Dagur - 30.03.1949, Page 1
F or ustugreinin:
Hið óttalega Atlantshafs-
bandalag og málflutning-
ur kommúnista.
XXXH. árg.
Akureyri, miðvikudaginn 23. marz 1949
Skiþ Sambándsins á Akureyri
Fyrir nokkru var greint frá bví hér í blaðinu að tvö skip á vegum
SÍS væru hér að losa vörur. Myndin er af skipunum hér við bryggj-
urnar. „HvassafeII“, sem flutti hingað sement o. fl. er við nyrðri
Torfunefsbryggjuna, cn lciguskipið „Herma“, er flutti kol hingað,
við syðri bryggjuna. „Herma“ liggur hér enn cftir vélarbilunina,
sem frá var sag tí síðasta tbl. og er óráðið uni burtför þess.
Fegnmarfélag Akureyrar formlega
stofnað s.L miðvikisdagskvöid
Rösklega 400 bæjarmenn þegar félagsmenn
Danir senda flokk sérfróðra lækna
og hjúkrunarliðs á veffvang undir
eins og lömunarveiki verður varf
Sjúkraleikíimi gefst bezt við lækningu lamaðra
Síðastl. miðvikudagskvöld var
haldinn framhaldsstofnfundur
Fegrunarfélagsins og var þar
gengið formlega frá stofnun fé-
lagsins, lög samþykkt og stjórn
kjörin. Félagsmenn eru nú orðn-
ir á fimmta hundrað talsins og
enn munu margir eiga eftir að
skrá sig til þáttöku.
Áðalfimdur
F ramsóknarf élags
Akureyrar
Aðalfundur Framsóknarfélags
Akureyrar var haldinn að Gilda-
skála Hótel KEA sl. mánudags-
kvöld. Formaður félagsins, Mar-
teinn Sigurðsson bæjarfulltrúi,
flutti skýrslu um störf félagsins á
árinu, en gjaldkerinn, Kristófer
Vilhjálmsson, skýrði frá hag fé-
lagsins. Er hagur þess góður. I
stjórn voru kjörnir: Marteinn
Sigurðsson, formaður, Eiríkur
Sigui-ðsson, ritari, Kristófer Vil-
hjálmsson, gjaldkeri, Halldór Ás-
geirssön og Jón Oddsson með-
stjórnendur. í fulltrúaráð félags-
ins voru kjömir þessir menn:
Kristinn Guðmundsson, Þorst.
M. Jónsson, Brynjólfur Sveins-
sön, Haukur Snorrason, Jakob
Frímannsson, Ingimar Eydal,
Þorsteinn Stefánsson, Olafur
Magnússon, Björn Þórðarson,
Björn Sigmundsson, Jóhann Frí-
mann og Þorsteinn Davíðsson.
Félagið var skírt Fegrunarfélag
Akureyrar. í lögum félagsins um
tilgang þess og starfssvið segir
svo m. a.:
Tilgangur félagsins er: Að vekja
áhuga almennings fyrir útliti,
skipulagi og hollustuháttum bæj-
arins. Að stuðla að hvers konar
viðleitni til fegrunár bæjarins, m.
a. með því að koma upp skrúð-
görðum, prýða hús og garða bæj-
arbúa og vinna að því að lista-
verk verki sett upp á viðeigandi
stöðum, eftir því sem geta og að-
stæður leyfa. Að hvetja bæjarbúa
til sem beztrar umgengni og fá
þá til liðs við félagið við útrým-
ingu hvers konar skemmdar-
hneigðar gagnvart mannvirkjum
og gróðri. Að beita sér gegn
hverjum þeim róðstöfunum af
hálfu einstaklinga og yfirvalda,
er kunna að óprýða bæinn og
umhverfi hans. Félagið hyggst
ná þessum tilgangi sínum með
víðtækri fræðslustarfsemi og
leiðbeiningum.
Stjórn kjörin.
Á fundinum var kjörin stjórn
félagsins og skipa hana þessir
menn: Finnur Árnason garð-
yrkjuráðunautur, form., Jóhann
Kröyer deildarstjóri, Jóhann
Þorkelsson héraðslæknir, Eyjólf-
ur Árnason gullsmiður, frú Dag-
mar Sigurjónsdóttir, frú Malfríð-
ur Friðriksdóttir og Kristinn
Jónsson heilbrigðisfulltrúi.
Þingi og þjóð
bráðlega skýrt frá
viðræðumim í
WasMngton
í gær birti Tíminn viðtal viðtal
við Eystein Jónsson menntamála-
ráðherra um sendiförina til Was-
hington og viðræður íslenzku
sendinefndarinnar við forustu-
menn Atlantshafsbandalagsins. í
viðtalinu segir ráðherrann m. a.:
— Á þessi stigi málsins get eg
sagt það eitt, að við gerðum
margvíslegar fyrirspurnir til
Acheson utanríkisráðherra og
ráðgjafa hans, og fengum greið
svör af þeirra hálfu. Mun þetta
mál áreiðanlega liggja ljósar fyrir
þingi og þjóð, þegar við höfum
skýrt frá vitneskju sem við öfl-
uðum okkur; Að þessu sinni get
eg ekki skýrt frá einstökum atr-
iðum, en í dag og kvöld (þ. e. sl.
jnánudag) munum við sitja fundi
með ríkisstjórninni og þingflokk-
unum. Næstu daga verður þingi
og þjóð skýrt frá öllum málsatr-
iðum varðandi vesturförina .
Eg vil vekja athygli á einu atr-
iði, sem raunar kemur ótvírætt
fram í tveimur greinum samn-
ingsins, því atriði, að hver þjóð
um sig á að róða því sjálf, hvað
hún leggur af mörkuni.
bvzka verkafólldð fær
5-7ÖÖÖ kr. á ári
Búnaðarfélag íslands birti í
fyrrakvöld tilkynningu til bænda,
varðandi ráðningu þýzka fólksins
til landbúnaðarstarfa, en fullnað-
arleyfi hernaðaryfirvaldanna í
Vestur-Þýzkalandi er nú fengið.
í tilkynningunni sagði ennfrem-
ur, að bafndur þeir, sem óska eft-
ir, að fá fólk þetta til starfa hjá
sér, skuli hafa tilkynnt Búnaðar-
félaginu fyrir næstu mánaðamót.
Bændum ber að gefa Búnaðarfé-
laginu umboð til að sækja um at-
vinnu- og landvistarleyfi fyrir
hjú sín, svo og umboð til að und-
irrita ráðningarsamning við þau.
Gert er ráð fyrir að árskaup
kvenna verði 5000 kr„ en karla
7000 kr„ fyrsta árið, en þar við
bætist að bændur þurfa að greiða
kostnað við flutning fólksins til
landsins. Gera má ráð fyrir, að sá
kostnaður verði 750—1000 kr. á
mann, en það fer mjög eftir þvví,
hve margt fólk verður ráðið. Bú-
izt er við að verkafólkið komi
hingað til lands í maí næstk.
Til þess að þetta sé fjárhagslega
hagkvæmt, varðandi flutningana,
þyrfti að ráða ekki færri en 200
manns.
Danska blaðið „Nationaltid-
ende“ birti hinn 8. niarz sl. viðtal
við dr. med. Svend Clennnesen
yfirlækni, sem stjórnar baráttu
danskra heilbrigðisyfirvaldagegn
lömunarveiki. Skýrir læknirinn
þar m. a. frá því, að Danir hafi
nú jafnan til taks flokk sérfróðra
manna, sem sendur er á vettvang
þegar í stað, er lömunarveiki
verður vart. Aðsetur flokksins er
í Kaupmannahöfn, en liann á að
starfa hvar sem nauðsyn krefur í
landinu.
Danir eru taldir standa mjög
framarlega í meðferð lamaðra
manna og Dr. Clemmesen er einn
af þeirra færustu sérfræðingum
á þessu sviði. Um þessar mundir
er hann vestur í Bandaríkjum að
flytja fyrirlestra um reynslu sína
á vegum ameríska læknafélags-
ins. í viðtalinu við Nationaltid-
ende segir læknirinn m. a. svo:
— Við erum búnir að stofna
umferðaflokk, sem ó að ná til alls
landsins. í stofnun Lömunar-
vai'nafélagsins vinna 20 sérfróðir
menn í sjúkraleikfimi og við get-
um nú sent lækna, hjúkrunar-
konur, nuddara og sjúkraleik-
fimimenn hvert á land sem er,
eftir því sem nauðsyn krefur
hverju sinni. Sjúkraleikfimi er
nú orðin aðalaðferðin í meðferð
lamaðra á stofnuninni. Reynsla
okkar og kenningar um þessi efni
eru nú komin á það stig að
Bandaríkjamenn vilja gjarnan
heyra nánar um hvort tveggja og
þess vegna er eg á förum vestur
um haf.
Bjartsýnismaður.
Eg get upplýst, segir læknir-
inn ennfremur, að nú orðið geng-
ur mun betur en áður og betur en
almenningur heldur að lækna
lamað fólk. Eg er miklu bjart-
sýnni nú um árangurinn af starf-
inu heldur en eg var, er eg fyrst
fór að fást við þessa hluti. Eg veit
nú af reynslunni, að jafnvel þeir,
sem harðast verða úti, geta lært
að verða sjálfbjarga í lífinu. Og
fólkið sjálft er haldið þessari
bjartsýni....
Undarlegur sjúkdómsfaraldur
á íslandi.
Enn segir læknirinn: Við telj-
um nauðsynlegt að hafa flokk
manna jafnan tilbúinn til þess að
ferðast um landið, m. a. vegna
þess, að lömunarveikin er svo
kenjótt og undarleg, að hún sýnir
Fimmta síðan:
Texti Atlantshafssáttmál-
ans. — Skíðakeppni á
messutíma.
12. tbL
mjög mismunandi hliðar í hvert
sinn, er hennar verður vart. Af
þeim sökum þarf fólkið úti á
landi að geta notið þeirrar
reynslu, sem við höfum aflað
okkur, og sjálfir getum við lært
mikið af hverju nýju tilfelli. Ný-
lega hefir t. d. geysað mjög ein-
kennilegur faraldur á íslandi.' í
Akureyrarbæ veiktust 8—10%
íbúanna, en enginn lézt, en sér-
kennilegast var e. t. v. það, að
2/3 af þeim, sem vefktust voru
konur.
— Og hvað má læra af þessu?
Ennþá er ekkert hægt um það
að segja, en vissulega mun það
hafa þýðingu fyrir rannsóknir á
eðli veikinnar. Staðreyndirnar
hjálpa smátt og smátt til þess að
upplýsa allan leyndardóminn um
sjúkdóminn. Þegar vitum við að
í Danmörku var veikin ekki til
fyrir 1907. Við vitum að veikin er
að færa sig upp á skaftið og ná til
sífellt hærri aldursflokka. Við
vitum að það er hættulegast að fá
lömunarveiki innan 12 ára aldurs.
Á þeim órum afmyndar veikin
líkamann mest og það er nú mest
um vert að fylgjast nákvæmlega
með börnum, sem lömun hafa
fengið, allan uppvaxtartímann.
Um smitun vitum við ekki
nægilega mikið, en athyglisvert
er, að það hefir sannast að áhöfn
á kafbát fékk lömunarveiki af því
að menn smituðu hver annan þar
um borð. Hins vegar mjög sjald-
gæft að börn í skólastofu smiti
hvort annað. Þegar skólum ei
lokað, er lömunarveiki kemur
upp, er það varúðarráðstofun, en
í rauninni er smithættan mest
með fæðunni og er oftast meiri
ástæða til þess að hætta matgjöf-
um í skólum en hætta kennsl-
(Framhald á 8. bls.).
Filsvörm læiwkuðu
í meðförum bæjar-
stjórnar
í síðasta blaði var greint frá
fjárhagsáætlun bæjarins, eins og
hún var eftir endanlega af-
greiðslu bæjarráðs. Á bæjar-
stjórnarfundi fyrra þriðjudag var
óéætlunin afgreidd af hálfu bæj-
arstjórnar og voru þar gerðar
nokkrar breytingar á henni. —
Veigamest er sú, að útsvarsupp-
hæðin var lækkuð um 82 þúsund
krónur og skal nú jafnað niður
kr. 5.042.160.00.