Dagur - 16.06.1942, Blaðsíða 2

Dagur - 16.06.1942, Blaðsíða 2
2 DAGUR Þriðjudaginn 16. júní 1942 JAhannes Elía«snn, stud. fur.: Jón Sigurðsson og samtíð vor . ,J>að skal fram, sem horfir, meðan rétt horfir.“ Það er ekki úr vegi, að vér ís- lendingar minnumst þessara orða, sem gerð voru að umtals- efni fyrir tæpum 65 árum. Það var Jón Sigurðsson, sem valdi þessi orð, sem annars eru eignuð Páli Vídalín, fyrir motto að ræðu, er hann flutti í samsæti, er landar hans héldu honum í Reykjavík 4. sept. 1877, er hann var á förum til Kaup- mannahafnar að loknu Alþingi. Þetta samsæti var síðasti þakk- lætisvotturinn, er íslendingum auðnaðist að sýna óskabarninu, mikilmenninu, hinum ókrýnda konungi í lifandi lífi hér heima á ættjörð hans. Jón Sigurðsson og kona hans áttu ekki eftir að líta ættland sitt aftur eftir þá ferð, er þau þá tókust á hendur 5. sept. Hin ágæta kona Jóns stóð við það heit sitt, að vera manni sínum trú til dauðans, og meira — hún fylgdi honum inn í eilífðina, því hún andaðist að- eins 9 dögum seinna en hann. Þennan dag, 5. sept., sá Jón Sigurðsson í síðasta sinn hina hvítkrýndu konungbornu jökla síga í hafið, og hann sá þá aldrei stíga úr hafinu aftur. Hann var þá orðinn gamall maður og far- inn að heilsu. Látlaust erfiði og barátta hafði að lokum lamað orkuna, stálsterka viljann, skarpa andann og hið svellandi blóð þessa íturvaxna líkama. Baráttan hafði verið hörð, en hún hafði líka borið árangur. — Grundvöllur var lagður að sjálf- stæði íslands. Þegar menn athuga minnis- varða Jóns Sigurðssonar á Aust- urvelli í Reykjavík, veita menn athygli lágmynd á fótstalli líkn- eskisins. Myndin er af hóp manna í oddfylkingu, og fer einn fremstur, en fyrir þeim verður stórgrýtisurð, sem virðist ófær. En foringinn hikar ekki, hann þrífur björgin og kastar þeim til hliðar og ryður veginn fyrir þá, sem á eftir honum koma. Þessi litla mynd er mjög táknræn. Foringinn er Jón Sigurðsson, er ryður blýþungum björgum á- þjánar og afturhalds, þekkingar- leysis og sundurlyndis úr vegi fyrir íslenzku þjóðinni, og hún fylkir sér um merki hans. Það hafa heyrzt raddir um það, að íslendingar hafi lítið haft fyrir því að fá sjálfstæði sitt. Til samanburðar eru teknar aðrar þjóðir, sem orðið hafa að færa blóðfómir á vígvöllunum. Þeir menn, sem þannig hugsa, ættu að minnast Jóns Sigurðs- sonar, þess manns, sem fórnaði til frelsis íslenzku þjóðinni hverri taug, hverju andtaki og hverjum blóðdropa — öllu lífi sínu. — Það er ekki sárara að falla á vígvelli fyrir byssukúlu en að þola um áratugi sár í póli- tískri orrustu. Vera nefndur drottinssvikari landráðamað- ur, sem hafi að leikfangi harð- ræði, ódrengskap, ofstæki og undirferli. Slíkt sem þetta var sagt um Jón Sigurðsson og það meira að segja í víðlesnu blaði. Þeir menn, sem segja í ábyrgð- arleysi og einfeldni, að sjálf- stæði vort hafi fyrirhafnarlítið gengið oss í greipar, ættu að kynna sér söguna um baráttu þá, sem varð að heyja fyrir því, þá myndi sjálfstæði þjóðarinnar ef til vill verða verðmætara í augum þeirra, og þá mundu þeir ef til vill gæta sín betur í við- skiptum við útlendinga. — Þá mundi ekki mörg „ástandsmær- in“ verða upplitsdjörf, ef hún sæi ásjónu Jóns Sigurðssonar. Nú, hinn 17. júní 1942, eru liðin 131 ár frá fæðingu Jóns Sigurðssonar, íslendingsins, sem framar öllum öðrum varð til þess að ísland öðlaðist fullkom- ið sjálfstæði og fullveldi árið 1918. Nú er sjálfstæði vort af oss tekið um tíma, og einnig nú stendur barátttan fyrir því, þótt á öðrum sviðum sé en áður. Það er þess vegna ríkari ástæða til þess en ef til vill nokkru sinni áður, að minnast á virðulegan hátt fæðingardags Jóns Sigurðs- sonar. En það er ekki nóg. Þjóð- in verður að hafa hugíast, að kasta ekki á glæ og fótum troða þau verðmæti, sem hennar beztu synir hafa fómað lífi sínu fyrir henni til handa. Því það eru þau verðmæti, sem eru grundvöllur sjálfstæðisins, því sú þjóð, sem ekki gætir sinna þjóðlegu verðmæta, verðskuld- ar ekki annað og verður heldur aldrei annað en undirokuð þjóð. „Framsókn er fylgislaus við sjávarsíðuna, nema á Akureyri,“ segir í forystugrein „Alþýðu- blaðins“ s. 1. laugardag, en sú grein fjallar annars um „kosn- ingar í kaupstöðunum". — Það er sjálfsagt í krafti þeirrar stað- reyndar, að Framsóknarfl. á miklu og vaxandi fylgi að fagna hér í bænum, sem nauðsynlegt er taiið að plokka af honum hið bráðasta, að ekki fer eitt einasta styggðaryrði að kalla milli mál- gagna stjórnarflokkanna þriggja hér í bæ, heldur veitast þau nú öll í bróðurlegri einingu að Framsókn. Framboð hennar opnar líka eina mögúleikann, sem til er fyrir millistéttirnar og alþýðuna, að hremma þingsætið hér úr klóm íhaldsins. Hitt er mönnum ekki jafnljóst, hvernig það má vera, að foringjar krata skuli telja það svo ákaflega nauðsynlegt, að Sjálfstæðis- flokkurinn fái að halda þessu „Það skal fram, sem horfir, meðan rétt horfir.“ Þetta voru síðustu hvatningarorð Jóns Sig- urðssonar til íslendinga, sem hann mælti á íslenzkri moldu. Og hví skyldum vér eigi skerp- ast? En gæta verður þess um- fram allt, að rétt horfi. Því mið- ur bendir margt til þess, að svo sé ekki með öllu. Það fer ekki fram, sem horfir í þjóðmálum, meðan stýrt er ýmist í þessa áttina eða hina. Það sjá allir, ef vilja. Á aldarafmæli Jóns Sigurðs- sonar minntist íslenzka þjóðin hans með því að helga Háskóla | íslands nafni hans og minningu. Nú, 17. júní, ættu Islendingar að heiðra minningu hans með því að heitstrengja í hjörtum sínum að bregðast ekki skyldu sinni sem Islendingar. TILBÚIN karlmaDDaf öl fyrirliggjandi. BRAUnS-VERZLUH Páll Sigurgeirsson. ÓDÝRA.ST í BÆNUM: VASAKLÚTAR, handa konum og körlum. STOPPGARN í ótal litum. HÁRNET, góð og stór. SKRAUTNÆLUR og eyrna- lokkar. HANNY RÐAV ERZL. Ragnh. O. Björnsson. þingsæti í góðum friði. A. m. k. skyldu menn halda, eftir þá lýs- ingu, er gefin er af ferli íhalds- ins í þessari sömu grein „Al- þýðublaðsins“, sem hér er vitn- að í, að þetta væri ekki nein höf- uðnauðsyn fyrir alþýðuna í landinu. Sú lýsing gefur annars fróðlega mynd af heimilisástæð- um og heilindum á stjórnarbú- inu. Þar segir m. a.: „Sjálfstæðisflokkurinn skal ekki ímynda sér, að launastétt- irnar séu búnar að gleyma svik- um hans í dýrtíðarmálunum, launamálunum, gengismálinu og skattamálunum. Þær munu vera nokkuð margar þær þús- undir kjósenda, sem hugsa sig tvisvar um við þessar kosningar, áður en þær gefa með atkvæði sínu flokki Ólafs Thors umboð til þess að halda slíkum svikum áfram.“ En eftir á að hyggja: Hvers vegna kaus „Alþýðuflokkurinn" Vilhjálmur Þór og rafveitan. JSLENDINGUR" hefir gert flokks- ##,,,bróður sínum, Steini Steinsen bæj- arstjóra, þann bjarnargreiða að draga nafn hans inn í umræður um fram- kvæmdaþrek og dugnað Vilhjálms Þór. „Dagur“ hefir enga tilraun til þess gert að skyggja á orðstír bæjar- stjórans í neinu, heldur ekki í rafveitu- málinu. Steinsen bæjarstjóra er sjálf- um manna bezt kunnugt um sögu þess máls og hlutdeild Vilhjálms Þór í undirbúningi þess og framkvæmd. Treystir „ísl.“ sér til að útvega vott- orð bæjarstjórans þess efnis, að hann telji það oflof hjá Degi um Vilhjálm Þór, að „ekki sé það hvað sízt að þakka honum, hve giftusamlega tókst til um rafvirkjunarmál bæjarins", eins og „Dagur“ orðaði það, og „að hann hafi oftar en einu sinni farið utan, til þess að útvega því fyrirtæki lán og annast um útboð og annan þýðingarmikinn undirbúning verks- ins“, þótt hann væri þar einnig ann- arra erinda? — Þegar slik yfirlýsing jafn kunnugs og graridvars manns, eins og Steinsen er, liggur fyrir, mun „Dagur“ til með að taka þessi um- mæli sín til endurskoðunar og leið- réttingar, en fyrr ekki. — Það vill nú raunar svo til, að „Dagur“ telur sig allt eins kunnugan því, hvað gerðist í rafveitumálum bæjarins á þessu tíma- bili, eins og ,,ísl.“, þar sem svo stend- ur á, að annar ritstjóri blaðsins átti sæti í rafveitunefnd og bæjarstjórn um þetta leyti, en ekki er það kunn- ugt, að ritstj. „Isl.“ hafi komið þar nokkuð nálægt. Mun því „Dagur“ ekki að sinni leita á náðir hans um upplýsingar í þessum efnum. „Flugur fyrir vatnafiska.“ TSL.“ segir ennfremur, að „þótt " kjósendur annarra flokka frýi ekki V. Þór vitsmuna eða dugnaðar", muni ,,réttlætistilfinning(!) manna ekki rugluð með því að beita persón- um fyrir þá. ... hversu glæsilegar sem þær kunna að yera“: Slík um- mæli fara víst einkar vel í munni málgagns þess flokks, sem mest hefir talað um „ágæti einkaframtaksins“, „handjárna-pólitík" flokkanna og nauðsyn þess að gefa afburðamönn- I að setja allt á annan endann í þjóðfélaginu með stjórnarskrár- breytingu, tvennum kosningum á einu og sama ári og öðrum ó- sköpum, til þess eins, að því er virðist, að launa þessi „svik“ Sjálfstæðisflokksins við „launa- stéttirnar“ með 6—8 nýjum þingsætum, eigandi í hæsta lagi von á einu þingsæti sjálfur til viðbótar? Og allt þetta skyldi gerast á kostnað þess eina flokks, sem hugsanlegt er, að Al- þýðuflokkurinn geti átt hina minnstu samleið með eða sam- vinnu við í landsmálum í fram- tíðinni, ef áhrif flokksins eiga ekki með öllu að þurrkast út á þingi þjóðarinnar? — „Alþýðu- blaðið“ verður að virða okkur útkjálkamönnunum það til vorkunnar, þótt okkur gangi bæði seint og illa að átta okkur á slíkri pólitík, og föllum ekki í stafi yfir stjórnkænsku og fram- sýni kratabroddanna! um eðlilegt svigrúm og aðstöðu til áhrifa á stjórn landsins og þjóðmál- anna! Nú er það allt í einu orðin frekleg móðgun við „réttlætistilfinn- ingu“ almennings, í augum íhaldsins að segja, að ætlast til þess, að hann meti „persónur, hversu glæsilegar sem þær kunna að vera“, eins og blaðið orðar það, fremur en flokkapólitíkina og „handjárnin“. Samræmið, heilindin og djúphyglin eru alltaf söm við sig á því heimili — og trúmennskan við hugsjónirnar og stefnumálin öldungis frábær! Fallbyssufóður og sigurvegarar. Á fræddi „ísl.“ lesendur sína á því á dögunum, að „aðeins 6 af fram- bjóðendum Framsóknar“ séu bændur. Því miður er ekki hægt að tala um neinar blekkingar, né „hagræðing sannleikans" í þessu efni hjá blaðinu. Slík misþyrming staðreynda heitir allt öðru og miklu ljótara nafni á ís- lenzka tungu. Það er ekki úr vegi að spyrja blaðið í þessu sambandi, hvaða atvinnu þeir stundi nú orðið, og að undanförnu, þeir Bjarni Ásgeirsson, Jörundur Brynjólfsson, Einar Árna- son, Páll Hermannsson, Ingvar Pálma- s,on, Hannes Pálsson, Halldór Krist- jánsson, Guðmundur Ingi og Sverrir Gíslason (sem „ísl.“ kallar raunar Berg Gíslason). Það skiptir og máli, að 5 þeir fyrsttöldu eru þingmenn nú þegar, og verða það vafalaust fram- vegis og raunar benda allar líkur til þess, að a. m. k. tveir hinna komist nú éinnig á þing. Það er von, að „ísl.“ miklist yfir þeirri bændahollustu í- haldsins að hafa 8 bændur (ef það er þá rétt), í kjöri og næstum því alla í vonlausum framboðum! (Pétur Otte- sen ætti að vera tryggastur.) — Þá má og geta þess í þessu sambandi, að a. m. k. 5 aðrir frambjóðendur Fram- sóknarflokksins eru búsettir í sveit og reka þar meiri eða minni búskap, og sumir stórbú, svo sem Bjarni á Laugarvatni. Þingsæti flestra þessara manna munu og trygg. Þá eru og 3 frambjóðendur flokksins beinlínis starfsmenn og trúnaðarmenn bænda- stéttarinnar, þótt þeir eigi búsetu í Reykjavík, en þeir eru: búnaðarmála- stjórinn og tveir ráðunautar Búnaðar- félags Islands. Ennfremur eru tveir sieiRiar næsip Eftirfarandi stökur hafa blað- inu borizt austan úr sýslum: Steiktar gæsir fljúga nú að þeim öllum megin; þeir opna bara ginin og líkar fjarska vel. Er það nokkur furða, þótt þeir gleypi við þeim, greyin? Ef græðgin er of mikil, þeir éta sig í hel. Sé það hlutverk alþýðunnar íhaldið að metta, ætti hún að verða þeirri köllun sinni trú. Síðar mun það eftir sínu eðlí launa þetta, ef það verður ríkara og vold- ugra en nú. Fljúgi steiktu gæsirnar margar upp í Manga, hans melting getur bilað fyrr en lystin verður tæmd. Þá fara máske verkin hans öðruvísi að anga, en alþýðunni líkar og hollt er þjóðarsæmd. AlþýöumaSvft iwiwiiiiMM— iiHmmmi'P h 'i'i 'miii iinii'HHiHii \ „Ko§ningar í kaup §loðunum“

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.