Dagur - 13.09.1945, Blaðsíða 2
2
DAGUR
Fimmtudaginn 13. september 1945
Peir ráðstíttu og gerrœði
rikisstjórnarinnar
Þegar þessar línur eru ritaðar,
eru 25 „fulltrúar bænda“ að
tygja sig á ráðstefnu í Reykja-
vík sarakvæmt boði landbúnað-
arráðherra. Sameiginlegt lieiti
allra þessara ráðsettu manna er
búnaðarráð samkvæmt bráða-
birgðalögum, er ríkisstjórnin
hefir ungað út. Á búnaðarráðið,
sem skipað er af stjórnarráðinu,
að skipa annað minna ráð, sem á
að hafa með höndum verðlagn-
ingu á þeirri framleiðslu bænda,
sem seld er innanlands, og mun
þetta minna ráð verða nefnt
verðlagsráð.
Allt frá sköpun hins fræga ný-
byggingarráðs til hins nýstofnaða
búnaðarráðs, sem enn er of ungt
til þess að hafa getið sér frægð,
bendir í áttina til ráðstjórnarfyr-
irkomulags hér á landi. Þetta er
ofur skiljanlegt. í núverandi rík-
isstjórn eru tveir kommúnistar,
sem ráða yfir tveim íhaldsráð-
herrum. En draumur kommún-
ista er ráðstjórnarfyrirkomulag á
íslandi eftir rússneskri fyrir-
mynd, eins og allir vita. Þeir
hafa því sérstaka unun af því að
mynduð séu sem flest ráð hér á
landi. Og nærri má fara um það,
að Rússum er það ekki ógeðfellt.
Þegar sýnilegt þótti, að ný
bændasamtök væru í uppsigl-
ingu, brá ríkisstjórnin til þess
ráðs að tilnefna brmaðarráð eftir
sínu eigin höfði. Stjórnin fór í
kapphlaup við framleiðendur
sveitanna um það, hvort bændur
sjálfir eða hún ætti að ráða verð-
Iaginu á afurðunum, sem er hið
sama og kaupgjald bænd'anna og
þeirra skylduliðs. Það £r engum
vafa bundið, að myndun búnað-
arráðsins er sett til höfuðs
bændasamtökunum. En því
mega bændur ekki stofna sín eig-
in allsherjar stéttarsamtök sér til
hagsbóta, eins og allar aðrar
stéttir hafa þegar gert? Hvers
vegna á að setja þann hemil á
bændur eina? Hvað myndu
verkamenn segja, ef ríkisstjórnin
tilnefndi nokkra menn og segði:
Þetta skulu vera ykkar fulltrúar,
verkamenn góðir, þeir eiga að
ákveða kaup ykkar, og þurfið þið
því ekki framar á verkamanna-
samtökum ykkar að halda, og þið
skuluð leggja niður Alþýðusam-
bandið?
Alveg ótvírætt yrði svar verka-
manna við þessurn stjórnarboð-
skap allsherjar verkfall um land
allt. Og það verkfall væri ekki
ófyrirsynju.
En þenna leik leikur ríkis-
stjórnin við bændur. Hún gerir
sjálfri sér lög, sem gefur henni'
rétt til að tilnefna hóp manna í
svonefnt búnaðarráð, og segir
síðan við bændur; Sjá, hér eru
fulltrúar ykkar, sem eiga að gæta
hagsmuna bændastéttarinnar. —
Hlýðið þeim!
Vitanlega eru þessar aðfarir
ekkert annað en gerræði. Menn
þeir, er landbúnaðarráðherra
hefir tilnefnt, eru ekki fremur
fulltrúa'r bænda en lieildsalar í
Reykjavík eða stórútgerðar-
menn. .Fulltrúar bænda eru þeir
1 einir, sem bændur sjálfir velja
sér. Hliðstætt þessu væri, ef rík-
isstjórnin afnæmi öll lagafyrir-
mæli um val þingfulltrúa, en
setti í þeirra stað löggjöf, sem
gtefi henni vald til að tilnefna
þessa fulltrúa, og tilkynnti síðan
kjósendum að þarna væru þing-
fulltrúar þeirra!
Það er óhugsandi annað en
bændur svari gerræði ríkisstjórn-
arinnar með svo öflugum stéttar-
samtökum; að stjórnin sjái sér
þann kost vænstan að afnema
umrædd bráðabirgðalög hið
bráðastá, eða ef hún vill berja
höfðinu við steininn, þá taki
meiri hluti Alþingis til sinna
ráða með niðurkvaðningu ger-
ræðisins. Þó að bændur séu að
vísu fremur seinir til að láta hart
mæta hörðu, þá má brýna deigt
járn svo að bíti um síðir, og
vissulega hefir stjórnin nú brýnt
járnið nægilega. Mótmæli bænda
j víðs vegar úr sveitum landsins
eru og glögg merki þess, að þeir
ætli ekki að taka gerræði stjórn-
arinnar með þögn og þolinmæði.
Bændur mega og vera þess
minnugir, að þeir gáfu í fyrra-
j haust eftir nokkrar miljónir
. króna. af kaupi sínu, er þeirn bar
samkv. sexmanna álitinu, til þess
að bera sama úr býtum og aðrar
vinnandi stéttir. Þeir ætluðust til
og treystu því, að þetta værí upp-
haf að lækkun dýrtíðarinnar,
sem ólafur Thors liafði lýst sem
átakanlegri bölvun jafnt fyrir
I neytendur sem framleiðendur og
í þar með alþjóð. Stjórn Ólafs
Thors notaði svipaða upphæð til
hækkunar á kaupi launamanna
og jók þar með bölvun neytenda,
framleiðenda og allrar þjóðar-
innar að hans eigin vel rök-
Studda dómi.
Sanngirniskröfur bændastéttar-
innar eru á þann veg, að verðlag
á framleiðslu þeirra sé á hverjum
tíma ákveðið af fulltrúum, sem
þeir tilnefna sjálfir, þannig, að
þeir sæti svipuðum kjörum og
aðrar vinnandi stéttir. Sá eini
leiðarvísir, sem um þetta er fyrir
hendi, er sex manna álitið. Aðal-
málgagn ríkisstjórnarinnar,
Mbl., segir, að þetta sé of hátt
stefnt, en það er hið sama og að
ætla bændum að sitja skör lægra
en aðrar vinnandi stéttir, og í því
ljósi verður líta svo á, að ríkis-
stjórnin hafi sett bráðabirgða-
lögin og skipað þá ráðsettu með
þetta fyrir augum. Þegar þetta er
ritað, á reynslan eftir að skera
úr um það, hvort stjórninni
tekst þetta. Það getur vel verið,
þegar -stjórnin sér alvöru í
bændasamtökunum ognóguhörð
mótmæli úr Jreirri átt gegn ger-
ræðinu, að hún digni, og til þess
að losa sig úr klípu styðji hún að
því, að verð á landbúnaðarvör-
um verði sett hæfilega hátt eða
jafnvel vel það, en þá gerir hún
það nauðug og aðeins af ótta við
réttmæta gremju bænda og í von
' um það ,að þeir bændur, sem
verið hafa í Sjálfstæðisflokknum,
styðji hana áfram við völdin. En
Jdó brugðið yrði til þessa ráðs,
getur það naumast blekkt
nokkra menn í bændastétt, því
þeir vita, . að þetta er ekki af
heilindum gert í garð landbún-
aðarins, heldur aðeins til að
bjarga stjórninni frá því, að öll
bændastéttin snúist á móti
henni. Undir niðri vakir sama
tilhneigingin og áður að ganga á
hlut bænda, þó að reynt sé að
hylja þá tilhneigingu undir
hræsnisblæju, og sá, sem einu
sinni fremur gerræði, er vís til að
fremja það oftar ,sjái hann sér
leik á borði.
Hér skal enginn dómur á það
lagður hvort landbúiraðarráð-
herra hefir almennt tekist vel,
illa eða þolanlega val sitt í bún-
aðarráð sitt. Það dylst þó engum,
að valið er byggt á flokkspóli-
tískum línum, og er það í.meira
lagi óviðfelldið. í ráðinu eru 19
menn, er tilheyra Sjálfstæðis-
flokknum, 3 kommúnistar og 3
Framsóknarmenn og enginn
þeirra bóndi. Það er því vel séð
fyrir því, að fylgismenn stjórnar-
innar séu í margföldum meiri
hluta, enda vissara ef einhverjir
þeirra skyldu bregðast því að
reynast þæg verkfæri valdhaf-
anna. Það, sem hendi er næst, er
valið hér í Eyjafirði. Ráðh. hefir
ratað þar á tvo menn, aðalmann
og varamann, sem almennt eiga
litlu trausti að fagna meðal ey-
firzkra bænda. Stefán í Fagra-
skégi hefir verið hér í kjöri við
þingkosningar og haft sáralítið
fylgi bænda. Þetta sama kom og
í Ijós á kjörmannafundi þeim, er
hér var nýlega haldinn, til þess
að kjósa fulltrúa á landsfund
bænda. Þar hlaut Stefán örfá at-
kvæði, en varamaður hans í bún-
aðarráði ekkert. Bændur trúðu
1
þeim Einari á Eyralandi og
Hólmgeiri á Hrafnagili langtum
betur fyrir fulltrúastarfinu en
þeim Stefáni í Fagraskógi og
Jónasi á Hranastöðum, sem land-
búnaðarráðherra taldi bezt fallna
til þess að vera fulltrúa eyfirzkra
bænda í búnaðarráði.
Sé val landbúnaðarráðherra
Jressu líkt í öðrum sýslum lands-
ins, sem verður að teljast mjög
líklegt, þá geta hinir ráðsettu
menn því síður verið fulltrúar
bænda, því fyrsta skilyrði þess er,
að þeir hafi traust bænda.
Að líkindum verður mál þetta
orðið eitthvað skýrara um það
leyti, er'grein þessi birtist í Degi.
Þá verður landsfundur bænda af-
staðinn og verðlagsákvæði verð-
lagsráðs ef til vill kunn orðin.
' Eyfirðingur.
Ur erlendum blöðum
Vestanátt — ekki austanátt, í
dönskum stjórnmálum.
Áhrif brezku kosninganna.
Þegar fór að líða að styrjaldar-
lokum í Evrópu þótti sýnt, að
kommúnistar mundu verða
áhrifameiri í hinum frelsuðu
löndum eftir friðinn, en nokk-
urn tíma áður. Margir héldu, að
„austanáttin" mundi verða hið
ríkjandi veðurlag í stjórnmálum
ýmsra þjóða í Evrópu og at-
burðirnir í maí og júlí virtust
gefa þessari skoðun byr undir
vængi. Þá hófust sameiningartil-
raunir sósíaldemokratisku flokk-
anna í Noregi og Danmörku og
um sama leyti bar meira á starf-
semi kommúnista i- Belgíu og
Frakklandi en fyrr — og síðar.
En svo komu brezku kosningarn-
ar, þar sem brezka þjóðin hafn-
aði gjörsamlega öllu samneyti
við kommúnista og fylkti sér um
hreina lýðræðisstjórn og umbóta-
sinnaða. Með brezku kosningun-
um urðu þáttaskipti í stjórnmál-
um Vestur-Evrópu-þjóðanna. —
Eftir að úrslit þeirra urðu kunn
gerðust þeir atburðir, að samein-
ingartilraunirnar í Noregi og
Danmörku fóru út um þúfur.
Sömuleiðis í Frakklandi. Hvergi
í Vestur-Evrópu er sósíaldema-
krataflokkur nú í samstarfi við
kommúnista, nema á íslandi. í
ræðu, sem Hedtoft-Hansen, fé-
lagsmálaráðherra Dana flutti 26.
ágúst sl. í Kaupmannahöfn vék
hann að þætti kommúnista í
frelsisbaráttunni og sameiningar-
tilraununum. Ræðan birtist í
Social Demokraten 27. ágúst og
segir þar m. a.:
Ýms vinstriblöð hafa nefnt
kosningaprógram jafnaðar-
manna, sem nú hefir verið lagt
fram, yfirboð við kommúnista.
Þetta er sagt alveg út í bláinn.
Aðrir hafa talað um að fram-
kvæmd stefnuskrár okkar muni
leiða til einræðis. Eg vil minna
þá menn á, að sósíaldemokratar
hafa ævinlega staðið í broddi
fylkingar í baráttunni fyrir frels-
inu. V ið töluðum ogrituðum gegn
nazismanum. Það er gleðilegt, að
sumir menn hafa nú breytt um
!it að þessu leyti, en-það réttlætir
ekki það, að þeir helgi sér alla
frelsisbaráttuna og þykist hafa
einkaleyfi á frelsishreyfingunni.
Við hyllum þá, sem börðust fyrir
frelsinu, en við tökum ekki ofan
fyrir þeim, sem fengu vélbyssur
í hendur 3. 4. og 5. maí sl. og
neita nú að afhenda þær.
Þegar kommúnistar töldu sig
vera lýðræðis- og umbótaflokk
hvöttum við þá'til að sameinast
okkur. Við óskuðum einingar í
verkalýðshreyfingunni, til þess
að létta undir í því risavaxna
endurreisnarstarfi,- sem fyrir
höndum er. Það e.r staðreynd, að
kommúnistarnir vilja ekki sam-
einingu. Frá þeim fengum við
ekkert svar nema málalengingar
og þeir þorðu hvorki að játa né
neita, er helztu atriðin bar á
góma. Þröng eiginflokkssjónar-
mið voru þeim í reyndinni kær-
ari en sameining í stórum verka-
mannaflokki á lýðræðisgrund-
velli....
í kosningunum, sem í hönd
fara, eru engir samningar milli
jafnaðarmanna og kommúnista,
eða annara flokka. Jafnaðar-
menn ganga til kosninga á
grundvelli stefnuskrár sinnar.
Vestanstormurinn, sem hófst
St. Pipar
St. Negull
Engifer
Allralianda
Ediksýra
Saltpétur
Salt
Blandað
Riillupylsn-
krydd
Rúgmjöl
K. E. A.
Nýlenduvörudeild og útibú.
»••••#••••••§(
Nýkomið:
í Naglbýtar,
| Borsveifar,
j Bohaklippur,
| Járnklippur,
[ Heflar,
Í Hallamælar, |
i z
Handborar,
Í Skífumál,
Í Járnsagarbogar, \
Járnsagarblöð.
í Verzl. Eyjafjörður h.f. |
«HMMMIMMIMMMIMIMMMIMMUMMMMMIIMMIMMMMMMMI(MIM»
FJÁRMARK MITT ER:
Alheilt hægra,
heilrifað biti framan vinstra.
Öxnafellskoti 10. sept. 1945.
Axel Kristjánsson.
TIL SÖLU
Riffill cal. 22 (Steven’s) og
silungaveiðistöng. Til sýnis
á skrifstofu „Dags“.
með brezku kosningunum, mun
ná hingað til Danmerkur á kosn-
ingadaginn. ...
(Lausl. eftir Soc. Demokraten).