Dagur - 05.02.1947, Síða 2
2
D AGUR
Miðvikudagur 5. febrúar 1947
hvort Richard gœti haldið þriðja virkinu eða ekki. En
gæfan hafði yfirgefð hann, því að liðsauki sem koma átti,
lét bíða of lengi eftir sér, og Richard varð að hörfa úr virk-
inu. Það var erfið raun fyrir hann, og í ægilegu reiðikasti'
skaut hann fyrirliða þann, sem ekki hafði verið nógu fljót-
ur að koma liðsaukanum á vettvang. Þar með fengu öf-
undarmenn hans í liði konungs ennþá eitt tilefni til andúð-
ar á honum og herstjórn hans.
Það var á páskadaginn, sem riddari þeysti heim að Red-
ford og hafði meðferðis bréf til mín. „Hvað er það?“
spurði ég áður en ég gaf mér tíma til þess að opna bréfið.
„Hershöfðinginn er hættulega særður,“ sagði hann. „Við
óttumst um líf hans.“ Eg reif bréfið opið og flýtti mér að
lesa það sem hann hafði hripað. „Ástkæra Honor. Nú er
illa komið. Líklegast er, að eg missi annan fótinn, og vel
gæti svo farið, að eg missti lífið, því áð eg hefi stórt sár á
síðunni. Nú skil eg, hvað þú hefir þjáðst. Komdu til mín
og kenndu mér þolinmæði."
Richard var í Exeter. Eg kallaði á Matty. „Nú verður
að hafa hraðan á,“ sagði eg. „Þú lætur allan farangur okk-
ar í töskur, því að við förum tafarlaust til Exeter.“
Sex dagar liðu, áður en við kæmumst til höfuðborgar
Devonshéraðs, og þár frétti ég, að Richard væri enn á
lífi. Jack Grenville, frændi hans, tók á móti mér og sagði
mér, að koma mín mundi áreiðanlega mikið gleðiefni fyrir
Richard, og eigi síður fyrir þá, er ættu að hjúkra honum.
„Hann rekur hjúkrunarfólkið á dyr og segir, að Matty eigi
að búa um sórin á meðan Honor tali við sig.“
Auðséð var, að Matty var upp með sér, og við hröðuð-
um okkur á fund hans. Kirkjuklukkunum í hinni miklu
dómkirkju var hringt rétt í þann mund, er við geng-
um inn í herbergið, og eg heyrði, að hann kallaði: „Segið
þeim að hætta þessum hringingum.“ En svo kom hann
auga á mig og brosti. „Loksins,“ sagði hann, „—loksins
ertu komin.“ (Framh. í næstu viku.)
Úgerðarvörur
fyrirliggjandi:
Stálvírar, 5/8-214
Vantavirar, 11,4-2 Vi”
Vírmanilla, 1-2 V2”
Grastóg
Netagarn
Lóðabelgir
Fiskilínur
Línuönglar
Handfæraönglar
Keðjur, galv. 5/16-34.”
Skrúflásar, allskonar
Keðjulásar
Keðjuhlekkir
Kevar
Kósar, allskonar
Ræði
r
Attavitar
logg
Logglínur
Skipsklukkur
Mastursbönd
Tréblakkir, einf. 4-8”
— tvöf. 4-8”
- þref. 6-8”
Járnblakkir, allskonar
Björgunarbelti
Sjónaukar
Vélatvistur
Vélaþéttir, allskonar
Smurkönnur
Kaupfélag Eyfirðinga,
Jám- og glervörudeild.
Náttjkjólar
Undirföt
Nærföl
Kaupfélag Eyfirðinga |
Vefnaðarvörudeild.
BÆNDUR!
Höfum fyrirliggjandi og útvegum alls
konar varahluti í okkar góðkunnu land-
búnaðarvélar, svo sem:
Dráttarvélar
Plóga
Herfi
Sláttuvélar v
Rakstrarvélar
Múgavélar
r
Aburðardreifara
Skilvindur
Strokka
og ýmsar fleiri vélar
Athugið:
• * x
Vegna örðugleika um útvegun varahluta
er brýn nauðsyn að athuga vélarnar nú
þegar og panta varahluti strax, en geyma
það ekki til næsta sumars.
Samband ísl. samvinnufélaga
Jafnvel húsbóndinn
er liðtækur við matreiðsluna,
þegar þér notið
Gula bandifi og Flóru!