Dagur - 25.02.1943, Blaðsíða 4
4
DAGUR
Fimmtudagur 25. febrúar 1943
ÚR BÆ OG BYGGÐ
□ Rún 5943337 - Frl:. Atkv.
I.O.O.F. = 1242268'/2 =
Messað í Lögmannshlíð kl. 12 á há-
degi næstk. sunnudag (fermingarbörn
beðin að mæta).
Stúkan Brynja heldur fund í Skjald-
borg þriðjud. 2. marz næstk kl. 8.30
e. h. — Dagskrá: Inntaka. Erindi,
áfeng iog íþróttir, erindið flytur Ár-
mann Dalmannsson. Upplestur og
Dans. — Þess er óskað, að allir
templarar bæjarins mæti á fundinum.
Ungmennastúkan Akurlilja nr. 2
heldur fund í Skjaldborg sunnudag-
inn 28. þ. m. kl. 8.30 e. h. í Skjald-
borg. — Kosning í húsráð. — Blaðið
„Röðull“. — Hagnefndaratriði.
Barnastúkan „Sakleysið“ heldur
fund næstk. sunnudag í Skjaldborg
kl. 10 f. m. Ársfjórðungsgjöld ber að
greiða. C-flokkur skemmtir.
Héraðslæknirinn biður þess getið,
að hann gegni ekki sjúkravitjunum í
bænum framvegis.
Guðrún Kristjánsdóttir, fyrrv. blað-
sölukona, biður blaðið að færa þeim
þakkir, sem glatt hafa hana í sjúk-
leika hennar að undanförnu „og mest
þeim, sem í skugganum sitja“, eins og
hún orðaði það.
„Dagur" verður framvegis seldur í
lausasölu í bókaverzluninni „Eddu“
og verður einnig tekið á móti nýjum
áskriftum þar. Ritið „Dagur 25 ára“
mun fást þar eftir 4. marz næstk.
Skákþing Norðlendinga stendur yf-
ir hér í bænum þessa dagana. Er teflt
í Verzlunarmannahúsinu við Gránu-
félagsgötu. Þátttakendur eru flestir
frá Skákfélagi Akureyrar. Búið er að
tefla 3 umferðir og hafa þessir flesta
vinninga: í I. flokki, A., Jóhann
Snorrason, Sk. A., Jón Þorsteinsson,
Sk. A., 3 vinninga hvor. — í I. fl. B.
er Guðm. Eiðsson hæstur, Skákfél.
Hörgdæla, með 2Vá vinning.
Benzínskömmtun til bifreiða er
apptekin um land allt frá 20. febr. s.l.
Áheit og gjafir til sjúkrahúss-
ins: Hallfríður Jóhannsdóttir kr.
10.00, Jón Andrésson kr. 25.00,
Einar Eiríksson kr. 30.00. Með
þökkum móttekið. G. Karl Pét-
ursson.
STJÓRNARFRUMVARPIÐ
(Framhald af 1. síðu).
Af 30—100 þús. kr. tekjum
greiðist 2430 kr. af 30 þús. og
20% af afg.
Af 100—125 þús. kr. tekjum
greiðist 16430 kr. af 100 þús. og
15% af afg.
Af 125—150 þús. kr. tekjum
greiðist 20180 kr. af 125 þús. og
10% af afg.
Af 150—175 þús. kr. tekjum
greiðist 22680 kr. af 150 þús. og
5% af afg.
Af 175—200 þús. kr tekjum
greiðist 23930 kr. af 175 þús. og
5% af afg.
Af 200 þús. kr. tekjum og
* hærri greiðist 25180 kr. af 200
þús.
Viðreisnarskattur þessi endur-
greiðist að nokkru leyti eftir
stríðið, þannig: — Skattur, sem
eigi nemur 400 kr. endurgreiðist
að fullu. Af hærra skattgjaldi
endurgreiðist 25%, en þó aldrei
meira en 2000 kr. til skattþegns.
Féð er vaxtalaust.
Eignaaukningarskattur.
Þennan skatt skal leggja á
eignaaukning umfram 50
er nýkomin.
Bókaverzlunin EDDA
Styrkið Noregssöfnunina!
Kaupið bókina NÍU SYSTUR.
Allur ágóði rennur til styrktar
hinni bágstöddu frændþjóð
vorri, Norðmönnum.
Bókaverzlunin E D D A
ÓDÝRAR BÆKUR
Eigið þór bækur Menningarsjóðs og
bjóðvinafélagsins?
Ef ekki, þ:í ættuð þér að athuga, hve
mikið lesmál þér fáið fyrir litla peninga.
Árbækurnar 1940 og 1941, alls 14 bæk-
ur, samtals 2517 blaðsíður, kosta aðeins
20 kr., eða hver bók kr. 1,431 Örfá eintðk
eftir. Komið strax í dag og gerist áskrif-
endur.
Bókaverzlunin EDDA
Akureyri.
Bókamenn!* Takið eftir!
NÝKOMID
H. G. Wells: Veraldarsaga ..... 6,00
E. O. Sveinsson: Um Njálu ..... 2,00
Bréf Jóns Sigurðssonar. Nýtt safn 3,00
Alf Ahlberg: Sálkönnun ........ 2,00
K. Liestöl Uppruni íslendingasagna 5,00
J. Sigurðsson: Land og lýður .. 4,00
Guðm. Finnbogason: Úrvalsgreinar 4,00
Einar Amórss.: Alþingi fslendinga 10,00
------ Félagsmál íslands 10,00
Bókaverzlunin Edda
Hús til sölu.
Gott timburhús, vel inn-
réttað, á góðum stað
í bænum, hálft eða allt,
til sölu. Húsið stendur á
eignarlóð. Fimm herbergja
íbúð laus frá 14. maí næstk.
Ritstjóri vísar á.
þús. kr., sem orðið hefir hjá fé-
lögum og einstaklingum á árun-
um 1940 og 1941. Greiðist hann
eftir þessum reglum: Af 50—100
þús. kr. greiðist 5% og hækkar
skatturinn um 1% fyrir hverjar
100 þús .kr. sem þar eru fram yf-
ir, þar til eignaaukningin hefir
náð 2 millj. kr., en þá greiðist
25% af því sem fram yfir er.
Þeim tekjum, sem þannig afl-
ast, skal verja til þess að reisa hús
yfir stjórnarráðið, hæstarétt og
helztu stofnanir ríkisins. En af-
gangi, ef verður, skal verja til
dýrtíðarráðstafana samkv. frum-
varpinu.
Greinargerð stjómarinnar.
í greinargerð rekur stjórnin
það, að hún hafi lýst því yfir, að
meginverkefni hennar væri að
vinna gegn dýrtíðinni og koma
íslenzkum atvinnuvegum á þann
grundvöll á ný, að framleiðslan
beri sig. Með frumvarpinu sé
stefnt í þessa átt. Þar sé krafist
fórna af landsmönnum ölfum,
smávægilegra þó í samanburði
við þær þrengingar sem þjóðar-
innar bíða, ef áframhald verður
á dýrtíðarkapphlaupinu. Væntir
ríkisstjórnin því þess, að frum-
varpinu verði tekið af þegnskap
og skilningi af öllum almenningi
! landinu-
Tilboð óskast
um mjólkurflutning úr Saur-
bæjarhreppi næsta fardagaár.
Höfum ráð á nýjum bíl til flutn-
inganna. Undirritaður gefur
nánari upplýsingar og skulu til-
boð vera komin til hans fyrir 14.
marz n. k. Áskilinn réttur til að
taka eða hafna hvaða tilboði
sem er.
F. h. flutninganefndar,
M. H. Árnason,
Krónustöðum.
NÝKOMIÐ
FRÁ AMERÍKU:
Sulta, margar teg.
Kardemommur, heilar
Sætar möndlur
Hnetur, blandaðar
Búðingar, margar teg.
KAUPFÉLAG
EYFIRÐINGA
Nýlenduvörudeild.
HERRAFÖT
og jakkar,
sérstakir
Pöntunarfélagið
Höfum
fyrirliggjandi:
Dömukjóla, Drengjabuxur,
Stelpukápur. Einnig Poka-
buxur á stelpur, og margt
fleira. Opið verður alla
laugardaga frá kl. 12 til 4.
Aðra daga aðeins frá kl. 12
til 1.
Saumastofan BRYNJA,
Skipagötu 1. Akureyri.
JÖRÐ,
5. hefti III. árgangs komið
í bókabúðir. Tekið á móti
áskriftum í
Hannyrðaverzlun
Ragnh. O. Bjömsson.
Tún til sölu
og ef til vill nokkrar kindur.
Afgréiðslan vísar á.
GRÁFÍKJUR
Kremkex, ískex, Súkkulaði-
kex. Kakaó (23% fitumagn)
í lausri vigt. „Rowntree’s"
og 3 aðrar teg. í boxum.
Strásykur aðeins kr. 1,35 kg.
SÖLUTURNINN
YIÐ HAMARSTlG-
MARKASKRA
fyrir Eyjafjarðarsýslu og Akureyrarkaupstað verö-
ur prentuö í vor.
Þeir, sem eiga mörk, en hafa ekki látiö skrá þau,
veröa aö tilkynna þau hr. Elíasi Tómassyni, gjald-
kera Búnaöarhanka Islands, fyrir 28. þ. m., annars
komast þau ekki í markaskrána.
Akureyri, 18. febrúar 1943.
Bæjarstjórinn.
MATAR KAFFISTELL
tekin upp í dag
KAUPFELAG EYFIRÐINGA
Járn- og glervörudeild
Tilkynning
til almennings frá ameríska liernum um breytingu á skotæfingum.
t
Vegna óhagstæðrar veðráttu gátu áður auglýstar skotæfingar setu-
liðsins ekki farið fram á ákveðnum tíma, en dagana 28. febrúar til
6. mars verður skotið af fallbyssum yfir Eyjafjörð, frá vestri til
austurs. Hættusvæði: Vaðlaheiði, ofan þjóðvegarins, frá Bíldsár-
skarði að línu, sem dregin er frá Geldingsá á heiðarbrún. Þá daga
þessarar viku, sem skotæfingar fara fram .verður settur vörður á
veginn báðum megin Vaðlaheiðar og umferð verður bönnuð
þann hluta dagsins, sem skotæfingarnar fara fram. Menn ættu
ekki að ráðgera skemmtigöngur eða skíðagöngur á Vaðlaheiði
þessa daga.
PRJÓNAVÖRUR
Kvenpeysur
Karlmannapeysur
Skíðapeysur
Unglingapeysur
Unglinga- og barnasokkar
Vettlingar og leistar
KAUPFÉLAG EYFIRÐINGA
Vefnaðarvörudeild.
SLOKKVILIÐ AKUREYRAR 1943
er skipað 40 liðsmönnum auk slökkviliðsstjóranna.
Slökkviliðsstjóri: Eggert St. Melstað, sími 115.
1. vara: Kristján Aðalsteinsson, sími 257.
2. vara: Snorri Guðmundsson.
Flokksstjóri í Innbænum: Karl Jónsson, sími
282.
Aðrir flokksstjórar: Aðalsteinn Jónatansson,
Gústaf Andersen, Friðrik Hjaltalín, Valmundur
Guðmundsson, Svanberg Sigurgeirsson.
Þeir, sem verða fyrir eldsvoða og hafa greiðan
aðgang að síma, tilkynni eldinn slökkviliðsstjóra
eða símastöðiðnni. Ef sími er ekki við hendina,
skal brjóta brunaboða.
Akureyri, 24. febrúar 1943.
Eggert St. Melstað, sími 115.