Dagur - 20.08.1942, Blaðsíða 2

Dagur - 20.08.1942, Blaðsíða 2
2 DAGUR Fimmtudaginn 20. ágúst 1942 Vaxandi dýrlíð og upplausn ú öllum sviðui m uiidir stjórn íhaldsins Vinnubrögð stjórnar og þings fyrir neðan allar hellur. Alþingi hófst að þessu sinni með nánu bandalagi Sjálfstæð- isflokksins og Alþýðuflokksins við forsetakjör og við kosningar í nefndir. Bandalag þetta hélt síðan áfram innan nefndanna, og kusu bandamenn eingöngu menn úr sínum flokkum fyrir formenn og ritara þeirra, en úti- lokuðu Framsóknarmenn. — Kommúnistar höfðu vit á að halda sér utan við þetta banda- lag, en þó ekki að öllu leyti, því að í fjölmennustu nefndunum, þar sem þeir gátu komið manni að af eigin atkvæðamagni, kusu þeir formenn og ritara með bandalaginu. Blöð íhaldsins halda því fram, að Framsóknarflokknum hafi verið boðið upp á samninga um forsetakjör. Þetta er með öllu rangt. Framsóknarmönnum'var einhliða boðið að fá að ráða öðr- um deildarforseta, en ekki upp á neina samninga. Annars kem- ur þetta tilboð um annan deild- arforsetann undarlega fyrir sjónir nú, eftir að stjórnarblöð- in eru farin að staðhæfa, að bandalagið hafi verið gert til þess að tryggja framgang kjör- dæmamálsins og gefa þar með í skyn, að forseti frá Framsókn- arflokknum mundi með ofbeldi hafa hindrað framgang þess máls. Þessi staðhæfing íhalds- blaðanna er nú fyrst og fremst vitleysa í sjálfu sér, því að slíkt er ekki á valdi forseta, en svo má einnig benda á reynsluna frá síðasta þingi. Ekki hindruðu forsetar úr Framsóknarflokkn- um framgang kjördæmamáls- ins þá. í efri deild gekk það meira að segja fram með af- brigðum, en það getur þó ekki gerzt í trássi við forseta. Það var ekki lítill völlur á Sjálfstæðismönnum þegar þeir komust einhliða í stjórnarað- stöðu í vor. Allt átti nú að ganga svo liðlega og misfellu- laust, þegar þeir væru lausir við ófétis Framsóknarflokkinn, sem alltaf hefði verið þeim fjötur um fót í viðreisnarstarfinu. En þeim hefði verið betra að láta heldur minna. Eftir örfárra mánaða stjórn íhaldsins er allt komið í öngþveiti og upplausn. Bandalag íhalds, krata og komma er að afnema gerðar- dómslögin, sem Ólafur Thors segir að séu „merkustu lögin“, er sett hafi verið um langa hríð og „lífsnauðsyn fyrir þjóðina“. Þetta mun vera fjórði snúning- ur íhaldsins í þessu máli á rúmu missiri. Geri aðrir betur! Skír spegilmynd af vinnu- brögðum Sjálfstæðisflokksins og bandamanna þeirra á þingi birtist við 1. umræðu un\afnám gerðardómslaganna í efri deild. Magnús Jónsson atvinnumála- ráðherra reifaði málið og lagði ríka áherzlu á, að það gengi sem greiðlegast fram, til þess að þingstörfin tefðust ekki. Þessari beiðni ráðherrans um fljóta af- greiðslu málsins var svo tekið af flokksmönnum og stuðn- ingsmönnum ráðherrans, að þeir héldu 11 ræður um mál- ið við þessa umræðu og voru allir hjartanlega sammála! Frá Framsóknarmanna hálfu var ein ræða flutt. Greinilega hefir það komið í ljós í blöðunt Sjálfstæðisflokks- ins ,að það er vegna kröfu stuðn- ingsflokka stjórnarinnar að dýr- tíðarlögin eru afnumin, en ekki af umhyggju fyrir þjóðarheild- inni. Þannig segir blaðið Vísir í forystugrein nýlega: „Það er viðurkennt af for- sætisráðherra, að samkvæmt kröfum og vegna andstöðu Al- þýðuflokksins verður dýrtíðar- löggjöfin afnumin, — en þá er bara þetta, — hvað kemur í staðinn? Ekki dugar að skiljast svo við þessi mál á þessu þingi, að í algeru öngþveiti sé“. Og Morgunblaðið segir um sama efni: „Er það skoðun mín, hvað sem annars verður um þessi lög sagt og afnám þeirra, að það er ósigur fyrir framfarir og framtíð þjóðarinnar, að vikið er af þeirri braut að hamla á móti lággenginu og öllum þeim af- leiðingum, er það hefir í för með sér“. Meira en lítið bogið hlýtur að vera við þriggja mánaða valdaferil Sjálfstæðisflokksins, þegar sjálf stuðningsblöð stjórn- arinnar kveða upp þá dóma, að dýrtíðarmálin séu komin í „al- gert öngþveiti“, og að „framfar- ir og framtíð þjóðarinnar“ hafi beðið „ósigur“ á þessum tíma. En ástæðurnar til „öngþveit- isins“ og „ósigursins“, sem stjórnarblöðin tala um, liggja í augum uppi. Ihaldsstjórnin þarf að kaupa sér fylgi Alþýðu- flokksins og kommúnista með því að fórna öllu öryggi í dýr- tíðarmálunum. Helzt lítur út fyrir, að Alþýðuflokkurinn ætli til frambúðar að líma sig fastan við íhaldið og bíða hans þá vafalaust þau örlög að verða „deyjandi flokkur“. Erfa þá kommúnistar þær reytur, er hann lætur eftir sig. Framsóknarmenn á Alþingi hafa skrifað hinum flokkunum öllum og stungið upp á sam- starfi allra flokka í þeim til- gangi að hefja sameiginlega baráttu gegn því ástandi, sem nú hefir skapazt: dýrtíð og upp- lausn á öllum sviðum. En nauð- synlegt skilyrði þess, að slíkt samstarf geti hafizt, er að hætt verði við kosningar í haust og þar með kjördæmamálið að sinni. Þörfin á slíku samstarfi er að sjálfsögðu enn brýnni, þar sem utanað komandi hættur sýnast sífellt fara í vöxt, og að þá og þegar getur ísland orðið styrjaldarvettvangur. Eigi að síður hefir hin nýja samfylking hafnað með öllu þessu tilboði Framsóknarflokksins og virðist nú eiga það eina áhugamál að halda þjóðinni í sem mestum kosningaspenningi á næstu mánuðum. Slíkt ábyrgðarleysi er hreinasta blöskrunarefni. Það er eins og mönnunum sé ekki sjálfrátt. En ofan á „algert öngþveiti“ og „ósigur“ þann, er „framfarir og framtíð þjóðarinnar“ hafa beðið við stjórn eða öllu heldur stjórnleysi udanfarandi þriggja mánaða að dómi Mbl. og Vísis, bætist svo ofbeldi það, er Sjálf- stæðisflokkurinn beitti við val manna til efri deildar nú á þinginu. Samkvæmt þingsköp- um ber forseta að sjá um, að hver þingflokkur eigi fulltrúa í efri deild í samræmi við at- kvæðamagn hans í sameinuðu þingi. Samkv. þessu ber Fram- sóknarflokknum að eiga þar 7 fulltrúa, en Sjálfstæðisflokkn- um 5 fulltrúa. Eigi að síður set- ur hinn síðartaldi flokkur 6 menn á sinn lista. Var þá tala manna á listunum einum fleiri en sæti eiga í efri deild. í stað þess að fella niður 6. mann á lista Sjálfstæðisflokksins lætur forseti fara fram kosningu í sameinuðu þingi, sem þingsköp gera alls ekki ráð fyrir. Auðvit- að var hér um hlutfallskosningu að ræða. Samkvæmt þeim föstu reglum, er gilda um slíkar kosn- ingar fékk 7. maður á lista Framsóknarflokksins 2% atkv., þegar öll atkv. flokksins (20) eru talin, en 6. maður á lista Sjálfstæðisfl. fékk 25/c atkv. Munurinn á þessum brotum er sá, að % er V42 hærra en 5/c. Að þessu loknu úrskurðar for- seti, að Framsóknarflokkurinn skuli aðeins fá 6 menn til efri deildar og Sjálfstæðisflokkur- inn jafnmarga. Þess ber að geta, að einum þingmanni Framsóknarflokks- ins, Bjarna Bjarnasyni, var varnað þess að geta verið við- staddur atkvæðagreiðsluna, vegna hryggilegra heimilis- ástæðna, sem hverjum góðum dreng hlýtur að renna til rifja. Þetta notaði Sjálfstæðisflokk- urinn sér til þess að koma fram ofbeldi og órétti gagnvart Fram- sóknarflokknum. Almenningur getur í kyrrþey dæmt um þann stjórnmálalega drengskap, er í þessu athæfi felst. Orsökin til þessa ofurkapps mun fyrst og fremst hafa verið sú, að hefðu 7 Framsóknar menn verið í efri deild, mundi hafa orðið hlutkesti við forseta- kjör þar milli Einars á Eyrar- landi og Jóhanns Þ. Jósefsson- ar. Á það vildu Sjálfstæðismenn ekki hætta, heldur tryggja Jó- hanni sætið og útiloka Einar. Kemur þetta ofurkapp illa heim við tylliboð íhaldsins áður um annan deildarforsetann. Allt þetta athæfi íhaldsins verja Alþýðuflokksbroddarnir af sömu ákefð og hæna ver unga sína. Það er ein afborgunin af skuld þeirri, er þeir telja sig standa í við Sjálfstæðisflokkinn fyrir að sleppa dýrtíðinni lausri. Noregssöfnunin. i Blaðinu hefir borist eftirfarandi bréf um Noregssöfnunina: TSLENDINGAR hafa sett sér það " mark að rétta frændum sínum Norðmönnum hjálparhönd, og þess þurfa þeir með, eftir stríðið. Og það má ekki verða vesæl hjálp, með hangandi hendi, heldur myndarleg og af heilum hug veitt. Ekki megum við láta minni upphæð frá okkur fara en svo sem eina milljón króna. Og það getum við hæglega, ef við viljum, nú þegar allir vaða í peningum. Gömul hjón, óvinnufær og allslaus, réttu fram 20 krónur hér á dögunum af fétækt sinni. Það ætti að vera metnaðarsök hvers einasta íslendings, að láta nokkuð af hendi rakna, held- ur fyrr en seinna, meðan hann hefir nóg fé handa í milli. Og sveitafélög, bæjafélög, fyrirtæki og ríkið sjálft, allir eiga að sýna skiln- ing, og þá drenglund, að taka þátt í þessu miskunnarverki. Söfnunin gengur of hægt. Henni þarf að hraða. Legg þú fram þitt lið! S.“ T7ÉR erum alveg samdóma bréfrit- aranum. Stríðið hefir fært flest- um þjóðum þjáningar og dauða, en oss, enn sem komið er, fullar hendur fjár. Gifta lands vors hefir forðað oss frá hörmungum, en af því megum vér ei ofmetnast svo, að vér ekki sjáum neyðina og þjáningarnar allt umhverf- is oss og gerum ekkert til þess að rétta frændum vorum hjálparhönd. Norðmenn eru oss skyldari en aðrar þjóðir. Það verður óafmáanlegur blettur é sjélfum oss og eftirkomend- um vorum, ef vér bregðumst eigi mannlega við, er til vor er leitað á slíkri neyðarstund, sem nú er runnin upp yfir hina norsku þjóð. Minnumst öll Noregs! T"tTVARPSHLUSTANDI“ skri ',yj blaðinu: „Oft hefir dagskrá útvarpsins ve léleg, en var varla nokkru sinni c aumari en í sumar. Ef það eiga að vera sparnaðarráðstafanir, að hlust- endum er næstum alltaf boðinn sami grautur í sömu skál — og hann ekki yfrið þykkur upphaflega — virðast þær óneitanlega koma allhart niður á þessari „æðstu og áhrifamestu mennta-, menningar- og skemmti- stofnun þjóðarinnar“, eins og útvarpið hefir stunduð verið kallað, og ætti líka að geta verið, ef rétt og sómasam- lega væri á haldið. — Og stundum er þessi vizka og andlegheit kynnt þjóð- inni af þulum, — konum og körlum, — sem varla eru mælandi að kalla á mennskra manna vísu. — Þé munu þeir, sem stautandi eru, vera í sumar- fríi og aðrir úr þeirri skúffu ekki til- kippilegir! þÓ tekur fyrst út yfir allan þjófa- bálk, þegar til íþróttafréttanna kemur: Kvöld eftir kvöld verða þeir útvarpshlustendur, sem eru svo heimskir eða bíræfnir að „skrúfa frá“ tólum sínum á þeim tíma sólarhrings- ins, sem bezt er fallinn til flutnings skemmtilegs og fróðlegs útvarpsefnis (ef almenningi er annars ætlað að lifa í slíku bílífi að hlusta á slíkt), að gera sér að góðu að hlýða á þrotlaus- ar nafnaþulur, tölur og alls konar firr- ur, sem kallaðar eru fréttir af íþrótta- mótum og kappleikjum hvaðanæfa að af landinu. Eg skil ekki, að íþrótta- fólki sé nokkur greiði gerður með slíku málæði, og sé sálarástandi þess svo farið, að því sé einhver fróun að því, að allur almenningur í landinu sé tröllplógaður með slíkum upptaln- ingum, og útskýringum á því, hvað einhverjir Pétrar eða Pálar, sem ein- hverntíma hafa villst út á íþróttavöll einhvers staðar á landinu sem þátt- takendur í íþróttakeppni, hafa stokk- ið marga cm. — ekki aðeins í ár, heldur einnig í fyrra og jafnvel í hitt- eðfyrra, — þá skilur það illa í hverju hið sanna gildi íþróttanna er fólgið. Þetta fyrirkomulag þénar og helzt til þess að drepa þvx algerlega á dreif, þá sjaldan einhver veruleg íþróttaaf- rek eru unnin í landinu, sem vert væri, að almenningur veitti nokkra eftirtekt, — 'drekkir þeim bókstaf- Æfintýri Churchills í Búastríðinu. (Niðurlag). BRYNVARÐA EIMREIÐIN. Með miklum erfiðismunum tókst okkur að velta fyrsta vagninum svo langt til hliðar, að hann var ekki til hindrunar lengur. Brautin framundan virt- ist greiðfær; undankoma okkar virtist örugg. — Vonbrigðin urðu þess vegna sár, þegar eg komst að raun um, að enn varð að yfirstíga mikla erfiðleika, áð- ur en heimferðin gæti orðið að veruleika. Við komust að raun um, að ennþá vantaði nokkra þuml- unga til þess að vagnarnir kæm- ust fram hjá. í sjötíu mínútur var hamast við að ryðja þessari torfæru úr vegi. Umhverfis okk- ur sprungu „fallbyssukúlur og riffilskotin glumdu á járnbyrð- ingi vagnanna, en svo mikil var eftirvæntingin, að menn gleymdu hættunni; annars veg- ar var fangavist í óvinalandi, en hins vegar öryggi, frelsi og sigur á örðugleikunum. Við höfðum gætt þess vand- lega, að hætta ekki á, að eim- reiðin færi af sporinu; þá væri öll von úti. En nú efldizt fall- byssuskothríð Búa og eg ákvað að tefla á tæpasta vaðið. Eg lét eimreiðina aka með fullri ferð á torfæruna; það var ógurlegur gnýr við áreksturinn og fyrst hélt eg að eimreiðin mundi kast- ast af sporinu, — én það varð þó vagninn sem sporreistist; eimreiðin slapp fram hjá um leið, — en vagninn féll í samt lag aftur að baki hennar. Hvað átti nú að gera? Ekki var hægt að fara með eimreiðina til baka. En vagnarnir þrír voru ennþá óvinamegin torfærunnar. Mér flaug í hug að eina ráðið væri að reyna að færa torfæruna af sporinu með handafli. Eg skundaði aftur með lest- inni á fund Haldanes. Hann féllst á uppástungu mína og skipaði mönnum sínum að reyna að komast til eimreiðar- innar. Þessi áætlun okkar var nægi- lega skynsamleg til þess að

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.