Dagur - 30.07.1947, Síða 1
Póststjórnin hækkar
i; fargjöld á sérleyfisleið-
um fyrirvaralaust um
25-30%
Er almenningur réttlaus
gagnvart embættis-
mannavaldinu?
Farþegar á landleiðinni Ak-
ureyri—Reykjavík, sem ætl-
uðu að taka farmiða sína suð-
ur á farmiðasölu póststjórnar-
innar hér sl. laugardag, kom-
uts að raun um að póststjóm-
inni hafði þóknast þá um dag-
inn að hækka fargjöldin úr 79
kr. í 105 kr.> eða um nærri
30%, fyrirvaralaust og án þess
að auglýsa breytinguna fyrir
almenning eða gera nokkra
grein fyrir því, hver nauðsyn
væri á því, að skattleggja al-
menning þannig umfram
venju. Nú er og orðið kunn-
ugt, að póststjómin hefir
ákveðið 25—30% hækkun á
fargjöldum á öllum sérleyfis-
leiðum með sama hætti, án
þess að birta tilkynningu um
hækkunina eða gera nokkra
grein fyrir ástæðunni. Þarna
hafa menn sýnishorn af ríkis-
rekstri eins og hann verður í
sinni lökustu mynd, þar sem
érgóðir embættismenn leggja
kvaðir og skýldur á almenn-
ing og telja sig of góða til þess
að gera grein fyrir-ákvörðun-
um sínum eða birta opinberar
tilkynningar um gerðir sínar.
Hvað eftir annað verður al-
menningur fyrir barðinu á
embættismannavaldinu með
þessum hætti og alltaf er vegið
í hinn sama knémnn, að auka
;; álögumar og hækka gjöldin
og sjaldnast fylgir nokkur
frambærilleg greinargerð frá
opinberri hálfu. Borgaramir
eiga að þegja og borga, það er
þeirra hlutskipti.
Það er furðulegt, að á sama
tíma og ríkisvaldið prédikar I;
um nauðsyn þess, að ráðast
gegn dýrtíðinni, skuli stofnan-
ir þess, hver af annarri, ganga
á undan öðrum, með ósvífni í
aukinni skattlagningu og auk-
inni dýrtíð á öllum sviðum.
Með þessu framferði er sízt af
öllu veri ðað vinna þeim mál-
stað gagn, að nauðsyn beri til
þess að borgararnir leggi á sig
kvaðir til þess að minnka dýr-
tíðina. Virðizt kominn tími til
að tekið verði í taumana og
opinbemm stofnunum gert
það ljóst, að þær em stofnsett-
ar til þess að vinna fyrir fólkið
í landinu, en ekki ætlazt til
þess, að þjóðin þjóni dintum
og duttlungum þeirra embætt-
ismanna, sem ríkið hefir sýnt
þann trúnað, að fara þar með
völd.
Norrænn þingmanna-
fundur í Reykjavík
Norræni þingmannafundurinn
er að þessu sinni haldinn hér á
landi og hófst í Reykjavík í gær-
morgun. Fundinn sækja fulltrú-
ar frá öllum Norðurlöndunum.
Mun honum ljúka í kvöld.
XXX. árg.
Akureyri, miðvikudaginn ,S0. júlí 1947
29. tbl.
Krossanesverksmiðj an hefir nú byrjað vinnslu
Þjóðverjar gera út síld-
/eiðileiðangur til íslands
Þýzkir sildveiðibátar eru nú
liér i liöfninni
Tveir þýzkir síldveiðibátar
!vomu hér að bryggju í fyrrinótt.
dátar þessir eru frá Kiel, á að
gizka 40-50 tonn og veiða með
íringnót. Þeir eru úr síldveiði-
eiðangri, sem gerður er út hing-
að. Eru nokrlr slíkir bátar komn-
ir hingað og með þeim 2000 smál
móðurskip. Bátarnir eru búnir
að vera röska viku á miðunum og
hafa naumast orðið síldar varir.
Rofar til í afurðasölu-
málunum?
Bandarísk verzlunarsendi-
nefnd í Reykjavík
í fyrradag kom til Reykjavík-
ur bandarísk verzlunarnefnd
undir forsæti E. C. Acheson, sem
er sérstakur verzlunarerindreki
rrumans forseta í Evrópu. Sam-
kvæmt viðtali Achesons við
brezka blaðamenn fyrir hingað-
komuna, er erindi hans það, að
atlruga hvort hægt muni að
æmja við íslendinga um fisksölu
til brezk-ameríska hernámssvæð-
isins í Þýzkalandi og létta þannig
nokkrunr erfiðleikum af mat-
\ ælaútvegunum til Þjóðverja af
Bretum og Bandaríkjamönnum.
Ekki er vitað með hverjum hætti
Bandaríkjamenn lrugsa sér að
þessi viðskipti fari fram, en
nokkur ástæða er til að ætla, að
þessi sendiför geti orðið til þess,
að eitthvað rofi til í fisksölumál-
um landsins. Nefndin hefir þeg-
ar hafið viðræður við ríkisstjórn-
na.
Síldaraflinn minni en á
sama tíma í fyrra
Góð veiði á austursvœðinu
siðustu dagana
Samkvæmt skýrslu Fiskifélags
íslands nam síldaraflinn á öllu
landinu um miðnætti s. 1. laugar-
dag 640,505 hektolítrum og er
það unr 22 þús. hektolítr. minna
en á sama tíma í fyrra. Saltað
hafði verið í 22.402 tunnur, en
22.029 á sama tima í fyrra. Afla-
lræsta skip var Edda frá Hafnar-
firði með’ 6461 mál og tunnur.
Síðustu daga hefur veiði verið
góð á austursvæðinu, austan við
Langanes og í Þistilfirði. Er sú
veiði eðlilega ekki meðtalin í
þessari skýrslu. Afli eyfirzku
síldarskipanna var sem hér segir:
Alden, Dalvík 3478, Bjarki Ak-
(Framhald á 8. síðu).
Líkneski Snorra Stuilusonar íReykholti
Myndin er frá Snorrahátiðinni i Reykholti 20. þ. m. Snorralíkneskið hefir verið
afhjúpað og mannfjöldinn horfir á hina tigulegu mynd Gustavs Vigelands af
bóndanum i Reykholti. Á fótstallinn er grafin þessi áletrun:
,JSIorðmenn reistu".
Olafur ríkisarfi flutti Akureyringum
kveðjur og þakkir
Hátíðleg móttaka ríkiserfingjans sl. miðvikudag
/erksmiðjan hefir þegar
fengið rúmlega 20.000 mál
Bæjarbúar þurfa að létta
indir með starfrækslunni
>g kaupa skuldabréf verk-
smiðjunnar
Krossanesverksmiðjan hóf síld-
irbræðslu um sl. helgi og hefir
/innsflan gengið vel til þessa,
þrátt fyrir smávægilegar lagfær-
ingar, sem gera hefir þurft vegna
areytinga þeirra og endurbóta,
;em fram hafa farið á verksmiðj-
unni. Hin nýju, tvöföldu lönd-
unartæki verksmiðjunnar hafa
reynst vel og munu sjómenn
ánægðir með afköst þeirra. Verk-
miðjan hefir fengið nokkrar
nýjar lýsisskilvindur frá Dan-
mörku, mjölblásturstæki og sjálf-
virka vigt. Þá hefir verið létt
mjög á gufukatli verksmiðjunn-
ir með því að nota rafmagn fyrir
vmsar vélar.
Fjölmargar endurbætur fleiri
hafa verið gerðar, en margt er þó
mnþá ógert til þess að verksmiðj-
í>n komizt í fullkomið horf.
Góðar síldarhorfur fyrir
Krossanes.
í gær höfðu verksmiðjunni
alls borizt 20.637 mál, bæði frá
samningsskipum verksmiðjunn-
ar og frá skipum Ingólfsfjarðar-
verksmiðjunnar, samkvæmt sér-
stökum samningi í milli verk-
smiðjanna. Þessi samningur er
hagkvæmur fyrir Krossanes nú’
er síldin er á austursvæðinu og
eru því góðar horfur á því, að
verksmiðjunni berist næg síld til
þess að reksturinn verði arðvæn-
'egur.
Ólafur krónprins Norðmanna og föruneyti hans komu hingað til
bæjarins sl. miðvikudag og dvaldi hér fram á fimmtudagsmorgun.
Fulltrúar bæjarins, bæjarstjórinn, forseti bæjarstjórnar og fullltrúi
bæjarfógeta tóku á móti ríkiserfingjanum á Kaupvangstorgi. Þar
voru einnig mættar nokkrar norskar konur, búsettar hér í bænum, í
þjóðbúninguni, og færðu þær prinsinum blóm.
-• Eftir að ferðafólkið hafði hvílt
sig um stund á Hótel KEA var
haldið til kirkju, þar lék Björg-
\in Guðmundsson tónskáld á
orge'lið, en vígslubiskupinn, séra
Friðrik J. Rafnar, og aðstoðar-
presturinn, séra Pétur Sigurgeirs-
son, sýndu gestunum kirkjuna.
Aðalmóttökuathöfnin af hálfu
bæjarins fór fram í Lystigarðin-
um um kl. 8 um kvöldið. Var þar
mikill mannfjöldi samankom-
inn. Lúðrasveit Akureyrar lék, er
prinsinn og föruneyti hans gekk
inn í garðian, en að því búnu
flutti Þorsteinn M. Jónsson, for-
seti bæjarsíjórnarinnar, snjalla
ræðu, er birt er annars staðar í
blaðinu í dag. Prinsinn þakkaði
móttökurnar. Flutti hann Akur-
eyringum þakkir fyrir vinsemd
þeirra í garð norska hersins, er
hér dvaldi á stríðsárunum, og
minnti á, að faðir sinn hefði eitt
sinn gist Akureyri ungur maður
og flutti kveðjur frá honum. —
Ræða prinsins var mjög hlýleg í
garð bæjar og héraðs. Að ræðu
prinsins lokinni söng Karlakór-
inn Geysir. Veður var stillt og
gott þetta kvöld og var öll mót-
tökuathöfnin virðuleg og hlýleg.
Um kvöldið hafði bæjarstjórn
Akureyrar boð inni að Hótel
KEA fyrir prinsinn. Sátu það um
80 manns. Hófið stóð til mið-
nættis. Voru drukkin minni Ól-
afs ríkisarfa, Hákonar Noregs-
konungs og forseta íslands.
(Framhald á 8. síðu).
Veiði síðustu daga.
Síðan á sunnudag hafa þessi
:kip landað í Krossanesi: Krist-
ján 1073 mál, Snæfell 1719 mál,
Richard 765 mál, Eyfirðingur
1005 mál, Faxi 695 mál, Jökull
437 mál, Grótta 1721 mál og
Auður 803 mál. Vitað var um a.
m. k. eitt skip í gær á leið til
verksmiðjunnar.
Verksmiðjan þarfnast stuðnings
bæjarbúa.
Þótt vel horfi þannig um starf-
rækslu verksmiðjunnar í sumar,
þrátt fyrir alla þá byrjunarörðug-
leika, sem hún hefir mátt ganga
í gegnum, háir fjárskortur fram-
kvæmdum. Kunnugt er, að mikil
tregða er á útvegun lánsfjár í
bönkum. Var því það ráð tekið í
vor, að bjóða út skuldabréfalán
fyrir verksmiðjuna á vegum bæj-
arins. Sala þessara bréfa gekk
greiðlega til að byrja með, en
stöðvaðist er horfur voru á, að
(Framhald á 8. síðu).