Dagur - 16.07.1942, Qupperneq 3
Fimmtudaginn 16. júlí 1942
DAGUR
að Siglufjörður væri orðinn sérstakt
kjördæmi og sveitirnar og Eyjafjörð-
ur byggi einn að sínu. Mun honum þá
hafa virzt tvísýnt nokkuð, að hlut-
fallskosning gæti tryggt Sjálfstæðinu
annað þingsætið, og við búið, að
Framsókn héldi þeim báðum eftir
sem áður. Segir sagan, að Garðari
hafi þá orðið að orði: „Það sýnist mér,
að hún verði linsteikt nokkuð, þessi
gæsin.“
„Hvers hlutur er lítill
— hvers er stór?“
’C'YRRVERANDI þingmanni úr Al-
^ þýðuílokknum, þjóðkunnum fyrir
gáfur og mælsku, — en að vísu ekki
sérlega spámannlega vaxinn að öðru
leyti — varð að orði, er hann frétti,
að Gísli Jónsson stórspekúlant væri
orðinn þingmaður þeirra Barðstrend-
inga: „Ekki veit eg hvor flokkurinn
hefir beðið meira tjón: Framsókn að
tapa Barðastrandarsýslunni eða Sjálf-
stæðið að vinna hana — og fá á sína
ábyrgð Gisla Jónsson inn í þingið.“
Handknatt-
leiltsmeist-
aramót
íslands 1942
Óllum þeim, sem heimsóttu mig á áttræðisafmæli mínu 6. þ.
m. og glöddu mig með nærveru sinni, höiðinglegum gjöíum og
heillaskeytum, þakka eg hjartanlega, og bið guð að launa þeim.
Ytri-Hóli, 13. júlí 1942.
Sigmundur Björnsson.
♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦
íslandsmót í handknattleik,
íyrir kvenfólk, heist hér á Ak-
ureyri í kvöld. Er. þetta í annað
sinn, sem slíkt mót er haldið;
hið fyrra í Reykjavík s.l. sumar.
(Vann Þór það mót og er því
íslandsmeistari nú).
í þetta sinn taka fimm félög
þátt í mótinu: „Þróttur“ frá
Norðfirði, „Völsungur“ frá
Húsavík, „Ármann“ frá Reykja
vík og Akureyrartélögin „Þór“
og K. A.
Félögin keppa, sem hér segir:
Fimmtud. kl. 8.30: K. A. —
„Þróttur“ og „Ármann“ Völs-
ungur“. — Föstud. kl. 9: „Völs-
ungur“ — „Þróttur“ og „Þór“ —
K. A. — Laugard. kl. 8.30: „Ár-
mann“ — K. A. og „Völsungur'
— „Þór“. — Sunnud. kl. 1.30:
„Þróttur“ — „Ármann“ og
„Völsungur“ — K. A. — Mánu-
dag kl. 8.30: „Þór“ — „Þróttur“,
— Þriðjud. kl. 8.30: „Ármanrí1
— „Þór“.
Öll þessi félög eru mjög vel
æfð og má því búast við harðri
og spennandi keppni.
Undirbúning að þessu móti
hefir „Þór“ annast og hefir verið
prentuð leikskrá með nöfnum
allra keppenda og stöðu á vell-
inum, er það til stórþæginda
fyrir áhorfendur.
Allir leikirnir fara fram á K
A.-vellinum og kostar aðgangur
eina krónu í hvert skipti fyrir
fullorðna og 50 aura fyrir börn
abí.
Væntanlegt með Esju:
COTY ilmvötnin
margeftirspurðu.
Verzlunin LONDON,
♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦
Jarðarför eiginmanns, föður og tengdaföður okkar, Sigurjóns
Friðbjarnarsonar, sem andaðist 11. þ. m., er ákveðin laugardag-
inn 18. þ. m. og hefst með húskveðju að heimili hans, Aðalstræti
22, kl. 1 e. h.
Sigríður Kristjánsdóttir. Hulda Sigurjónsdóttir.
Bára Sigurjónsdóttir. Alíreð Jónsson.
Pétur á Stórif-Laugum
nn.
Þegar húsbændur mínir í
Búnaðarfélagi íslands lögðu fyr-
ir mig, að flytja tuttugu mín-
útna erindi á kvöldvöku
Bændavikunnar í útvarpinu í
vetur, þá valdi eg mér að segja
frá ýmsu, sem fyrir augu og
eyru mín bar í Suður-Þingeyjar-
sýslu í fyrrasumar.
Eitt atriði þessarar frásagnar
minnar hefir gefið hinu aldraða
skáldi á Sandi efni til góðlát-
legrar athugasemdar í „Degi“,
30. apríl þ. á. og las eg hana
með ánægju, vegna þess fróð-
leiks, sem hún hefir að geyma
um efni, sem eg aðeins stiklaði
— um „Barna“-Pétur. Tilefn-
ið var, að eg sá gamla ljósmynd
af manni, sem mér leizt vel á,
hjá vini mínum, Hallgrími Þor-
bergssyni á Halldórsstöðum, og
spurði um nafn hans. Þar sem
Hallgrímur nefndi hann Barna-
Pétur, vaknaði eðlileg forvitni
mín um, hve mikill barnafjöld-
inn væri, og undrun mín yfir, að
þetta voru allt framhjátöku-
börn. Orðrétt frásögn mín var á
þessa leið: „. . . . en Pétur átti
þrettán börn með þrettán kon-
um og sá prýðilega vel fyrir
þeim öllum. En eg hugsaði með
hryggð til þeirrar afturfarar,
sem orðið hefir upp á síðkastið
í þessum sveitum, þar sem heil
hverfi eru nú kennd við pipar,
og mikil er afturförin, þegar lína
er dregin ofan frá Barna-Pétri
og alla leið niður að bæjunum,
þar sem einsetumennirnir híma
nú í kuldanum. Hið göfuga, bláa
þingeyska blóð á betra skilið".
Svo mörg voru þau heilögu
orð, og er þar sannarlega ekki
hallað á Pétur, heldur bent á
hann sem fyrirmynd í að fjölga
góðum kynstofni og ala hann
vel upp. Kemur það heim við
svar Péturs við prestinn, sem
áminnti hann fyrir framhjátök-
urnar: „Þitt er að skíra barnið,
mitt er að sjá því farborða“,
sem lýsir svo vel ábyrgðartil-
finningu þessa mæta manns.
Grein Guðmundar Friðjóns-
sonar í „Degi“ varð ekki á vegi
mínum fyrr en 17. júní, er eg
var staddur á Akureyri með
Austur-húnvetnsku bændunum.
En þetta kom til tals við ætt-
fróða Þingeyinga, sem eg hitti
daginn eftir heima í sýslunni og
hefi eg það nú eftir þeim, að
börn Péturs hafi ekki verið tíu,
eins og skáldið yrkir, ekki
þrettán, eins og Hallgrímur
ságði mér, heldur átján — og
líkar mér sú tala bezt. En tölu
á barnsmæðrunum veit eg ekki,
enda finnst mér það aukaatriði,
úr því hún er komin upp í hina
helgu tölu, sjö, samkvæmt því,
sem skriflega er staðfest af
skáldinu í umræddri grein.
Guðm. Friðjónsson gerir svo
að lokum gáfaðri konu þá hugs-
un upp, að þingeysku stúlkurn-
ar hafi hagað svo til, að þær
yrðu á vegi Péturs, sem „senni
lega“ hafi verið gefinn fyrir
kvenna ástir. Myndu víst flestir
aðrir telja það fullsannað.
Milli línanna í grein Guð-
mundar Friðjónssonar skín í þá
meiningu hans, að Pétur hafi í
rauninni lítill kvennamaður
verið, heldur orðið fyrir frek-
legri misbrúkun af völdum
þingeyskra stúlkna, sem hafi
eignast fjölda barna með þess-
um náttúruríka manni. Þar fer
greinarhöfundur ólíkt ver með
Þingeyinga en ég gerði í minni
Þá getur Guðm. Friðjónsson
þess í „eftirhreytu", að hann
hafi ekki heyrt Reykjahverfið
nefnt Piparhverfi og telur það
tilhæfulaust. „En hitt er eigi til-
hæfulaust“, bætir hann við, „að
ógiftar stúlkur eru til í Hverf-
inu, gjafvaxta, og þó fleiri karl-
menn ókvæntir". Eg þakka fyrir
svo fullkomna staðfestingu á
frásögn minni um þetta. En að
þessi fagra, litla byggð væri
stundum nefnd umræddu nafni
sögðu mér stúlkur í Reykja-
hverfi og tel eg þær betri heim-
ild í þessu máli en skáldið.
Bak við spaug geymist stund-
um bláköld alvara, og kjarninn
í þessu er að þarna bregzt „ráð
deildarfólk" í menningarhéraði
frumstæðustu skyldu sinni við
ætt sína og þjóðfélag. Þama
væri þörf á nokkrum Barna
Pétrum, því til hvers er að sofa
hjá sparisjóðsbókum, þó þær
innihaldi máske nokkrar þús
undir, en láta ættina deyja út
og landið fara í auðn? — Á
meðan „ráðleysingjum á möl
inni fjölgar eins og kanínum“:
— að sögn skáldsins.
Eg er ekki eins hræddur við
fólkið, sem mölina byggir,
Reykjavík eða á Akureyri og
Húsavík og Guðmundur Frið-
jónsson. Það er yfirleitt ættað
úr öllum sveitum og sýslum
landsins — líka úr Suður-Þing
eyjarsýslu — og úrkynjast ekki
eins fljótt og sumir vilja vera
láta, hafi það aðeins verið góður
Gítar
óskast til kaups. Má vera lítt
nothæfur.
Egill Sigurðsson, sími 92
Handklæði
og HANDKLÆÐA-
DREGILL, ódýr.
Verzl. GUÐJÓNS
BERNHARÐSSONAR
Skipagötu 1.
Pappírsrúllur
í reikningsvélar koma með
„Súðinni".
Verzl. GUÐJÓNS
BERNHARÐSSONAR
Skipagötu 1.
stofn, sem úr sveitinni flutti og
lifi við sæmileg atvinnuskilyrði.
Aftast í eftirhreytu Guðm.
Fr. er löng setning, sem lýsir
óskum „margra sveitamanna“
um að ráðunautar ættu að tala
minna en þeir gera um kýr og
kartöflur o. s. frv., en vinna
þeim mun meira „á hólmi lífs-
baráttunnar, þar sem skortir
þögula iðjuhneigð og fáorða
vinnugleði".
Eg þekki ekki hið aldraða
skáld á Sandi persónulega og
veit því ekki hvort öll greinin
um Barna-Pétur er skrifuð til
þess að koma þessari setningu
að. Þetta sama sagði kunningi
minn, Oddur af Skaganum, við
mig fyrir fáum misserum, að
vísu ekki jafn spekingslega og
G. F. Eg gat ómögulega farið að
rökræða það við Odd — og
mun einnig leiða það hjá mér
nú. En svo margt hefi ég lesið
eftir Guðmund Friðjónsson um
dagana og svo oft hefi eg á
hann hlustað, að eg hygg, að
hann hafi malað á við hvem
meðal ráðunaut. Hafi hann svo
beztu þökk fyrir það af því sem
var gott.
Þá er þessu máli einnig lokið
frá minni hálfu.
St. á Akureyri 20. júní.
Ragnar Ásgeirsson,
Skófatnaður
ýmsar teg. til sölu næstu daga.
TÆKIFÆRISVERÐ.
Skóverksmiðjan
KRAFTUR,
Hafnarstræti 85.
Nýkomið:
HATTAR (karlmanna)
Manchettskyrtur
Bindi
Pöntunarfélagið.
Nýkomið:
Politur, gulur
Gluggahengsli
Sandpappír
Sagir
Sporjárn
EYÞ»ÓR TÓMASSON
PENINGABUDDA hefir fund-
izt í Hafnarstræti. Réttur eig-
andi vitji hennar til Elínar Ein-
arsdóttur, skrifstofu KEA gegn
greiðslu auglýsingakostnaðar.
Nýja Bíó
sýnir í kvöld kl. 9:
Ævintýri leikarans
(í síðasta sinn).
Föstudaginn kl. 6 og 9:
Gæfubarnið.
Laugardaginn kl. 6 og 9:
Maðurinn, sem vissi of
mikið.
Sunnudaginn kl. 3:
Gæfubarnið.
Kl. 5:
Maðurinn, sem vissi of
mikið.
Kl. 9:
Gæfubarnið.