Dagur - 23.07.1947, Blaðsíða 1
GUR
XXX. árg.
Akureyri, miðvikudaginn 23. júlí 1947
28. tbl.
Ölafur ríkisarfi Norðmanna heimsækir Akureyri í dag
Situr veizlu bæjarráðsins liér í kvöld
Snorrahátíðin í Reykholti var vegleg minningarhá-
tíð tveggja frændþjóða um hinn fræga sagnaritara
og ritsnilling
Kosningasigur Framsókn-
arflokksins í Vestur-
Skaftafellssýslu
Kjördæmið unnið úrhönd-
um Sjálfstæðisflokksins
Um fyrri helgi fór fram auka-
kosning til Alþingis í Vestur-
Skaftafellssýslu, vegna brottfar-
ar Gísla Sveinssonar sýslumanns
úr héraðinu, en hann helir nú
tekið við hinu nýja sendiherra-
embætti í Oslo. Urðu úrslit þau,
að frambjóðandi Framsóknar-
flokksins, Jón Gíslason ftóndi,
var kjörinn með 391 atkvæði.
Frambjóðandi Sjálfstæðisflokks-
ins, Jón Kjartansson ritstjóri, er
nýskeð hafði verið dubbaður
ujjp í sæti Gísla Sveinssonar sem
sýslumaður í héraðinu, hlaut
385 atkv., og munu flokksmenn
hans þó yfirleitt hafa talið kosn-
ingu hans vissa, þar sem Sjálf-
stæðið hafði við síðustu kosn-
ingar haldið þingsætinu með
glæsilegum meirihluta, eða 145
atkv. Runólfur Sveinsson, frarn-
bjóðandi Sósíalistafl. hlaut 47
atkv., en frambjóðandi Alþýðu-
11., Arngrímur Kristjánsson
skólastj., hlaut 8 atkv.
Við síðustu kosningar hlaut
Gísli Sveinsson (S.) 425 atkv., en
Hilmar Stefánsson (F.) 280 atkv.
Kommúnistar fengu þá 78, en
Alþýðufl. 26 atkv.
Jarðsími lagður um bæinn
Sjálfvirka miðstöðin væntanleg
á næsta ári.
Undanfarnar vikur hefir verið
mikið umrót á götunum í hin-
um nýrri hverfum bæjarins. Hef-
irstór hópur manna unniðað
J)ví að grafa ]>ar skurði og koma
fyrir jarðstrengjum fyrir sínra-
kerfið, j)ar sem slíkar línur voru
ekki áðttr. Mun það verk standa
yfir fram á haust, en mun þá
væntanlega að mestu lokið.
Langflestir starfsmenn símans
\ið þessar framkvæmdir eru að-
komumenn í bænum, og búa
þeir í sumar í stórri tjaldborg,
sem reist hefir verið á túnunum
( ofan við Menntaskólann, vestan
Þórunnarstrætis. — Það er fagn-
aðarefni fyrir bæjarbúa að losna
við staura^ia og línufjöldann sem
fylgir ofanjarðarsímanum,, af
götum og gatnamótum, og þá
ekki síður, að ráðamenn land-
símaris hafa látið það uppi, að
sjálfvirka bæjarmiðstöðin sé
væntanleg á næsta ári, þótt sú
framkvæmd sé á hinn bóginn
ekki vonum fyrr á ferðinni hér í
bænum. H
En í sambandi viðskurðagröft-
inn og umrótið á götunum vegria
jarðsímans, — sem að vísu mun
aðeins stundarfyrirbrigði — rifj-
ast það óþægilega upp fyrir
möhnum í hversu ömurlegu og
raunar'óþolandi ástandi götur
bæjarins eru víðast hvar að öðru
leyti. Má heita, að margar aðal-
göturnar — hvað þá aðrar — séu
næstum ófærar venjulegum öku-
tækjtim án yfirvofandi stór-
skemmda og slysahættu, sökurn
Jress hversu stórhólóttar þær eru
í aðra röndina, en stórgötóttar í
hiria. Er þar vissulega um aðkall-
andi verkefni að ræða fyrir 'verk-
fræðingalið bæjarins, af æðri og
lægri gráðum.
Nokkuð á annað þús. að-
komumenn skráðu nöfn
siín í gestabók Akureyrar-
kirkju fyrsta hálfa mánuð-
nn, sem kirkjan hefir verið
opin almenningi utan
venjulegs guðsþjónustu-
tima
Sú nýbreytni hefir verið tekin
ujjjt nú í sumar, að Akureyrar-
kirkja er nú ojrin almenningi
alla daga. Organleikari kirkj-
unnar, Björgvin Guðmundsson
tónskáld, hefir leikið á kirkju-
^iljóðfærið kl. 6—7 síðdegis og
einnig oft á morgnana. Hefir
mátt heyra víðs vegar um bæinn
fagra örgantóna, er útvarpað hef-
ir verið gegnum hátalara í turni
kirkjunnar. Þá hafa þeir kirkju-
vörðurinn Kristján Sigurðsson
og Jón Þorsteinsson kennari leið-
beint fólki, er kornið hefir til að
skoða kirkjuna, sýnt þeim bygg-
inguna og kirkjugripi forna og
nýja. — Þessi nýlunda hefir orðið
ærlega vinsæl og rómar að-
komufólkið fegurð kirkjunnar
og ])á ekki síður organleik Björg-
vins tónskálds, og hina smekk-
legu. og hóflegu beitingu hans á
hinu vandaða og sérstæða hljóð-
færi kirkjunnar.*
ýkipsskaðar í þokuveðrinu
á mánuclag og í fyrrinótt.
Dimm þoka grúfði yfir mið-
um og siglingaleiðum hér norð-
anlands á mánudag og í fyrri-
nótt. Mun hún hafa valdið
verulegum truflunum á síldveið-
unum og ennfremur tilfinnan-
legum skipsköðum. Síldveiði-
skipið Brís héðan tir bænum
strandaði við Vojmafjörð. Þá er
ennfremur vitað með vissu, að
síldveiðiskipið Hvítá frá Borgar-
nesi strandaði, og ennfremur
norskt flutningaskip við Bjarg>
tanga, en náðist þó út aftur inn-
an skamms. Þá hefir og heyrzt að
fleiri síldarskip rnuni hafa
strandað, en þegar blaðið fór í
pressuna, voru nánari fréttir af
þessum viðburðum ókomnar.
Ekki var þá talið, að neinir
mannskaðar hefðti orðið í þessu
ilefni.
Góðir gestir í bænum
Dr. Árni Helgason verksmiðju-
eigandi í Chicago, frú hans, dótt-
ir og mágkona, eru sem stendur
stödd hér í bænum og búa á Hó-
tel KEA. Munu þau dvelja hér
'ram yfir næstu helgi, að því
undanskildu, að þau hafa í
hyggju að skrejrjra í skyndiferð
austur í Þingeyjarsýslur. Þau
hjónin eru í hópi hinna merk-
ustii Vestur-íslendinga og ávallt
miklir aufúsugestir hér heima. —
Dagur bíður hann og fjölskyldu
hans velkomna til Akureyran
Jmdeiklur forustumaður
Enn á John Lewis, forustumaður kola-
námumanna í Bandaríkjunum, í stríði
við námueigendur og stjórn landsins.
Kolanámume»n hóta enn verkfalli
«-
Krossanesverksmiðjan er
nú tilbúin til að taka á
móti síld til vinnslu
19 skip frá Akureyri á síld-
veiðum í sumar.
Þrátt fyrir tafir af völdum
verkfallsins á hinum stórfelldu
umbótum, er farið hafa frarn og
standa enn yfir á síldarverk-
smiðjunni í Krossanesi, mun
verksntiðjan nú tilbúin að taka á
móti síld til vinnslu, strax og
hún berst hér að landi. Dauft
hefir hins vegar verið yfir síld-
veiðunum hér á næstu miðum
síðustu dagana, svo að í gær hafði
engin síld borizt að landi í
Krossanesi. Hins vegar horfir
vænlegar nreð xeiðina á norð
austurmiðunum eins ' og sakir
itanda, og mun Raufarhafnar-
verksntiðja þegar tekin til starfa.
Fleiri skijr eru nú gerð út ti!
úldveiða héðan frá Akureyri en
nokkru sinni áður, eða a. m. k.
19, þar af sum stór og vel útbúin.
Landbúnaðarsýiiiri"mini
er nú lokið
Yfir 60 þúsund skoðuðu
sýninguna.
Hinni miklu landbúnaðarsýn-
ingu, er opin hefir verið í
Reykjavík undanfarnar viknr,
var lokið fyrra þriðjudagskvöld.
Yfir 60 þús. tnanna höfðu þá
skoðað sýninguna, og mun slíkur
fjöldi sýningargesta algert eins-
dæmi hér á landi, enda var sýn-
ingin öll miklu stórkostlegri og
athyglisverðari en nokkur sýn-
ing, sem áður hefir verið haldin
á íslandi.
Snorrahátíðin í Reykholti á
sunnudaginn var reyndist — svo
scm vænta mátti — vegleg þjóð-
hátíð og 'verðug minningarat-
höfn um höfuðsnifling íslenzku
þjóðarinnar á sviði sagnaritunar
jg ritlistar. ÖUu því þýðingar-
.nesta, er þar fór fram, var að
jálfsögðu útvarpað, og má ætlla,
ið Jjorri landsmanna hafi fylgzt
með Jjví, er ]>ar gerðist, svo að
ójjarft sé að rekja hin mörgu dag-
skiáratriði nákvæmlega hér.
Höfuðviðburður dagsins var
auðvitað afhjúpun Snorrastytt-
unnar sjállfrar, hins glæsillega
listaverks Vigelands, mynd-
höggvarans fræga, og fram-
kvæmdi Ólafur krónprins Norð-
manna afhjúpunina og afhenti
fyrir hönd norsku þjóðarinn&r
íslendingum hina veglegu gjöf
með vel völdum ávarpsorðum og
flutti ísHenzku þjóðinni bróður-
legar kveðjur írændþjóðarinnar
í austri, en forsætisráðherra,
Stefán Jóhann Stefánsson, Jjakk-
iði hina mikilsverðu og vinsam-
legu gjöf fyrir hönd Islendinga.
-\f öðmm dagskráratriðum mun
mönnum ekki sízt minnisstæð
hin snj'alla ræða formanns ís-
lenzku Snorranefndarinnar, Jón-
Minnisvarði norskra lier-
manna afhjúpaður í Foss-
vogskirkjugarði
Síðastliðinn mánudag afhjúp-
.ði Ólafur krónjnins veglegan
ninnisvarða í Fossvogskirkju-
>;arði, sem reistur hefir verið þar
il minningar um norska her
menn, er létu líf sitt hér á landi
i styrjaldarárunum, en a 11
tnunu það hafa verið 35 Norð'
menn, sem ekki áttu héðan aftur-
kvæmt. Frú Gerd Grieg átti
frumkvæðið að sjóðstofnun í
þessu skyni. \7ið þetta hátíðlega
tækifæri söng karlakórinn Fóst
bræður kvæði eftir Davíð Stef-
ánsson við lag eftir dr. Pál Isólfs-
son, og er hvort tveggja lagið og
jóðið, samið fyrir þetta tæki-
færi. Sigurður Nordal prófessoi
flutti ræðu, en við messugerð í
Dómkirkjurini, er lialdin var af
þessu tilefni, jnédikaði norski
dómprófasturinn Sigurd Fjær,
en séra Bjarni Jónsson vígslu-
biskttp þjónaði fyrir altari. Öll
var athöfn þessi hin hátíðlegasta.
asar Jónssonar lyrrverandi ráð-
herra, og hin ágæta ræða varafor-
manns norsku neíndarinnar,
prófessors Haakon Sheteligs. —
Gífurlegur mannfjöldi var sam-
ankominn í Reykholti Jjennan
dag, enda réðist veðrið miklum
mun betur en áhorfðist.
Aðalþýðing Snorrahátíðarinn-
ar er |>ó þrátt fyrir allt sú, að við
þetta tækifæri hafa hinar fornu
og nýju ftænd- og vinajjjóðir,
Norðmenn og íslendingar, skipzt
á bróðurlegum kveðjum og
styrkt enn á ný vináttu- og frænd-
semisböndin, sem tengt hafa og
tengja skulu þessar þjóðir sam-
an, á hverju sem annars gengur
um rás heimsviðburðanna. í
Jjeim anda tfögnum við Akureyr-
ingar komu hins glæsillega full-
trúa Norðmanna, Ólafs ríkiserf-
ingja hingað til bæjarins í dag,
en hann ferðast nú um landið,
áður en hann hverfur héðan
heim aftur .í kvöld hefir bæjar-
ráð Akureyriar boð inni fyrir
hann og fylgdarlið hans, ásamt
ýmsum embættismönnum og op-
inberum starfsmönnum ríkis og
bæjar. Veri Ólafur krónprins og
iðrir góðir Norðmenn velkomn-
ir í frændahóp hingað til bæjar-
ins.
ÓLAFUR KRÓNPRINS
Norðmanna er væntanlegur
hingað til bæjarins kl. 7 í kvöld
ásamt fylgdarliði sínu, með biif-
reiðum frá Reykjavík. Eftir að
ferðafölkið liefir j'afnað sig ofur-
lítið eftir ferðalagið mun í ráði
að krónprinsinn og aðrir gestir
gangi í kirkjuna og Jjaðan í
Lystigarð bæjarins. Verður krón-
prinsinn og förunautar bans
ávarpaður J>ar og boðinn vel-
kominn af forseta bæjarstjórnar.
Þá mun og Lúðrasveit Akureyrar
leika nokkur lög og karlakórinn
Geysir syngja. — Má vænta
þess að sú atliöfn hefjist laust
fyrir 8 í kvöld, og er almenningi
að sjálfsögðu heimill aðgangur
að Lystigarðinum á þeim tíma
sem endranær. Að Jjví búnu hefst
kvöldboð bæjarráðs fyrir krón-
prinsinn og aðra gesti að Hótel
KEA. — Ólafur ríkisavfi og föru-
nautar hans munu halda héðan
af stað flugleiðis heim til Nor-
egs á morgun.
Tiilhlýðillegt er að húsráðend-
ur Iflaggi í tilefni af komu Jjess-
ara merku gesta.