Dagur - 12.04.1945, Page 5
Fimmtudagmn 12. apríl 1945
AGUR
5
FOKDREIFAR.
(Framháld af 4. síðu).
sum bæjarblaðanna dálka sína að
staðaldri fyrir ósiðuðum og ómönn-
uðum ruddum, sem engin skil kunna
á mannsæmandi vinnubrögðum og
heiðarlegum leikreglum í blaða-
mennsku. Enginn skyldi halda, að það
sé ánægjulegt eða þrifalegt verk að*
hreinsa til í þeim skólprennum, en
það verður þó að gerast öðru hverju '
a. m. k., ef andleg bráðapest á ekki
að brjótast út úr slíkum sýklahreiðr-
um. Og þá er hressandi að kljást þess
á milli við sæmilega hreinleg blöð og
blaðamenn, eins og þá, sem lengstaf
hafa annast afmælisbarnið. „Dagur“
getur því í fullri einlægni óskað „Is-
lendingi“ langra lífdaga í tilefni þess-
ara tímamóta æfi hans.
Öll þrjú.
BLÖÐ ALLRA stjórnarflokkanna
hér í bænum, „íslendingur,"
„Verkamaðurinn" og „Alþýðumaður-
inn“, hafa nú tekið til máls og óskap-
ast yfir því, að Búnaðarþing skuli
hafa leyft sér að átelja þá ráðstöfun
ríkisvaldsins, að verðjöfnun skuli
engin fara fram á innlendu smjöri og
ameríska smjörinu, sem flutt verður
á markaðinn. Taka blöð þessi dyggi-
lega undir þann söng, sem mélgögn
stjórnarinnar í höfuðstaðnum syngja
nú fyrir, eins og verðjöfnun á land-
búnaðarvörum og annarri framleiðslu
og markaðsvarningi sé algerlega nýtt
og áður óþekkt fyrirbrigði í sögu ís-
lenzkra viðskitamála. Hefir það þó
verið hin ráðandi stefna í öllum af-
skiptum ríkisvaldsins af markaðs-
verði og verðmyndun hér á landi öll
ófriðarárin, hvaða stjóm og flokkar,
sem farið hafa með völdin á hverjum
tíma. Er hér því um algert nýmæli
og stefnubreytingu að ræða, þegar
ríkisstjórnin hverfur nú í þessu eina
atriði frá áður uppteknum hætti. Nú
væri fróðlegt í þessu sambandi að
fá að heyra, hvernig blöð verkalýðs-
flokkanna, er svo kalla sig, tækju því,
ef ríkisstjórnin beitti sér t. d. fyrir
því að flytja inn verkamenn frá þeim
löndum, þar sem verðlagi og kaup-
gjaldi hefir verið haldið stranglega
niðri með opinberum ráðstöfunum,
(þar með er engan veginn sagt, að
lífskjör verkamanna séru lakari þar
en hér) og léti þá vinna fyrir sama
kaupgjald hér og þeir hafa heima hjá
sér, sem í mörgum tilfellum væri að-
eins brot af kaupi íslenzkra verka-
manna. Hætt er við því, að íslenzkir
verkamenn létu sér, að vonum, fátt
um finnast og heimtuðu einhvers
konar „verðjöfnun“ á vinnumarkað-
inum. En nú vilja „leiðtogar“ þeirra
ómögulega léta sér skiljast, að hér
er þó um algerar hliðstæður að ræða
— munurinn aðeins sá, að ríkisstjórn-
in hefir lagt kaupgjaldið á „syðra“
brjóstið, en afkomu landbúnaðarins
og annarrar innlendrar framleiðslu á
„nyrðra“ brjóstið í þessu máli, eins
og raunar svo oft endranær. En vís-
ast er þó, að sú geirvartan, sem að
verkamönnum og öðrum launþegum
veit, reynist einnig nokkuð treg-
mjólka og jafnvel steingeld, þegar svo
væri komið, að dýrtíðin og ráðleysið
í verðlagsmálunum hefði lágt alla
innlenda framleiðslu og athafnalíf
fullkomlega í auðn og rústir.
Fermingapföt
dökkblá, til sölu.
Gunnar Kristjánsson, klæöskeri
Hafnarstræti 77
Ráðskona!
Ráðskona óskast að góðu
sveitaheimili í sumar. Má
hafa eitt barn. Gott kaup.
Þær, sem vildu sinna þessu,
gefi sig fram á afgreiðslu
Dags fyrir laugardagskvöld
næstkomandi, og fá þar allar
nánari upplýsingar.
ANNALL DAGS.
Framhald af 1. síðu
Rússar í úthverfum Vínairborg-
ar. Hersveitir Titos taka Sara-
jevo.
7. APRÍL. Bretar um 20 km.
frá Bremen og 30 km. frá Hann-
over. Bandairíkjamenn sækja til
Erfurt og Leipzig. Áframhald
bardaga í úthverfum Vínar.
Bandaríkjamenn gera loftárásir
á flotadeild Japana og sökkva
stærsta orrustuskipi þeirra og
mörgum öðrum herskipum.
Fimmtándi japanski heilinn tal-
inn úr sögunni eftir viðureign-
ina við Breta í Burma.
8. APRÍL. Bandaríkjamenn
taka háskólabæinn Göttingen.
Hersveitir Montgomery komnar
í skotmál við Bremen, en vöm
Þjóðverja harðnandi þar. Kan-
adamenn hefja nýja sókn í Hol-
landli og nota fállhlífalið. Banda-
menn kreppa áð umkringdu her-
sveitunum þýzku í Ruhr. Amer-
ískur her kominn inn í Dort-
mund og nálgast Essen. Rússar
hefja lokaáhlaup á Königsberg.
9. APRÍL. Harðir bardagar
við Bremen og Hanover. Banda-
menn þrengja hringinn um
Ruhr, barist í Essen. Rússar hafa
Va Vínarborgar á valdi sínu og
sækja í átt til Liinz. Fimm ár lið-
in síðán Þjóðverjar réðust á Nor-
eg og Danmörku.
10. APRÍL. Bandarjkjamenn
komnir inn í HanoVer og rjúfa
aðalveginn milli Hanover og
Braunschweig. Bretar halda
upþi stórskotahríð á Bremen.
Áttundi brezki herinn byrjar
stórsókn á Italíu. Rússar taka
Königsberg. Hafa hálfa Vínar-
borg á váldi sínu.
11. APRÍL. Níundi ameríski
herlinn tekur Hanover. Bretar
berjast í úthverfum Bremen.
Kanadamenn nálgast Emden
Þriðji ameríski herinn tekur
Nordhausen um 180 km. fyrir
vestan Berlín. Rússar hafa þrjá
fjórðu hluta Vínarborgar á sínu
valdi.
Svíþjóðarbátarnir.
(Framhald af 1. síðu).
fyrir sjómennina í íslenzku bát-
unum en venjulegum, sænskum
fiskibátum. Bátarnir eru að
mestu smíðaðir úr eik úr Bohus
léni, en í listum er danskur
beykiviður. Stærri bátarnir eru
yfirbyggðir með stáli.
í greininni í Göteborgs Hand
els- och Sjöfartstidning er greint
frá því, að íslenzka sendinefndin,
sem nú dvelur í Svíþjóð, hafi
farið í kynnisferð til sænsku
skipasmíðastöðvanna, þar sem
íslenzku bátarnir eru á stokkun
um. Segir blaðið, að nefndar
mennirnir hafi verið mjög hrifn-
ir af því, sem þeir sáu.
Verkfalll jámiðnaðarmanna.
Einn skugga bar þó á þessa
ánægju, segir blaðið. Fyrstu 15
bátarnir áttu að vera tilbúnir til
afhendingar í júnímánuði og
þótt vel líti út með smíðina
fyrsti báturinn fór á flot 16. fe-
brúar — eru eigi að síður
ískyggilegar horfur um afhend
ing í tæka tíð. Því að verkfall
járniðnaðarmanna er þess vald
andi, að vélarnar fást ekki eins
snemrna og nauðsynlegt hefði
verið.
„Þetta er mjög óheppilegt fyr-
ir okkur,“ sagði annar eftirlits-
maðurinn, Ölafur Sigurðsson,
,,því a ðætlunin' var, að fyrstu 15
bátarnir sigldu til íslands svo
snemma, að þeir gætu tekið þátt
síldveiðunum frá júlí til sept-
ember í sumar. En nú er þetta
breytt og ekki hægt að búast við,
að afhendingin geti farið fram
svo snemma".
55 bátar til viðbótar?
í samtali, sem blaðið átti við
Stefán Jóh. Stefánsson alþm., en
hann er formaður íslenzku sendi-
nefndarinnar, sagði Stefán, að
rætt væri um smíði 55 báta í við-
bót við þá 45, sem þegar er búið
að semja um. Um þetta segir
blaðið, að sænsk stjórnarvöld séu
því rnjög hlynnt, að aukin við-
skipti takizt með Islendingum
og Svíum. Aðalhængurinn á
framleiðslu bátanna sé, að ís-
lendingar vilji liafa þá úr eik, en
eikarbirgðir Svía séu litlar, þótt
úr kunni að rætast þegar stríð-
inu léttir. Frá sjónarhóli skipa-
smiðanna í Bohusléni voru báta-
kaupin mjög kærkomin, því að
þau hafa skapað atvinnu fyrir
fjölda manns, og án þeirra telur
blaðið, að útlitið í smábátaiðnað-
inurn hefði verið ískyggilegt. 1
þessu héraði vinna nú 500 menn
að bátasmíðunum fyrir Islend-
inga.
Land úr jörðinni Kjarna
í Arnarneshreppi er til sölu.
Landið er í nágrenni Hjalteyrar
og mjög hentugt til þess að reisa
á því nýbýli. Rækt'unarsk-ilyrði
á ca. 60—80 hekturum, eru góð,
auk þess er úthagi og beit til
fjalls. Tún er 5j4 hektari, afgirt
og vélslægt að mestu. Lega lands
ins er ágæt, því að þjóðvegur
skiptir því í næstum tvo jafna
hluta. Gera má tilboð í landið
allt, eða einstaka hluta þess, og
sé þeim skilað til undirritaðs
fyrir 5. maí næstkomandi. Réttur
áskilinn til að taka hvaða tilboði
sem er eða hafna öllum.
Árni Ólafsson,
Brekkugötu 29, Ak.
Iílæðaskápur
til sölu.
Afgr. vísar á.
Tapazt hefir
kvenarmbandsúr frá bókabúð Rikku að
Hafnarstræti 35. Finnandi vinsamlega
beðinn að skila þvi í Hafnarstræti 35
?egn fundarlaunum.
KAUPUM
góða sokka
og ullarleista
VÖRUHÚSIÐ h/í
Skáldsaga um ástir og frumskógalíf,
villidýr og njósnir!
TÖFRAR AFRÍKU
EFTIR STUART CLOETE
Þessi litríka og blóðheita skáldsaga
verður hverjum, sem les hana, um-
hugsunarefni í langan tíma. Per-
sónur hennar eru sterkar og mikil-
úðlegar, leiksoppar sterkra kennda
og óstýrilátra ásthneigða og þó fcer
maður samúð með þeim öllum.
Lesið þessa bók um töfrana í myrk-
viðum Afrikulanda, þar sem hvitt
samfélag hefir myndazt, meðan
heimurinn logar af ófriði og eldi.
Kaupið TÖFRA AFRÍKU í dag
Það er enginn vandi að velja
FERMINGARGJÖFINA
þegar ekki þarf annað en reyna
Ever sharp-s j álf blekung
við búðarborðið og fú nafn fermingarbarnsins grafið
á hann meðan þér bíðið. —Öryggið fyrir þessari bezt
þegnu gjaf er svo mikið, vegna þess, að
Eversharp er tryggður ævarandi
Eversharp er bættur hér ef skemmist
Eversharp er fallegasti penninn
a
Eversharp er með hinu rétta verði
En þetta fáið þér aðeins í
BÓKAVERZL. ÞORST. THORLACIUS
ÍWHKHKHKHJ^HKHKHKHKHKHKHKHKHKHKHKHKHKHWHÍ^HKHKHKHKHJíKHÍÍ
Balduin Ryel hí Akureyri
er ávallt í fremstu röð vefnaðar-
vöruverzlana á Islandi, að því er
snertir vörugæði, smekk og sann-
gjarnt verð.
Vörurnar sendar hvert á land
sem er gegn póstkröfu. Sími 64.
Balduin Ryel h.f. Akureyri
Tvær stúlkur
óskast að KRISTNESHÆLI 14. maí, n.k. eða fyrr.
MJÖG GÓÐ KJÖR. — Upplýsingar gefur
YFIRHJÚKRUNARKONAN