Dagur - 08.11.1945, Blaðsíða 4

Dagur - 08.11.1945, Blaðsíða 4
4 DAGUR Fimií. ^d'aginn 8. nóvember 1945 DAGUB Ritatjórl: Haukur Snorrason. Afgreiðslu og innheimtu cmnast: Marinó H. Pétursson. Skrifstofa í Hafnarstræti 87. — Sími 166. Blaðið kemur út á hverjum fimmtudegi. Árgangurinn kostar kr. 15.00. Prentverk Odds Björnssonar. Slysaslóö óráðvendnmnar jyjORGUNBLAÐINlT hefir í haust orðið " óvenjulega tíðrætt um „aðalblað Framsókn- armanna á Akureyri“, eins og komizt er að orði í forustugrein „Moggans" 24. f. mán. Virðist af því orðalagi mega draga þá ályktun, að ritstjórar Mbl. standi í þeirri meiningu, að Framsóknar- flokkurinn gefi út.mörg blöð hér í bænum! En auk þess halda þessir þjóðkunnu gáfumenn því skýlaust fram, að þetta „aðalblað“ okkar Fram- sóknarmanna hér á Akureyri sé orðið svo vold- ugt stórveldi, að það geti sagt bæjarbúum — og jafnvel öllum Norðlendingum — algerlega fyrir verkum um heimilisaðdrætti í haustkauptíðinni, hvað þá heldur annað! Hefir „Mogginn" nú í haust hamrað á þeirri vizku, dag eftir dag, að kalla, að við Akureyringar lifum nú því sem næst eingöngu á hrossakjöti, enda sé önnur kjöt- neyzla okkar aðeins þriðjungur þess, sem áður var. Og allt sé þetta því einu að kenna, að „Dag- ur“ hafi sagt — í byrjun haustkauptíðar og áður en ákveðið var um nokkra niðurgreiðslu til neytenda — að útsöluverð kjötsins væri svo hátt, að viðbúið væri, að launþegar í bæjunum þætt- ust tilneyddir að spara við sig kjötkaupin eftir fremstu getu, meðan svo stæðu sakir, að ekkert tillit væri til kjötverðsins tekið við útreikning vísitölunnar. jjÁ ÞYKIR „MOGGANUM“ það firn mikil og alveg óvenjulega skýrt dæmi um óvandaða málsmeðferð og rökleysur Framsóknarblaðana, að í hinni sömu grein, sem á þetta var^drepið hér í blaðinu, skuli því haldið fram, að þrátt fyrir hækkað útsöluverð til neytenda, muni bændur fá minna en áður fyrir framleiðsluvörur sínar. Það er óþarft að skemmta skrattanum með því að reyna að skýra þetta geysilega flókna fyrir- brigði(!) fyrir ritstjórum „Morgunblaðsins“ nán- ar en þegar hefir verið gert. Með þessum um- mælum þeirra er aðeins skjalfest, að þeir hafa fallið á gáfnaprófi, sem fullyrða má, að allir aðrir fullveðja menn í landinu hafa staðizt með mestu prýði. Er ekkert hægt við því að gera nema helzt það, að vandamenn þeirra sæki í snatri um hælis- vist fyrir þá að Kleppjárnsreykjum og freisti þess að láta sérfræðingana þar skerpa í þeim skilning- inn! En líklegast er þó, að þeir láti í þessu efni — eins og raunar svo oft endranær — stórum heimskulegar en sakir standa til, og er þá óneit- anlega illa látið. ^NNAÐ RANNSÓKNAREFNI og ekki auð- veldara er það, hvernig á því muni standa, að „Morgunblaðið“ vitnar nú daglega í orð og um- mæli þeirra Svavars útibússtjóra og Kolka læknis á Blönduósi, svipað og trúaðir menn vitna í heil- aga ritningu. Hinar botnlausu skammir og sví- virðingar Kolka læknis hér á árum áður um Sjálfstæðisflokkinn og „Morgunblaðið" sjálft mun þó teljast til hinna apokrýfu ritninga í þessu sambandi, enda aldrei til þeirra vitnað né á þær minnzt með einu orði í „Mogganum“.Aftur á móti þykir blaðinu það auðsjáanlega ákaflega „sniðugt“ hjá Svavari, er hann eignar „Degi“ hin þjóðkunnu ummæli Ólafs Thors forsætisráð- herra, þegar hann talaði um síðustu áramót í þingræðu um nauðsyn þess að sækja gullið með blíðu eða stríðu „inn í rottuholur stríðsgróða- mannanna". Þessi ummæli voru nýlega birt hér í blaðinu innan tilvísunarmerkja, og höfundar þeirra auk þess greinilega getið, svo að stzt var á því að villast, hvaðan þau voru tekin. Nú STJÓRNA í ÞÝZKALANDI OG AUSTURRÍKI Mark Clark, hershöfðingi (mið) og Omar Bradley, hershöfðingi (t. h.), eru fyrir hernámsliði Bandaríkjamanna í Þýzkalandi og Aust- urríki undir yfirstjórn Eisenhowers. „Nýsköpun“ í Ríkisútvarpinu. J^ÝR SPÁMAÐUR er upprisinn í Reykjavík, og hefir veriS falið það hlutverk —- fyrir náð Helga Hjörvars, að þvi er hann sjálfur segir — að uppfræða landslýðinn með nýjum útvarpsþætti, er nefnist „Lög og létt hjal.“ Ungménni þetta er, að eigin sögn, uppalið við „allt það bezta í klassiskri músik“ og treystir sér sjálft ágætlega til að „vinza kjarn- ann frá hýðinu" í tónlistarmálum! Þessi ungi maður varaði eldra fólkið eftirminnilega við því að fella sleggjudóma, en sjálfur kvað hann upp ákveðna dóma um allt milli him- ins og jarðaraðkalla.Barnakennararí Þingeyjarsýslu fengju jafnvel ekki að vera í friði með margra ára gamlar og þrautræddar fundarsamþykktir sínar fyrir áreitni hans og misheppn- uðum tilraunum til að sýnuast fynd- inn og andríkur, hvað þá heldur sá hinn dauðlegi maður, sem ætlaði sér þá dul að fræða sjálfan Pál Isólfsson um eitthvað það, sem viðkom tónlist- armálum! — Ekkert kom fram í þætti þessum, sem réttlætti það að kalla hann „léttan", nema helzt það, að ræðismaður var sjálfur frábærlega „léttur“ og hátt uppi í skýjunum, enda óð hann þindarlaust elginn með einstakri sjálfsánægju og rembingi. — Sunnanblöðin geta ýmist alls ekki um þessa nýjung í Ríkisútvarpinu, eða þau klappa ósköp vinsamlega á koll hins nýja alþýðufræðara. Er ekki ólíklegt, að einhver sérstakur fiskur sé falinn undir þeim steini. Nýtízku siðalærdómur. þAÐ MUN þykja nokkuð nýstárleg- ur siðalærdómur hér á landi, að ásaka þá um lögbrot, sem saklausir eru, en verja þá sem sannanlega hafa gerzt sekir um stórfelld trúnaðarbrot heimskar „Mogginn“ sig enn á því að elta Svavar út’ á slysaslóð óráðvendninnar með því að eigna ,„Degi“ þessi ummæli, sem alþjóð manna veit fullvel, að for- sætisráðherrann einn á þó allan heiðurinn af. Nefnir blaðið þetta sem eitt dæmið enn um ljótan munnsöfnuð Framsókn- armanna(!), og er skörin þá sannarlega farin að þokast um of upp í bekkinn, ef Framsókn- armenn eiga að bera ábyrgðina á meiningarlausu gaspri og marklausum gífuryrðum stjórn- arherranna í Reykjavík. Og voldugur er „Dagur“ orðinn, ef hann ræður ekki aðeins kjöt- kaupum allra Akureyringa held- ur einnig orðalaginu á þingræð- um Ólafs Thors! og svindl. Lesendur Morgunblaðsins minnast þess, að blaðið taldi ekki ástæðu til að birta fregnina um stærsta verðlagsbrotamál á Islandi, nema birta í sömu andránni viðtal og varnarræðu forstjóra fyrirtækis þess, er í hlut átti. Síðan þetta var, hafa tvö önnur heildsölufyrirtæki verið kærð fyrir sams konar afbrot. Blaðið hefir getið þess í smáklausum, en ekkert lagt til málanna frá eigin brjósti. Nú bregður hins vegar svo við, að þetta sama blað birtir ritstjórnargrein, þar sem tekið er undir aðdróttanir Þór- odds Guðmundssonar frá Siglufirði um það, að Samband ísl. samvinnufé- laga sé brotlegt við verðlagslögin. Er hér um - svo nýstárlega siðfræði að ræða, að ekki verður hægt að skil- greina hana á annan hátt, en að hún tilheyri alveg sérstakri tegund þeirrar „nýsköpunar11, sem er að verða hér á landi i sambandi við ýms opinber mál. Áður en þetta var hafði Morg- unblaðið birt heila ritstjórnargrein, sem byggð var á falsrökum og rógi Svavars Guðmundssonar um Kaupfé- lag Eyfirðinga og margar greinar um verðleika Kengáluriddarans, sem í sumar ritaði hverja níðgreinina af annarri um K.E.A. undir „niðurfelldu andlitshlífinni". Nú hefir Þóroddur Guðmundsson staðist það próf, er rit- stjórar Morgunblaðsins leggja þeim á hsrðar, er vilja gerast leiðtogar um samvinnumál í dálkum blaðsins, og bætzt í hinn fríða hóp er fyrir var. Er það önnur vegsemdin sem Þóroddi hlotnast fyrir fræga stjórn sína á Kaupfélagi Siglfirðinga. Hin var sú, er sjálfstæðismenn kusu hann fyrir varaforseta sameinaðs Alþingis til þess að hressa upp á mannorðið að loknum atburðunum í Siglufirði. m. .: Saga um kvenskó. þÓRODDUR og Morgunblaðið halda því fram, að ekki sé vitað að Sís og kaupfélögin hafi selt ódýr- ari vörur en hinir ákærðu heildsalar, og gefa síðan í skyn, að Sambandið hafi brotið verðlagslögin. Það er skaði, að dæmum um hið tvöfalda verð, sem oft hefir gilt á sama varn- ingi í kaupfélaga- og kaupmannabúð- um á undanförnum árum, skuli ekki hafa verið haldið til haga og þau birt jafnóðum. En úr þessu er ennþá hægt að bæta og sýnist ástæða til þess, er slík málfærzla er viðhöfð, sem Morg- unblaðið hefir nú tekið upp. Þótt þeir Morgunblaðsritstjórarnir þykist ekki vita um slík dæmi, þá er áreiðanlegt, að allur almenningur man þau og þau gerast raunar enn í dag. Ábyrgðina á þessu tvöfalda verði bera heildsalarn- ir og gegnir furðu, að smákaupmenn landsins skuli ekki fyrir löngu hafa risið upp gegn þeirri óhóflegu spill- ingu, sem oft á tíðum hefir ríkt í verzlunarháttum heildsalanna. Lítið dæmi frá liðnu sumri er eitt af mörgum. (Framhald á 6, síðu), Ljós og hænsnarækt Eg Jzykist vita að margir muni verða ti! að stara á þessi orð og varla trúa augum sínum: Ljós og hænsnarækt! Hvað á þetta að þýða? Ljós og hænsnarækt! — En Ijós og hænsnarækt eru ekki eins óskildir hlutir og ýmsir kunna að ætla. Okkur kemur ekki 1 jós í hug í sambandi við hænsnarækkt, en það er einmitt það, sem eg ætla að ræða lítillega. Það er aðeins stöku sinnum, sent það hvarflar að okkur, hve dásamlegt það er, að geta kveikt ljós í heimilum okkar, og lýst upp stórar stofur, þegar skyggja tekur. Það er helzt, þegar við höf- um þurft að vera án Ijóss, þó að ekki sé nema skamman tíma, að slík hugsun sækir okkur heirn og sannast þar hið fornkveðna að: „Enginn veit hvað átt hefir, fyrr en misst lrefir". Endranær hugsum við svo að segja aldrei neitt um þetta. Okkur þykja það sjálfsögð þægindi að geta kveikt ljós, þegar við þurfum á því að halda. Rafurnragnið er til ómælilegra margra hluta nytsamlegt, og ágæti þess verður seint að verð- leikum metið, en þó finnst mér það sem birtu- gjafi stærst og dásamlegast. En hvað er þá með hænsnaræktina? Við viljum hafa ljós í heimilum okkar, en okk- ur láist, því miður, oft að hugsa um skepnurnar. Það er sagt að hestar, sem alast upp í björtum húsakynnum, muni reynast stórurn betur en hin- ir, sem verða að hýrast í myrkrinu. Og um hænsnin er það að segja,.að sé birta í húsum þeirra notuð réttilega, munu þau verpa miklu betur. í erlendu búnaðarriti las ég nýlega um jressi mál, og segir þar að eggjatalan eigi að aukast um allt að því 10 prc. sé ljós höfð í hænsnahúsunum. Áhrif ljóssins eru svo víðtæk og margvísleg, að út í þá sálma treysti ég mér ekki — en þetta í sambandi við hænsnaræktina finnst mér þess virði að gefa því gaum. í fyrrumræddri grein segir, að 13 klst. birtu í sólarhring þurfi til að auka eggjatöluna — þá er notað rafmagns- eða lampaljós þann tíma, sem dagsljósið nær ekki til. Lélegar varphænur örvast mjög ef haft er ljós í húsunum síðari hluta nætur og fram á morgun vetrarmánuðina (frá nóv. eða des.). Hægt er einn- ig að fá hænur til að verpa fyrr að vorinu ef not- uð eru Ijós í húsum þeirra. Slík notkun ljósa er að sjálfsögðu töluvert kostnaðarsöm, en sá kostnaður er líklegur til að borga sig, a. m. k. þar sem hænsnarækt er, sem einhverju neinur. Myrkrið getur stundum verið skemmtilegt og rökkrið oft rómantískt, en dásamlegust er þó birtan — ljósið. — Sennilega kynnurn við ekki að meta birtuna, ef ekkert væri myrkrið — og mikið eigum við himnaföðurnum að þakka fyrir sína sílýsandi sólar-peru; og gleymum heldur ekki Edison gamla, sem gaf okkur hina perluna, sem við sjálf ráðum yfir og getum tendrað eftir okkar eigin geðþótta. Puella. Samkvæmt amerísku búnaðarriti selja kýr mun betur, ef spenarnir eru þvegnir úr heitu Vatni rétt áður en mjólkað er. ★ Met-hæna. Heimsmet setti hæna nokkur í Massachusetts í Bandaríkjunum árið 1944. Hún verpti 351 eggi á 357 dögum. Samtals vógu eggin rösklega 20 kíló. ★ . Raðaðu myndum frá sumrinu, í albúm, öskju eða þar sem þú geymir myndir þínar, sem allra fyrst, svo þú gleymir ekki hvar og hvenær, hver einstök mynd var tekin. ★ Víða liggja vegamót, vel má ...... ^ bess gæta: ekki veit, hvar manni ^kann að mæta. (Gamalt lsl. spakmæli), c

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.