Alþýðublaðið - 04.08.1921, Qupperneq 2
2
ALÞYÐUBLAÐIÐ
blaðsins er í Aiþýðuhúsina viö
lagólmtfæii og Hverfisgötu
Símlí 988.
Augiýsingum sé skikð þaagað
sða i Outenberg i síðasts Sagí ki.
10 árdegiss þ&r*a dag, sem þær
eiga feð koma I blaðið.
Áskríítargjald ein kr. á
mánuði.
Angiýsiagavarð kr. 1,50 em.
sindáikuð.
Útsölumenn beðnir að gera skil
til afgreiðslunnar! að minsta kosti
ársijórðungslega.
hitar hafi gengið fyrri hluta júlí-
mánaðar; kornið hafi blátt áfram
eyðilagst af þeirra völdum.
í nýjustu útlendum blöðum má
sjá, að uppskerubresturinn er tal-
inn i austurhéruðum Rússlands,
meðfrum Volga og Kamafljótanna.
Það er líklegt að eitthvað sé hæft
í þessu, en eaeð mikilli varúð ber
að taka slíkurn fréttum, því það
er þegar reynt, að mörg brögðin
hafa erlendir kapítalistar upp fund-
ið til þess að hnekkja áliti sovjet-
stjórnarinnur eða spilla fyrir samn-
ingum hennar við önnur lönd.
Áð svo komnu máli vsrðkt
varla ástæða til þess að leggja
sterkan trúnað á þessa fregn um
stórfelda hungursneyð, ránsferðir
og hvers konar upplausn í Rúss-
Iandi, enda þótt hitt sé satt að
uppskera hs.fi brugðist í nokkrum
eða ef tii vill að eins litlum hluta
landsins.
Þess má og geta að lokum, að
nýjustu skeyti frá Rosta-fréttastof-
unni í Moskva — jafnný og nýj-
ustu útlend blöð — er hingað
haf.i borist — þau láta vel yfir
uppskerunni alt fram að miðjum
júlí.
Annars hljóta innan skamms
að berast frekari fregnir þaðan
að austan, ef ástandið þar er
nokkuð svipað því, sem Khafn-
arskeytið á iaugardaginn sagði.
Kreldúlfstogararnir eru nú allir
lagðir af stað norður á síldveið-
ár, lagði sá síðasti af stað í gær-
kvöldi.
Smárit kanamu.
Mörgum hér í bæ er það mikið
áhyggjefni, hve börnin dragast
fijótt út í sollinn, sem samfara er
fjölmenninu og götulífinu. Og það
er nú heldur engin furða, þótt
fólk hugsi um þetta. Því það er
fátt sorglegra, en að heyra t. d
5 —6 ára gömul börn tvinna saman
blótsyrði, eða sjá 7—14 ára gamla
drengi ganga með vindlinga í
munninum.
Þó mörg heimili geri alt sem i
þeirra valdi stendur til þess að
haida bömunum frá spillingunni,
þá er oft eins og götv glaumurinn
og gjálífið verði öllu yfirsterkara.
Og þegar börnin hafa vanið sig
á tóbaksreykingar og ljótan munn-
söfnuð, þá leitar svo margt ljótt
í kjölfar þessara lasta.
Þegar eitthvað stórkostlegt kemst
upp af þeirri spillingu sem börn
og unglingar hér leiðast út í, þá
er eins og allir vakni af vondum
draumi, og blöðin tala um að
íoreldrarnir þurfi að hafa betri
gætur á börnum sínum, en svo
líður þetta frá eins og hver önnur
sársaukakend, og margir gleyma
börnunum, bæði þegar til orða og
athafna kemur, í nærveru þeirra,
því barnshjartað er næmt fyrir
áhrifum, hvort heldur etu góð
eða slæm.
Ætiunin með þessum línum er
nú eiginlega sú, að láta foreldra
hér í bænum og í grendinni vita,
að það er von á litlu smáriti fyrir
börn núna um helgina næstu. í
því eiga að vera aðallega vel
valdar stuttar kristiiegar smásögur.
Ritið verður boðið til sölu í hverju
húsi og verður sennilega selt á
25 aura. Hve oft það kemur út,
fer eítir því, hve vel því verður
tekið. Þó það t. d. kæmi um
hverja helgi, þá eru 25 aurar á
viku smá upphæð og flestir verða
víst að játa, að slík upphæð sé
oft fljót að fara fyrir lítið. En
gætu þessar smásögur haft góð
áhrif á sálarlíf barnanna, og hjálpað
til að beina þeim inn á þann veg,
sem verður þeim farsældar og
auðnu.egur, bæði i stundiegum
og andlegum efnum, þá mun öli
um aðstandendum þeirra þykja
sem þeim aurum væri vel varið.
Þegar því þetta iitla smárit ber
að garði yðar, þá kaupið fyrstu
örkina, og sjáið hvernig yður
feilur það. Þeir sem að þessvt
standa, hrinda því í framkvæmd,
af því að þeir álíta aðalskilyrðið
fyrir því að land og þjóð biómgist
og íarsælist vel á komandi tímum,
sé það, að hin uppvaxandi kyn-
slóð verði trúuð, ráðvönd og
hjartahrein.
Mikiu fé er hér dagiega og
vikuiega varið tii kaupa fyrir blöð
handa fullorðna íólkinu að lesa.
Væri þá ósanngj&rnt að verja 25
aurum vikulega fyrir lesmál handa
bömum, auk þess sem er varið
til að kaupa handa þeim mánaðar-
blöðin þeirra.
Sennilega verður smárit barn-
anna selt hér í bænum tsúna á
laugardaginn, og geta siðprúðir
drengir og stúlkur, sem vilja selja
þsð, gefi sig fram á afgreiðslu
Heintilisblaðsins í Bergstaðastrœti
21 á föstudag og laugardag.
Barnavinur.
6amalmetmaskemtunin
á þriðjudagina fór hið bezta fram
og var fjölsótt, þrátt fyrir hvass-
viðrið og sandrokið.
Haldið var tii í tveitnur stórum
tjöldum og sóttu 250 íullorðið
fólk og rúm 50 börn skemtunina.
sjáifbonaiið bauðst nóg til að að-
stoða við frammistöðu. Álls voru
gefnir þusund kaífibollar með
brauði, gosdrykkir og ávextir.
Bifreiðastöð Reykjavíkur, Jó-
natan Þorsteinsson, Ögmundur i
Hólabrekku o. fl. flutt fóthrumt
fólk fram og aftur.
Bakarar gáfu kökurnar, Loftur
Guðmundsson gosdrykkina og
ýmsir gestir styrktu fyrirtækið
svo vel að Samverjinn varð skað-
laus af.
Ræðumenn voru: Árni Jóhanns-
son, Andersen lýðháskólastjóri,
Ólafía Jóhansdóttir, Guðrún Lár-
usdóttir, S. A. G slason. Enn
fremur skemtu menn sér við söng
og hljóðfæraslátt.
Umdæmisstúkan nr. 1 á þakkir
skyldar fyrir það að hafa stofnaö
til Samverjans og stjórn hans á
þakkir skyldar fyrir að hafa ráð-
ist í þessa skemtun sem gamla
fólkinu líkaði eins ágætlega og
raun varð á.