Dagur - 26.11.1942, Blaðsíða 3
Fimmtudagur 26. nóvember 1942
DAQUR
,.Ég hefi hingað til aðeins notað litinn
hluta áf áhrifavaldi minti i flokksþágu...
Ég hefi hlífzt við að nota aðstöðu mína
sem heimilislæknir allra þeirra, er til mín
leita, en þegar ráðizt er á mig......þá
mun ég cinuig nota aðstöðu mína mér
til varnar.“ Síðan snýr læknirinn máli
sinu til kjósenda og mælist eindregið til
þess, að þeir kjósi ekki Hannes, þar sem
hann sé persónulegur andstæðingur sinn.
Læknirinn segist ekki geta neitað því, að
sér „svíði það dálítið" að meðal þeirra,
sem styðji Hannes, séu nokkrir, „sem
lægju nú undir grænni torfu, eða ættu
börn sín þar, cf mfn hefði ekki notið við".
(Enginn annar læknir hefði sjálfsagt get-
að bjargað!!) „Við ykkur, sem berið þakk-
læti til mín sem læknis, vil ég segja þetta:
það væri daprara á heimilum sumra ykk-
ar, ef min hefði ekki notið við“ o. s. frv.
Sjálfstæðismenn liggja nú undir opin-
berri ákæru um að hafa beitt mútum við
kosningarnar, t. d. á Snæfellsnesi með
síldarmjöls-, brennivíns- og peningagjöf-
um og fleiru þ. u. 1. En eins og menn sjá
á ofangreindum tilvitnunum i bréf Kolka
héraðslæknis, er einnig hægt að stappa
stálinu í kjóscndur að duga „sjálfstæðinu"
sem lengst, með öðru en slíkum fóður-
bæti! Hannesi á Undirfelli er vorkunn,
þótt hann spyrji, hvort menn haldi, að
það sé skemmlileg tilhugsun fyrir þá
kjósendur I Húnaþingi, er kynnu að vera
á annarri skoðun en Kolka læknir í póli-
tík, að leggjast t. d. sjálfir undir hnífinn
á skurðarborð lijá slíkum héraðslækni,
eða vitja hans til barna sinna!
LÍNUVEIÐARINN ,SÆKORG‘
(Framh. af 1. síðu).
og 2 farþegar, íslendingur og
Bandaríkjamaður, en skipið var
í flutningum fyrir setuliðið. —
Mennirnir voru þessir:
Jóhann Friðriksson, skipstjóri,
Reykjavík, fæddur 1913, kvænt-
ur og átti 1 barn.
Valdimar Schiöth, stýrimað-
ur, Hrísey, fæddur 1920, ókvænt-
ur, á móður á lífi.
Eðvald Valdórsson, 1. vélstj.,
Vestmannaeyjum, fæddur 1912,
kvæntur og átti 1 barn.
Aðalsteinn Jónsson, 2. vélstj.,
Hrísey, fæddur 1898, kvæntur
og átti 3 börn.
Óli G. Friðriksson, matsveinn,
Aðalvík, fæddur 1914, ókvænt-
ur, á foreldra á lífi.
Páll Pálmason, háseti, Akur-
eyri, fæddur 1923, ókvæntur, á
foreldra á lífi hér í bænum.
Hallgrímur Baldi Hallgríms-
son, farþegi Reykjavík, fæddur
1910, kvæntur og á 1 barn.
Auk Hallgríms var 1 Banda-
rikjamaður farþegi með skipinu.
Línuveiðarinn „Sæborg“ var
smíðaður í Noregi árið 1902, en
yfirbyggður á yfirstandandi ári
og sett i hann dieselvél. Skipið
var 73 smál. að stærð. Eigendur
þess voru þeir feðgar Jörundur
Jörundsson og Guðmundur Jör-
undsson, útgerðarmenn í Hrísey.
FRÁ BÓKAMARKAÐINUM
'Framh. af 1. síSu.
fleygur, — sem ekki mun heldur tilætlun
höfundarins — er hann vfðast hvar með
mlldum og sérlega viðfelldum blæ og nær
enda sums staðar upp í heiðríkju og ein-
faldleika hins langlífa þjóðkvæðis, er
geymist á vörum alþýðunnar, þótt nafn
höfundarins gleymist.
HELGAFELL. septemberhefti.
TTEFTI þetta hefir fyrst nýlega borizt
blaðinu. Flytur ritið að vanda margt
skemmtUegt og fróðlegt lestrarefni, er at-
hygli mun vekja. Má þar til nefna þýð-
ingu Magnúsar Ásgeirssonar á hinu spá-
mannlega kvæði Araulfs Överlands: Þú
mátt ekki sofa, grein Jóhanns læknis Sæ-
mundssonar um heilsufar og hindurvitni
og Sverrís Kristjánssonar um vamir ráð-
stjómarríkjanna; mlnningarorð um skáld-
19 Siynrjón Frlðjónsnm 79 in, oy
SVIPIR SAMTÍÐARMANNA.
TIMOSHENKO
LEIFTURSÓKN er hugtak,
sem skapaðist á fimmta tug
tuttugustu aldarinnar. Það er nú
orðið á hvers manns vörum og ó-
tal dæmi þess víða um lönd. En
þótt herir hafi farið geyst yfir og
hershöfðingjar og stjórnmála-
menn komið og horfið af sjónar-
sviðinu sem leiftur á undanförn-
um styrjaldarárum, er vafasamt
hvort nafn nokkurs þeirra hefir
náð frægð og metorðum með
jafnmiklum hraða og Semyon
Timoshenko, marskálkur. Hann
var algerlega óþekktur, utan
landamæra Sovétríkjanna, þar til
síðla sumars árið 1939. Þá heyrði
Vestur-Evrópa fyrst nafn Timo-
shenko; rússneskur her undir
hans stjórn, hélt inn í austurhér-
uð Póllands. Utan herstjórnar-
innar rússnesku og áhrifamanna
í Kreml munu fáir liafa vitað,
að hin kærasta vinátta liafði tek-
izt með Stalin og hinum hæg-
láta yfirmanni setuliðsins í
Kiev. Þetta þótti benda til þess,
að honum væri mikill frami bú-
inn innan Rauða hersins. En
jafnvel þeim, sem kann að hafa
flogið þetta í hug þá, mun vart
hafa órað fyrir því, að innan
tveggja ára yrði nafn hans á
.hvers manns vörum í fimm
heimsálfum. Stjarna þeirra hers-
höfðingja Rússaveldis, sem kom-
ust af í „hreinsuninni" stóru,
1938, hefir dofnað og fjarlægst
eftir því sem styrjaldarárunum
hefir fjölgað. Frægð Timo-
shenkos hefir gjörsamlega yfir-
skyggt þá. Það var hann, sem tók
Rostov úr höndum hins „ósigr-
andi“ þýzka hers í fyrrahaust og
jrað var hann, sem fyrstur hers-
eftir hann; „Eftirmæli bókasafns" eftir
Krístmann Guðmundsson. Þá eru og í
ritinu smásaga, bréf frá lesendum, grein-
arflokkamir „Utan garðs og innan’ og
„Léttara lijal“ eftir ritstjórana, bók-
menntadómar og fleira. Litprentuð mynd
af málverki Finns Jónssonar: Sjómaður,
fylgir heftinu. — Hér á Akureyri mun
þetta hefti „Helgafclls vekja öllu meiri
athygli en ella myndi sökum þess, að f
því birtast allharkalegar ádrepur á verk
tveggja þekktra borgara bæjarins: Halldór
menntaskólakennarí Halldórsson fær þar
orð í eyra frá Helga Hjörvar, vegna rit-
dóms um „Hrafnkötlu“-útgáfuna nýju. Er
sú grein Hjörvars rituð i hinura kald-
hæðna fyrirlitningartón, er verið hefir
mjög i tizku nú um stund, síðan um þær
mundir, að Þórbergur Þórðarson reit
„Bréf til Láru“ og Halldór Kiljan lagði
fyrst orð í belg um íslenzkt menningar-
ástand. Mun sá „stíll“ nú brátt genginn
mjög til húðar sér, þegar allir bögubósar
telja sig nú orðið mehn til að nota hann
og fylla ræðu sína afkáralegum öfgum,
öfugmælum og rökleysum, kalsi og yfir-
læti, að dæmi þessara spámanna. Tómas
Guðmundsson tekur Skrúðsbónda Björg-
vins Guðmundssonar og bókmenntadóma
um hann til yfirvegunar. Er þar öllu bet-
ur í hóf stillt en i grein Hjörvars, og um-
ræðunum viffast haldið i sæmllcga kurteis-
legum rökræðustil. En meffan svo er á
haldið, er sízt um þaff aff sakast, þótt allir
verði ekki á eitt sáttir um niðurstöffurnar,
því aff „sfnum augum lítur hver á silfrið",
ekki sfzt, er um mat á bókmenntum og
öðrum fögrum listum er að ræða, en hóf-
samlegar rökræffur um þá hluti frá fleiru
en einu sjónarmiði, ættu aff geta dýpkaff
skilning á verkunum og flýtt fyrir sann-
gjörau og efflilegu mati á gildi þeirra fyrir
framtiðina.
Pr-
....... .......9, ----------
höfðingja gróf stoðirnar undan
þeirri útbreiddu trú meðal al-
mennings, að herskarar Hitlers
væru ósigrandi.
* *
JjESSI vaski hermaður Sovét-
Rússlands er 47 ára gamall.
Útlit hans er ekki með þeim
hætti, er almenningur kýs helzt
að hafa á hetjum sínum. Hann
er skollóttur og þrekvaxinn og
svipur hans ber vott um ró,
stefnufestu og þrautseigju; hann
er þess vegna ágætur fulltrúi
hinna þrautseigu ukrainsku
bænda, en það er ættleggur hans.
Fyrir 27 árum dró hinn núver-
andi marskálkur fram lífið sem
vinnumaður á herragarði nokkr-
um í Bessarabíu. Á meðan stóð
á hinni söguríku borgarastyrj-
öld 1918—20, var stormasamt þar
um slóðir. Bessarabía var ýmist
í höndum vina eða óvina og svo
fór að lokum, að hún hafnaði
undir rúmenskum fána. Árið
1940 tóku Rússar hérað þetta
herskildi. Her Timoshenkos hélt
inn í æskustöðvar hans. Þjóð-
sagan segir, að er hann hélt inn
í þorp nokkurt, hafi gömul kona
hlaupið á móti honum og faðm-
að hershöfðingjann að sér. Það
var móðir hans, sem ekki hafði
séð son sinn í 25 ár. Vera má, að
þetta sé skáldskapur einn. En
þannig hefir alþýðan skapað
sögu þessa.
JJERMENNSKA Timoshenkos
hófst árið 1915. Þá var hann
kvaddur í þjónustu í her Tsars-
ins og gerðizt riddaraliðsmaður.
Hinn ungi vinnumaður var 2 ár
í styrjöldinni, en fékk þó engan
frama. Þegar borgarastyrjöldin
hófst gekk hann í lið með bolsé-
víkkum og varð brátt þraut-
reyndur í smáskæruhernaði. Svo
var „félaga Semyon“ falin
stjórn lisveitar og síðar deildar
riddaraliðs. Við árslok 1918 var
hann orðinn yfinnaður her-
deildar á Krímskaga. Þá var það,
að rás viðburðanna bjó honum
varanlega framtíð í hinu ný-
stofnaða ríki bolsévíkkanna. —
Hann varð einn af verjendum
Tsaritsyn-borgar í Suður-Ukra-
inu, en nafn þeirrar borgar hef-
ir verið tengt nöfnum flestra
ráðamanna Rússlands á síðari
árum. Því að það var frá Tsarit-
syn, sem Stalin hóf baráttuna
gegn Trotsky, sem þá var yfir-
maður Rauða hersins. Félagarn-
ir frá Tsaritsyn eru tengdir
böndum, sem staðizt hafa tíma-
bil óeiningar, innanrikiserja og
„hreinsunar”. Þeir, sem voru
með Stalin í Tsaritsyn hafa síð-
an margir hverjir, gegnt æðstu
trúnaðarstörfum í her og stjórn-
málalífi Sovét-Rússlands.
* *
JjAÐ var í Tsaritsyn, sem Timo-
shenko, þá 23 ára gamall,
var skipaður yfirmaður 6. ridd-
araherfylkisins. Á 2 árum hafði
vegur hans vaxið frá óbreyttum
liðsmanni til yfirmanns herfylk-
is. En að borgarastríðinu loknu
lét hann sér ekki nægja fengna
reynslu og viðurkenningu. Sig-
sæld í smáskæruhernaði var ekki
nægilegur mælikvarði á hæfni
til átaka í stórfenglegum hern-
aði. Hinn ungi foringi settizt á
sHólabekk. Árin 1920-1935 voru
3
HVERS VEGNA
eruð þér að leita að allskonar PRJÓNAGARNI,
FATAEFNUM, FRAKKAEFNUM, KJÓLA- og
KÁPUEFNUM, þegar hægt er að fá allt þetta í
GEFJUN.
Með því að kaupa GEFJU NAR-VÖRUR sparið
þér bæði tíma og peninga. Munið eftir Gefjun ef
þér gerið innkaup, það er yðar hagur.
Ullarverksmiðjan GEFJUN.
JÖRÐIN YTRI-BRENNIHÓLL
í Kræklingahlíð er til sölu og laus til ábúðar i vor
komandi. Bústofn getur fylgt með í kaupunum, ef
óskað er.
Semja ber við undirritaðan eiganda jarðarinnar.
Gunnar H. Kristjánsson,
Verzl. Eyjafjörður.
samfelldur námstími. Til ársins
1927 dvaldi liann við æðsta hern-
aðarskóla Rússa en lagði því
næst land undir fót og hélt til
Þýzkalands. Þar dvaldi hann til
ársins 1935 og stundaði nám af
mikilli kostgæfni við æðstu
menntastofnanir Þjóðverjar á
sviði hernaðar. Þaðan hefir hann
þekkingu sína á þýzkum hugs-
unarhætti og þýzkum aðferðum
og sú þekking hefir reynst Rúss-
um vel en Þjóðverjum miður.
♦ *
J7FTIR heimkomu sína, 1935,
var hann skipaður aðstoðar-
hershöfðingi á Kiev-svæðinu. —
Yfirmaður hans var Yakir hers-
höfðingi, sem „afmáður" var
1938, ásamt Tukhatchevski. Ár-
ið 1937 var hann skipaður yfir-
maður hersins í Norður-Kákasus,
en eftir „hreinsunina" 1838 fór
hann aftur til Kiev og tók þar
við stjórn. Þannig hefir hann
jafnan verið þar um slóðir, sem
hans var mest þörf síðar, — til
varnar gegn herskörum nazista,
— í smáskæruhernaði á Svarta-
hafsströndum og við Rostov
1918, síðar á Krím, í Ukrainu
1919 og 1920, — og loks sem yfir-
maður við Kiev, Kharkov og í
Kaukasus og loks í Kiev aftur.
Allir þessir staðir og nágrenni
þeirra hafa verið orrustuvöllur
á undanförnum mánuðum.
Timochenko þekkti landið sem
herir hans vörðu svo djarflega.
Hlutskipti hans verður að reka
innrásarherina af rússneskri
grund og leggja grundvöllinn að
endurtekningu viðburða ársins
1812. Ef til vill sjást þess þegar
merki, að honum takizt að Ijúka
þessu hlutverki með eigi minni
sæmd, en honum hefir hlotnast
fyrir afrek sín í fyrri þætti hins
mikla harmleiks, er nú geysar á
hinu víðlenda sviði austur þar.
GET LEIGT HERBERGI
frá 1. des. n. k.
Valdimar Pálsson
Hámarstíg 3, Sfmi 429.
FJÁRMÖRK
Harðar Garðarssonar Rifkels-
stöðum: Biti fr. h„ stýft biti a. v.
og Biti fr. h„ stýft gagnbitað v.
Halldórs Garðarssonar Rifkels-
stöðum: Sneitt fr. biti a. h„ tví-
bitað fr. v.
HERBERGI
til leigu fyrir einhleypan, nú
þegar.
Aðalsteinn Tryggvason,
Klettaborg.
Bamastúkan Bernskan heldur fund
þriðjudaginn 1. des. n. k. í Skjald-
borg. A-flokkur skemmtir og. fræðir.
ERLEND TlÐINDI
(Framh. af 1. síðu).
Rommel muni snúast til varnar.
í Túnis sækja herir Banda-
manna í áttina til Bizerta og
Túnisborga. Hefir komið til
smávægilegra átaka, en stóror-
ustur í aðsigi.
pRANSKA Vestur-Afríka hefir
gengið í lið með Bandamönn-
um. Hefir Vichystjórnin þá alls
engin nýlendu yfirráð lengur,
þar sem lönd Frakka á vestur-
hveli jarðar hafa samtímis gert
samninga við Bandaríkin, án af-
skipta Vichy.
EIMREIÐIN, 3 h. þ. á„ er
komin út fyrir nokkru. Eftir
venju hefst ritið á greinaflokkin-
um „Við þjóðveginn“ og fylgja
7 myndir. Richard Beck prófes-
sor skrifar um skáldið Einar P.
Jónsson (með mynd) og Lárus
Sigurubjörnsson um „Heiðblá-
in eða leikkonuna frú Guðrúnu
Indriðadóttur (fylgja 6 myndir),
Aðrar frumsamdar greinar í
þessu hefti eru eftir Hjört frá
Rauðamýri, J. Magnús Bjarna-
son og Svein Sigurðsson, ritstj.
Eimreiðarinnar. Ennfremur flyt-
ur ritið nokkrar þýddar greinar,
sögur eftir Þóri Bergsson og
Friðrik Á. Brekkan, nokkur
kvæði og ýmislegt fleira smáveg-
is, þar á mcðal ritsjá eða bóka-
dóma,