Dagur - 30.03.1949, Síða 2

Dagur - 30.03.1949, Síða 2
2 DAGVR Miðvikudaginn 23. marz 1949 Torskildir vegir kommúnista Rísið ekki gegn meingerðamanninum, er kenning þeirra Vegir kommúnista eru tor- skildir, eða svo finnst mörgum. í Rússlandi og leppríkjum þess eru stjórnarandstæðingar settir í fangabúðir og eiga ekki þaðan afturkvæmt. Þetta stjórnarfar segja kommúnistar að sé hið full- komnasta lýðræði og æðsta fyr- irmynd. Á íslandi eru kommúnistar í stjórnarandstöðu. — Þeir hafa marglýst yfir því, að þeir vinni að því eftir megni að reka stjórnina frá völdum. Samkvæmt þeirra eigin kenningu um fyrirmynd stjórnarfarsins í Rússlandi, ætti íslenzka ríkisstjórnin að láta taka kommúnista, stinga þeim í fang- elsi og láta þá dúsa þar til ævi- loka og bíta þar lítinn kost. Ekki mundu samt kommúnist- ar fella sig vel við, að þeir væru lokaðir inni í fangelsi fyrir stjómarandstöðu sína. Þeir myndu kalla slíkar aðfarir hrylli- legt ofbeldi og svörtustu kúgun, eins og það líka væri. En þegar sömu aðferðum er beitt austan járntjaldsins gegn stjórnarand- stöðunni þar, þá er þeim sungið lof og dýrð af kommúnistum. Af þessu er auðsætt, að komm- únistar ætlast ekki til að rúss- neskt stjórnarfar sé tekið upp á íslandi, fyrr en kommúnistar’eru seztir þar að völdum. Þeir kæra sig ekki ekkert um að vera lok- aðir inni í fangaklefum, en þeir áskilja sér rétt til að níðast á öðrum, þegar þeir komast hönd- um undir. En það mega kommúnistar vita, að sterkur meiri hluti íslenzku þjóðarinnar lætur það aldrei við- gangast, að rússneskt stjórnarfar festi rætur á íslandi, nema þjóðin verði kúguð til þess með ofbeldi. En er það ekki einmitt það, sem kommúnistar keppa eftir með öllum sínum tilræðum og vél- ræðum? Kenningar kommúnista um „kristilegt“ framferði. Þó að kommúnistar krefðust þess fyrir fáum árum, að íslend- ingar færu í stríð við Þjóðverja, þá prédika þeir nú kröftugiega, að íslenzka þjóðin verði að halda sér stranglega við hlutleysi. Svo harðir eru þeir í hlutleysislín- unni, að þeir telja það sálarháska, að íslendingar afli sér öryggis gegn ofbeldi og árás. Og þeir hafa fengið bandamenn, sem segja, að það sé ókristilegt að verja sig gegn misþyrmingum. Þeir minna á orðin: Rísið ekki gegn mein- g'erðamanninum. En hvernig er svo þetta hlut- leysi kommúnista? Þeir halda því frcim, að Banda- ríkjamenn séu meingerðamenn í garð íslendinga, æt.li að fleka þá inn í hernaðarbandalag við sig og svifta þá síðan öilu þjóðarsjálf- stæði. Gegn þessu fyrirhugaða ofbeldi Bandaríkjamanna vilja þeir láta þjóðina bindast vai’nar- samtökum. Þetta brýtur nú reyndar alveg í bága við þá kenningu, að ekki megi verja sig gegn meingerðamanninum, af því að það sé ókristilegt. Ut úr þessu verður aðeins dregin ein áiyktun, og hún er á þessa leið: Við eigum áð verja .okkur fyrir ofbeldi frá Bandaríkjunum. Það er hvorki hlutleysisbrot eða ókristilegt. En við megum á eng- an hátt treysta öryggi okkar fyrir ofbeldi. ,og árásum úr austurátt. Það er bæði hlutleysisbrot og ókristilegt. ísland á að vera opið og varnarlaust fyrir yfirgangi Rússa. Friðarvilji Rússa. Af sama -toga er þaðispunnið að kommúnistum yer;;;'meinilla við alla efnahagsþróun Vestur-Ev- rópu og alla Marshallaðstoð í því sambandi. Þeim er það mikið áhugamál að lýðræðisríkin verðj efnalega ósjálfstæð og einangruð hvert frá öðru. Þá er miklu auð- veldara fyrir Rússa að bjóða þeim birginn sitt í hverju lagi. . Vesturveldin.eða lýðræðisríkin þar vinna að því að stofna með sér svo öflugt varnarbandalag, að það riægi til vei'ndar friði í heim- inum. Kommúnistar staðhæfa, að Rússar séu framúrskarandi frið- arvinir og geti því ekki látið sér til hugar koma að hefja árásar- stríð gegn öðrum þjóðum. Ef þetta væri af heilindum mælt, ættu Rússar ekkert að hafa á móti því, að vesturveldin tryggðu frið fyrir sitt ley.ti. En eins og kunnugt er, fjandskapast komm- únistar mjög við varnarbanda- lagi hinna vestrænu þjóða til tryggingar friðinum. Þetta kalla þeir stríðsæsingar. Þeir eru há- værir og illyrtir út af því, að vestrænar þjóðir hervæðist til varnar árásum, telja slíkt glæp- samlegt gagnvart friðarhugsjón Rússa,. en stórfelldan herútbúnað austan járntjaldsins telja þeir sjálfsagðan og mikið hnoss. Veguriiin er áðeins einn. Þegar öll málsmeðferð komm- únista er skoðuð niður í kjölinn, eru vegir þeirra ekki eins tor- skildir og^sumum virðist. Vegur- inn er í raun og veru aðeins einn, og það ætti að vera öllum ljóst, hvað fyrir þeim vakir. Takmark þeirra er, að Sovétríkin verði svo hernaðarlega sterk, að þau hafi ráð lýðræðisríkjanna í hendi sér, en þau eiga að vera svo kristilega sinnuð, að þau haldi að sér hönd- um, hafist ekki að og verði óvið- búin, þegar Rússum þóknast að smella handjárnunum á þau. Þetta er óskadraumur kommún- ista, þó að þeir bregði yfir sig ýmis konar þjóðernislegum hræsnishjúp til að villa mönnum sýn, og hafi í kjafti sér prestana FIMMTUGUR: Hannes J. Magnússon, skólastjóri Hannes J. Magnússon, skóla- stjóri, varð hálfrar aldar í gær, 22. þ. m. I þeirri tröppu ævidags- ins er gæfunnar barni gott að standa. Sólríkt árdegið er liðið meðan unnið var af dáð og drengskap sér og öðrum til vaxtar og geng- is, og framundan er glampandi síðdegið og óþrotleg verkefni, er biðu úrlausnar heilhuga starfs- manns. Á þessum afmælisdegi Hann- esar hefur margur sent honufn hlýja heillakveðju — sýnilega eða ósýnilega — því að fjöld á hann vina á öllum aldursskeiðum, er eiga honum þakkarskuld að gjalda. í þeirra hópi tel ég mig vera, og þykir mér gott að eiga þess kost að senda honum afmæl- iskveðjuorð hér í blaðinu. Ekki gerist þess þörf að svara hér spurningunni: Hver er mað- urinn? Hannes J. Magnússon hefur svarað þeirri spurningu sjálfur á óbeinan hátt. Störfin hans í þágu þjóðfélags- ins og einstaklinga, bækurnar, sem hann hefur samið, blaða- og tímaritsgreinar og erindin, sem hann hefur flutt á mannfundum, allt þetta hefur með öðru gert hann þjóðkunnan, vinsælan og vinmargan. Hér verður hvorki rakin ætt Hannesar né æviferill á genginni braut hans. Það hefur verið rækilega gert af öðrum á öðrum stað vegna afmælis hans. Dagsönnin gefur okkur sjaldn- ast færi á því að sökkva hugan- um í haf minninganna um liðnar stundir, er við höfum átt með góðum samleiðarmönnum, eða um atburði, sem að baki eru — geymdir, en þó ekki gleymdir. Þó „koma stundum þær stundir“,_ Sigurbjörn Einarsson og Jakob Jónsson til þess að hylja úlfs- tennurnar. Lýðræðisríkin voru óviðbúin, þegar Hitler hóf síðasta stríð. Þess vegna varð það svo örlaga- ríkt. Rússar eru dyggir lærisvein- ar nazista. Vesturveldin ætla ekki að gera þeim það til geðs, að brenna sig aftur á sama soðinu. Þau ætla ekki að fylgja boðinu: „Bíddu nú hérna, maður minn, meðan ég sæki handjárnin“. að minningarnar þyrpast að, boðnar og óboðnar. Það er stórafmæli vinar eða samverkamanns, eða annars kon- ar stórar stundir, er því valda. Mörg ár eru liðin frá því, er ég sá Hannes J. Magnússon í fyrsta skiptið, þ. e. a. s., sá hann þannig, að mér sé minnisstætt. Vera má þó, að hann hafi borið mér fyrir augu í hópi drengilegra manna nokkrum sinnum áður, án þess að ég veitti honum sérstaka at- hygli. í þetta skipti stóð hann á ræðupalli á þingi S. í. B. og flutti mál sitt, rólegur og prúðmann- legur, svo sem hann ávallt er, festulegur á svip og óveill í mál- flutningi. Þegar hann hafði lokið ræðu sinni, þótti mér sem ég ger- þekkti manninn og kennarann, Hannes J. Magnússon. Þá voru kröpp kjör íslenzkra barnakennara og unglingakenn- ara, og var því næsta mannlegt, að efst væri í huga og um rætt á samfundum þeirra, hvernig þeir gætu fengið bætt launakjör sín, svo að lífvænleg mættu teljast þeim, er trúir vildu vera í starf- inu og þó vaxandi menn af því. , Ekki var það þetta, sem Hannes’ ræddi um, þótt honum væri aug- ljós þörfin á umbótum í þeim efnum. Annað lá honum enn þyngra á hjarta. Það átti að vera þyngst á metunum í hugum allra barnakennara: Hvernig gelum við orðið sem styrkastir og nýtastir liðsmenn í því uppeldisstarfi, sem við höfum tekizt á hendur og viljum hclga krafta okkar? Annars vegar sá hann, hversu góð og traust heimili eru máttug í uppeldisáhrifum sínum, þótt ekki séu öll börn sömu góðu eðl- iskostunum gædd. Þar hjálpa góðir uppeldishættir og góð upp- eldisskilyrði að gera börnin að trúverðugum mönnum og hollum þjóðfélagsþegnum. Hins vegar sá hann heimilin, sem af einliverjum ástæðum geta ekki veitt börnum sínum heppi- leg og fullnægjandi uppeldisskil- yrði. En hvorum flokknum sem heimilin tilheyra, þurfa þau á að- stoð góðra skóla og vel hæfra kennara að halda. Skólarnir eiga að vera annar uppeldisaðilinn, máttugur og heill. Þess vegna þurfa heimili og skólar að tengj- ast traustum böndum með heil- indum og án tortryggni. Og þar eiga kennarar að eiga drjúgan hlut að máli. En til þess að svo megi fara, þurfa þeir að gefa starfinu sjálfa sig. Á þessa leið talaði Hannes þarna á ræðupallinum og svaraði með orðum spurningunni, er hann hafði borið upp. En hann hefur einnig leitazt við að svara henni með starfi sínu og lífi. Uppeldismálin — í rýmstu merkingu orðsins — eru hug- sjónamanninum og mannvinin um Hannesi hjartfólgin og hug- stæð. Þess vegna gerðist hann skólamaður. Á fyrstu manndómsárum sín- um hét hann uppeldis- og skóla - málunum hollustu sinni og þjón- ustu, og þeim'málum hefur hann reynzt trúr í skóla og utan skóla. Hann veit, að litla þjóðin hans getur orðið gagnmenntuð, sið- fáguð og sterk fyrir sameinuð átök góðra heimila og góðra skóla. Mér þykir vel á þvi fara, að hér eigi með mér orð í belgnum drengur, sem lauk fullnaðar- prófi í Barnaskóla Akureyrar fyrir nokkrum árum, einn af nemöndum Hannesar. Við áíium samleið úr skólan- um lítlnn spöl, og ég sá í svip drengsins sólskin og gleði. Mér fannst hann þurfa að segja mér eit.thvað, svo að ég kom á móti honum og segist sjá það á honum, að honum hafi liðið vel í skólan- um þennan morgun. „Mér líður ævinlega vel í skól- anum og þykir skemmtilegt að vera þar. Ég get ekki hugsað mér yndislegri kennara en Hannes er,“ sagði drengurinn. Sennilegt er, að flest eða öll böi’nin í bekknum hefðu kveðið upp svipaðan dóm. Og betri kve6ju get ég ekki skilað til Hannesar á fimmtugsafmælinu en þessi er frá skólabarni hans. Ég vil svo að síðustu flytja horium þakkii; fyrxr ’hans miklu og góðu afskipti af uppeldis- ög skólamálum þjóðarinnar. Ég þakka honum vináttu, góðgirni og hlýju í minn garð og óska honum gengis og giftu í sínu voryrkjustarfi. Egill Þórláksson. Molasykur Strásykur Kandíssykur Flórsykur Skrautsykur (sem ekki er skámmtaður). Vöruhúsið hi. V : J Létt starf Stúlka eða eldri kona óskast sem fyrst til léttra starla. Reglusamur og þrifinn karl- maður, sem viidi vinna inn- anhússtörþgæti éinnig kom- ið til greina. Upplýsingar í síma í Skjaldarvík. Stefán Jónsson. Eversharp lindarpenni íundinn. Afgr. vísar á. o

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.