Dagur - 07.03.1946, Side 4
4
DAGUR
Fimmtudaginn 7. marz 1946
DAGUR
Ritstjóri: Haukur Snorrason
AígreiSslu og innheimtu annast:
Morínó H. Pétursson
Skriístofa í Hafnarstreeti 87 — Sím'i 166
Blaðið kemur út á hverjum fimmtudegi
Árgangurinn kostar kr. 15.00
Prentverk Odds Björnssonar
L - ■ ---------......................■---
Trúin á lygina
J^NNO DOMINI 1945, fimmtudaginn 27. sept-
ember, birtist hér í blaðinu ritstjórnargrein
undir fyrirsögninni „ömurleg ráðsmennska."
Grein þessi átti fyrir sér að breytast— ímeðförum
„Morgunblaðsins" — í eini) frægasta hvalreka,
sem borið hefur tlpp á fjörur stjórnarliðsins bæði
lyrr og síðar. ,,Morgunblaðið“ fullyrti þegar und-
ir lok haustkauptíðarinnar, að þetta ritstjórnar-
spjull „Dags“ hefði orkað svo mjög á hugi maiiná
hér norðanlands, að stórlega hefði dregið úr kjöt-
sölunni, enda hefðu kjötkaupinísláturhúsikaup-
félagsins hér minnkað um helming og stórlega
dregið úr sölunni annars staðar þar, sem áhrifa
greinar þessarar hefði gætt! Og ekki er nóg með
það, að „Mogginn" sjálfur hafi alltaf öðru liverju
síðan verið að japla á sömu hringavitleysunni
uin „kjötverkfallið á Akureyri" — og það síðast
með löngu máli og miklum fúkyrðum í „Reykja-
víkurbréfum" sínuin 24. f. mán. — heldur hefir
landbúnaðarráðherra gert Morgunblaðs-útgáfu
greinar þessarar að umtalsefni í útvarpsræðu, og
málið auk þess oftar en einu sinni borið á góma
á þingfundum hins virðulega Alþingis íslend-
inga. Og alls staðar hafa stjórnarliðar lraldið því
blákalt fram, að minnstu hafi munað, að þessi
„skemmdarstarfsemi Dags" — eins og Mogginn
kemst að orði í síðustu hugleiðingum sínum um
þetta efni — hafi kostað það, „að bændur fengju
6—9 milljónum króna lægra verð fyrir kjötfram-
leiðslu sína“ en ella myndi! Minni tölur mega
auðvitað ekki gagn gera, þegar stjórnarliðar í
höfuðstaðnum vilja sýna landslýðnum það svart
á hvítu, hvílíkt ægivald „Dagur“ hafi yfir liuga
og gerðum lesenda sinna!
jpURÐULEGT KANN það að virðast í fljótu
bragði, að ekkert hinna þriggja stjórnarblaða,
sem gefin eru út hér í bænum, skuli nokkru sinni
hafa minnzt með einu orði á þessa sVívirðilegu
grein og áhrif hennar, né heldur á „kjötverkfallið
á Akureyri“. Skýringin er raunar einföld, þegar
betur er að gætt: Þessi blöð vita það mæta vel, að
allt það, sem „Morgunblaðið“, landbúnaðarráð-
lierrann og aðrir þingmenn stjórnarliðsins, hafa
um þetta sagt í blöðum, útvarpinu og sjálfum
þingsölunum, er helber og tilefnislaus ósannindi,
vísvitandi og ómerkilegt þvaður, sem ekki tjóar
að segja neinum þeim manni, er sjálfur hefir les-
ið nefnda grein, eða önnur ummæli „Dags“ um
verðlagningu landbúnaðarafurða bæði fyrr og síð-
ar. Dagur hefir ALDREI látið nokkur orð né
ummæli falla, sem skilizt gætu á þá leið, að blað-
ið hvetti almenning til þess að draga úr kjötkaup-
um sínum. Ummæli þau, sem tilefni tnunu hafa
gefið til allrar þessarar makalausu herferðar rógs
°g lýgi, voru á þá leið, að meðan svo stæðu sakir,
að ekkert tillit væri tekið til verðhækkunar land-
búnaðarafurða við útreikning framfærzluvísitöl-
unnar, og ekkert væri enn ákveðið um njþur-
greiðslur úr ríkissjóði, myndi hin nýja verð-
hækkun þessara nauðsynja „skapa alvarlegan
vanda fyrir fjölda neytenda, enda viðbúið, að
tnargir þeirra telji sig tilneydda að draga úr
kaupum sínum á nauðsynjavörum þessum eftir
fremstu getu.“ Þetta er nú öl 1 mýflugan, sem mál-
pípur stjórnarliðsins héfir tekizt að skapa hinn
ægilega 6—9 miljóna úlfalda úr! Þetta voru þá
hin frægu ummæli, sem minnkuðu kjötsölu á
Akureyri og annars.staðar norðanlands um helm-
ing! — áskorun um hið ægilega og „hatursfulla,
Að gefnu tilefni.
nefnir Hreiðar Eiríksson, garðyrkju-
maður, pistil, sem hann hefir sent
blaðinu um FUGLADRÁP bæjar-
manna. — Hreiðar segir:
JpiNS OG KUNNUGT ER hafa
" Akureyringar þegar alfriðað
fugla og önnur skaðlaus dýr í landi
bæjarins og þykir sú ráðstöfun að
vonum vera manndómsmerki. Það er
ekki óeðlilegt að slík ákvörðun hafi
glæðandi áhrif á dýraverndarhneigð
manna yfirleitt, enda virðist sá eigin-
leiki svo þroskaður orðinn hjá sum-
um að furðu gegnir.
I undangengnum frostum hefir það
borið við, eins og einatt, þegar vötn
eru allögð, að sundfuglar hafa mjög
leitað á allstóra vök á Eyjafjarðará,
norður með Reykhúsaklifi, rétt við
veginn. En að þessu sinni hefir fugl-
um reynst vistin fremur stopul á þess-
um slóðum vegna þess að einhverjir
dýravinir, sem ekki mega aumt sjá,
hafa komið á vettvang og gætt þess
vandlega með daglegri skothríð frá
bifreiðagluggum, að ekkert kvikindi
sitji þarna of lengi um kyrrt.
Að sjálfsögðu mun þetta gert í
þeim tilgangi að forða blessuðum
fuglunum frá því að frjósa fastir í
síðustu vökinni, því að enginn mundi
þjóna sinni veiðihundsnáttúru á
svona lúalegan hátt. En á það skal
bent, að þessi vök frýs aldrei og því
æskilegt að hinir góðu menn hverfi
hið skjótasta af verðinum, því að það
er óskemmtilegt að horfa á svona
hernaðaraðgerðir, þó af góðum hug
séu gerðar.“
Skildingarnir og þjónustan.
jþRÁTT FYRIR yfirlýsingu póst-
málastjórans hér í blaðinu, fyrir
einum tveimur árum, að póststjórnin
notaði jafnan hvert tækifæri sem
byðist til þess að flytja póst loftleið-
is, éru því miður mörg dæmi sem
benda til annars. Sem sýnishorn má
nefna póstflutningana um síðustu
helgi. Á mánudaginn komu hingað
þrjár flugvélar frá Reykjavík, tvær
þeirra nær því tómar ó norðurleið-
inni. Með þeim komu samtals 5 kg.
af pósti. Sama daginn lágu fleiri
hundr. kg. af pósti, er fara ótti hingað,
á pósthúsinu í Reykjavík. Þarna var
tækifæri til þess að koma honum öll-
um hingað á skjótan og hagfelldan
hátt. Það var Iátið ónotað; hentara
þótti að geyma hann til þriðjudagsins
og koma honum á bíla og báta áleiðis
norður hingað. Afleiðingin er sú, að
póstur, sem gat verið kominn í hend-
ur viðtakenda sl. mánudag, mun fyrst
nú i dag verða afhentur frá póstaf-
greiðslunni hér. Fleiri dæmi þessu lík
hafa gerzt að undanförnu þótt þau
verði ekki rakin hér.
T>að FER ekki hjá því, að þessi
framkvæmd á póstflutningum
veki gremju meðal almennings hér.
Málum er nú svo komið, að sívaxandi
nauðsyn er á greiðum samgöngum
við Reykjavík vegna þess, að þangað
suður sogast æ meiri hluti af verzlun-
inni og valdinu í flestum greinum
þjóðlifsins. Einstaklingar, fyrirtæki
og stofnanir hér um slóðir þurfa að
sækja í hendur ráðamanna syðra æ
fleiri hluti, er varða hag þeirra og af-
komu, og raunar væru sumir hverjir
betur settir heima í héruðunum. Er
það allt alvarlegt mál út af fyrir sig.
En í þessu sambandi skiptir það veru-
legu máli, að póststjórnin skilji þessa
aðstöðu, og láti ekki þau sjónarmið,
sem vilja reka póstflutningana sem
ódýrast fyrir ríkið, skyggja á þjónust-
una við almenning, sem verður þó
vissulega að teljast höfuðverkefni og
skyldustarf þessarar ríkisstofnunar.
Þegar þessi sjónarmið rekast á, svo
sem augsýnilegt hefir verið sl. mánu-
dag, þá er það ekki að ósekju að leik-
mönnum finnst stofnunin hafa brugð-
izt trausti því, er henni er sýnt, með
því að láta skildingana skyggja á
þjónustuna, með þeim afleiðingum,
að póstafgreiðslan tefst svo dögum
skiptir. Það hlýtur að vera skýlaus
krafa almennings, að þessum málum
verði komið á öruggan og traustan
grundvöll og að slíkir atburðir endur-
taki sig ekki.
Barnavagnar
Barnakerrur
Barnaþríhjól
ENNFREMUR:
Barnaskíði
kjötverklalI", sem „Dagtir“ stofn-
aði lil með „miklum rosta“, eins
og „Mogginn" keinst að orði í
síðustu Reykjavíkpurpistlunum,
sem á var drepið. — Þeir kunna
sannarlega til sinnar „nýsköpun-
ar“, þessir herrar!
jyjORGUNBLAÐIГ hefir
þrásinnis nú að undan-
förnu frætt lesendur sína á því,
að „Dagur" hafi krafizt dauða-
dóms yfir þeim Kolka lækni á
Blönduósi og Svavari útibús-
stjóra Itér. Sú frásögn er reist á
alveg sams konar forsendum eins
og hvalrekinn um „kjötverkfall-
ið“, sem lýst hefir verið hér að
framan. Þetta höfuðmálgagn
Sjálfstæðisflokksins er frægt að
því að hafa tíðum siðaskipti, —
skipta álíka oft og auðveldlega
um trú og boðun í hverju stór-
máli eins og sæmilega hreinlát-
ur maður skiptir tnn hálslín eða
nærbrækur. Trúin á Iygina virð-
ist raunar hin einu trúarbrögð,
sem þessir afkastamiklu skólp-
skaparar og rógsmiðir muni
ialda fullri tryggð við til hinztu
stundar. Af þeirri barnatrú
sinni inunu þeir vissulega aldrei
ganga.
mjög ódýr
Brynj. Sveinsson h.f.
Sími 12!). AKUREVRI Pósth. 125.
ÍBÚÐ
Húspláss óskast, 2 til 3 herbergi
og eldhús. FyriríramgreiSsla, ef
óskað er, getur komið til mála.
HENRY ÓLSEN,
Strandgötu 49, Akureyri'
Barnakerrurnar
og þríhjólin
eru komin.
Verzlunin VÍSIR
Skipagötu 12
Söngvasafn Kaldalóns
1. hefti er komið
Sportvöru- og
hl j óðf æraverzlunin
Ráðhústorgi 5
Leikfimi.
Nokkrar heimaæfingar
4. æfing. — Nú förum við fram úr rúminu og
stöndum á gólfinu við rúmið, fætur saman,
vinstri hlið að rúminu. Síðan gerum við hliðar-
beygju til vinstri og reynum að slá með vinstri
liendi á rúmstokkinn (1). En munið að rétta vel
úr fótleggjunum, beygja ekki hnjáliðina. Réttum
úr okkur og stöndum beinar (2). Beygið og stand-
ið upprétt nokkrum sinnum til skiptis. Því næst
snúum við okkur við, snúum hægri hlið að rúm-
stokknum og gerum hliðarbeygju eins og áður,
en nú til hægri. Gerið þannig hliðarbeygju ca.
átta sinnum til hvorrar hliðar.
*
5. æl'ing.
Standið á tánum og hoppið nú tvisvar á hægra
fæti, og sveiflið vinstra fæti beint út til hliðar-
innar um leið (1—2). Síðan hoppum við tvisvar á
vinstra fæti og sveiflum hægri fæti til hliðar (3—
4). Réttið vel úr fætinum, sem Sveiflað er út til
hliðar. Haldið bolnum beinum. Hoppið þann-
ig nokkrum sinnum, til vinstri og hægri til skipt-
is, á blátánum, hátt og liðlega. Þessi æfing styrkir
fæturna.
frh.
# # #
M ataru ppskrif tir:
Góður síldarréttur
Ilér er uppskrift á handhægum síldarrétti, sem
er ágætur til miðdegisverðar, eða sem heitur rétt-
ur á kviildborðið:
Hráar kartöflur eru skornar niður í þunnar
sneiðar og lagðar á botninn á eldföstu móti eða
fati. Lag af brúnuðum lauk látið yfir kartöfl-
urnar, og síðan síldin, sem áður hefur verið af-
vötnuð, látin liggja í mjólk um stund og flökin
skorin langsúm í ræmur. Síðast er tvíbökumylsnu
stráð yfir og smjörbitar settir hér og þar efst.
Bakað í ofni við góðan hita í ca. 40 mínútur.
# # *
Börnin:
Svefntími barna
Það er að vísu misjafnt, hve mikinn svefn börn
þurfa, til þess að þau þroskist og dafni eins og
vera ber, en fari börnin á mis við nægilegan næt-
ursyefn og hvíld, bíða þau óneitanlega tjón á
heilsu sinni. Láta mun nærri, að börn og ung-
lingar þurfi að sofa á sólarhring eins og hér segir:
I árs — 14—16 stundir; 2 og 3 ára — 13—14; st.;
4, 5, 6, 7 og 8 ára — 12—13 st.; 8, 9, og 10 ára —
II '/2 st.; 11 ára — 11 st.; 12 ára — IOV2 st.; 13 ára
— 10 st.; 14 og 15 ára — 9l/> st.; 16 ára — 9 st.
# ,# #
SAUMAKASSI.
Prýðileg, silkifóðruð askja til þess að geyma í
handavinnu o. fl. — Þetta ætti að vera auðvelt að
búa til og gæti verið ágæt gjöf til vinstúlkunn-
ar.