Dagur - 27.08.1942, Side 3
Fimmtudaginn 27. ágúst 1942
DAGUR
<HCKWH(HÍHJHCHCB!HíHWHJH!HíHOHCH!HJH>OfiH!HOHíCHCH!HIH5HXHCH!HCHOCHCHCHJHCWH!HCHOHíHÍH5HCH)H!H
Eg vil hér með þakka öllum vinum og kunningjum íyrir sam-
úð mér sýnda í sambandi við ílugslys það er eg varð íyrir.
HARRY ROSENTHAL, Akureyri.
KHKHKHWKHWHÍOOCKKHKHJCHKHKHKHKHKHKHKHKHKHKHJOOCHKWBKHKHJ
Dúkar
Nýja Bíó
sýnir í kvöld kl. 9:
RADDIR VORSINS.
Föstudaginn kl. 6 og 9:
TÝNDI BRÚÐGUMINN.
Laugardaginn kl. 6 og 9:
Innilegt þakklæti vottum við öllum þeim er auðsýndu okkur
samúð og vinarhug við andlát og jarðarför kaupmanns Eggerts
Einarssonar, Akureyri.
Eigihkona og börn.
Islenzk æíinlýri
Magnúsar Grímssonar og Jóns Árnason-
ar koma út ljósprentuð innan fárra daga.
Upplag mjög lítið. Allir bókamenn þurfa
að eignast þessar fyrstu ísl. þjóðsögur.
Tekið á móti áskrifendum í
Bókaverzlun Eddu,
Akureyri, Sími 334.
Xil féiagsmanna KEA
Sala á þurrkuðum ávöxtum — rúsínum
og sveskjum — stendur nú yfir. Ávext-
irnir eru skammtaðir og eru félagsmenn
Matar- og kaffidúkar fyrirliggjandi
í smekklegu úrvali.
KAUPFÉLAG EYFIRÐINGA
V ef naðarvörudeild.
KELLOGG'S
vörur eru heims-
frægar fyrir gæði
KELLOGG#S
Pep
Krumbles
Rice Knispies
All Bran
Corn Flakes
Tapazt hefir lampi, innpakk-
aður, á leiðinni frá Brunastöð-
inni að Leifsstaðafit. Óskast skil-
að gegn fundarlaunum á ben-
zínafgreiðslu K. E. A.
Vafns^lös
nýkomin.
VERZL. EYJAFJÖRÐUR
Slúlka
óskast í létta vinnu.
RADDIR VORSINS.
Sunnudaginn kl. 3:
RADDIR VORSINS.
Kl. 5 og 9:
TÝNDI BRÚÐGUMINN.
Fjármapk
mitt er: Stúfrifað og gagn-
fjaðrað hægra, sýlt vinstra.
Brennimark: G. Tr. J.
GUNNL. TR. JÓNSSON,
bóksali, Akureyri.
Heimiiisiönaðaneiao iforfi
urlands. fikureiiri
óskar eftir einni eða tveimur
faglærðum stúlkum, til að
kenna vefnað og sauma á nám->
skeiðum félagsins næstk. vetur.
Umsóknir séu komnar fyrir
30. sept. n. k. og sendist for-
manni félagsins, Elísabetu Frið-
riksdóttur, Eyrarlandsveg 19,
Akureyri, sem gefur allar upp-
lýsingar.
beðnir að taka sinn skammt sem fyrst.
U
r-jr'-
KAUPFÉLAG EYFIRÐINGA
Kaupfél. Eyfirðinqa
Nýlenduvörudeild.
Nýkomið
Bókbands-
skinn
Svört, brún og blá.
Kr. 2,75-3,25 fetið
Bókaverzlun
Þorsteins Thorlacius.
Vil kaupa
lítið hús, skúr eða pakkhús í
innbænum. Má vera gamalt.
ÁSGEIR MATTHÍASSON.
Messur í Möðruvallakl.prestakalli:
Möðruvöllum sd. 30. ágúst, Glæsibæ
sd. 6. sept., Bægisá sd. 13. sept.
Stúkan Brynja fer berjaferð næst-
komandi sunnudag 30. þ. m. Félagar
eru beðnir að tilkynna þátttöku sína
til Braga Guðjónssonar (hjá Stefáni
klæðskera), fyrir hádegi á laugardag,
ásamt nánari upplýsingum.
fpá Ameríku:
Matarlím, þunnar plötur
Succat, dökkt
Siróp, dökkt
Brúnar baunir
Soyabaunir
Kaupfél. Eyfirðinga
Nýlenduvörudeild.
GUFUPRESSUN
AKUREYRAR.
Tún
til sölu. — Upplýs-
ingar gefur
HJÖRTUR GÍSLASON.
Dömukjólar
(silki og ullar)
nýkomnir.
Verzlun Jóns Egils
Strandgötu 23
Frá happ—
drættinn:
Munið að endurnýja í
tíma. 4. september á
endurnýjun að vera
lokið.
Þér, sem endurnýjuðuð
ekki í síðasta fiokki, get-
ið endurnýjað miða yð-
ar í þessum flokki.
Miðar seldir daglega.
QC
Höll æskunnar á Akureyri.
Vík vildu svara þeirri spum-
ingu.
Ég vakti þegar máls á því við
verkstjórann, hversu mikil
vöntun það væri að hafa ekki
kennslusundlaug í íþróttahús-
inu fyrir nemendur skólanna.
Og til hvers væri verið að setja
lög um, að öll fermingarbörn
ættu að ljúka prófi í sundi og
vera selsynd, og það áður en
þeim eru nokkur veruleg skil-
yrði sköpuð til sundnáms.
Meira að segja, að hér í sjálfri
höfuðborg Norðurlands, eru
slæm skilyrði til sundnáms að
vetrinum fyrir böm og ungl-
inga. Þegar svo þess er gætt, að
fjöldamörg böm dvelja sumar-
langt í sveit, og þá af eðlilegum
ástæðum fellur allt sundnám
niður, nema á þeim stöðum, þar
sem um sundlaugar er að ræða,
en þar geta auðvitað ekki öll
böm verið. Og víða úti um sveit-
ir landsins er enn að fyrirhitta
léleg skilyrði til sundnáms.
Þaðan geta því komið ósyndir
nemendur í hina æðri skóla á
Akureyri.
Að öllu þessu athuguðu bend-
ir því margt til þess, að réttara
væri að hafa kennslusundlaug-
ina í íþróttahúsinu sjálfu. Þá
yrði hún fremur sameign skól-
anna allra, en í hinni fyrirhug-
uðu viðbótarbyggingu við
barnaskólann. Þetta verða
skólastjórar og kennarar allra
skólanna að taka til rækilegrar
íhugunar. Og enginn einasti
maður má líta svo á, sem það
varði hann engu, að það vanti
grundvöllinn að íþrótt íþrótt-
anna, — sundinu — í þessa
uppsprettu og aflgjafa að heil-
brigði og hreysti barnanna á
Akureyri, sem íþróttahúsið er,
ef rétt er með farið.
Um þetta mál ræddi ég ræki-
lega við Jón Sigurgeirsson,
skólastjóra, og var hann mér að
öllu leyti sammála í þessum at-
riðum. Undraðist ég skilning og
þekkingu þessa jarðarbúa á
uppeldis- og skólamálum lands
síns.
Sárþreyttur og vonsvikinn
gekk ég frá starfsglöðum verka-
mönnum byggingarinnar, sem
sýndu það svo áþreifanlega í
veruleikanum, að margt smátt
gerir eitt stórt, og — líklega að
lokum fullkomið íþróttahús —
skulum við vona. — Heill sé
ykkur, verkamenn vorsins.
Þegar ég var kominn ofan í
gilið, á móts við Mjólkursamlag
K. E. A., nam ég staðar og virti
fyrir mér hinar stóru bygging-
ar, sem blöztu við til beggja
handa. Hér hafði ég áður kom-
ið, til að finna forstjórann, Jónas
Kristjánsson, að máli, og hann
tekið mér eins vel í málaleitan
minni, eins og mér var tekið í
svipuðum erindum að Álafossi
hjá Sigurjóni, og er þá mikið
sagt. En nú var forstjórinn ekki
heima. Hann hafði farið til
Reykjavíkur.
Og litlu neðar er ég kominn
að sterkasta vígi samvinnu-
félagsskaparins á íslandi, eða
aðalbyggingum Kaupfélags Ey-
firðinga. Bera þær allar augljóst
merki þess, að hér hefir verið
samheldni, fyrirhyggja og fram-
tak saman að verki, og að sterk-
ir, vakandi menn hafa staðið í
stafni. Og ég hugsaði með sjálf-
um mér: Það er þess vert að
finna framkvæmdastjóra þess-
ara fyrirtækja að máli.
Ég gekk því rakleitt inn í aö-
albygginguna og spurði eftir
framkvæmdastjóra fyrirtækis-
ins, Jakob Frímannssyni. En þá
var mér sagt, að hann væri ekki
heima og að hann hefði farið til
Reykjavíkur.
Eitt augnablik stóð ég hljóð-
ur og óskaði þess af heilum hug,
að höll æskunnar á Akureyri
mætti verða sem fullkomnust,
svo að hún kæmi að sem beztu
gagni í uppeldismálum skól-
anna, og að framkvæmdir í
fullnaðarsmíð hennar mætti
verða með sama skörungsskap
og myndugleik, sem einkennir
allar athafnir og framkvæmdir
Kaupfélags Eyfirðinga og sam-
vinnumanna á Akureyri. Og að
allur klíkuháttur, öll eigingimi
og sérhagsmunir mætti hverfa
fyrir velferð og menningarþörf
alþjóðar í þessu máli. Og öll
litla, íslenzka þjóðin bæri gæfu
til að standa sameinuð og ein-
huga um frelsi og hagsæld lands
síns.
Erindi nnínu var nú lokið.
Hvorugur mannanna, sem ég
þurfti að finna, var heima og
því ekki annað eftir, en að
kveðja og svífa á burt með síð-
ustu aftangeislum dagsins.
En áður en ég færi, ætlaði ég
að biðja skáldið og ritstjórann,
Jóhann Frímann, að koma
þessu erindi mínu fyrir almenn-
ingssjónir og draga ekkert und-
an. En skáldinu og málfræð-
ingnum, Konráði Vilhjálmssyni,
ákvað ég að fela prófarkalestur
að grein minni.
AKUREYRINGAR!
Eg kom til ykkar sem ó-
þekktur, dulbúinn ferðamaður,
og þið tókuð á móti mér með
opnum örmum, eins og bróður
og vini. Ég er líka bróðir ykkar
og vinur. Og ég á eitir að koma
til ykkar enn og aftur sem ó-
þekktur, dulbúinn ferðamaður
með vor við barm handa börn-
unum ykkar og ykkur sjálfum.
Guð blessi ykkur öll og börnin
ykkar, og varðveiti landið ykkar.
Verið þið sæl.
A d o n i s.