Dagur - 04.06.1947, Page 8
*
▼
DAGUR
Miðvikudagur 4. júní 1947
I
Jarðarför sonar okkar, bróður og unnusta,
Stefáns Sigurðssonar,
deildarstjóra,
fer fram frá Akureyrarkirkju föstudaginn 6. þ. m., kl. 1.00 e. h.
Vandamenn.
Jarðarför
Sigurrósar Stefánsdóttur
frá Skógum á Þelamörk, fer fram að Möðruvöllum í Hörgár-
dal fimmtudaginn 12. júní n. k., og hefst kl. 2 e. h.
Aðstandendur.
Jarðarför elsku litlu dóttur okkar,
Júlíönu Þórhildar,
og litla drengsins hennar,
Árna Jónssonar,
er fórust í flugslysi 29. maí, fer fram frá Akureyrarkirkju
föstudaginn 6. júní n. k., kl. 1 e. h.
Fyrir okkar hönd og annara aðstandenda,
Þóra Sigurðadóttir,
Arnór Björnsson, Upsum.
STEFÁN STEFÁNSSON frá Samtúni andaðist ínánu
daginn 2. júní á elliheimilinu í Skjaldarvík. Jarðarförin cr
ákveðin miðvikudaginn 11. júní k!l. 1.30 e. h. og hefst með
húskveðju frá elliheimilinu. Jarðað verður að Glæsibæ.
F. h. aðstandenda.
Stefán Jónsson.
.............
| TILKYNNING
Að gefnu tilefni tilkynnist hér með, að vegna innflutn- |
ingserfiðleika á efnivörum og umbúðum — svo og í i
samræmi við almennar verzlunarvenjur — seljum við f
EGILS ÖL og GOSDRYKKI
eingöngu til veitingahúsa, kaupmanna og kaupfé- j
laga, sem með þessar vörur verzla.
Neytendur eru því vinsamlega beðnir að snúa sér til |
þessara aðila, hvort sem um er að ræða kaup í heilum i
| kössum eða minna.
E 2
Ölgerðin Egill Skallagrímsson h/f [
| Akureyrarumboðið: "
I. Brynjólfsson & Kvaran
.................................iiimmmm..
Úr bæ og byggð
Hjúskapur. Sunnudaginn 1. júní
voru gefin saman í hjónaband á
Mö.ðiuvöllum í Hörgárdal ungfrú
Emelía Sigurðatdóttir, verzlunarmaer
hjá KEA, og Steindór Jónsson, skip-
stjóri á „Drang“, ennfremur ungfrú
Svanhildur Þóroddsdóttir, Dagverðar-
eyri, og Vilhjálmur Þorsteinsson,
stýrimaður á „Snæfelli'1.
Hjónabönd. Síðastl. laugardag voru
gefin saman í hjónabard af séra Pétri
Sigurgeirssyni: Ungfrú Guðlaug Elín
Hallgrimsdóttir og Haraldur Tryggva-
son, Svertingsstöðum, Öngulsstaðahr.
Ennfremur ungfrú Hulda Jónsdóttir
og Pétur Hallgrimsson, fulltrúi hjá
bæjarstjóra, Aðaltsræti 19.
Flugvélin fórst rétt fyrir kl. 1
(Framhald af 1. síðu).
■legt hafa nppgötvast. Á slysstaðn-
um fannst þó úr, sem hafði stöðv-
ast tólf mínútur fyrir eitt. Er lík-
legt, að þá hafi slysið orðið. Leil-
ar farangurs og pósts hafa verið
fluttar burt af slysstaðnum og
mun það lítið heillegt.
48 námsmeyjar luku
námi í Húsmæðra-
skólanum
Húsmæðraskóla Akurevrar var
slitið sl. laugardag. Luku 48
námsmeyjar námi þar og hlaut
Helga Guðmundsdóttir, Hafnar-
firði, hæstu einkunn að jies.su ^
sinni, eða 1. ág. einkunn. Handa-
vinnusýning skólans stóð yfir fi i
fimmtudagskvöldi til föstudags-
kvölds. Kl. 6 sd. á fimmtudag
bauð forstöðukona skólans, frú
Helga Kristjánsdóttir, skóla-
nefnd, prófdómurum, blaða-
mönnum og fréttariturum að
skoða sýninguna, sem bar vo*t
nm mikla elju og ástundun nem-
enda og færni og alúð kennara.
Er getið um sýninguna annars
staðar í blaðinu.
Á sunnudaginn fóru kennarar
og námsmeyjar í skemmtiferð úl
Mývatnssveitar.
Furðuleg úthlutun
listamannalauna
Styrkur til Björgvins Guð-
mundssonar felldur niður
Nefnd sú, er hefir með hönd-
um skiptingu fjár þess, er veitt er
á fjárlögum til skálda og lista-
manna, hefir nú birt úthlutunar-
lista sinn fyrir þetta ár. Það hefir
einkum vakið athygli hér, að
styrkur til Björgvins Guðmunds-
sonar tónskálds er felldur niður.
Er hans hvergi getið í skránni.
Má þetta furðulegt kallast.
Björgvin Guðmundsson er í hópi
fremstu listamanna þjóðarinnar.
Lög hans eru sungin um landið
þvert og endilangt, frá 'hars
hendi eru nýlega komin út merk
scinglagasöfn, og fyrir skemmstu
var þess minnst í blöðum, að
liann hefði stjórnað uppfærslu
óratóríóverksins Strengleika, við
mikinn orðstír.
I ljósi þessara staðreynda verð-
ur úthlutun nefndarinnar hið
hróplegasta ranglæti. Þá hefir
nefndin einnig fellt niður styrk
til Guðmundar Frímann skálds.
Er það einnig óréttlátt og óverð-
skuldað. Á það er rétt að benda,
Lítið silfurarmband
Ivefur tapazt. — Skilist gegn
góðum fundarlaunum á af-
greiðslu blaðsins.
Speglar
margar stærðir,
nýkomnir
Byggingavöruvcrzlun
Akureyrar h.f.
HÚSNÆÐI
íbúð óskast fyrir barnlaus
lijón fyrir 1. október. Árs fyrir
framgreiðsla ef óskað er. Þeir,
sem vildu sinna þessu, leggi
tifboðsitt inn á skrifstofu Dags
fyrir 15. júní n. k., merkt Íbúð
100.
Kaupfélag Yerkamanna
seldi vörur fyrir rösklega
1 millj. kr. síðastl. ár
Félagið heiðrar Erling
Friðjónsson
Aðalfundi Kaupfélags Verka-
manna hér á Akureyri er nýlega
lokið. Fundinn sátu 24 fulltrú-
Reikningar sýndu. að félagið
hafði selt vörur fyrir rösklega 1
millj. króna á árinu 1946 og er
það 140 þúsund kiónum hærri
upphæð en árið á undan. Inn-
stæður sameignarsjóða nema kr.
156.496.00. Eignir félagsins'
nema alls kr. 466.170.00.
Samþykkt var að auka við
geymslupláss verzlananna og
breyta matvörúbúð félagsins, en
nýbyggingum er frestað meðan
núverandi dýrtíð í byggingariðn-
aðinum helzt.
I>á samþykkti fundurinn að
verja nokkurri fjárhæð til jiess
að heiðra Erling Friðjónsson,
í tilefni af 70 ára afmæli hans 7.
febrúar síðastliðinn.
Fulltrúi á aðalfund SÍF. er Er-
lingur Friðjónssop. og til vira
Heiðrekur Guðmundsson.
Verkamenn mótmæla
verkfallsbröltinu
Tvö verkalýðsfélög hafa nýlega
neitað að verða við áskorun Al-
þýðusambandsstjórnarinnar um
að segja upp kaupsamningum.
Eru þetta verkalýðsfélögin á
Akranesi og í Ólafsfirði.
Eru þá verkalýðsfélögin orðin
átta, sem hafa tekið þessa af-
stöðu.
að Reykvíkingar einir áttu sæti i
nefndinni og mun þar e. t. v. að
finna ástæðuna fyrir þessari ráðs-
mennsku.
Hef opnað
vinnustofu mína í Strand-
götu 1, 2. hæð.
Björgvin Friðriksson,
klæðskeri.
Sími 596.
Tveir stórir bílar
Austin, nýr, og G. M. C.,
módel 1940, með vélsturt-
urn. — Upplýsingar gefur.
Þorvaldur Jónsson,
Lækjargötu 6.
Sími 138.
Skápgrammofónn
góður, er til sölu. — A. v. á.
TILKYNNING
Það tilkynnist hér með, að
vegna flutninga inn í bæ, verð
eg að hætta Jiví fyrirkomulagi,
sem eg lief liaft á sölu þeirra
eggja, er eg framleiði á búi
mínu.
Framvegis sel eg öll mín egg
Fiskibúðinni, Strandgötu 6, og
geta þeir, sem verið liafa fastir
kaupendur hjá mér, fengið eggin
þar eftirleiðis. — Eggin verða
stimpluð.
Bjarni F. Finnbogason.
||11111111111111111111111111111111111111111111in111111111111111111111111n»
r j
Urval
af góðuni varningi: [
Matvörur:
Kornvörur
Kaffi
Sykur
Kakaó — Te
Kartöflumjöl
Rúsínur
Kryddvörur margsk. [
Kex
Hrökkbrauð
Gerduft
Búðingar
Matarlím
Hænsnafóður
N iðursuðuvörur:
Kjöt — Kæfa — Svið §
Kjötbúðingur
Fiskibollur
Fiskbúðingur
Rækjur
Gaffalbitar
Grænmefi
Baunir
Jarðarberjasulta.
Ribsberjasulta
Sveskjusulta
Eplasulta
Blönduð sulta
Baulumjólk
Þurrmjólk, dönsk
Þurrkað grænmeti
Grapefruit Juice
Ö1 og Gosdrykkir
Hreinlætisvörur:
Vim — Lye sódi
Gólf- og bílabón
Húsgagnagljái
Skóáburður
Hárvötn og Ilmvötn [
Desinfector
D.D.T. skordýraeitur I
og sprautur
Burstavörur, margsk.
Hárkambar
Greiður
Rakvélar og Rakblöð j
Vasahnífar I
Skeiðahnífar
Skæri [
Borðhnífar
Skeiðar
Gafflar
Prímusar f
Olíuvélar
Búsáhöld margskonar
Vinnufatnaður U
Sjóklæðnaður
Vinnuvettlingar |
Ullarteppi
Tjöld
Svefnpokar
Bakpokar
Gólfmottur f
Gólfdreglar
Gúmmímottur í bíla i
Gólfklútar
Handklæði
Þurrkur og ótal m. fl. j
: Verð og gæði viðurkennt I
j ot—ii I
IVÖRUHÚSIÐ h/f |
*i 11111111111111111111111 iii iiiiiiiiiiMiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiniiiiimf