Dagur - 10.12.1942, Side 2
2
DAGUR
Fimmtudagur 10. desember 1942
,HÖFUÐVERKEFNIÐ4
Undir þessari fyrirsögn flytur
Morgunblaðið ritstjórnargrein
29. nóv. síðastliðinn. Höfuðverk-
efnið, sem nú liggur fyrir að
dómi blaðsins, er í því fólgið, að
allir flokkar taki nú höndum
saman um lausn dýrtíðarmál-
anna og viðreisn atvinnuveg-
anna. Jafnframt bendir Mbl. á,
að frumskilyrði þess, að slík
samvinna geti hafizt, sé það, að
flokkarnir leggi sérmál sín og
ágreiningsmál á hilluna, en
beini öllum kröftum að „höfuð-
verkefninu.“
Um þessa nauðsyn farast Mbl.
m. a. svo orð:
„Þetta er svo augljóst mál, að
í raun og veru ætti ekki að
þurfa um það að ræða. Spurn-
ingin er aðeins sú, hvort þing-
flokkarnir telja dýrtíðarmálin
svo þýðingarmikil fyrir þjóðfé-
lagið, að þeirra vegna sé rétt að
taka höndum saman og leggja
öll ágreiningsmál til hliðar. Eng-
um blandast hugur um það, að
með sameiginlegu átaki allra
flokka og þar með allrar þjóð-
arinnar, er hægt að vinna bug á
dýrtíðinni. — Hitt er jafnaug-
ljóst, að veik ríkisstjórn með
sterkri andstöðu innan þings og
utan getur litlu áorkað í þessu
efni.“
Þó að allar þessar bendingar
Mbl. um „höfuðverkefnið" og
frumskilyrði fyrir samvinnu
miði í rétta átt, þá er málið ekki
eins einfalt eins og blaðið lætur
í veðri vaka. Fyrst er nú það, að
þó að aliir flokkar kæmu sér sam-
an um, hvert höfuðverkefnið
væri og um nauðsynina á lausn
þess, þá er ekki alveg víst, að
allir kæmu sér saman um, hvem-
ig ætti að því að fara að leysa
það. Og er það ekki einmitt
þetta sker, sem allar fram-
kvæmdir hafa strandað á að
þessu? Það vantar ekki, að allir
flokkar hafa talað um bölvun
dýrtíðarinnar, en þegar komið
hefir til ákveðinnar lausnar á
henni, þá hafa leiðir skilizt. Á
haustþinginu 1941 lagði Ey-
steinn Jónsson fram ákveðnar
tillögur um lausn dýrtíðarmáls-
ins og verndun atvinnuveganna.
Þær voru í því fólgnar að festa
gtunnkaup og verðlagsuppbót
launþega um eins árs skeið og
setja takmörk fyrir verðlagi á
nauðsynjavörum til jafnlangs
tíma.
Þessa leið, lögfestingarleiðina,
vildu Framsóknarmenn fara.
Allir hinir flokkarnir völdu hina
svonefndu „frjálsu leið“. Það
þarf ekki að lýsa því, hvernig sú
leið reyndist. En ef þá hefði ver-
ið farið að ráðum Framsóknar-
manna, myndi ástandið nú hafa
verið allt annað og betra en það
er.
Og hvernig hefir það nú tek-
izt hingað til að fá flokkana inn
á þá braut að leggja sérmál sín
til hliðar í bili vegna aðkallandi
samvinnu á „höfuðverkefninu?“
Nærtækast dæmi þar hefir Mbl,-
flokkurinn gefið. Kjördæmamál-
ið var sérmál þess flokks. Til
þess að vinna að framgangi þess,
sleit Sjálfstæðisflokkurinn sam-
vinnu við Framsóknarmenn um
lausn „höfuðverkefnisins" og
lagði það á hilluna. Síðan hefir
allt keyrt um þverbak í dýrtíðar-
málunum og viðreisn atvinnu-
veganna eins og kunnugt er.
Þannig hafa Mbl.menn hing-
að til gætt þjóðfélagslegrar
skyldu sinnar gagnvart „höfuð-
verkefninu". Þeir áttu þess kost
að vinna að lausn þess með
Framsóknarflokknum, en þeir
bara vildu það ekki og kusu hitt
heldur að vinna að framgangi
ímyndaðs hagsmunamáls flokks
síns. Þess vegna er nú komið sem
komið er: Dýrtíðin í algleym-
ingi, atvinnuvegirnir að sligast
undan ofurþunga framleiðslu-
kostnaðar og upplausn og öng-
þveiti ríkjandi í fjármálunum.
Mbl. segir, að hægt sé að vinna
bug á dýrtíðinni með átaki allra
flokka og allrar þjóðarinnar. —
Þetta má vera, þó að hæpið sé
að fullyrða það fyrirfram. Gam-
all talsháttur segir, að seint sé
að byrgja brunninn, þegar barn-
ið sé dottið ofan í hann. Spurn-
ingin er, hvort barnið sé ekki
þegar dottið í brunninn. En ef
til vill mætti þó enn bjarga því
upp úr með lífsmarki. En hvað
sem um það er, þá er þó hitt
hafið yfir allan efa, að fyrir einu
ári síðan hefði lausn dýrtíðar-
málsins verið mörgum sinnum
léttari en nú er orðið.
Hitt er laukrétt hjá Morgun-
blaðinu, að veik ríkisstjórn get-
ur litlu áorkað. Um það hafa all-
ir landsmenn hlotið dýrkeypta
deynslu þann tíma, sem Sjálf-
Framh. af 1. síSu.
nú háttað? Undanfarin 2 ár hel-
ir innflutningur til landsins mátt
heita frjáls frá hendi íslcnzka
ríkisins. — Viðskiptahömlurnar
hafa skapazt af því, að viðskipta-
lönd okkar, Bretland og Banda-
ríkin, hafa stöðugt hert á út-
flutningseftirliti sínu og bannað
æ fleiri vörutegundir. Nú er svo
komið, að mjög lítið af nauð-
synjavörum, fyrir utan kol, salt
og sement, fæst nú útflutt frá
Bretlandi. Aftur á móti er ut-
íiutningur enn leyfður þaðan á
ýmis konar glysvarningi og mun-
aði. Þessi varningur hefir verið
fluttur inn fyrir milljónir króna.
Eru ótal dæmi um óhóf og eyðslu
í þessum efnum og nefndi ræðu
maður nokkur.
Svipaðar sögur má segja frá
Bandaríkjunum. Þannig er
gjaldeyrir þjóðarinnar notaður
nú í stórum stíl og þannig verð-
ur hann notaður, nema tekið
verði í taumana.
Þessi innflutnignur færir þjóð-
inni engin varanleg verðmæti.
En varasjóði hennar, hinum er-
Iendu innstæðum, er sóað á gá-
leysislegan og vítaverðan hátt.
Islenzkt fjármagn
til viðreisnar eftir stvíðið.
Það er hin ríkasta nauðsyn
fyrir þjóðina, að koma í veg fyr-
ir það, að þeim auði, sem safnazt
hefir á íslenzkar hendur undan-
farin ár, verði eytt til slíkra
hluta. Fyrir fé þetta verðum við
flsoeir petursson
oifleröarmaíuf látinn.
Hann andaðist í Reykjavík
síðastl. sunnudagsmorgun. Hann
var hátt á sjötugsaldri og farinn
að heilsu.
Frá því að Ásgeir varð full-
tíða maður og fram að síðustu
tímum, hefir hann verið einn af
stórhuguðustu og framkvæmda-
sömustu kaupsýslu- og útgerðar-
mönnum, er land vort hefir al-
ið. Lék orð á, að á ýmsu ylti um
fjárhag hans, stundum var hann
talinn milljóner, en hinn sprett-
inn öreigi. Það var víst ekki
samkvæmt skaplyndi hans að
safna auði auðsins vegna, en hitt
var honum jafnan ríkt i huga að
láta eftir sig sjást stórfram-
kvæmdaspor við tímans sjá.
Þess vegna var hann ódeigur við
að hætta öllu sínu í þágu þeirr-
ar hugsjónar. Hitt var þó ekki
minna vert, að Ásgeir var hinn
drenglyndasti maður og hvers
manns hugljúfi. Því minnast
hans allir með hlýjum hug og
söknuði.
Framtíðarkonur!
Munið fundinn í Skjaldborg
á föstudagskvöldið.
I. O. G. T. Fundur í ísafold
þriðjudaginn 15. þ. m. Æ. T.
stæðismenn hafa farið með völd-
in. En Sjálfstæðismenn hafa
sjálfir valið sér það hlutskipti
að stofna til hinnar veikustu og
aumustu stjórnar, sem verið hef-
ir við völd á íslandi, síðan við
fengum innlenda stjórn. Þeir
hafa því ekki við neina að sakast
nema sjálfa sig.
„Minningar og heit“.
■yNGUR Þingeyingur, Jónas Bald■
urson á Lundarbrekku, sendi blaS-
inu nýlega grein, er hann nefnir svo, í
tilefni af fullveldisdeginum og ritaða
þann dag. Því miður er hér ekki rúm
til þess að birta grein Jónasar í heild,
enda var í síðasta tbl. „Dags“ rætt um
fullveldisdaginn í nokkuð svipuðum
anda. í greininni segir svo m. a.:
„Helgi þessa dags er sigurljóminn
af langri baráttu islenzkra afreks-
manna og íslenzkrar alþýðu. Svo eft-
irsóknarverður sem sigur er i hverri
baráttu, þá er hitt þó ekki síður þýð-
ingarmikið, að geta haldið sigrinum,
eftir að baráttunni er lokið.
En það virðast oft mannleg ein-
kenni, að vera fálátari um það, sem
þeir eiga, en hitt, sem þeir ekki hafa
náð.
Meðan frelsissókn Islendinga stóð
sem hæst, voru það réttindi frelsisins
sem þeir mátu umfram allt. Fyrir þau
ófengnu réttindi sameinaðist þjóðin í
einum anda undir sinn unga fána.
Núna, þegar fullveldi landsins er við-
urkennt, ber þjóðinni að rækja með
sama einhug skyldur sínar við írelsið,
svo framarlega hún vilji halda því.
.... Þjóðfélagsástand íslendinga er
órætt og ískyggilegt sem stendur.
Meginorsökin er sú, að stjórnmála-
flokkarnir hafa oft og of margir svikið
hugsjónir sípar og stefnumál, hafa
brugðizt sjálfum sér og hverjir öðr-
um og þá um leið þjóðinni allri. Dýr-
tíð og verðbólga, hinn íslenzki stríðs-
púki, sem hræðir orðið alla þjóðina,
er aðeins yfirborðsfroða á innri spill-
ingu: skipulagsleysi á framleiðslu,
skipulagsleysi í viðskiptum, eftirláts-
semi og undandráttar og siðleysis í
öllu samlífi. . . .
Þjóðfrelsi Islendinga, okkar dýr-
mætasta sameign er í uggvænni hættu
vegna eigin vanrækslu. Þessi dýru
réttindi, semíslendingarhafa kynslóð-
um saman fórnað sér fyrir. Hvílík
dauðasök væri það ekki að týna þeim
nú? Ekkert þarf íslenzkur æskulýður
eins að ástunda eins og skylduna við
frelsið. Með sjálfsaga og þreki verður
hann að rísa gegn eftirlátsseminni við
hinar lágu, siðlausu hvatir sem nú
ráða meiru en skyldi í þjóðlífi okkar:
hégómagifnina, eigingirnina og ill-
girnina. Hann verður að heita fram-
tíðinni og frelsinu trúnaði sínum í
minningu sinna þjóðræknustu og fórn-
fúsustu feðra. Beri hann gæfu til
þessa, verður okkar langþráða full-
veldissól ekki nein skammdegissól
heldur lífgjafi nýrra vordægra."
Bókaverzlúnin Edda hér í bæn-
um hefir flutt í vegleg húsa-
kynni við Hafnarstræti (París)
og opnað þar snotra og rúmgóða
búð. Er þar að fá nýjar, íslenzk-
ar bækur og eldri útgáfur, er-
lendar bókmenntir o. m. fl.
Fyrstu bækur
Menningarsjóðs og Þjóð-
vinafélagsins koma með
m.s. Sigríði.
Kaupendur vitji þeirra í
BÓKAVERZLUNIN E D D A.
Akureyri.
Kœrkomin jólagjöf er
MAX FACTOR
Hárgreiðslustofan Bylgja
Frjáls kaup á ríkisskuldabréfum
að kaupa skip, vélar, byggingar-
efni og annað, er þarf til þess að
halda við og endurbæta i'ram-
leiðslutæki landsmanna. Margar
framkvæmdir urðu að bíða fyrir
stríðið vegna þess, að fjármagn
var ekki til framkvæmda. Það
varð venjulega að sækja það í
hendur erlendra lánardrott.na.
Nú er þetta fjármagn til í ís-
lenzkum höndum, og verkefnin
bíða allsstaðar.
En við verðum að horfast í
augu við þá staðreynd, að það
væri fljótráðið að ætla sér að
hefja slíka viðreisn nú. Skip, vél-
ar o. þ .h„ er nú með öllu ófá-
anlegt.
Byggingarefni er svo dýrt,
vegna geysilegra flutningagj ilda
og skipaskorts, að ekkert vit er
að ráðast í stórar framkvæmdir
á því sviði, eins og stendur.
Geymum sparaðan eyri.
Leiðin, sem fara á, er sú. að
geyma hið fengna fé í erlendri
mynt, þangað til styrjöldinm
lýkur og ráðast þá í stórfelldar
framkvæmdir. Þá kaupir hver
krónan margföld verðmæti á við
það, sem nú fæst fyrir hana.
Þessi geymsla hins erlenda
varasjóðs atvinnuveganna verð-
ur ekki örugg, nema takmarkað-
ur verði mjög innflutningur til
landsins og hann bundinn ein-
göngu við nauðsynjar. Slikar
ráðstafanir myndu vitaskuld
leiða til vöruskorts, svo framar-
lega sem kaupgetan héldist ó
breytt. Þetta er mönnum vei
ljóst og þess vegna eru miklar
umræður um það, að minnka
kaupgetuna og dýrtíðina, — með
auknum sköttum eða skyldu-
sparnaði, t. d. Ræðumaður sagð-
ist dauftrúaður á þær aðgerðir,
skattar væru hér þegar háir, og
allar þvinganir væru íslending-
úm ógeðfelldar. Hvað ætti þá að
gera til þess að draga úr seðla-
veltunni, — minnka hina trylltu
eftirspurn eftir hverskonar varn-
ingi. — Blöðin töluðu um stríðs-
gróða, sem taka þyrfti úr umferð,
— en væri ekki á einu rnáli um
það, hvar hann væri að finna.
Utgerðarmenn segðust engan
stríðsgróða hafa, — togararnir
liggja bundnir við hafnargarð-
ana og sama má segja um flest
hinna smærri skipa nú. Mönnum
er Ijóst að gróði heildsaianna í
höfuðstaðnum er geysilegur, en
ekki mundi auðvelt að handsama
hann. En hvernig sem þvi væri
varið, vissu allir, að einstakling-
ar hefðu yfir geysilegum fjái-
fúlgum að ráða og alþýða manna
sérstaklega í Reykjavfk, meira
fé en nokkru sinni fyrr. Væri því
ekkert undarlegt þótt eftirspurn-
in væri geysileg.
Frjáls kaup á ríkisskulda-
bréfum.
Hvernig fara stríðsþjóðirnar
að því að afla fjár til styrjaldar-
reksturs síns? Af því mættum við
læra nokkuð. Einn af meginþátt-
um í fjáröflunum stórveldanna
til styrjaldarrekstursins, er frarn-
lög borgaranna, af frjálsum vilja,
með kaupum í stíðsskuldabréf-
um, — „Sigurbréfum". Allir eru
hvattir til þess að vera með. stór-
ir og smáir. Öflugum áróðri er
haldið uppi af ríkinu, til þess að
leiða mönnum fyrir sjónir,
hversu satt það er, að margt
smátt geri eitt stórt.
Ameríkumenn skýra þetta
þannig fyrir þegnunum:
„Við þurfum að framleiða
45000 skriðdreka, 60000 flugvél
ar, 20000 loftvarnabyssur o. s.
frv. Þetta kostar samtals 56
miljarða dollara og þessu fé þutf-
um við að verja, ef okkur á að
takast að hefta tilraunir Mönd-
ulveldanna til þess að þrælka allt
mannkyn.
Við þurfum á þínum dollur-
úm að halda, — að láni, og þessa
hjálp þurfum við að fá þá frá þér
nú jtegar.
Sérhver dollari, sem þú lánar
ríkinu, með því að kaupa stríðs-
skuldabréf, hjálpar ekki aðeins
til þess að framleiða hergögn,
heldur einnig til þess að halda
niðri verðlagi í landinu. Með því
að leggja til hliðar í stað þess að
cyða, minnkar þú eftirspurnina