Dagur - 19.03.1947, Qupperneq 6
6
DAGUR
Miðvikudagur 19. marz 1947
CLAUDlA |
SAGA HJÓNABANDS
EFTIR
ROSE FRANKEN
^ á9. dagur '*
(Framhald).
,,}æja, jæja, þá eru það fjórir, oi>' til hvers er að vera að æsa sig
upp út af tveimur sentum. Eg skil ekkert í þér, Davíð.“
„Þú skilur ekkert í mér!“
„Nú,,það er svo sem enginn glæpur, þó eg hafi dregið skakkt frá
um tvö sent?“
,,Æi, góða hættu þessu nuddi. Fjörutíu og átta, fimmtíu og þrír,
fimmtíu og átta. Geturðu ekki gefið út nema fimm dala tékka?“
„Er nokkuð að því?“
„Það kostar bankann peninga í hvert sinn, sem ávísun er gefin
út. Þú átt að taka út tuttugu og fimm dali í hvert sinn, en hætta
þessu smá mjatli.“
„Eg hefi nú mínar reglur um það,“ sagði hún þykkjulega. „Eg
ætlast ekki til þess að þú farir að skipta þér af því, þótt þú hjálpir
mér ofurlítið með reikingana og blessaður hafðu engar áhyggjur
vegna bankans. Hann sér um sig. Eg held þeir hafi efni á því, að
tapa nokkrum sentum fyrst þeir gera tilraun til þess að snuða mann
svo að það skiptir mörgum tugum dala.“
Davíð var þungur á brúnina. „Heldurðu að þú gætir ekki hætt
þessu mali, rétt á meðan eg er að ganga frá þessu. Þrír frá tveimur
eru níu og einn til láns, — heyrðu, þú hefir gleymt að taka einn
til láns hér — nei, bíddu við, þetta er víst rétt svona-“
„Eg gleymi aldrei að taka til láns,“ sagði Claudía, hátíðlega.
Davíð reif í hár sitt.
„Eg sé nú ekki hvar þú hefir gert þessa vitleysu —“
Claudía brosti. „Jæja, ætli það verði ekki bankinn, sem roðnar
upp í hársrætur."
„Bankar roðna aldrei, manneskja, sagði Davíð og barði í borðið.
„Bankar gera ekki vitleysur, og það er útrætt mál.“
„En rökvísin! Þú játar að allt sé rétt hjá mér, en samt vantar
hundrað dali á reikninginn."
„Eg hefi ekki játað neitt slíkt.“
„Þú sagðir að allar tölurnar væru réttar."
„Komdu með ávísanirnar aftur. Við skulum lesa þær saman við
reikninginn."
Claudía byrjaði að lesa. Hver ávísunin af annarri passaði við
reikninginn og ávísanaheftið, en svo kom ávísun til Fritz fyrir
hundrað dali.
„Þú hefir ekki fært hana inn,“ sagði Davíð.
„Vitleysa. Auðvitað hefi eg gert það.“
Hann ýtti bókinhi yfir borðið. „Jasja, finndu það þá sjálf,
elskan."
Hún greip bókina og blaðaði í henni. Nú rann allt saraan upp
fyrir henni. Hún hafði verið í borginni fyrirnokkru og hafði gefið
út bundrað dala ávísun, sem dóttir þeirra þurfti að fá, en þegar hún
kom heim, hafði henni alveg láðst að færa það í bókina."
„Það hlýtur að vera hér einhvers staðar," andmælti hún. „Það er
ómögulegt annað. Eg get ekki hafa gleyntt því.“
„En þú gleymdir því nú samt,“ sagði Davíð um leið og hann stóð
á fætur og tók upp dagblaðið.
„Byrjaðu ekki að lesa alveg strax, Davíð. Það hefir komið eitt-
hvað hræðilegt fyrir.“
„Hvað nú?“ spurði hann s'kelfdur.
„Af því að þú fannst það út, að bankinn hafði ekki gért neina vit-
leysu, á eg nú bara tut(ugu og þrjá dali í bankanum í stað hundrað
tuttugu og þriggja."
„Nú auðvitað," svaraði hann.
„En þú hlýtur þó að geta séð, að eg get ekki komizt af með það,
það sem eftir er mánaðarins.“ ^
Hún hafði ek!ki búizt við því svari, sem hún'fékk. Vanalega var
hann svo greiðvikinn. Þá sjaldan ltana vantaði aukapeninga, hafði
hún varla þurft að þiðja um þá. Hann átti það jafnvel til að gefa
henni tékka upp á fimmtíu til sextíu dali, þegar hún átti þess
minnst von og þá var hann vanur að segja: „Hérna, ljósið mitt,
kauptu þér kjol ef þig langar til.“ En nú varð hann strangur á svip-
inn eins og aldrei áður og sagði: „Heyrðu mig nú, Claudía, það get-
ur nú orðið erfitt."
„Sennilega verður ekki byggt mikið af kirkjum heldur núna,“
sagði Claudia.
„Vertu nú ekki að stríða mér, Davíð. Eg hefi reglulegar áhyggjur
útafþessu."
„Hvaða vitleysa. Við náum einhvern veginn í þessa hundrað dali
sem á vantar. Vertu ekkert óróleg út af því.“
„Hundrað dala seðlarnir vaxa ekki á trjám núna. Hvernig stend-
ur annars á því, að þú hefir ekki nóg?“ Hann tók upp bankaávísana-
bókina enn einu sinni og blaðaði í henni lauslega. Claudía gægðist
(Framhald).
Fokdreifar
(Framhald af 4 .síðu).
göngumiðana fyrir sig. Með því móti
hefir allt skipulag og regla verið hunz-
að og brotið niður á þessum stað og
það á kostnað hinna kurteisari, þolin-
móðari og hógværari í andanum. Eg
þóttist sjá það á þessu — sem mig
hafði að vísu grunað áður — að ráða-
menn þama vilji þó gjarnan fyrir sitt
leyti bæta úr því ófremdarástandi,
sem oft hefir viðgengist á þessum stað.
En þegar fram í myndina kom, varð
eg þess þó glögglega var, að ekki er
enn búið að kippa öllu í liðinn, sem
aflaga hefir farið. Þá hófust fyrir al-
vöru sömu ólætin á húsinu, hávaði,
blístur, köll og alls konar annarlegir
hvinir, sem svo oft áður hafa sett full-
kominn ómenningarbrag á þennan
fjölsótta skemmtistað. Væri nú ekki
ráð fyrir forráðamenn hússins, ef þeir
vilja á annað borð bæta úr þessu sið-
leysi, — sem eg raunar vil ekki draga
í efa — að stöðva algerlega sýningarn-
ar í hvert sinn, er slík ólæti byrja, og
auglýsa það annað hvort x hátalara
eða með lesmáli á myndatjaldinu, að
sýningunni verði ekki haldið áfram,
fyrr en allt sé dottið í dúnalogn?
þegja gull.“ Stundum virðumst við
hafa svo margt að segja, að við meg-
um ekki leyfa okkur að þegja. — Við
borð fyrir aftan mig sátu nokkrar
stúlkur ,sem ekki virtust hafa nokkum
tíma til að hlusta á hljómsveitina. Þær
höfðu svo margt að segja um sjálfar
sig, um einhverjar kápur, um kvik-
mynd, sem ætti að fara að koma, um
sokka, sem einu sinni fengust í
„Braun“ o. s. frv. Vesalingamir, —
þær misstu víst af gullinu!
Annars virðist mér þó, að hljóm-
sveitinni á „Landinu“ hafi tekizt að
kenna fólkinu ofurlítið í þeirri list að
þegja og hlusta. Og í öðru lagi það að
bæta heldur smekk okkar hér á dans-
musík og fá nokkru betri og fegurri
svip á samkvæmi og dansskemmtanir,
þar, sem hún er til staðar. Og vel sé
henni fyrir það. Og hún á það fullkom-
lega skilið að í gleðisalnum ríki
fullkomin þögn meðal áheyranda þeg-
ax af list og einlægni er til þeirra tal-
að — eins og gert var þetta miðviku-
dagskvöld. Sjaldan hefi eg heyrt feg-
urri einleik á fiðlu og saxófón en þá —
og hjá öllum mjög vel leikið. Eg þakka
fyrir mig.“
íþróttabindi
nýkomin,
vönduð tegund
Brynj. Sveinsson h.f.
Sími 580.
ALMENNAR
TRYGGINGAR
H. F.
Hafnarstræti 100-Sími 600
UMBOÐIÐ A AKUREYRI
Stefán /^rnason.
}
Itlilllllllllllliiiiii
11111111111111111111
, Litlu verður Vöggur feginn.“ .
SVEINBJÖRN GAMLI á Bessastöð-
um talar einhvers staðar x Hóm-
ersþýðingum sínum um hina „rósfingr-
xlðu morgungyðju", og munu menn
telja, að vel sé þar að orði komizt.
Rósberg skrautritari mun hafa mátt
kallazt rósfingraður á sína vísu, þegar
hann var að velja andstæðingum sín-
um nöfnin í síðasta „Verkamanni“ og
líkja þeim við „ónefnt dýr“, sem fari
bezt að „leggja niður rófuna“. Þar er
ennfremur orðlengt um „heybrækum-
ar við Dag“, sem kunnir séu að
„bjálfaskap og ósjálfstæði". Fleiri
snilliyrði eru þar viðhöfð, sem lýsa
höfundi sínum vel og eru glögg teg-
undareinkenni á sína vísu, þótt ekki
séu þau kannske öll af hómverskum
toga spunnin! Þegar kemur að efni
þessara stóryr-tu skrifa að öðru leyti,
skal það eitt sagt, að ekki munu aðrir
„atvinnubílstjórar11 en sá einn, sem
stýrir sigurvagni kommúnistablaðsins
hér, hafa tekið þær aðfinnslur „Dags“
til sín, að SUMIR bílstjórar hefðu
sýnt óþarflega litla tilhliðrunarsemi
við fótgangandi fólk í hinum mjóu rás-
um eftir snjóplóginn hér uppi um
brekkurnar. Kunnugt er, að bílastöðv-
arnar hafa yfirleitt verið lokaðar, síð-
an mesta ófærðin varð á götunum,
svo að fáir atvinnubílstjórar munu
þannig af gildum og góðum ástæðum
hafa verið á ferli uppi um brekkurnar
þessa dagana. Margir viðkomandi
Lílstjórar reyndu líka að leggja bílum
sínum þannig, ef þeir þurftu að ganga
frá þeim í þrengslunum, að þeir þver-
girtu ekki fyrir alla umferð gangandi
fólks. En því miður fór því fjarri, að
hægt væri að segja hið sama um þá
alla, og að því var fundið hér í blaðinu,
en öðru ekki. Hinn rósfingraði ritstjóri
„Verkamannsins" ætti hins vegar að
geta farið allra sinna ferða þrátt fyrir
þetta og haldið öllu sínu eðlisbundna
háttalagi. Sigurvagninn er nefnilega
ennþá svo mjór!
| BYLI TIL SOLU
I Býlið Viðarholt á Litla-Árskógssandi fæst til kaups og j
ábúðar í næstkomandi fardögum. Á landinu, sem er í
í 16 'þúsund fermetrar erfðafestuland, er steinhús, 8.3 |
X 5 m, tveggja hæða, með öllum venjulegum þæg- i
indum. Fjós og hlaða er fyrir nokkra gripi. Ef óskað i
er, getur áhöfn f-ylgt. Hagkvæmir greiðsluskilmálar. — i
i Tilboðum sé skilað til undirritaðs fyrir 15. apríl n. k., i
I er jafnfraint gefur allar nánari upplýsingar. i
BJÖRN INGVARSSON, hdl., |
Í ' Kaupangi. — Sími 33. i
~l|IIIÍIIIIIIIMIIIIIIIIII|MIIIIIMMIIIIMIIIIIIIIIIMIMIIIMIIIIIIMIIIIIIMIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIMIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIMIItllllllll|l||M||||||||7
mmmmmmmmimmmmimmmmmmimmmmmmmmmmmmmmimmiiiimmiimmmmiimmimmimmiimiiimiiiiiimimmmimmmmmmmmmmmmm
Tilkynning
frá Tryggingastofnun ríkisins
i Þeir, sem telja sig öðlast rétt til bóta samkvæmt lögum í
Í um almannatryggingar, eru hér með áminntir um að senda \
\ umsóknir tafarlaust, er þeir uppfylla skilyrði til bótanna.
Eftir lok marzmánaðar verður lífeyrir ekki reiknaður \
\ lengra aftur í tímann en frá fyrsita degi þess mánaðar, sem I
I Tryggingastofnunin eða umboðsmaður hennar fær umsókn- f
| ina’, nema alveg sérstaklega standi á. \
\ Reykjavík, 14. marz 1947. |
Tryggingastofnun ríkisins. |
Í|IIIMIIMIIIIIIIIIIIIIMIIMIIIIIIIIMMIIMIMIIIMIIIIIIIIIIMIIIMIMIIIIMMIIMIIIIIIMIIIIIIIMIIIIIMIIIIIIIIIIIIIIIIIMIIIIIIIII|IIIIIIMIIMIIM*
Góðir hljómleikar.
J. J. skrifar 8. þ. m.:
SÍÐASTL. miðvikudagskvöld lenti
eg á „Landinu" (Hótel Norður-
landi) með kunningjum, mér til mik-
illar ánægju. Sú nýbreytni er þar á
boðstólum það kvöld vikunnar, að
hljómsveitin spilar klassisk verk og
vinsæl lög kl. 9—10.30, en fólkið sit-
ur við sín kaffiborð og hlustar — eða
masar. Það síðasta getur þó varla tal-
izt til nýbreytni —mas og skvaldur —
það er ein af þjóðar vorrar sterkustu
hliðum nú! En þessum hljómleikum á
„Landinu" á miðvikudagskvöldum,
mættu bæjarbúar gjarna veita athygli,
— bæði með því að sækja þá öðru
hverju og að njóta þeirra í þögn og
næði, er á staðinn kemur. En síðan
þau merkilegu og vafasömu umskipti
urðu hjá okkur, að ungir og gamlir
fengu fé í hendur, heyrum við sjaldnar
og gleymum frekar spakmælum, eins
og t. d. þessu: „Að tala er silfur, en að
I Nýjung!
Nýkomið úrval af fyrirferðar- j
litlum REGNHLÍFUM.
j Kaupfélag Eyfirðinga j
f Vefnaðarvörudeild.
z 5
"itiiiiiitmiiiHiiiiiiiiiiitiiiMiiHiiiiiiiiiiiiiiiitiiMiiiiiiiimiiiiiiiiitiiiiiiimiiiiiiiiiiiimtiiiiiitiiiiiiiiiiiiiiiiitiiiiiiiiiiiitiiiiiiiiiii;