Dagur - 10.03.1948, Side 7

Dagur - 10.03.1948, Side 7
Miðvikudaginn 10. marz 1948 DAGBR 7 Innilega 'jjökkum við öllum, fjær og nær, auðsýnda samúð og hjálp, við andlát og jarðarför GUÐ.RÚNAR BJARGAR BALDVINSDÓTTUR frá Kambhóli, sem lézt á Sjúkrahúsi Akureýrar 12. febrúar sl. Ennfremur hökkum við öllum er vottuðu henni virðingu sína með minningargjöfum og á ýmsan annan hátt. Eiginmaður og börn hinnar látnu. Þrjár íbúðir fil sölu Tilboð óskast í þrjár íbúðir í húsinu Eyrarlands- veg 12, Akureyri, allar saman eða hverja fyrir sig. Tilboðum sé skilað fyrir 15. þ. m. til undirritaðs, sem gefur allar nánari upplýsingar. Réttur áskilinn til að taka hvaða tilboði sem er, eða hafna öllurn. Akureyri, 9. marz 1948. Haraldur Helgason. Bílrafgeymar. sex volta, fyrirliggjandi Kaupfélag Eyfirðinga Véla- og varahlutadeild. +—- I vandaðar, nýkomnar Verzl. London NYJA BÍÓ 1111111111111111 sýnir í kvöld: j GRÓÐUR í GJÓSTI | (A TREE GROWS IN BROOKLYN) áhrifamikil stórmynd frá 20th Gentury Fox, byggð á samnefndri metsölubók eftir Betty Smith. Leikstjóri: Elia Kazan. Aðalhlutverk leika: Dorothy McGuire James Dunn Joan Bloirdell Lloyd Nolan Beggy Ann Garner • ii iiiiiiiiiiiiiiiii iiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiii IIIIIMIIIIIIIHH* SkjaMborgar-Bíó | Einn á flótta (Odd Man Out) \ Afarspennandi, ensk lög- í reglumynd eftir skáldsög- um F. L. Grecns. i Aðalhlutverk: JAMES MASON I ROBERT NEWTON j KATHLEEN RYAN j í (Bönnuð yngri en 16 ára.) | •ii iiiiiiiiiiiiiiiiiniii 111111111111111 n iiiiiiiiniiiiiiiuiiiiiiiiT „OTA" hafragrjón glóðuð og söxuð, nýkomin Vöruhúsið h.L - AnsonTlugvélin (Framhald af 1. síðu). staddur þar. Skyggni var gott þar, en dimmviðri yfir Reykja- nesfjallgarði. Kvaðst flugmaður- inn ætla að hækka flugið úr 1500 fetum í 3000 fet og fara ofan skýja. Skyggni var sæmilegt í Reykjavík. Þegar flugvélin var ekki kornin á tilskildum tíma, reyndi flugturninn að hafa sam- band við hana, en án árangurs. — Um kl. 6 var skotið flugblysum, til leiðbeiningar, ef hún væri þá ofan skýja yfir höfuðborginni. Ennfremur var radarstöð á Keflavíkurflugvellinum sett í gang, en hún hefir 50 km. radíus til hafs, en nokkru skemmra til lands, vegna þess að fjöll hindra. Ekki varð vart við vélina. Yfir Ölfusi kl. 6. Menn, sem staddir voru á Kambabrún um sex leytið, sáu flugvélina þaðan og stefndi hún þá á Ingólfsfjall. Er ráðið af þessu, að flugmaðurinn hafi horf- ið frá því, að fljúga ofan skýja, heldur ætlað að fljúga undir skýjalaginu um Þingvelli, í von um bjartara veður þar. Eftir þetta hefir ekkert til vélarinnar spurst, nema ef vera kynni að heyrzt hafi til hennar yfir Flóka- dal í Borgarfirði litlu síðar. Ekki sást hún þaðan, en kona, sem var úti við, telur sig hafa heyrt greinilega til flugvélar þar fyrir ofan ský. Sé þetta rétt, hefir flug- vélin verið komin langt af leið. Hljóta loftskeytatæki hennar að hafa bilað, því að annars hefði hún haft samband við flugturn- inn í Reykjavík eða Keflavík, en þar mundi hafa verið hægt að lenda þótt myrkt væri orðið. í gær var dimmviðri í Borgarfirði, en margar flugvélar freistuðu þó að leita þar og víðs vegar í ná- grenni Reykjavíkur, en án ár- angurs, er síðast fréttist. Vegna þokusúldar sást illa til fjalla. SÍÐUSTU FRÉTTIR. Um fjögur leytið í gær sneru allar leitarflugvélarnar aftur til Reykjavíkur án þess að hafa orðið nokkurs varar. — Gerði þá dimmviðri mikið yf- ir bænum og urðu flugmenn- irnir að hraða sér til að ná lendingu. Ilöfðu þeir lcitað um Borgarfjarðardali, Holta- vörðuheiði, Reykjanes og ná- Iæg fjöll, eftir því, sem til sást vegna þokusúldar. Ekki höfðu borizt neinar fregnir um árangur leitarflokkanna í gærkvöldi. — Leitinni mun verða haldið áfram í dag. Seljum alls konar FATNAÐ, SKÓTAU o. fl. Ódýrt! — Miðalaust! SÖLUSKÁLINN Sími 427. 23 Jíús. kr. söfnuðust til fólksins í Sigluvík Blaðinu hefir borizt greinar- gerð frá Rauðakrossdeild Akur- eyrar um Sigluvíkursöfnunina.— Samkvæmt henni varð söfnunin eins og hér segir: Safnað: Al- þýðmnaðurinn 100.00. — Barna- skólabörnin 740.00. — íslending- ur 1313.35. — Kaupfélag Eyfirð- inga og Dagur 9665.00. — Odd- íellowreglan 4000.00. — Séra Pét- ur Sigurgeirsson 720.00. — Páll Sigurgeirsson 6461.65. Samtals kr. 23.000.00. Barnalijálpin Ágóði af blómasölu í Blómabúð KEA sl. sunnudag varð kr. 1000, og hefir sú upphæð verið lögð á reikning Barnahjálparinnar. ÚR BÆ OG BYGGÐ I. O. O. F. — 1293128V2 — □ Rún.: 59483107 — 1.: Messað í Akureyrarkirkju n.k. sunnudag, 14. marz, kl. 2 e. h. — Sunnudagaskólinn n.k. sunnudag, kl. 11 f. h. (5 og 6 ára börn í kap- ellunni. — 7—13 ára börn í kirkjunni). Æskulýðsfélag Akureyrarkirkju. Fundur n.k. sunnudag, kl. 8,30 e. h. Guðsþjónustur í Grundarþinga- prestakalli: Kaupangi, pálma- sunudag, kl. 2 e. h. — Munka- þverá, föstudaginn langa, kl. 1 e. h. — Hólum, páskadag, kl. 1 e. h. — Möðruvöllum, páskadag, kl. 3 e. h. — Grund, 2. páskadag, kl. 1 e. h. Öllum er heimilt að sækja sam- komu Biblíunámsflokksins á Sjónarhæð næstk. laugardags- kvöld kl. 8.30. Zíon. Sunnudaginn 14. þ. m. Sunnudagaskólinn kl. 10,30 f. h. Almenn samkomao kl. 8,30 e. h. Cand. theol. Gunnar Sigurjóns- son talar. Allir velkomnir. Guðspekistúkan „Systkinaband- ið“ heldur fund mánudaginn 15. þ. m. á venjulegum stað og tíma. Hjálpræðisherinn. Æskulýðs- herferð með samkomum á hverju kvöldi þessa viku, fyrir börn kl. 6 og fyrir fullorðna kl. 8.30 e. h. Æskulýðsritarinn majór Hilmar Andresen. Kaupteinn Eskil Ross. Driveklepp o. fl. taka þátt í sam- komunum. Mikill söngur og hljóðfærasláttur. Allir velkomnir. Leiðrétting. í síðasta blaði Dags hefir misprentast í afmælisvísum Htirfarandi: í þriðju vísu stend- "r. big gæfan léði, á að vera: þig gæfan leiði. — í síðustu línu í sömu vísu stendur: fiá ástum vina þinna, en á að vera: frá ást- lið vina þinna. Akureyrarkonur! Kvennadeild Slysavarnafélagsins heldur aðal- fund í kirkjukapellunni kl. 9 e. h, fimmtudaginn 18. marz næstk. — Áríðandi mál á dagskrá. Deildin veitir kaffi, en konur hafi með sér bollapör. Barnahjálpin. Safnað af „Iðju“, félagi verk- smiðjufólks á Akureyri; Frá Skinnaverksm. Iðunn kr. 2290.00. Frá Ullarverksm. Gefjun kr. 4530.00. Frá Saumast. Gefjunar kr. 550.00. Frá Kaffibætisverksm. Freyju kr. 305.00. Frá Mjólkur- samlagi KEA kr. 1100.00. Frá Prjónastofu Ásgr. Stefánssonar kr. 1515.00. Frá Kolsýruverksm. Sindra kr. 340.00. Utan vinnu- stöðva kr. 150.00. — Samtals kr. 10780.00. Fíladelfía. Samkomur verða í V erzlunarmannahúsinu: Fimtu- daginn 11. marz kl. 8.30 e. h. — Stmnudaginn 15. marz: Sunnu- dagaskó.li kl. 1.30 e. h. Öll börn velkomin Almenn samkoma kl. 8.30 e. h. Allir velkomnir. Látinn er í Húsavík Jón Bergs- son, fyrrum sjómaður, á níræðis- aldri Jón fluttist til Húsavíkur frá Ólafsfirði fyrir nokkrum ár- um. Barnastúkurnar Bernskan og Sakleysið halda sameiginlegan fund í Skjaldborg næstk. sunnud. kl. 10 f. h. Venjuleg fundarstörf. B-flokkur skemmtir. Börn, sem tóku að sér sölu happdrættismiða eru beðin að mæta á fundinum. Rauðikrossinn hafði dansleik að Hótel Norðurland sl. sunnu- dagskvöld til ágóða fyrir Barna- hjálpina. Ágóði af samkc-.nunni varð 3000 krónur. Hótelið gaf húsaleiguna og hljómsveit Óskars Ósbergs lék fyrir dansinum end- urgjaldslaust. Dansleik heldur kvenfélagið Voröld að Þverá í Öngulsstaðahr. laugardaginn 13. marz kl. 10 e. h. Veitingar á staðnum. Austfirðingafélagið hefir kvöld- vöku á Ilótel Akureyri (ekki í Gildaskála KEA) fimmtudaginn 11. þ. m. kl. 8.30 síðd. Gengið inn að norðan. Til skemmtunar verð- ur: Hvítabjarnaveiðar á Héraðs- söndum, erindi (Ólafur Jónsson), söngur, gamansaga, Heklukvik- mynd (Edvard Sigurgeirsson) og félagsvist. Nánar í götuauglýs- ingm. Látin er hér í bænum Solveig Steingrímsdóttir, Jónssonar fyrrv. bæjarfógeta. Jarðarför hennar er ákveðin fimmtudaginn 11. marz, og hefst kl. 2 e. h. með húskveðju að heimili hennar, Hafnarstræti 49. Stúkan Ísafold-Fjallkonan nr. 1 heldur fund í Skjaldborg, mánudaginn 15. marz, kl. 8.30 e. h. Inntaka nýrra félaga. Eftir fundinn verður bögglauppboð. Er heitið á alla stúkufélaga að kom ameð böggla með sér á fund- inn til uppboðs. Að lokum verður dansað. Danskur þorsk- veiðif loti til Græn- lands í sumar Berlinga tíðindi segja frá því, að danskur þorskveiðifloti muni halda til Grænlands í sumar. í flota þessum verða fimm deildir, segir blaðið, hver þeirra undir sérstakri útgerðarstjórn. Lýsis- bræðslustöðvar munu verða sendar til Grænlands með bátun- um. Hið danska blað segir óvenjulega mikla þorskgegnd hafa verið við Grænland nú und- anfarin ár, og telur ástæðuna veðurfars- og hitabreytingar í norðurhöfum. Takist þessi leið- angur vel, telur blaðið líklegt, að veiðarnar verði mjög auknar á næstu árum. Aðalfundur Ferðafélags Akureyrar Aðalfundur Ferðafélags Akur- eyrar var haldinn 7. þ. m. — Á' fundinum var flutt skýrsla um störf félagsins á sl. ári. Félagið skipulagði margar ferðir um byggðir og óbyggðir, starfaði að Vatnahjallavegi og sæluhúsa- byggingum. Margir skemmti- fundir voru haldnir; voru þeir mjög vinsælir og fjölsóttir. — Stjórn félagsins skipa nú: Björn Þórðarson, form., Björn Bessason, varaform., Eyjólfur Árnason, rit- ari, Þorst. Þorsteinsson, gjaldkeri og er jafnfram framkv.stj. fé- lagsins. Meðstjórnendur eru Að- alst. Tryggvason og Edv. Sigur- geirsson. Blaðið mun síðar greirni frá ferðaáætlun félagsins í sum- ar.

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.