Dagur - 20.05.1943, Blaðsíða 4
4
DAGUR
Fimmtudagur 20. maí 1943
ÚR BÆ 0G BYGGÐ
I.O.O.F. = 1255218Va =
Messað í Akureyrarkirkju næstk.
sunnudag kl. 2 e. h.
Guðsþjónustur í Grundarþinga-
prestakalli: Grund. sunnud. 23. maí
kl. 1 e. h. Ferming. Munkaþverá sd.
30. maí kl. 1 e. h. Ferming. Kaupangi
hvítasunnudag kl. 2 e. h. Möðruvöll-
um annan hvítasimnudag kl. 1 e. h.
Hólum sd. 20 maí kl. 1 e. h. Saurbæ
sama dag kl. 3 e. h.
Gjöf til Akureyrarkirkju, í hljóm-
vaka, frá N. N. kr. 100.00. Áheit kr.
20.00 frá N. N. og kr. 20.00 frá N. N.
Þakkir. Á. R.
Gjafir til gamalmennahælisins i
Skjaldarvík: Frá Ingibjörgu Eiríks-
dóttur, Þingvallastræti 14, kr. 50.00.
Frá Gullu Björk, kr. 2.00. Frá E. E.,
kr. 10.00. Frá F. P., áheit, kr. 50.00.
Hjartans þakkir.
Stefán Jónsson.
Mæðradaéurirm er sunnud. 23. þ.
m. Hefir Mæðrastyrksnefnd þá fjár-
söfnun fyrir starfsemi sína. Verða
seld merki og hlutavelta haldin í
Samkomuhúsi bæjarins. Um kvöldið
dansleikur á sama stað. Þeir, sem
vilja styrkja þessa starfsemi, með því
að gefa muni á hlutaveltuna, geta
skilað þeim í skóverzl. Hvannbergs-
bræðra, eða til frú Ingibjargar Eiríks-
dóttur, Þingvallastr. 14.
Frá Amtsbókasafninu. Skilið bók-
um safnsins hið allra fyrsta.
Þjóðhátíðardaés Norðmanna, 17.
maí, var minnst hér með guðsþjón-
ustu í kirkjunni. Sóknarpresturinn
prédikaði. Fjöldi fólks, Norðmenn og
íslendingar, hlýddu messu. í Reykja-
vík'fóru fram mjög fjölbreytt >hátíða-
höld í tilefni dagsins.
Hjúskapur. Nýlega voru gefin sam-
an í hjónaband, af sóknarprestinum,
sr. Friðrik J. Rafnar vígslubiskupi,
frú Ingibjörg Steinsdóttir, leikkona
og Einar Magnússon, vélsmiður. Ung-
frú Þorgerður Einarsdóttir og Jón
Guðjónsson, bakari. Ungfrú Stella
Stefánsdóttir og Gunnar Konráðsson,
vélstjóri.
Dansskemmtun heldur kvenfélagið
„Voröld“ laugardaginn 22. maí að
Þverá. Skemmtunin byrjar kl. 10 e.
h. Veitingar á staðnum. Aðeins fyrir
íslendinga.
Frá Ferðafélaéinu. Ferðafélag Ak-
ureyrar fer skemmtiferð næsta
sunnudag. Ekið verður að Möðru-
völlum í Hörgárdal og gengið um á
staðnum. En þar er margs að minn-
ast, svo sem skólahalds, merkra
manna og sögulegra atburða. Frá
Möðruvöllum gengið á Staðarhnjúk
og er þaðan gott útsýni. Síðan suður
fjallið og niður að Fornhagagili. En
þar eru dálitlar skógarleifar og víða
fallegt í gilinu. Væntanlegir þátttak-
endur snúi sér til Baldurs Eiríksson-
ar, KEA, eða Herberts Tryggvasonar,
Gefjun.
Aðalftmdur Bókadeildar Fram-
sóknarfélags Akureyrar var haldinn
síðastliðinn sunnudag. Deildin var
stofnuð 28. apríl 1940 af 20 áhuga-
mönnum úr Framsóknarfélagi Akur-
eyrar. Bókaeign deildarinnar er nú
75 bindi, bækur ýmislegs efnis, þar á
meðal eru nokkrar merkar bækur,
sem komið hafa út á þessu tímabili.
Mikill áhugi kom fram á fundinum
um eflingu deildarinnar, enda hefir
stjórn hennar og ýmsir meðlimir sýnt
lofsverðan áhuga og skilning á starf-
seminni, meðal annars með bókagjöf-
um.
St. Brynja heldur fund í Skjald-
borg næstk. þriðjudag, 25. þ. m., kl.
8.30 e .h.
SÁ SEM TÓK svartan ryk-
frakka í misgripum, ásamt
hönzkum og trefli í þing-
húsi Gkesibæjarhrepps s.l. laug-
ardagskvöld, er vinsamlega beð-
inn að skila honum sem fyrst á
benztnafgreiðslu K. E. A.
Frá Barnaverndarnefnd Akureyrar.
Öll börn, sem selja blöð á götum bæjarins, verða að fá
leyfi til þess hjá Barnaverndarnefnd. — Blaðaleyfis-skír-
teini eru afhent hjá frú Helgu Jónsdóttur, Oddeyrargötu
6, Akureyri.
Jörðin Hlíðarendi í GI æsibæj arhreppi,
tvo kílómetra frá Akureyri, er til sölu og laus til ábúðar
nú í fardögum. Nýtt raflýst steinhús með vatnsleiðslu. —
Semja ber við Stefán Steinþórsson bónda, Hlíðarenda,
eða Björn Halldórsson, lögfræðing, Akureyri.
IILKYNNING
Samkvæmt tilmælum landbúnaðarráðuneytisins hefir kjötverð-
lagsnefnd ákveðið eftirfarandi verðlag á kjöti og vörum unnum úr
kjöti:
Hangikjöt í heildsölu kr. 7.70 hvert kg. Hangikjöt i smásölu kr.
8.80 hvert kg. Saltkjöt í heildsölu kr. 730.00 hver 112 kg. tn. Salt-
kjöt í smásölu kr. 5.20 hvert kg. Ærkjöt i heildsölu, kroppar 19 kg.
og yfir, kr. 4.40 hvert kg. Kroppar undir 19 kg. kr. 3.90 hvert kg.
Nautakjöt i heildsölu, heilir og hálfir kroppar, kr. 5.60 hvert kg.,
lœri kr. 6.90 hvert kg., frampartur kr. 5.00 livert kg. Alikálfakjöt i
heildsölu, heilir og hálfir kroppar, kr. 6.40 hvert kg. Ungkálfakjöt
í heildsölu kr. 3.00 hvert kg.
Smásöluverð lækki í samræmi við ofangreint heildsöluverð og
heildsölu- og smásöluverð á kjötfarsi, pylsum, söxuðu kjöti og kæfu
lækki í hlutfalli við það.
x Kjötverðlagsnefndin.
NYKOMID
FRÁ AMERÍKU:
Kremkex í pökkum
á 50 aura pakkinn
K. E. A.
Nýlenduvörudeild
TIL SÖLU er vörubiíreið 1 Vz
tons, nýstandsett. — Upplýs-
ingar hjá Sigursteini Steinþórs-
syni, benzínafgreiðslu KEA.
Árbækur Espólíns
(ljósprentuð útgáfa) koma
á bókamarkaðinn fljótlega.
Tekið á móti áskrifendum í
Bókaverzluninni EDDU
Sími 334.
ERLEND TÍÐINDI
(Framhald af 1. síðu).
bæði að sunnan, á Ítalíu, og að
vestan og norðan, á Þýzkaland.
Almennt er gert ráð fyrir að til
mikilla tíðinda muni innan
skamms draga í styrjöldinni og
muni Roosevelt og Churchill,
sem nú sitja á ráðstefnu í Was-
hington, ásamt æðstu foringjum
hers, flota og flughers landa
sinna, vera að leggja síðustu
hönd á áætlunina um innrás í
virki Hitlers á meginlandinu,
*
! sýnir í kvöld kl. 9:
A r i z o n a
Föstudag kl. 6 og 9:
Broadway lokkar
Laugardag kl. 6:
Broadway lokkar
Laugardag kl. 9:
A r i z o n a
Sunnudag kl. 5:
Broadway lokkar
Sunnudag kl. 9:
Arizona
Knattspyrnumót
fyrir Norðlendingafjórðung
hefjast: I 3. fl. 3. júiií og í meist-
araflokki 12. júní, keppt er um
nýjan verðlaunagrip „Valash-
bikarinn”. — Umsóknir, ásamt
nafnalista, séu lagðar í póst fyrir
kl. 12 á hádegi, 1. júní fyrir 3.
flokk og 9. júní fyrir meistara-
flokk, merktar: Knattspyrnu-
nefnd í. R. A., box 121, Ak.
íþróttafélagið Þór.
Karlmannsúr
fundið á syðri brekkunni.
Afgr. vísar á.
2 ungar kýr
til sölu.
Afgr. vfsar á,
TILKYNMNG
Samkvæmt heimild í lögum um dýrtíðarráðstafanir frá
4. apríl 1943, hefir landbúnaðarráðuneytið með samþykki
Búnaðarfélags íslands gert ráðstafanir til að lækka veru-
lega útsöluverð á mjólk og mjólkurafurðum, kjöti og
kjötvörum. Tilgangurinn með þessari verðlækkun var
meðal annars sá, að gera almenningi kleift að auka neyzlu
á þessum hollu og næringarmiklu fæðutegundum. Ráðu-
neytið vill því hérmeð beina því til almennings að athuga
vel hve hagkvæmt það er að kaupa þessar vörur nú og
auka neyzlu sína á þeim. Söluverðið á framangreindum
vörutegundum verður ekki lækkað frekara en orðið er
til 15. september 1943.
Landbúnaðarráðuneytið.
AÐ GEFNU TILEFNI
tilkynnist hér með, að olía sú, er seld hefir verið til ljósa hér á landi
undanfarandi stríðsár, er sömu tegundar frá öllum olíufélögunum.
Akureyri, 19. maí 1943.
r
Olíuverzlun Islands h.f.
ÞEIR VIÐSKIPTAMENN,
sem kaupa mjólk í lausu máli í mjólkurbúðum vorum, eru hér með
vinsamlega áminntir um að koma ekki með flöskur undir mjólkina,
því slíkt tefur afgreiðsluna mjög mikið og búðirnar hafa ekki tæki
til flöskuáfyllingar.
Kaupfélag Eyfirðinga.
AÐVÖRUN
Almenningi er bent á eftirfarandi ákvœði húsa-
leigulaga frá 7. apríl 1943:
1. Bannað er að leigja húsnæði öðrum en heimilis-
föstum innanbæjarmönnum.
2. Húseiganda er óheimilt að segja upp húsnæði
nema hann þurfi á því að halda fyrir sjálfan sig
eða skyldmenni í beinan legg, og hafi eignazt
húsið fyrir 9. sept. 1941.
3. Utabæjarmönnum er óheimilt að flytja í íbúðir
í bænum, sem þeir hafa keypt eftir 7. apríl 1943.
4. Baninað er-að taka íbúðarhúsnæði til annarrar
notkunar en íbúðar.
Verði þessi ákvæði brotin, verður beitt sektum, allt
að kr. 10000.00, og þeir, sem ólöglega flytja inn í
íbúðir bornir út.
Akureyri, 10. maí 1943.
Húsaleigunefnd Akureyrar.
Nú fer
MÁLNINGARTÍMINN
í hönd.
Við höfum fyrirliggjandi:
Titanhvítu — Zinkhvítu No. 1 — Dekkhvítu — Olíu-
rifna málningu, marga liti — Lagaða málningu,
marga liti — Japanlakk — Gólflakk, 4 stunda — Eikar-
lakk — Ahornlakk — Skipalakk — Vélalakk — Menju
Bronze — Fernis — Þurrkefni — Terpentinu — Kítti
Krít — Málningarduft — Trélím — Kalt lím.
KAUPFÉLAG EYFIRÐINGA
Járn- og glervörudeildin.