Dagur - 23.12.1943, Qupperneq 3
DAGUR
3
Fiirimtúdagirin 23. desember 1943
ÚR BÆ OG BYGGÐ
Kirkjan: Messur um hátíðina: —
ABiangadagskvöld, Akureyri, kí. 6.
' Jóladagur, Lögmannshlíð, kl. 12.
Akureyri, kl. 2 e. h.
Annar jóladafur, Akureyri, kl. 2 e.h.
Vinnustofnsjóði Kristneshælis hafa
borizt þessar gjafir: Margrét Ás-
mundsdóttir og Ólafur Benediktsson,
Akureyri, í minningu um Ragnheiði
Benediktsdóttur og Ásbjöm Bene-
diktsson kr. 500.00. — N. N. kr.
100.00. — Gamall sjúklingur kr.
100.00. — Anna Guðmundsdóttir,
Ak. kr. 200.00. — Soffía Sigfúsdóttir,
Gilsbakka, Árskógsstr. kr. 25.00. —
Beztu þakkir. Jónas Rafnar.
Jólasamkomur í Zíon: Jóladag kl.
8.30 e. h. — 2. jóladag kl. 8.30 e .h. —
Gamlérskvöld kl. 11 e. h. — Nýjárs-
dag kl. 8.30 e. h. — Sunnudaginn 2.
janúar kl. 8.30 e. h. — Jóhann Hlíðar
stud. theol. talar á somkomunum. —
Allir velkomnir.
Dánardœgur. Hinn 22. þ. m. lézt að
Kristneshœli Áslaug Jónsdóttir hús-
freyja í Leyningi í Saurbæjarhreppi,
eiginkona Hermanns Kristjánssonar
bónda þar. Hafði hún átt við langvar-
andi vanheilsu að stríða.
Frá Hjálpræðishernum á Akureyri.
Hin árlega jólatréshátíð fyrir gamalt
fólk verður haldin i samkomusal
Hjálpræðishersins fimmtudaginn 30.
des. næstk. kl. 3 e. h. Þar eð ekki er
auðið að vita um allt gamalt fólk í
bænum, eru aðstandendur þeirra, er
vildu sækja hátið vora, beðnir að
gera svo vel og vitja aðgöngumiða til
Hjálpræðishersins fyrir 28. þ. m. og
tilkynna um leið um þá, er þarf að
sækja í bíL
Hjúskapur. Nýlega hafa verið gef-
in saman í hjónaband af sóknarprest-
inum, sr. Fr. J. Rafnar, vígslubiskupi,
ungfrú Valgerður Þórólfsdóttir og
Björgvin Júníusson, bakari. Ungfrú
Álfheiður Jónsdóttir og Karl Hjalta-
son, húsgagnasmiður. Ungfrú Jóhanna
Sófusdóttir og Jón Gíslason, smiður.
Tiðarfar hefir verið eindæma gott
nú um hríð. Sl. mánudag fór bifreið
frá B. S. A. héðan suður í Borgarnes
og kom aftur á þriðjudagskvöld. Ak-
fseri var ógætt Munu slíks engin
dæmi fyrr um þetta leyti árs.
Slys. Sl. laugardag varð stúlka
fyrir bifreið í Norðurgötu hér í bæn-
um. Meiddist hún talsvert, fékk
heilahristing og marðist auk þess. —
Stúlkan, sem fyrir meiðslunum varð
er frú Unnur Friðriksdóttir, Sniðgötu
3, en bifreiðin var A—273. — Mál
þetta er í rannsókn.
Þá bar það við í Vogum við Mý-
vatn, að þrír drengir voru að leika
sér með kúlubyssu og hljóp skot úr
byssunni í brjóst eins þeirra og særð-
ist hann hættulega. Var hann fluttur
á sjúkrahúsið hér og er líðan hans
nú talin sæmileg.
Prentviíla hafði slæðst inn í minn-
ingargrein um Jóh. Kr. Magnússon á
Selárbakka í síðasta blaði, er fyrst í
röðinni á upptalningu bama hans,
nefndur Þórarinn í Götu. En átti að
vera „Þórsteinn".
Skemmtisamkomu heldur U. M.
F. Ársól að Munkaþverá 26. des.
Hlutavelta og dans. Hefst kl. 9.30.
Niðurlag greinar Jónasar Jónsson-
ar, Öxin og rússnesku hattarnir, kem-
ur í næsta blaði.
BÓKAFREGNIR. *
(Framhald af 1. síðu).
Þessi ljóð hans um fuglana eru
ljóð lífs og gróanda í mjúkum, léttum
og leikandi háttum. Mörg þeirra eru
skýrar og lifandi myndir dregnar
með hendi listamannsins. Meðal
þeirra eru og kvæði, sem eru hreinar
perlur.
Kári Tryggvason er kennari í sveit,
vinur dýra og barna. Þegar kennslu
dagsins er lokið og skammdegisrökkr-
ið færist yfir byggð og bæ, safnast
bömin kringum hann til þess að fá
sögu. Og sagan kemur — í ljóðum
um fuglana og börnin. Það eru tón-
ar frá hans eigin skáldhörpu.
Börnin gleyma skammdegisskugg-
um, vetrarhríð og kúlda. Þau em allt
í einu komin út í vorið og sólskinið
— í ríki fuglanna. Þau kynnast lífs-
háttum þeirra og lífsbaráttu. Og Ijóð-
ið sjálft er lært é ótrúlega skömmum
tíma.
Þama er í senn glæddur ljóða-
smekkur og skilningur á eðli bundins
máls, vinarhugur til dýranna og
fræðsla um þau í té lótin.
Bók Kára er góð og gagnleg gjöf
handa bömum.
Segið ungum bömum kvæðin, en
þau lesa myndirnar sjálf. Þá hafa
báðir aðilar yndi: litlu nemendurnir
og leiðbeinandinn.
Þökk 8é höfundi fyrir bókina. E. Þ.
TILKYNNING
Vegna vörukönnunar verður sölubúð Verzl.
Eyjafjörður h.f. lokuð frá 1.—9. janúar næstk.
Greiðslum reikninga verður veitt móttaka á
skrifstofu verzlunarinnar.
Verzlunin Eyjafjörður h. f.
t
Handa
Systur:
Selskabs-
iöskur
Púður-
kvcxstar
Silld-
sloppar
Ullar-
peysur
Belti
Handa Pabba:
Handa
Bróður:
SKÍÐA-
Stakkar
Peysur
Buxur
Leistar
Húfur
Vettlingar
Allir eiga erindi til okkar fyrir jólinl
Amerísk
Föt
Frakkar
Hattar
Kjólskyrtur
Manchettskyrtur Treflar
Bindi Nærföt
Slaufur Nóttföt
Hanzkar Morgunsloppar
Sokkar
KAUPFÉLAG EYFIRÐINGA
Vefnaðarvörudeild
Gerið JÓLAINNKAUPIN
þar sem úrvalið er mest!
GÚÐAR JÚLAGJAFIR
Hún veit, að við gefum
Handa Mömmu: # 5%, og ógóða að aukll
Silkinærföt Kiólatau, m. teg. Veski
V asaklútakassar Spejlflauel Hanzkar og Lúffur
Silkisokkar Kóputau Slæður og Treflar
Golftreyiur
Amerísk
KARLMANNAFÖT
STÚLKU
vantar mig í létta vist frá 1.
janúar næstkomandi.
nýkomin. Birgðir
Inga Karlsdóttir,
Eyrarlandsveg 22. — Sími 22.
Grænar
GRENIGREINÁR
Lítið óselt.
VEGNA VÖRUKÖNNUNAR
takmarkaðar.
Verzl. Eyjafjörður h/f
verða sölubúðir vorar lokaðar sem hér segir:
Kjötbúðin: 1.—3. janúar, að báðum dögum
meðtöldum.
Nýlenduvörubúðir og útibúin á Oddeyri,
Brekkugötu og innbænum, frá 1. til 5. janúar,
að báðum dögum meðtöldum,
Vefnaðarvöru-, skó-, járn-, véla-, og varahluta-
°g byggingarvörudeild, frá 1.—8. janúar, að
báðum dögum meðtöldum.
Lyfjabúð, brauð- og mjólkurbúðir verða EKKI
LOKAÐAR. — Full reikningsskil á þessa árs
viðskiptum verða að vera gerð fyrir 15. janúar
næstk., fyrir þann tíma verða nýir reikningar ekki
opnaðir til útborgunar.
KAUPFÉLAG EYFIRÐINGA
BÆKUR Menningar-
sjóðs og Þjóðvinafélags-
ins eru komnar. Vitjist
sem fyrst í
BÓKAVERZL.
Þ. THORLACIUS.
LINDARPENNI,
merktur Jóhannes Ámason, tap-
aðist í miðbæntxm. Skilist á lög-
regluvarðstöðina gegn fundar-
launum.
GÓÐST0FA
fyrir einhleypan, til leigu
frá 1. janúar næstkomandi.
Haukur Snorrason,
sýnir annan jóladag kl. 2.30:
Söngelsk æska
(Bamasýning).
RI. 5 og 9:
r
I annað sinn
K.E.A.
Byggingovörudeild
*^*^*^*^*^*^*^*^^*^*<^*
Aðalhlutverkln leika:
Cary Grant
Katherine Hepbum
James Stewart