Dagur - 10.12.1947, Síða 8

Dagur - 10.12.1947, Síða 8
s Miðvikudaginn 10. desember 1947 Sjúkrasamlöp munu sfarfa áfram næsfa ár Heilsugæzla og heilsuverndarákvæði almanna- tryggingalaganna óframkvæmanleg eins og sakir standa Tryggingaráð ríkisins hefir lagt til við ríkisstjórnina, að sjúkra- samlög skuli starfrækt áfram næsta ár, eins og verið hefir, þar sem ekki er hægt að fullnægja ýmsum skilyrðum viðvíkfandi heilsugæzlu og heilsuvernd, sem sett eru í almannatryggingalög- unum. Þá er það og upplýst nú, að ekki hafa tekist samningar milli tryggingastofnunarinnar og Læknafélags íslands um fram- kvæmd þessarar löggjafar. Er þetta allt ennþá ein sönnun þess hve mál þetta var illa undir búið og lögin gölluð. Virðist óhjá- kvæmilegt að taka mörg atriði þeirra til rækilegrar endurskoð- unar. Nú er komið fram á Alþingi stjórnarfrumvarp um breytingar á almannatryggingalögunum, og fjallar það einvörðungu um breytingar vegna frestunar á því að tryggingarnar taki að sér starfsemi sjúkrasamlaganna, en ekki er þar drepið á aðrar breyt- ingar á lögunum. Breytingarnar. Samkvæmt þessu frumvarpi eru þessar breytingar fyrirhug- aðar á lögunum: Sjúkrasamlögin starfi öll með sama hætti og áður næsta ár. Tryggingastofnunin greiðisjúkra- samlagsiðgjöld þeirra, sem eru eldri en 67 ára. Framlag ríkisins á móti framlagi bæjar- og sveit- arfélaga hækki til sjúkrasamlag- anna. Slysatryggingagjiild séu greidd eftir tveimur verðlags- ákvæðum eins og önnur iðgjöld til almannatrygginganna. Sennilegt þykir, að þessar breytingar verði lögfestar á Al- þingi. Mæðrastyrksnefnd bæjarins hefur söfnun Mæðrastyrksnefnd hefur sent blaðinu ávarp til Akureyr- inga og segir þar: Nú næstu daga hefur mæðra- styrksnefnd söfnun til styrktar starfsemi sinni fyrir jólin, sem er í því fólgin að gleðja einstæðar mæður, barnmargar fjölskyldur og gamalt fólk. • í þetta sinn sýna kvenskátar nefndinni þá velvild að hjálpa til við söfnunina. Munu þessar ungu stúlkur heimsækja ýmsa borgara bæjarins bráðlega í þessum er- indum. Treystir nefndin því, að þeim verði vel tekið, því bæjar- búar hafa oft áður sýnt það, að þeim er ljúft að leggja einhvern skerf til þess að senda yl og gleði inn á heimili þeirra, sem verst eru staddir. Að síðustu sendum við öllum Akureyringum kveðju okkar með ósk um gleðileg jól og gott og farsælt ár. Mæðrastyrksnefnd Akureyrar Máður slasast í ■ Slippmira í fyrradag varð það slys í Slippnum hér í bænum, að mað- ur að nafni Óli Magnússon, verkamaður, Aðalstræti 4, Akur- eyri, slasaðist er hann var að vinna við samsetningu víra. Slóst vírspotti í kinn mannsins og auga og varð af mikið sár. Maðurinn var fluttur í Sjúkrahúsið. Vefrarsíldveiðin 360 þúsund mál Síldveiðin í Hvalfirði er nú alls orðin um 360 þús. mál og virðist alltaf jafnmikið síldarmagn í Hvalfirði. I fyrradag hófst síldarlönd- un 1 Reykjavík. Er síldin látin í st urnar 25 kr. fyrir málið, komið : þannig. Mjörg skortir á það ennþá, að síldarflutningaskipin hafi undan og hefir veiði verið lítil undan- farna daga, ekki vegna þess að síldin hafi gengið af miðunum, heldur hafa flestöll veiðiskipin beðið í Reykjavík með fullfermi. Fleiri flutningaskip væntanleg. Búið er að leigja tvö amerísk flutningaskip til síldarflutning- anna og eru þau væntanleg í næstu viku. Munu þau geta flutt um 10—12000 mál hvort. Þá hefir Óskar Halldórsson útgerðarmað- ur boðizt til að útvega tvö skip nú um mánaðamótin næstu og get^ þau flutt um 15000 mál sam- tals. Verður mikill skipastóll ira þró og greiða síldarverksmiðj- bíl, fyrir þá síld, sem landað er kominn í flutningana ef þessi floti bætist við True Knot. True Knot, sem varð að leita hafnar á dögunum á leið til Siglufjarðar með síldarfarm, liggur enn í Patreksfirði og er unnið að því að rétta skipið. Búizt er við því að það geti haldið för- inni áfram til Siglufjarðar, án þess að nokkru af sílidinni verði rýmt úr því. Vinnustofusjóði Kristneshælis hafa borizt þessar gjafir: Frá gömlum berklasjúklingi (ríkis- tryggt verðbréf) kr. 5.000.00, fráj B. S. kr. 50.00. — Bezlu þakkir. j Jónas Rafnar. Dagu Stjórnar imdirbúningi „heilags stríðs“ Hraðfrysfi fiskurinn héðan viður- kennd ágætisvara í Breflandi Skrif brezkra blaða sýna, bverja þýðingu vöruvöndunín hér hefur Brezka fiskveiðablaðið „The .Fishing News“ birti athygiisverða grein nú laust fyrir mánaðamótin um hraðfrysta fiskinn, sem á boð- stólum verður í Bretlandi í vetur. Blaðið upplýsir, að allur innflutn- ingur Breta á hraðfrystum fiski verði að þessu sinni frá fslandi og öðrum löndum Evrópu, m. a. frá Noregi og Danmörku, en ckkert muni verða flutt inn frá Kanada og Nýfundnalandi eins og venjulega. Þetta er Azzam Pasha, aðalritari arabíska bandalagsins, sem nu stjórnar undirbúningi Araba „hins heilaga stríðs“, sem í lönd- in fyrir botni Miðjarðarhafs, hóta að liefja vegna skiptingar Palestínu. Azzarn Pasha stjórnaði árið 1921 ,uppreist Araba gegn Balfour-yfirlýsingunni brezku, sem átti að tryggja Gyðingum þjóðarheimili í Palestínu. Þjóðverjar fá fleiri fiskiskip Nýlega hefir verið greint frá togarasmíðum Þjóðverja hér í blaðinu og í nokkrum öðr.um ís- lenzkum blöðum. Sumir þessara togara eru beinlínis smíðaðir með •veiðar á íslandsmiðum fyrir aug- um. Virðast hernámsveldin stefna að því, að Þjóðverjar geti aflað verulegs hluta af þeim fiski sjálf- ir, er þeir þurfa til neyzlu. í þessa átt stefnir einnig sú aðgerð Bandaríkjamanna, að skila Þjóð- verjum aftur 130 fiskiskipum, sem ákveðið var að Bandaríkin skyldu fá sinn hlut sem stríðs- skaðabætur Var skýrt frá þessari ákvörðun í fréttastofufregn frá Hamborg nú laust fyrir mánaða- mótin. Má því búast við því, að þýzk veiðiskip verði umsvifa- mikil hér við land á næstu árum. % Gefur þetta, og fleiri áætlanir er- lendra þjóða um stórauknar fisk- veiðar hér við land ,enn aukið til-. efni til þess,.að hafizt verði handa í landhelgismálunum og réttur landsmanna til landgrunnsins verði tryggður, svo sem verða má. Norðmenn fá 388 milljónir kr. fyrir Blaðið telur tvæi' aðalástæður fyrir þessari breytingu á inn- flutningi fiskjar. Hin fyrri er dollaravandræði Breta og við- leitni þeirra til þess að spara sér kaup á dollarasvæðinu sem mest. þeir mega, en hin síðari er sú, að [hraðfrysti fiskúrinn frá íslandi hefir reynzt mun betri vara, en fiskflök, sem flutt hafa verið inn frá Kanada og Nýfúndnalandi. Blaðið gefur með þessu í skyn, að vöruvöndunin hér hafi beinlínis orðið til þess, með öðrum ástæð- um, að fiskur verður að þessu sinni ekki fluttur inn vestan um haf. Um fiskinn frá Danmörku og Noregi segir blaðið, að kunnugt sé, að ísfiskur sá, er fluttur hafi verið til Bretlands af norskum og dönskum fiskiskipum, sé góð vara og vænti menn því hins bezta af hraðfrysta fiskinum frá þessum löndum. Flök þau, er Norðmenn og Danir selja Bretum, verða essa ars Norðmenn eru nú sem óðast að selja hvalolíu af þessa árs fram- leiðslu, en hún mun nema alls um 150.000 smálestum. Þeir hafa þeg- ar selt Bretum. 25.000 smál. fyrir 90 pund tonnið og Svíum 10.000 smál. fyrir sama verð. Nú telja norsk blöð að verð á hvalolíu hafi hækkað svo, að afgangurinn verði seldur á lOO pund tonnið. Mun þá öll hvalolíuframleiðslan gefa Norðmönnum nær 300 millj. kr. á þessu ári. Norðraenn auka saltsíldarsölu til Bretlands Norsk verzlunarnefnd undir- ritaði í London, laust fyrir mán aðamótin, samning um aukna jaltsíldarsölu til Englands. Á næsta ári munu Norðmenn selja Bretum 400.000 kassa af stórsíld og vorsíld, eða um 40.000 tonn. Verðið er sagt betra en í fyrra, en ekki er það nefnt í hinum opin- oeru tilkynningum hvort tveggja, af bolfiski og flat- fiski. Vöruvöndunin byggir fyrir framtíðina. Þessi grein hins kunna brezka fiskveiðimálgagns leiðir í ljós, að hraðfrysti fiskurinn íslenzki er bezta varan af þessu tagi, sem á brezkan markað kemur .Augljóst er hverja þýðingu þetta hefir í framtíðinni, er samkeppni harðn- ar á markaðnum. Verði vöru- vönduninni hér haldið í horfinu og hún aukin, eftir því sem tímar líða, ætti íslenzki fiskurinn að standa ágætlega að vígi á þessum stóra mai'kaði eftir að fram- leiðslukostnaði hér hefir verið komið í það horf, að verðkröfur okkar standi ekki í vegi fyrir því, að við fullnýtum þá markaðs- möguleika, sem við höfum í Bretlandi. Mikið skortir á að það sé gert nú. Má í því sambandi minna á, að þegar Joksins tókst að selja eftirstöðvar fiskbirgðanna nú á dögunum, til Hollands, Tékkóslóvakíu og Bretlands, voru birtar fregnir um það, að mun meira magn hefði mátt selja til Bretlands en nú var gert. Hins vegar náðist ekki fullt ábyrgðar- verð á þessu fiskmagni, og verð- ur ríkissjóður að bera hallann af því. Þegar framleiðslukostnaður hér hefir verið færður niður, eru því miklir möguleikar til fisk- sölu til Bretlands, ef okkur tekst að halda þeirri aðstöðu, að vera fyrstir í flokki þeirra, sem ástunda vöruvöndun og nýtízku- leg vinnubrögð. Yafasamf að eplin komisf hingað fyrir jól Afgreidd út á stofiianka nr. 16 Keyptir hafa verið til landsins 24000 kassar af eplum frá Italíu og eru þeir í Hvassafelli, sem fór frá Genúa á sunnudaginn. SÍS mun eiga um 1/3 farmsins en kaupmenn'2/3 og fer skipið til Reykjavíkur og losar aðalfarminn þar. Er vafasamt að eplin nái hingað fyrir jól og áreiðanlega ná þau ekki á ýmsar smærri hafnir. iEr það sýnishorn af stjórn verzl- | unarmálanna, að dregið var að jveita gjaldeyrir til kaupanna til 20. nóv. og eftir það illmögulegt að tryggja réttláta dreifingu, því j að það getur ekki kallast réttlát dreifing, að Reykvíkingar einir sitji að jólaávöxtunum. Skömmt- unaryfirvöldin hafa ákveðið að afgreiða skuli 3 kg. út á stofnauka nr. 16 og ber verzlunum að til- kynna fyrir 16. þ. m. hve mörgum stofnaukum hafi verið framvísað hjá þeim og verða eplin afgreidd til þeirra samkvæmt því. Kaup- félag Eyfirðinga auglýsir í blað- inu í dag, að menn geti skilað stofnaukum í aðalverzlun félags- ins og litibú þess, og fengið í stað- inn útMutunarmiða félagsins, er eplin verða síðan afgreidd eftir, er þau berast.

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.