Dagur - 28.01.1943, Side 4
4
DAGUR
Fimmtudagur 28. janúar 1943
ÚR BÆ OG BYGGÐ
(íarðyrkfuneinanda
□ Rim 5943237 - Frl.:
I. O.O. F. = 1241298'/2—0 =
Messur um helgina. Messað í Glerár-
þorpi næstk. sunnudag kl. 12. í Akur-
eyrarkirkju sama dag kl. 2 e. h.
Mannalát. Þann 24. þ. m. lózt að Krist-
neshæli Árni Árnason, fyrrv. sjómaður,
hniginn á efri ár.Hann hafði dvalið lang-
vistum hér í bænum. Þá er nýlega látinn
að heimili tengdasonar síns, Svanbergs
Sigurgeirssonar, vatnsveitustjóra, ekkjan
Sigurbjörg Sigurðardóttir, 86 ára að
aldri. Ekkjan Guðrún Markúsdóttir að
Höfða er nýlega látin, 80 ára að aldri.
Hún var gift Andrési Kristjánssyni og
bjuggu þau hjón lengi að Glerá. Hún
var jarðsungin í gær.
Af sérstökum ástæðum er ekki unnt að
birta framhald greinaflokksins „Af sjón-
arhóli sambýlismanna" í þessu blaði,
Bamastúkan Sakleysið heldur fund n.
k. sunnudag í Skjaldborg kl. 10 f. m. —
Kosning embættismanna. Gæzlumaður
segir sögu.
St. Brynja nr. 99 heldur fund í Skjald-
borg þriðjudaginn 2. febrúar. Dagskrá:
Venjuleg fundarstörf. Kosning embættis-
manna. Inntaka. Erindi. Upplestur. Mæt-
ið öll 2. febrúar.
Frá Happdrættinu. Eins og auglýsing
hér í blaðinu ber með sér, hefir Happ-
drætti Háskóla íslands hækkað verð á
hlutamiðum um einn þriðja, þannig að
heill miði kostar nú 120 kr„ hálfur miði
60 kr. og fjórðungsmiði 30 kr. á ári. Sam-
hliða þessu' hækka vinningar um sömu
hlutföll, eða þannig. að nú verður greitt
í vinninga kr. 2.100.000,00, en áður kr.
l. 400.000,00. Verða vinningar yfir árið
nú: 1 vinningur á 75.000,00; 2 á 25.000,00;
3 á 20.000,00; 6 á 15.000,00; 1 á 10.000,00;
11 á 5.000,00; 50 á 2000,00; 175 á 1000,00;
326 Á 500,00; 1600 á 320,00; 3825 á 200,00;
4 aukavinningar á 5000,00; 25 á 1000,00.
Aukavinningar falla á sama hátt og áður.
Vinningar alls 6029-
Gjafir til gamalmennahælis í Skjaldar-
vík: Frá A. J. Ak. kr. 25,00; frá Þorleifi
Rósantssyni, Hamri, kr. 50,00; frá S. B.
kr. 50,00. Hjartans þakkir. Stef. Jónsson.
EldMsvogir
nýkomnar.
Kaupfélag Eyfirðinga,
Járn og glervörudeild.
Stúlku
vantar til
tireingerninsa.
Gildaskáli
Er*
Árshátið
Framsóknariélags
Akureyrar
verður haldin í Samkomuhúsi bæjarins n. k. laug-
ardagskvöld, 30. janúar, klukkan 9 e. h.
TIL SKEMMTUNAR:
Samdrykkja.
Ræðuhöld.
Einsöngur.
Gamanleikur.
Dans á eftir. Hljómsveit leikur.
Félagsmenn vitji aðgöngumiða fyrir sig og gesti
sína í Timburhús K. E. A. eigi síðar en á fimmtu-
dagskvöld.
S t j ó r n f n.
Tilkynning
til aimennin^s írá aineríska hernum.
Dagana 8.—15. febrúár næstkomandi verður skotið af fallbvss-
um yfir Eyjafjörð, frá vestri til austurs. Hættusvæði: Vaðlaheiði,
ofan þjóðvegarins, frá Bíldsárskarði að línu, sem dregin er frá
Geldingsá á heiðarbrún. Þá daga þessarar viku, sem skotæfingar
fara fram, verður settur vörður á veginn báðum megin Vaðlaheið-
ar og umferð verður bönnuð þann hluta dagsins, sem skotæfing-
arnar fara fram. Menn ættu ekki að ráðgera skemmtigöngur eða
skíðagöngur á Vaðlaheiði þessa daga.
Nýkomið
frá Ameríku
Búðingar . kr. 1,10 pakkinn
Te . ....... — 2,60
Valhnetur . — 11,00 kílóið
Peanut Butter .... — 4,70 glasið
Matarlím, þunnar plötur.
Súpuefni (Soup Mix) í pökkum.
KAUPFÉLAG EYFIRÐINGA
N ýlend u vörudeild.
bpjap BðPuiðrnsDiQtur
töpuðust af bíl frá Akur-
eyfi til Möðruvalla. Finn-
andi vinsamlegast láti
mig vita.
retur Jðnsson
Hidlgilsstöðum.
Bújöröin Os {Arnarnvsshreppi
,fæst til ábúðar og er laus í næstu fardögum. Sala á jörðinni getur
komið til greina og einnig á bústofni á sama tíma. Þeir, sem hafa
í hyggju að sinna þessu, gefi sig fram við undirritaðann fyrir marz-
mánaðarlok.
Ósi, 26. janúar 1943.
Einar Guttormsson.
getum við tekið á garðyrkjustöð vora að
Brúnalaug frá 1. apríl næstkomandi. —
Upplýsingar gefur Erlingur Davíðsson,
Brúnalaug.
Kaupfél. Eyfirðinga
Sa!a á sveskjum na i úsinum
til félagsmanna, stendur nú yfir. — Félags-
menn eru vinsamlega áminntir um að vitja
skammtsins fyrir 15. febrúar n. k., eftir þann
tíma seldur öðrum.
KAUPFÉLAG EYFIRÐINGA
Nýlenduvörudeild.