Dagur - 26.11.1947, Blaðsíða 8
8
Bagub
Miðvikudagur 26. nóvember 1947
Verkamannafélagið
sendir bæjarstjórninni
áskornn um auknar
framkvæmdir
Á fundi Verkamannafélags Ak-
ureyrarkaupstaðar, er haldinn var
þann,23. þ. m., var eftirfarandi til-
íaga sam|)ykkt einróma:
„Þar eð fyrirsjáanlegt er, að at-
vinnuleysi er nú í hraðri uppsigl-
ingu meðal verkamanna hér í bæn-
um, og nú þegar er mikill fjöldi
þeirra með öllu atvinnulaus, en
hins vegar engin líkindi til að úr
rœtist án aðgerða af hálfu bæjarfé-
lagsins á' þessum vetri, skorar
Verkamannaféiag Akureyrarkaup-
staðar á bæjarstjórn Akureyrar að
gera allt, sem í hennar valdi stend-
ur, til þess að sporna við full-
komnu neyðarástandi á heimilum
verkamanna bæjarins, með því að
hafa alla þá vinnu í gangi, sem
unnt er að framkvæma vegna tíð-
arfars og fyrirsjáanlegt er að komi
bænum að gagni í framtíðinni.
Verkamannafélagið telur, að það
sé stór hagur fyrir bæjarfélagið að
notfæra sér vinnuafl verkamanna,
sem annars færi forgörðum, jafn-
vel þótt framkvæmdirnar, sem
unnið er að, verði eitthvað dýrari
að krónutali, ef þær fara fram að
vetrarlagi.
Þar sem nú er viðurkennt af vel-
flestum, að bæjarstjórn beri skylda
til að hafa forgöngu um úrbætur,
þegar atvinnuleysi steðjar að, telur
Verkamannafélagið æskilegt og
eðlilegt, að bæjarstjórn hafi starf-
andi sérstaka atvinnumálanefnd,
sem hefði það hlutverk með hönd-
um, að fylgjast með atvinnuhorfum
á hverjum tima og fjalla um úr-
ræði þegar á þyrfti að halda, jafn-
framt því, sem hún hefði með
höndum skipulagningu á fram-
kvæmdum bæjarfélagsins með til-
liti til atvinnuþarfa verkamanna.“
Síðan eru í ályktuninni talin
upp ýmis verkefni, sem félagið
leggur tii að hafizt verði handa um
að framkvæma, m. a. þessi: Haldið
verði áfram grjótsprengingum og
grjótmulningi og athugað um stað
fyrir nýtt grjótnám; undinn verði
bráður bugur að því, að fá full-
gerðan skipulagsupdrátt af svæð-
inu sunnan Strandgötu, svo að
hægt sé að hefjast handa með að
hlaða garð meðfram henni. Bærinn
útvegi sér sogdælu til afnota við
uppfyllinguna og dýpkun hafnar-
innar. Fleiri till. eru í ályktuninni
Hin nýja Ðuplex-hraðpressa, sem Dagur er prentaSur í
Þannig lítur hin nýja
Duplex-hraðpressa út og er
þetta fyrsta blaðið, sem
prentað er í henni. í þessari
pressu er hægt að prenta
allí að 16 síðum í Dags-
stærð í einu og skilar vélin
blaðinu brotnu og uppúr-
skornu. Afköstin geta ver-
ið bezt 3600 eint. á kist. —
Með tilkomu þessarar vélar
eru starfsskilyrði við blað-
ið stórbætt og möguieikar
þess til stækkmiar auknir.
Engin önnur breyting er
þó fullráðin á blaðinu, önn-
ur en sú, er hér sést, en
blaðið hefir httg á því að
fjölga útkomudögum eins
fljótt og mögulegt er.
VirðMeg útför Emars Árnasonar
á Eyrarlandi
Einar Árnason, fyrr'v. alþingis-^'
maður og ráðherra, var jarðsettur
í gær, að viðstöddu fjölmenni. —
Var athöfnin öll hin virðulegasta
og bar órækt vitni þeirrar ástar
og virðingax,-sem hann naut hér
heima í héraði. Samband ísl. sam-
vinnufélaga og Kaupfélag Eyfirð-
inga höfðu óskað heiðra minn-
ingu hans með því að kosta út-
förina. Athöfnin hófst á hádegi
heima á Eyrarlandi og flutti
sóknarpresturinn, séra Benjamín
Kristjánsson, bæn. Síðan var
haldið til Kaupangskirkju og
jarðsett þaðan. Bændur úr sveit-
inni, stjórn KEA og starfsmenn
kaupfélagsins báru kistuna að
heiman, í kirkju og úr kirkju.
Séra Benjamín Kristjánsson flutti
líkræðuna í kirkjunni. Fjöldi
kransa og samúðarskeyta barst
víðs vegar af landinu, m.
kransar frá Alþingi, Landsbank-
anum, Sambandi ísl. samviimufé-
laga, Kaupfélagi Eyfirðinga,
Miðstjórn Framsóknarflokksins
og þingflokki Framsóknarmanna
o. fl. opinberum aðilum og stofn-
unum, og frá mörgum einstakl-
ingum innan héraðs og utan.
Framsóknarfélögin á Akureyri og
sem fram átti að fara á laugar-
daginn, frestað, en í gær var veð-
ur stillt og gott.
um
„Selfoss46 upplýstur
Sementið mátti ekki
koma hingað
Blaðið hefir fengið upplýsingar
um hina dularfullu ferð e.s. Sel-
foss, sem sagt var frá í síðásta
blaði. Útvarpið sagði kvöld eftir
kvöld, að skipið væri á leið frá
Imm:r:gham í Brétlandi til Akur-
eyrar, en hingað kom það aldrei,
og vissu bsejarmenn ekki fyrr en
fréttist, að skipið væri að hlaða
sííd í Reykjavík. Nú hefir blaðinu
a. | verið skýrt frá því, að Selfoss hafi
flutt sementsfarm til landsins, og
átti mikið af því sementi að fara í
land hér. En forráðamönnum Eim-
skipafélagsins hefir, af einhverjum
ástæðum, þótt minni ástæða til
þess, að verkamenn hér og höfnin
hefðu tekjur af þessum flutningum
en verkamenn syðra og Reykja-
víkurhöfn, svo að ekki sé nú talað
arvegor
Samgöngur innansveitar eríiðar ennþá
Suðurleiðin yfir Öxnadalsheiði
er nú algjörlega ófær bifreiðum,
sagði Karl Friðriksson, verkstjóri,
umboðsmaður vegamálastjómar-
innar hér nyrðra, er blaðið átti tal
við hann í gær. Síðasta bílferð yfir
heiðina var á laugardag, er póst-
bíllinn að sunnan brauzt yfir hana
su.ður. Fóru menn með honum
héðan og fylgdu honum alla leið að
Kotum í Norðurárdal. Þurfti mjög
víða að moka bílnum slóð, og
verða slíkar ferðir ekki famar oft-
ar, nema snjóa leysi verulega frá
því sem nú er.
Sarngöngur hér innan sveitar eru
enn þá erfiöar, og hafa lítiö breytzt
til batnaðar síðustu dagana, þrátt
fvrir uppstyttuna, sem nú er orðin.
Þó er unnið að því enn að opna
veginn fram á Melgerðisflugvöll,
en þar er Douglas flugvél frá Flug-
félaginu búin ao vera teppt alla
hríðardagana. Var unnið að ruðn-
ingi þessa vegar í gær og átti að
halda áfram í nótt. Þá hefur veg-
urinn um Kaupangssveit verið
ruddur og er nú fær. Ekki er búið
að opna Dalvíkurveg lengra en að
Möðruvöilum, og eríitt færi víða á
þeirri leið.
Fyrir dyrum stendur fundur um-
boðsmanna vegamálastjórnarinnar
og mjólkurframleiðenda um vega-
málin og starfrækslu snjóýtanna,
og samningar um skipíingu kostn-
aðar á hinum ýmsu vegum. Er bú-
izt við því, að sá fundur verði hald-
inn nú alveg á næstunni.
væntanlegar með Esju, sem átti
að fara úr Reykjavík á laugardag,
en brottförinni var síðan frestað
til mánudagskvölds.
Það hefir valdið' erfiðleikum á
olíuútvegun hingað, að skortur er
á umbúðum. Olíufélögin lána
notendum tunnur, aðallega út til
sveita og á verstöðvar, en sein-
lega gengur að fá tunnurnar end-
ursendar og er þetta seinlæti m.
a. orsök þess, að olíubirgðir hér
eru ekki miklar.
Þótt þessar skýringar aðila séu
gildar, verður ekki komizta hjá
því að benda á, að steinolíu-
birgðir hér eru of litlar á þessum
árstíma. Mætti t. d. benda á af-
leiðingar þess, ef hafís kæmi að
landi og siglingar tepptust. Er
þess að vænta, að reynsla síðustu
daga verði til þess að útsölur ol-
íufélaganna geri gangskör að því
að fá meiri birgðir hingað, til
tryggingar og öryggis.
Stoínuð Áfengisvaraa-
nefnd kvenfélaga
á Akureyri
Áfengisvarnanefnd kvenfélaga
á Akureyri kom saman til fram-
haldsstofr.fundar þ. 18. nóv. sl.
Tvö félög bættust við þessi sam-
tök á fundinum, Kristniboðsfélag
kvenna og Kvenfélag Alþýðu-
flokksins. Eru félögin nú sex alls.
Á fundinum voru samþykkt
mótmæli til Alþingis gegn öl-
frumvarpinu. Enniremur að taka
bátt í almennum fundi um áfeng-
ismál ásaint Umdæmisstúku
Norðurlands, og að ein kona hafi
þar framsÖgn.
Kosin framkvæmdanefnd: Guð-
ný Bjömsdóttir, form., Jónína
Steinþórsdóttir, ritari, til vara:
Elinborg Jónsdóttir og Sigur-
jóna Jakobsdóttir.
Samningaumleitanir standa yfir í miili umboðs-
manna íslenzkra stjórnarvalda og Vesturveldanna
um miklar fisksölur til vesturhernámssvæðanna
um verzlanir og þá, er von eiga á
Eyjafjarðarsýslu sendu silfur- ibyggingarefni, og því breytt éætl-
skjöld, áletraðan, á kistúna. — juninni. Sementinu var öllu skipað
Vegna óveðurs var jarðarförinni, já land í Reykjavík, og þar liggur
--------------— ............... !það. Mun flestum finnast þessi ráð-
stöfun fulí vísdómsleg og dularfull,
til þess að hún verði metin í fljótu
bragði.
Steinoliulaust
í rafmagrisleysinu
Vegna óvenjulegrar
notkunar
Á mánudaginn gekk steinolía
til þurrðar í verzlunum bæjarins
og var einnig þrotin hjá útibúum
olíufélaganna hér. Samkvæmt
upplýsingum, sem blaðið hefir
fengið, voru olíubirgðir í bænum
eðlilegar fyrir rafmagnstruflan-
irnar, en hin gífurlega notkun
bæjarmanna þessa síðustu daga
varð til þess að hún gekk til
þurrðar áður en nýjar birgðir
komust hingað, en þær voru
Að undaníörnu hafa staoiö yfir
samningar um sölu íslenzks ís-
íiskjar til hernámssvæða Breta
cg Basidaríkjamanna í Þýzka-
landi. Er hér um að ræða mjög
miltið magn, 60—80 þús. smálest-
ir, eða allt að helmingi ársfram-
leiðslu landsmanna á þessari
vörutegund.
Samningum þessum er ekki
lokið, en kunnugt er, að allvel
horfir um að þeir takizt og rýmk-
ast þá mjög markaður íslenzkra
skipa til fisksölu í erlendum
höfnum. Það eru hernámsstiórnir
Breta og Bandaríkjamanna, sem
standa á þessum samningum og
munu samningar verða hagstæðir
okkur, verðið allgott og greiðsla
við afhendingu.
Blaðið „Tíminn“ í Reykjavík
birti fregnir af þessum málum sl.
mánudag, og varð það til þess, að
ríkisstjórnin birti tilkynningu í
útvarpinu í fyrrakvöld, þess efn-
is, að umboðsmenn hennar hefðu
um skeið unnið að markaðsöflun
á vesturhernámssvæðunum í
J Þýzkalandi, en þar sem samn-
■ ingaumleitunum væri ekki lokið,
j yrði ekki birt greinargerð uin
| málið að svo stöddu. Rétt mun þó
! frá skýrt, að samningum sé langt
! komið, og munu íslenzkir útvegs-
í menn binda miklar vonir við hinn
j
nýja markað, sem þar með opn-
ast.
Dr. Urfoantschitsch
heidur kirkj uhli ómleika
hér í kvöld
Dr. Viktor Urbantschitsch hefir
verið gestkomandi hér í bænum
undanfarna daga. Ákveð'ið hefir
verið, að hann haldi hér eina
hljómleika á vegum Tónlistarfé-
ílags Akureyrar, fyrir styiktarmeð-
limi þess og gesti, og verða þeir í
jAkureyrarkirkju í kvöld og hefjast
:kl. 9 e. h. A.ðgöngumiðar verða
bornir til styrktarfélaga í dag, en
hafi einhver elcki fengið þá í tæka
tíð, er þess óskað, að þeirra verði
vitjað við innganginn. Dr. Urbant-
schitsch mun leika ýmis kirkjuleg
verk á orgelið.