Dagur - 07.05.1947, Blaðsíða 1
Glæsilegir hljóm-
leikar Guðmundar
Jónssonar
Hinn glæsi'legi barytonsöngv-
ari, Guðmundur Jónsson, hafði
þrjár söngskemmtanir hér í sl.
viku. Fritz Weisshappel aðstoð-
aði. Fyrstu hljómleikarnir voru á
vegum Tónlistarfélags Akureyr-
ar og var húsið þéttskipað. —
Söngvaranum var ágætlega fagn-
að og var hann óspart hylltur. —
Guðmundur söng að þessu sinni
lög eftir innlend tónskáld — þar
á meðal nýtt, fagurt lag eftir
Björgvin Guðmundsson, „Löng
er nóttin“ — aríur úr Faust og
Pagliacci og loksiögeftir Ric-
hard Strauss, Réne og Huhn.
Sérstaka hrifning vöktu óperu-
lögin. Var flutningur þeirra með
sfbrigðum glæsilegur.
Guðmundur Jónsson er tví-
mælalaust í hópi beztu söngvara,
sejn hér hafa kornið fram. Er hon-
um spáð glæsilegri framtíð.
Bílstjórar samþykkja
vinnustöðvim 12. maí
Við atkvæðagreiðslu í Bíl-
stjórafélagi Akureyrar var sam-
þvkkt með 75 atkv. gegn 12 að
hefja vinnustöðvun 12. maí n.k.,
ef ekki takast áður samningar við
atvinnurekendur. Deila þessi
stendur einvörðungu um kaup
og kjör bílstjóra í félaginu og
stendur hækkun ökutaxta ekki
fyrir dyrum, sbr. athugasemd frá
formanni Bílstjórafélagsins, sem
birt er annars staðar í blaðinu.
Maður ákærður fyrir að
hafa svívirt stúlkubarn
Síðastl. laugardag var maður
nokkur hér í bænum tekinn fyrir
rétt, ákærður um að hafa svívirt
stúlkubarn þá um daginn.. Við
rannsókn málsins hefir komið í
ljós, að maðurinn fór höndum
um bamið, að því er lögreglan
tjáir blaðinu, en misþyrmdi því
ekki að öðru leyti. Dómur hefir
ekki fallið ennþá, og mun talið
nauðsynlegt að sérfræðingur
rannsaki sálarástands mannsins
áður en málið verður tekið til
dóms.
Mikíl andspyrna
gegn verkfallshótun
kommúnista
Hvaðanæva berast fregnir um
mikla andspyrnu ábyrgra verka-
manna gegn kröfum kommúnista
um hækkað kaup og aukna dýr-
tíð á þessum tímum, þegar öll
framleiðslan á í vök að verjast
vegna verðbólgunnar og bátaút-
gerðinni er haldið uppi með rík-
isábyrgðum. — í Dagsbrún í
Reykjavik fengu kommúnistar
að vísu samþykkt, að segja skyldi
upp samningum við atvinnurek-
endur, frá 1. júní næstk., en
mættu mjög öflugri andspyrnu.
Hlaut tillaga kommúnista 937
atkv., en 770 voru á móti. í félag-
inu- eru 3200 verkamenn og þar
sem venjan er, að kommúnistar
halda sínu fólki bezt að slíkum
atkvæðagreiðslum, má búast við
að meirihluti Dagsbrúnarmanna
sé andvígur verkfalli nú.
AÐALFUNDUR KAUPFÉLAGS EYFIRÐINGA:
Lagt til aS úlhlulað verSi 8% arSi til lélagsmanna
Fluttu „Strengleika“ í gærkveldi
Myndin er af Kantötukór Akureyrar og söngvurum úr
Karlakór Akureyrar, er futtu óratorióverk Björgvins Guð-
mundssonar, „Strengleika“, í Akureyrarkirku i gœrkveldi,
undir stjórn tónskáldsins. Þessara merkilegu hljómleika
verður nánar getið i blaðinu síðar.
LAUGALANDSSKÓLA SLITIÐ
Skólinn þegar fullskipaður fyrir næsta vetur
Laugalandsskóla var sagt upp
sumardag fyrsta sl. að aflokinni
guðsþjónustu, er sóknarprestur
frntti. Nokkrir gestir voru við-
staddir athöfnina. Frk. Lena
FJallgrímsdóttir, sem gegnt hefir
forstöðukonustörfum í vetur,
meðan frk. Svanhvít Friðriksdótt-
ii hefir dvalið á Norðurlöndum,
að kynna sér starfsemi húsmæðra-
skóla, gat þess í skólaslitaræðu
sinni, að heilsufar hefði yfirleitt
verið gott í skólanum, ástundan
námsmeyja góð og starfið gengið
t-ðóskum. N ámsmeyjarhöfðu haft
sýningu á handavinnu sunnudag-
inn 20. apríl og var hún sótt af
fjölda manns frá Akureyri og ná-
grenni. 32 námsmeyjar stunduðu
nám í skólanum í vetur, auk
tveggja í framhaldsnámi, og luku
þær allar prófi, nema ein, sem
reiktist skömmu áður en próf
byrjuðu. Fæðiskostnaður varð kr.
7.30 á dag.
Þessar námsmeyjar luku próf-
Magdalena Hallsd., Siglufirði, 8.23
Margrét Baldvinsd., Hjalteyri, 8.00
Margrét Jóhannsd., Ólafsfirði, 8.35
Margrét Pétursd., Reykjavík, 8.63
Margrét Sigurjónsd., Hafnarfirði, 8.39
María Ásgrímsd., Hálsi, Eyf., 7.71
Matthildur Guðbrandsd., , Heydalsá
Strandas., 8.46
Oddný Jónsd., Yzta-Hvammi, S.-Þing.,
7.13
Ölafía lónsdóttir, Suðurevri, Súeanda-
firði, 7.69
Sesselja Kristinsdóttir, Keflavlk, 8.00
Sigríður Arnórsd., Húsavík, 8.75
Sigríður Jensd., Núpi, Dýraf., 8.86
Sigrún Gunnarsd., Reyðarf., 8.92
Vigdís Guðbr.d., Heydalsá, Str., 7.81
Þorgerður Kolbeinsd. Stóra-Asi, Borg.,
8.57
Þóra Sæmundsdóttir, Akureyri, 7.56
Matreiðslunámskeið hefst bráð-
lega í skólanum. Er hann þegar
fullskipaður fyrir næsta vetur og
varð að vísa fjölda mörgum frá.
Ráðgerð er allmikil stækkun á
skólanum á þessu sumri og er bú-
izt við að bráðlega verði hafizt
handa um framkvæmdir.
tnu:
Aðalheiður Gunnarsd., Reyðarf., 8.67
Ásdís Einarsd., Saurbæ, Langan., 7.31
Dýrleif Jónsd., Drangsnesi, Str.. 8.76
Erna Kristjánsd., Klængshóli, Eyf., 8.84
Eva Kristjánsd., Klængshóli, Eyf., 8.44
Erlða Kjærnested, Reykjavík, 8.15
Guðný Hólmgeirsd., Húsavík, 8.84
Guðrún Ingólfsd., Hnífsdal, 8.24
Halldóra Jónsd., Grýtu, Eyf., 7.79
Helga Friðgeirsd., Raufarhöfn, 8.40
Helga Kristjánsd., Þingeyri, Dýr.f., 8.00
Ingibjörg Kristjánsd., Hafnarfirði, 8.38
Jenný Haraldsd., Seyðisfirði, 7.13
Jóhanna Aaðlsteinsd., Vaðbrekku, Jök-
uldal, 8.84
Laufey Bjarnad., Eystri-Dalbæ,
Skapt.
Odæðisverk framin
í Reykjavík
Síðastl. laugardagskvöld gerð-
ist sá hryllilegi atburður í
Reykjavík, að geggjaður maður
réðist á konu og börn hennar tvö,
særði annað barnið til ólífis með
hníf og veitti hinu barninu og
rnóðurinni mikla áverka. Maður
þessi heitir Ingólfur Guðmunds-
son, hefir dvalið á Kleppi, en var
talinn heill orðinn. Hann hefir
V.-
8.54 játað verkið og bíður nú dóms.
Verzlun KEA jóksf enn á síðasfLári
Félagsmenn hafa bætt hag sinn gagnvart
félaginu um tæpar 2 milljónir króna
Stofnsjóður nemur nú rösklega 3 milljónum króna
Aðalfundur Kaupfélags Eyfirðinga hefst í Nýja-Bíó hér í bænum
kl. 10 f. h. í dag og mun honum ljúka síðari hluta dags á morgun. Á
fundinum eiga sæti 226 fulltrúar frá 23 félagsdeildum, og eru flestir
þeirra þegar komnir í bæinn. Er btiizt við góðri fundarsókn úr öll-
um deildum þrátt fyrir erfiðar samgöngur.
Félagið hefir látið prenta
glögga ársskýrslu um starfsemina
eins og lundanfarin ár of verður
henni útbýtt meðal fulltrúa í
dag, en síðar verður hún send öl-l-
um félagsmönnum. Samkvæmt
yfirliti framkvæmdastjórans, Jak-
obs F'rímannssonar og stjórnar fé-
lagsins, sem birt er í skýrslunni,
hefir verzlun félagsins enn auk-
izt á þessu ári og var meiri en
nokkru sinni fyrr á árinu 1946.
Framkvæmdir félagsins voru fjöl-
þættar og hagur þess góður. I
skýrslu framkvæmdastjórans seg-
ir m. a. svo:
Verzhin og iðnaður.
„Vörusala ársins 1946 varð mun
meiri en fyrirfarandi ár. Voru
það aðallega byggingarvörudeild-
in og véla- og varahlutadeildin,
sem juku sölu sína, en sala í vefn-
aðarvörudeild minnkaði á árinu.
Járn- og glervörudeild og ný-
lenduvörudeild stóðu nokkum
veginn í stað. Kjötbúðin jók sölu
sína að talsverðum mun, og
sömu'leiðis hefir sala lyfjabúðar-
innar aldrei verið meiri. Kol- og
saltsala nam svipaðri upphæð og
síðastliðið ár. Sömuleiðis var sala
í miðstöðvar- og hreinlætistækj-
um svipuð og árið áður.
Verksmiðjurnar höfðu við
rnikla örðugleika að etja með út-
vegun hráefna. Þó varð sápuverk-
smiðjan þar einna harðast úti, og
varð hún að hætta framleiðslu á
fjölda vörutegunda vegna hrá-
einaskorts. Hvað eftir annað lá
við borð að smjörlíkisverksmiðj-
an 'stöðvaðist vegna vöntunar á
olíum en úr því rættist þó þann-
ig, að ekki kom til neinna veru-
legra stöðvana.
Kaffibætisverksmiðjan, sem
ekkert hefir unnið undanfarin 2
ár, náði nú aftur í hráefni til
sinnar framleiðslu, og hefir verk-
smiðjan nú nægilegt efni fyrst
um sinn.
Annar iðnaður félagsins hefir
nokkurn veginn haldizt í horf-
inu. Einni nýrri iðngrein var
bætt við á árinu, sem sé gúmmí-
viðgerðarverkstæðinu, sem starf-
tækt hefir verið síðan í fyrravor
með góðum árangri.
Framleiðsla landbúnaðarins
var að magni nokkru meiri en ár-
ið áður. Mjólkurframleiðslan
jókst talsvert, og slátrað var með
mesta móti sökum niðurskurðar
af völdum mæðiveikinnar.
Verðmæti sjávarafurða þeirra,
sem félagið hafði til sölumeðferð-
ar, reyndist minna en árið 1946.
Sérstaklega minnkaði útflutning-
ur ísfiskjar stórkostlega, en aftur
á móti jókst framleiðsla hrað-
frysti-fiskjar nok'kuð. AUs nam
útflutningsverðmæti sjávaraf-
urðu um 3 millj. króna.“
Samkvæmt yfirditi fram-
kvæmdastjórans hefir hagur fé-
■lagsmanna gagnvart félaginu enn
batnað á árinu sem leið. Voru
innstæður þeirra umfram skuldir
kr. 17.404.728.00 í árslok og er
það kr. 1.843.949.00 hærri upp-
liæð en í árslok 1945. Ástæður fé-
lagsins út á við hafa breytzt þann-
íg, að inneignir þess hjá SÍS og
bönkum, peningar og trygg
verðbréf nema nú samtals kr.
11.983.213.00, en voru kr.
10.189.240.00 íárslok 1945.
Stofnsjóður félagsmanna nem-
ur rösklega 3 millj. króna og hef-
ir hann hækkað um 280 þúsund
kr. á árinu. Innstæður í innláns-
deild félagsins nema nú tæplega
9^2 millj. króna og hafa hækkað
um tæplega 1 millj. króna á ár-
inu.
Flelztu iframkvæmdir.
Á meðal framkvæmda félagsins
á liðnu ári eru þessar taldar í
skýrslu stjórnarinnar:
Keyptur meirihluti hliutafjár í
vélaverkstæðinu Odda h.f. Hafin
bygging nýrrar smjörlíkisverk-
smiðju og keyptar vélar til henn-
ar. Er fyrirhugað að nota gamla
verksmiðjuhúsið fyrir efna- og
sælgætisgerð framvegts. Sam-
þykkt að láta gera frystihólf í
frystihúsinu í Dalvík til afnota
fyrir félagsmenn þar. Ákveðið að
stækka hraðfrystihúsið í Hrísey.
Samþykkt, að félagið greiði 40%
af þeim hluta, er bændum er
skylt að greiða í Eyjafjarðarsýslu
vegna snjómoksturs með vélýt-
um, en 20% af Svalbarðsstrand-
arvegi að Fnjóská. Sæðingarstöð
SNE að Gírsabóli styrkt með 24
þús. kr. framlagi af ágóða af sölu
setuliðseigna.
(Framhald á 8. síðu).