherrum, svo að eitthvað
sé til tínt úr því 'geðslega „listasafni“.
ANNAÐ SJÓNARMIÐ.
ÓTT hér hafi til gamans verið
dvalið við hinar sjaldgæfari og
fornari merkingar orðsins rógur, fer
því þó fjarri, að slík orðatiltæki sem
þetta séu óalgeng eða brjóti í bága
við skýra rökhugsun, þótt fast sé
haldið við hina almennu merkingu og
notkxm orðsins. Kannast ritstj. t. -d.
ekki við slík orðasambönd sem þetta:
vondur, ógeðslegur, skaðlegxir,
heimskulegur eða ljótur rógur, o. s.
frv.? Ef þau geta staðizt, — og það er
öldungis vafalaust, — er drengskap-
arlaus rógur alveg jafn rökrétt orða-
tiltæki eins og þau, er nú voru nefnd.
Eða er það nokkuð nær lagi, að rógur
geti nokkum tíma verið góður, geðs-
legur, saklaus, gáfulegur eða fagur
heldur en það, að hann geti verið
drengilegur? — Það sjá víst engir
aðrir en fjólupabbar íhaldsblaðanna.
ER NAFN GREINARINNAR EÐA
INNIHALD AÐALATRIÐIÐ?
N eftir á að hyggja: Þótt lesendum
M“ muni vafalaust þykja háðs-
merki þau, er „ísl.“ setur á eftir „fjól-
um“ okkar „Dagsmanna" mjög
skemmtileg, myndi þeim þó sennilega
þykja það allt eins fróðlegt að heyra
ritstjórann hrekja með gildum rökum
efnið í nefndri grein eins og að sjá
hann gerá sig að viðundri með fáráð-
lingslegum vangaveltum yfir nafni
hennar. Það færi t. d. einkar vel á
því, að hann gerði lesendum sínum
grein fyrir því, að „Vísir“ varð að éta
Frh. & 3. síðu*
Kosningamar í sumar eru
merkilegar fyrir fleira en kjör-
dæmamálið, þó mönnum hætti
til að gleyma öðru en því í hita
bardagans.
Það skiptir mjög miklu máli
iyrir sýslur og kaupstaði lands-
ins, hvernig tekst til með þing-
mannavalið nú, vegna þeirra
stórmála, sem þingsins bíða á
næstu mánuðum og árum, mála
sem hefðu átt að bera hærra í
hugleiðingunum um framtíðina
en kjördæmamálið, ef auðna og
ábyrgðartilfinning hefðu ráðið
gerðum þingmeirihlutans í s. 1.
mánuði. En þótt þingmeirihlut-
inn hafi svikizt um þá þing-
skyldu að setja hagsmuni þjóð-
arinnar ofar flokkshagsmunum
og hafi hrundið þjóðinni út í
harðvítugustu kosningabaráttu
síðusta áratuga, í landinu tví-
hernumda, þá mega kjósendur
ekki gleyma þeirri staðreynd,
að það er Alþingi íslendinga, er
hlýtur að hafa forystuna í þeim
stórmálum, sem þjóðarinnar
bíða og að það getur haft úr-
slitaáhrif á frelsi lands og þjóð-
ar, hvemig þau mál verða leyst.
Það eru fyrst og íremst at-
vinnumálin, hyrningarsteinar
þjóðiélagsins, sem hér er um að
ræða.
Á þeim málum þarf að taka
með einurð, festu og framsýni.
Með tilliti til þeirra eiga menn
að velja sér þingfulltrúa nú, eigi
síður en með tilliti til þess máls,
sem mest er deilt um þessa dag-
ana.
Það er nú á færi Akureyringa
að senda á þing mann, sem þeg-
ar hefir unnið sér frægðarorð
um land allt fyrír dugnað, festu
og framsýni á sviði athafnamála
þjóðfélagsins. Um það er ekki
deilt, að með honum mundi
þinginu og þjóðinni bætast einn
hinn vaskasti og slyngasti mað-
ur, sem þar hefir átt sæti um
langa hríð.
Fyrir Akureyri getur þetta
haft ómetanlega þýðingu. Eftir
margra ára kyrrstöðu fengi bær-
inn loksins áhrifamikinn
fulltrúa á Alþingi, mann, sem
hlýtur reynslu sinnar og álits
vegna að standa í fylkingar-
brjósti í þeim viðreisnarátökum,
sem framundan eru.
Akureyri á mikilla hagsmuna
að gæta, þegar kemur til kasta
þingsins að skipuleggja atvinnu-
framkvæmdir í stríðslokin. Þá
getur það haft alvarlegri afleið-
ingar en undanfarið, ef hags-
munamál bæjarins daga uppi á
þinginu.
Jafnframt og þessa er minnzt,
muna menn þá sókn, sem nú er
hafin í menningarmálum bæjar-
félagsins. Húsmæðraskólinn,
gagnfræðaskólinn, fullkomnun
íþróttahallarinnar, stækkun raf-
veitunnar eru allt mál, sem bæj-
arbúar fylkja sér einhuga um
og hafa stórkostlega þýðingu
fyrir framtíð bæjarfélagsins.
Hefir bærinn efni á því, að
hafna stuðningi Vilhjálms Þór
við þessi mál á Alþingi?
Þannig eru viðhorfin nú í
augum ábyrgra bæjarbúa, —
hvaða flokki sem þeir annars
fylgj3- Tímarnir eru alvarlegir
og örlagaríkir. Menn líta því út
yfir hinn þrönga flokkshring og
setja hagsmuni bæjarfélags síns
og þjóðar sinnar ofar flokks-
hagsmunum,
ANTHONY EDEN,
utanríkismálaráðherra Bretlands, til-
kynnti í fyrradag í neðri málstofu
brezka þingsins, að samningar hefðu
verið undirritaðir 26. maí s.l. í Lon-
don af utanríkismálaráðherrum Bret-
lands og Sovét-Rússlands, um algera
samvinnu í styrjöldinni og hernaðar-
lega, viðskiptalega og fjárhagslega
samvinnu eftir stríðið. Samningurírm
gildir 20 ár eftir stríðslokin og leng-
ur, ef þurfa þykir, til þess að tryggja
frið og öryggi í Evrópu. — Molotov
utanríkisráðherra Rússlands fór til
London og Washington í tilefni samn-
ingsins og kom þá við í Reykjavík
eins og áður var frá akýrt.
Björn Blön-
dal Jónsson
lögoæzlumaður ríklsins
og annar opinber
siarfsmaður
valda hneyksli á opinber-
um stað á Akureyri.
í fyrrakvöld komu þrír gest-
ir inn á Gildaskála K. E. A. og
báðu um kvöldverð. Voru það
þeir Björn Bl. Jónsson lög-
gæzlumaður, annar löggæzlu-
maður og þriðji maður, sem
minna kemur hér við sögu.
Þegar maturinn var fram-
reiddur höfðu þeir allt á horn-
um sér, heimtuðu með frekju
ýmsar veitingar, og voru þær
framreiddar eftir föngum. —
Völdu þeir framreiðslustúlk-
unni og veitingunum hin háðu-
legustu orð með háreysti, svo
heyrðist um allan salinn og
töldu sér í engu samboðin þau
föng eða þjónusta, sem hægt
var að veita. Töluðu þeir hátt
um „óæti“, og „framsóknarbita",
„kroppuð bein“ o. fl. þess hátt-
ar, og spurðu að lokum með
þjósti, hvað þeim bæri að greiða
fyrir þetta „óæti“. Er þeim var
sagt að „óæti“ væri ekki selt
þarna, grýttu þeir röskum fjór-
um krónum á borðið og fóru
leiðar sinnar.
Þess má geta í þessu sam-
Frh. é 3. síSu.
Þess vegna hafa menn fagn-
að framboði Vilhjélms Þórs, og
þess vegna er kjörorðið nú:
Sendum Vilhjélm Þór á þing!
Með aug-
um íhalds-
ins
„Skrítin skepna marglittan!“
„ALÞÝÐ UMAÐ URINN“, hið
virðulega málgagnhinsharð-
snúna krataflokks hér í bæ, tel-
ur það eina hina mestu fjar-
stæðu, að „Dagur“ skyldi leyfa
sér að gizka á, að foringjalið í-
halds og krata myndi hugsa til
samvinnu í kosningunum all-
víða á landinu, þ .á. m. hér á Ak-
ureyri. Telur „AIþm.“ þetta
rækilega afsannað með því, að
kratar hafi menn í kjöri í öllum
kjördæmum! Sannlega hefir oss
aldrei órað fyrir því, að hin
væntanlega samvinna þessara
flokka yrði svo drengileg og op-
inská að farið yrði forstofumeg-
in að Alþýðuflokkskjósendum
hér t. d. og þeim beinlínis
skipað að kjósa með íhaldinu,
gegn því að íhaldið kysi Harald
Guðmundsson á Seyðisfirði, svo
Framh. á 4. síðu.
Stór bíla- og
dtvarpstækja
kaup
Sveinn Ingvarsson, forstjóri
Bifreiðaeinkasölu ríkisins, er
nýkominn heim frá Ameríku,
þar sem hann hefir dvalið und-
anfarna mánuði og annast inn-
kaup fyric einkasöluna.
Sveinn hefir nýskeð fest
kaup á 248 nýjum vörubifreið-
um, 200 fólksbifreiðum og
2700 útvarpstækjum.
Ókomið er hingað til lands af
þessum vörum, 178 vörubifreið-
ar, 191 fólksbifreið og öll út-
varpstækin. Bíður þetta allt
skips í New York.
uerzlunarjöfnuOurinn hag-
stæður um 2,7 mili. kr.
í mar
Hagstofan hefir birt skýrslu
um útflutning og innflutning í
síðastl. mánuði.
Voru fluttar inn vörur fyrir
18,4 miljónir en útfluttar fyrir
21, lmilj. kr. Er verzlunarjöfn-
uðurinn því hagstæður um 2,7
miljónir króna.
Innflutningurinn á fyrstu 5
mánuðum ársins nam 82 milj.
kr., en útflutningurinn 88 milj.
kr. og er verzlunarjöfnuðurinn
því hagstæður um 6 miljónir
króna á þessu tímabili,
4