Dagur - 08.11.1945, Qupperneq 3
Fimmtudaginn 8. nóvember 1945
D AGUR
3
Frá Fjórðungsþingi Fiskideilda Norðlendingafjórðungs:
Aukin verkleg kennsla sjómanna
Áhersla lögð á kennslu í uppsetningu og með-
ferð veiðarfæra
Hér á eftir fara nokkrar ályktanir Fjórðungsþings Fiskideilda
Norðlendingafjórðungs, er háð var hér á Akureyri fyrir skömmu
og að nokkru var greint frá í síðasta blaði.
Verkleg kennsla.
Þar sem sú staðreynd liggur
fyrir, að mjög er ábótavant þekk-
ingu íslenzkra fiskimanna á upp-
setningu og viðhaldi ýmsra veið-
arfæra, skorar Fjórðungsþingið
á Fiskiþing og stjórn Fiskifélags
íslands, að hlutast til um, að
hagnýt, verkleg kennsla verði
aukin verulega, frá því sem nú
er, við menntastofnanir sjó-
manna.
Sérstaklega telur Fjórðungs-
þingið aðkallandi, að þegar
verði, með námskeiði í verstöðv-
unum, tekin upp kennsla í upp-
setningu og viðgerð - togveiðar-
færa og annarra netaveiðarfæra,
svo að bætt verði sem fyrst úr
brýnni þörf, og skorar á stjórn
Fiskifélags íslands, að gera þegar
í stað tilraun með námskeið í
þessum störfum á Akureyri, eða
annars staðar við Eyjafjörð, nú
fyrir næstu vetrarvertíð.
Þá telur Fjórðungsþingið, að
taka beri útvarpið meira í þjón-
ustu þessa atvinnuvegar, en ver-
ið hefir og vill því skora á stjórn
Fiskifélags íslands, að koma á
fræðsluviku, þar sem flutt verði
erindi um vísindaleg og verkleg
efni, er varða sjávarútveginn, á
líkan hátt og Búnaðarfélag ís-
lands hefir gert á sínu starfssviði.
Þá skorar Fjórðungsþingið á
stjórn Fiskifélagsins og væntan-
legt fiskiþing, að beita sér fyrir
því, að inntökuskilyrði í sjó-
mannaskólann, siglingatíminn,
séu færð niður í 24 mánuði í far-
mannadeild og 18 mánuði í
fiskimannadeild, og siglingatím-
inn í fiskimannadeild sé miðað-
ur við 30 smálesta stærð skipa.
Frumvarp Nýbyggingarráðs.
Fjórðungscþingið hafði frum-
varp Nýbyggingarráðs um Fiski-
veiðasjóð til meðferðar og lagði
til, að það yrði að lögum. Þó
vildi þingið breyta 18. gr. frum-
varpsins og komi Fiskifélag ís-
lands í stað Landssambands út-
vegsmanna og Farmanna- og
fiskimannasamband íslands í
stað Alþýðusambandsins.
F iskimálanef nd.
Urn þetta mál var gerð svo-
felld ályktun:
Þar sem Fjórðungsþingið lítur
svo á, að hagkvæmast verði á
hverjum tíma að starfsemi í þágu
sjávarútvegsins verði rekin und-
ir áhrifum útgerðarmanna og
sjómanna yfirleitt, vill það ein-
dregið skora á Fiskiþing, að hlut-
ast til um við Alþingi og ríkis-
stjórn, að Fiskifélagi íslands
verði sem fyrst falin starfsemi
Fiskimálanefndar, samkv. frum-
varpi Péturs Ottesens alþingis-
manns, sem nú liggur fyrir Al-
Aðbúð aðkomubáta í
Faxaflóaverstöðvum.
Fjórðungsþingið telur, að nú,
þegar stærri vélbátunum fjölgar
að miklum mun, verði ekki
lengur unað því ástandi, sem er
um aðstöðu fyrir aðkomubáta til
að stunda veiðar á vetrarvertíð
við Faxaflóa.
Fyrir því skorar þingið á at-
vinnumálaráðherra, að láta nú
þegar fara fram fullnaðarrann-
sókn á því, hvernig bezt verði
bætt úr þessari þörf með tilliti
tii hagsmuna þeirra útgerðar-
manna og sjómanna, er þetta
snertir, og vill í því sambandi
sérstaklega benda á Sandgerðis-
höfn.
Frumvarpið um fiskimálasjóð,
markaðsleitir o. fl.
Um frumvarp þeirra Eysteins
Fiá staríinu í Zion. Þeir Gunnar
Sigurjónsson cand. theol. og Ólafur
Ólafsson kristniboði, verða um tíma
á Akureyri og halda fyrstu samkomu
sína hér í Zion föstudagskvöldið 9.
nóv. kl. 8.30. Almennar samkomur
verða í húsinu á hverju kvöldi vikuna
11.—18. nóv., frá sunnudegi til
sunnudags. Allir hjartanlega vel-
komnir. Kristniboðsfélagið.
Skápur
til sölu með tækifærisverði.
Pláss fyrir sængurfatnað
öðrum megin og hillur fyrir
tau hinum megin.
Til sýnis í Lundargötu 5.
NYKOMIÐ
Dynamosett á reiðhjól.
Einnig alls konar battery
flöt og sívöl í vasaljós.
Ljósmyndaalbum, 4 tegundir.
Ljósmyndahorn, 4 litir.
Ljósmyndarammar (póstk.).
Brynj. Sveinsson h.f.
W atermanns-lindarpenni
hefir tapast. — Skilist gegn
fundarlaunum í blómabúð
KEA.
Kopar-
fiflings
ennþá nokkuð óselt
Verzl. Eyjafjörður h.f.
Jónssonar og Björns Kristjáns-
sonar, er nú liggur fyrir Alþingi,
var gerð svofelld ályktun:
Fjórðungsþingið skorar á
Fiskiþing, að styðja af alefli
frumvarp til laga um fiskimála-
sjóð, markaðsleit sjávarafurða,
utflutning a fiski o. f 1., sem fyrir
liggur á Alþingi.
Varðskipin nýju.
Fjórðungsþingið felur full-
truum sinum a næsta Fiskiþingi,
að vinna að því við rétta aðila,
að slysavarnasveitirnar á Norð-
urlandi fái keypt eitt af þeim
þremur hraðskreiðu skipum, er
ríkissjóður hefir nýlega keypt frá
Englandi. Skipið hyggjast slysa-
varnasveitirnar að nota sem
björgunarskip fyrir Norðufland.
Viðurkenning til Kristins
í Leirhöfn.
Samþykkt var að senda Kristni
Kristjánssyni, í Leirhöfn á
Sléttu, 500 kr. í viðurkenningar-
skyni fyrir það, að hann fann
upp línulagningar ramma, sem
hefir orðið til hinna mestu hags-
bóta fyrir línuútveginn.
Viti á Hrólfsskeri.
Þingið skoraði á Fiskiþing að
taka til athugunar fyrri tillögur
um byggingu vita á Hrólfsskeri í
Eyjafjarðarmynni og á Lundey
við Tjörnes. Þá var skorað á
Fiskiþing, að hlutast til um, að
radíóvitar jaeir, sem keyptir voru
af setuliðinu, verði sem fyrst
teknir í notkun.
Gamma geislar.
Ritstjórnargrein í New York
Times.
Nýlega hefir verið birt skýrsla
um áhrif kjarnorkusprengjunn-
ar, sem reynd var í Nýja-Mexico.
Þar er sýnt fram á, að þótt geisla-
áhrif séu ennþá megn, eru þau
minnkandi, og þetta hefir þrátt
fyrir allt, hughreystandi áhrif.
Vísindamennirnir, sem fundu
upp kjarnorkusprengjuna, voru
þeirrar skoðunar, að splundrun
kjarnans mundi ekki haía. í för
með sér áframhaldandi eyðingu
og heimsendir. Þrátt fyrir þetta,
hlýtur þeim að hafa orðið léttara
innanbrjósts, þegar jörðin sner-
ist eftir sem áður. Þeir voru
einnig þeirrar skoðunar, að
sprengjan mundi ekki skilja við
það landsvæði, sem hún splundr-
aðist á, magnað banvænum
radíógeislum. Þeir voru þess
vegna meira en lítið fegnir, þeg-
ar þeir gátu afsannað frásagnir
Japana um, að ekkert lifandi
gæti þrifist í Hiroshima.
Sprengjan sjálf var nógu hættu-
leg án þess. Hún er þó ekki — og
þar munar miklu — eins
slæm og fyrstu fregnir um áhrif
hennar gáfu til kynna. Gras og
trjágróður getur vel þrifist á
landi, sem orðið hefir fyrir mik-
illi kjarnorkuárás. Nokkurt
dýralíf, þar með talinn maður-
inn, getur lifað og æxlast þrátt
fyrir kjarnorkuna.
Útlitið er samt engan veginn
glæsilegt. Og það gefur þeim til-
raunum, sem gerðar eru til þess
að endurvekja eðlilegt ástand á
hnettinum í heild, sérstaklega
mikilvæga þýðingu. Heimsstyrj-
öldin sjálf getur talist nokkurs
konar kjarnorkusprenging. I
Nýja-Mexico notuðu vísinda-
mennirnir Geiger-mælitæki, til
þess að komast að raun urn skað-
vænleg áhrif gamma-geislanna,
sem stöfuðu frá kjarnorku-
sprengjunni. Ef til væri Geiger-
mælitæki, sem sýndi hinn þjóð-
hagslega og sálfræðilega óróa í
þjóðlöndum jarðarinnar, mundi
það sýna hættulegt ástand, hvar
sem það væri reynt. Utanríkis-
ráðherrafundurinn í London,
samningaumleitanir Breta og
Bandaríkjanna, tilraunirnar til
þess að koma á fót lýðræðisleg-
um stjórnum meðal Austur-Ev-
rópuþjóðanna, láta Frökkum og
N iðurlendingum í té mat og
eldivið, svo að þeir geti lifað,
stjórnskipulagsbreytingar
Bandaríkjamanna í Japan og
samningaumleitanir kommún-
ista og Chunking-stjórnarinnar í
Kína — allt þetta gefur von um
betri heim, en það bendir líka
ótvírætt til þess, að ennþá eru
lausir gamma-geislar, sem gætu
gert mannkyninu óbætanlegt
tjón, ef ekki tekst að stemma
,tigu við áhrifum þeirra í tæxa
tíð.
Þess verður vart, að ýmsir
stjórnmálamenn vilja gera upp
reikninga hins nýafstaðna stríðs
enns og það hefði verið venju-
(FmmLutld á 5. síðu).
Almennar Tryggingar hi.
Munið
að innbústryggingar
veita yður þrenns konar öryggi!
1— Nýjan húsbúnað, ef brennur
2— Aukið lánstraust
3— Áhyggjulausan svefn húsbóndans
Talið við
Vátryggingadeild
KIIII|||||||||lllllltllllllllllltlHlllllltlltllllllllllttllllllllllllltllllllllltllllll
1111111111111111111111111111111111111
Tilky
nmiii
Með tilliti til árstíðasveiflna á verði eggja, hefir Viðskipta- f
ráðið ákveðið eftirfarandi hámarksverð á innlendum eggjum |
frá og með 1. nóvember 1945:
í heildsölu kr. 16.00
f smásölu kr. 18.60
Með auglýsingu þessari er úr gildi fallin auglýsing Við- =
skiptaráðsins um hámarksverð á eggjum, dagsett 31. júlí |
1945.
Reykjavík, 31. október 1945.
VERÐLAGSSTJÓRINN.
| I
2 ^
fttimimiiiimimiiiiimmimmmmmmtmmiitiiitmmmmitmimmmtmmmmmmmimmmmiiimtmmmmmmmt