Dagur - 23.12.1943, Qupperneq 2
2
DAGUR
Fimmtudaginn 23. dasember 1943
„SMJÖR SENT ÚR BÆNUM"
j SÍÐASTA tölubiaði „ísl.“, I
sem út kom 17. des. $1., er for- j
ustugrein blaðsinsnefnd: „Smjör
sent úr bænurn". í greininni leit-
ast ritstjórinn við að „hagræða
sannleikanum" af svipuðu inn-
ræti og oft áður hefir komið í
ljós hjá honum varðandi starf-
rækslu Mjólkursamlags K. E. A„
verðlagningu mjólkur og mjólk-
urvara og margt fleira, sem hann
á undanförnum mánuðum og ár-
um hefir látið birtast í þessu
blaði. — Öll eru þessi skrif með
soramarki þess manns er virðist
hafa mjög sterka og sjúka löng-
un til þess að vekja tortryggni,
skapa misskilning og koma af
stað hreyfingu, er valdið geti
óánægju, bæði hjá bændum í
sveit, sem viðskipti hafa við
Mjólkursamlagið, og einnig hjá
þeim fjölmörgu neytendum hér
á Akureyri, sem kaupa þessar
vörur bænda. Er fyrrnefnd grein
blaðsins í góðu samræmi við það
sem áður er komið af slíku.
Aðalefni þessarar „íslendings"-
greinar er það, að reyna að telja
mönnum trú um, að enginn
smjörskortur hafi gert vart við
sig í Reykjavík að undanförnu,
því að dagblöðin þar tali ekkert
um þetta. Og ástæðan fyrir þessu
muni sennilega vera sú, að
Mjólkursamlag K. E. A. á Akur-
eyri flytji svo mikið smjör til
Rvíkur, að þar hafi allir nóg.
Til sönnunar þvl, að þessu sé
þannig háttað, sé það, að ein-
hverjir menn hafi tekið eftir því,
að Mjólkursamlagið hér hafi
sent tvo kassa af smjöri með
skipinu „Hrímfaxi", er fór héð-
an fyrir nokkru áleiðis til
Reykjavíkur. Telur ritstjórinn
þetta hafi valdið mikilli gremju
og mælst illa fyrir, þegar þetta
hafi kvisast út um Akureyrarbæ.
Já, hvílíkt hneyksli! „Smjör
sent úr bænum". Ef einhver, sem
les greinina í „ísl.“ væri svo auð-
trúa eða ófróður, að vilja gleypa
þessa flugu, sem ritstjórinn hef-
ir kastað út á svo lævíslegan hátt
í þeim tilgangi að skapa óánægju
hér á Akureyri, væri gott fyrir
þann hinn sama að fá upplýsing-
ar um:
1. A Ð vikulega að undanförnu
hefir verið selt hér í mjólkur-
búðunum 350—500 kg. af
smjöri, og að þetta er næst-
um öll smjörframleiðsla
Mjólkursamlagsins á þessum
tíma.
2. A Ð árlega kaupa Akureyr-
ingar aðeins rúman helming
að meðaltali af framleiðslu-
vörum Mjólkursamlagsins.
Hefir þó aldrei verið vöntun
á mjólk eða mjólkurvörum á
Akureyri í þau nálega 15 ár,
síðan Samlagið byrjaði að
starfa, fyrr en nú, að smjörið
er minna en bæjarbúar óska
eftir. Samt fá Akureyringar
helmingi meira smjör þessa
undanfarna mánuði, en
nokkru sinni fyrr.
3. A Ð öll undanfarin ár og enn
í dag hefir Mjólkursamlagið
þurft að leita til annarra en
Akureyringa um kaup á
nærfellt helmingi allrar frain-
Mðlbl sinnar, tvo *enj til
Siglufjarðar, Reykjavíkur og
annarra bæja og kaupstaða
og á undanfömum ámm
hafa viðskiptamenn í þessum
sömu bæjum keypt af Mjólk-
ursamlaginu meira en helm-
ing allrar smjörframleiðsl-
unnar, og það jafnvel á þeim
tímum, þegar mjög erfitt
reyndist að selja smjör.
Margur mundi telja það rétt-
láta ráðstöfun, með tilliti til
}>ess, sem hér er upplýst, að
Mjólkursamlagið sendi við-
skiptamönnum sínum út um
land smjör í svipuðum hlutföll-
um og áður var, enda hafa þess-
ir viðskiptamenn krafist þess, að
fullt tillit væri tekið til við-
skipta sinna við Samlagið mörg
undanfarin ár, en þá hefði hlut-
ur Akureyringa orðið sá, að í
þeirra hlut hefði fallið aðeins
helmingur þess smjörmagns, sem
nú að undanförnu hefir verið
selt í bænum.
En Mjólkursamlagið hefir
ekki farið þessa leið. Það hefir
að eigin ákvörðun rofið hin
fyrrgreindu viðskipti manna úti
um land, með það fyrir augum,
að geta látið neytendur á Akur-
eyri fá þeim mun meira af
smjörinu.
Þrátt fyrir þetta er ritstjóri
„Isl." að dylgja um óleyfileg
viðskipti í sambandi við það, að
Mjólkursamlagið skuli hafa sent
stærsta viðskiptamanni sínum í
Reykjavík nokkra smjörböggla
til jólaglaðningar þurfandi fólki,
sem ekki hefir bragðað smjör
mánuðum saman.
Sjálfstæðismenn hér á landi
hafa jafnan talið sig vera hina
einlægustu formælendur og
verndara athafna og einstaklings-
frelsis í hvaða mynd sem er. En
með fyrmefndri forustugrein í
blaði Sjálfstæðismanna á Akur-
eyri sýnir ritstjórinn spegil-
mynd þeirrar góðvildar réttlætis
og athafnafrelsis, sem hann og
húsbændur hans vilja skammta
öðrum mönnum.
Jónas Kristjánsson.
Jólahugsanir.
(Framhald af 1. &(8u).
inga. Sú saga er að efni til á þessa
leið:
Maður nokkur tók sér fyTÍr
hendur að leita að Kristi. Hann
fer víða um, en leitin ber engan
árangur. Eftir mörg ár snýr
hann heimleiðis hryggur i huga.
Á leiðinni settist hann niður við
læk einn til að hvíla sig og kasta
mæðinni. Þá bar þar að fátækan
pílagrím, tötralega klæddan og
skinhoraðan. Langferðamaður-
inn kennir i brjósti um hann,
réttir honum hönd sína, býður
honum að setjast hjá sér og skipt-
ir Htilfjörlegum matarforða
sínum milli þeirra. Þá brá svo
við, að pflagrímurinn ummynd-
aðistá einu augabragði, og ásjóna
hans og klæði verða björt og
skfnandi ,og hann mælir við
velgjörðamann sinn:
Eg er Kristur, sem þú hefii
leitað að langt yfir skammt. Vita
skaltu, að í hverjum nauðleitar-
manni, sem á vegi þínum verð-
ur, gftnr þú ftmdið mig, Allt,
§kólabörn stofna
sjóð til styrktar
munaðarlausum
börnum í her-
numdum löndum
EFNDU TIL SÖLU SÍÐASTL.
SUNNUDAG Á MUNUM ER
ÞAU HÖFÐU SJÁLF BÚIÐ
TIL.
Skólabörnin hér á Akureyri
hafa, fyrir forgöngu skólastjóra
og kennaraliðs, stofnað sjóð til
styrktar munaðarleysingjum f
stríðslödunum. Sl. sunnudag
höfðu börnin bazar f Barnaskól-
anum til ágóða fyrir sjóðinn.
— Voru þar seldir ýmsir
munir er börnin höfðu að mestu
leyti búið til sjálf, undir hand-
leiðslu kennara og foreldra.
Blaðamenn og nokkrir aðrir
gestir skoðuðu muni þessa á
laugardaginn í boði skólastjór-
ans og kennara.
Skólastjórinn, Snorri Sigfús-
son, skýrði þar frá sjóðstofnun-
inni og tilgangi kennara og
barna með henni. Lagði hann
einkum áherzlu á, að það kynni
að vera hollt viðfangsefni fyrir
börnin, að leggja eitthvað af
mörkum, fyrirhöfn eða aura, til
þeirra, sem bágast eiga í hinum
stríðsfjötruðu nágrannalöndum.
Það hefði komið greinilega í
Ijós í vetur og við undirbúning
bazarsins, að bömin legðu mikla
rækt við þessa hugsjón og að for-
eldrarnir hefðu mætavel skilið
það, að slfk viðfangsefni væru
þroskavænleg fyrir bömin sjálf,
kenndi þeim að taka tillit til
annarra og meta hið góða, er
þeim sjálfum hefði fallið í skaut.
Kvað hann það von sfn og kenn-
aranna, að aðrir bamaskólar
landsins tækju þessa nýbreytni
upp. Gestirnir skoðuðu bazarinn
og var þar margt fallegra jóla-
muna, er bám bömunum fag-
urt vitni um vandvirkni, hug-
myndaflug og alúð við það mál-
efni er þau hafa tekið að sér að
vinna fyrir.
Þótt hver skerfur sé smár hefir
þátttakan verið svo almenn, að
þegar er komin talsverð fjárhæð
í sjóðinn.
Forráðamenn Barnaskólans,
bömin og aðstandendur þeirra
eiga lof skilið fyrir þessa ný-
breytni. Dæmi barnanna gæti
verið mörgum fullorðnum til
fyrirmyndar.
sem þér gerið mfnum minnstu
bræðrum, það gerið þér mér".
Á þenna hátt geta menn fund-
ið meistarann, í hvers minningu
vér höldum heilög jól.
Og ef við skyldum einhvern
tfma á lffsleiðinni vera nærri því
að gefast upp og láta hugfallast
fyrir erfiðleikum og sorgum lffs-
ins, þá minnumst orða engilsins,
sem sagði:
„Óttist ekki, því í dag er yður
frelsari fæddur, sem er drottinn
Kristur".
(jidiLf jái!
Jarðarför BENEDIKTS BERGSSONAR, sem andaðist að
Kristneshæli 18. þ. m., er ákveðin að Möðruvöllum í Eyjafirði
þriðjudaginn 28. þ. m. kl. 1 e. h.
Aðstandendur.
Jarðarför eiginkonu minnar og móður okkar, ÁSLAUGAR
JÓNSDÓTTUR, sem andaðist að Kristneshæli 21. þ. ra., fer fram
frá heimili okkar, Leyningi, íimmtudaginn 30. þ m., og hefst með
húskveðju kl. 10 f. h.
Hermann Kristjámson og böm.
wtnw—iii—— i—u—ilh———m——mwh—inmniTiiBHiiiMiinir'i
Okkar innilegustu þakkir vottum við öllum þeim mörgu, vin-
um og vandamönnum fyrir auðsýnda hjálp, samúð og hluttekn-
ingu í veikindum og við andlát og jarðarför SYÖVU OLGEIRS*
DÓTTUR. Sérstaklega viljum við þakka samstarfsfólki hennar á
skrifstofum bæjarins, Björgvin Guðmundssyni tónskáldi og Kan-
tötukór Akureyrar fyrir þá virðingu, sem það vottaði hinni látnu
starfssystur við útför hennar.
Foreldrar og systur.
Innilega þakka eg öllum þeim, sem glöddu mig á
sjötugsafmæli mínu, með heimsóknum, gjöfum,
blómum og öðrum vinakveðjum.
Anna Guðmundsdóttir.
><HKH><H5H><rtrtrt«rtrtrtrtrt«rtH><rtrtrtrtrtrtH><rtH><rtrtH><H><rtrtrtrtrtrt«H><rtrtH5
rtrtrtrtHWrtHXrtrtrtHXrtHíHjrtrtrtHSrtHXrtrtHjHCrtrtHCrtHíHXrtrtHXrtHXrtrtrtrtrtWrtrtHXi
Hjartanlega þakka eg kvenfélaginu „Voröldu fyr-
ir vinarhug og rausnarlega gjöf á 50 ára afmæli
mínu 2. september siðastliðinn.
Guð og gæfan fylgi ykkur.
Sveinbjörg G. Magnúsdóttir, Sámsstöðum.
CrtHXHXWHXrtHXrtrtHXHXHXHXHXHXHXHXHXHXHXrtHXHXHXrtrtHXHXHXrtrtl
FRAMSOKNARFÉLAG AKUREYRAR
efnir tilJÓLASKEMMTUNARí Samkomu-
húsi bœjarins á þriðja í jólum, mánudaginn 27. des.
nœstkomandi, kl. 8.30 e. h.
TIL SKEMMTUN AR:
1. KVIKMYNDIR.
2. ERINDI (Þórarinn Björnsson Menntaskóla-
kennari).
3. SÖNGUR, Kantötukór Akureyrar. Stjórnandi
Björgvin Guðmundsson.
Aðgöngumiðar í Timburhúsi K. E. A. sama dag. —
Kosta kr. 2.00.
SKEMMTINEFNDIN.
ÚTHLUTUN SKÖMMTUNARSEÐLA
fyrir tímabilið 1. janúar til 31. marz, fer fram dag-
ana 28., 29., 30. þ. m. kl. 10—12 f. h. og
kl. 1—6 e. h. og 31. þ. m. kl. 10—12 fyrir hádegi. —-
Munið að vitja seðlanna þessa daga, eftir áramótin
er alls ekki hœgt að afgreiða þá vegna uppgjörs við
matvöruverzlanirnar.
ÚTHI.UTUNARSKRIFSTOFA.